Frjáls verslun - 01.07.1995, Blaðsíða 33
maður þegar hann og faðir hans,
Sveinn Eyjólfsson, komu inn sem
fyrstu hreinu fjárfestarnir inn í fyrir-
tækið. Eyjólfur kom inn kynslóðinni
yngri en við sem vorum fyrir í stjóm
Fjarhönnunar og töldum okkur allt
vita af langri reynslu í ólgusjó íslensks
athafnalífs. Fljótlega kom þó í ljós að
Eyólfur bætti við ýmsu sem við ekki
höfðum, bæði af reynslu, menntun og
hæfileikum, er kom sér vel í þeirri
vinnu sem nauðsynleg er til að koma
fyrirtæki í útflutningi á hátæknivöm
þangað sem það ætlar sér að fara en
veit ekki alltaf hvort það tekst.
Þannig hefur Eyjólfur haft mjög
mótandi áhrif á tvo meginþætti í okk-
ar rekstri, annarsvegar gæðastjórn-
unarmálin þar sem náðst hefur sá ár-
angur að nánast er undantekning að
jafnvel flóknustu verkefrii standist
ekki tfrna og kostnaðaráætlanir, og
hinsvegar samninga og samskipti
okkar við þau stóru fjölþjóða fyrirtæki
sem í dag eru annaðhvort umboðsfyr-
irtæki okkar Unisys, Loral, Celcius
eða samstarfsfyrirtæki okkar eins og
Apple, High Speed Information o.fl.
en Eyjólfur sér um erlend samninga-
mál okkar fyrir hönd stjórnar. í þess-
um málum er eitt að koma á samning-
um við slíka aðila, annað að koma því á
og í gang sem samið er um og þriðja
að sjá um að þróunin verði sú sem
aðilar stefndu að. Þess vegna skiptir
öllu máli fyrir lítið fyrirtæki eins og
okkar til að ná árangri í þessum efnum
að vinna þannig að við náum utan um
alla þessa þætti á jafnfætisgrundvelli
við þessa aðila.
Ferlarnir í þessu efni eru nefnilega
miklu lengri og flóknari heldur en
margir hérlendis gera sér grein fyrir
og oft er kapphlaupið milli tfrnafaktor-
anna og framþróun tækninnar á með-
an hver þáttur er leystur á við bestu
sápuóperur. Það er einmitt í þessum
þáttum sem ég hef mest unnið með
Eyjólfi bæði hér heima og erlendis.
Eyjólfur er nefnilega hlutbundinn og
strategískur í vinnubrögðum, tekur á
málum í upphafí, sem á því stigi virð-
ast ekki alltaf hafa þýðingu, en kemur
svo í ljós á lokastigum að hafa úrslita-
þýðingu. íslendingum hættir nefni-
lega allt of oft til að ætla að ná öllu
strax í erlendum samskiptum og sjá
þá ekki fyrir að hinn aðilinn beitir ein-
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
mitt þessum öguðu strategísku
vinnubrögðum. Hann verður því oftar
en ekki ofaná í því að ná því fram sem
máli skiptir.
Sérstaklega hef ég tekið eftir því að
á erlendri grund hefur hann áorkað að
hafa sömu áhrif og ná sama árangri og
hjá okkar samstarfsaðilum. Eyjólfur
er ekki bara vel gefinn heldur einnig
gefið að taka hlutbundið á málefninu
en setja manninn og þar með sjálfan
sig til hliðar. Þessa kosti hans vilja
sjálfsagt margir nýta og gera það enda
er Eyjólfur með uppteknari mönnum í
dag, sem hann mætir yfirleitt með því
að nýta sinn eiginn tfrna enn betur og
hef ég kynnst fáum sem eru jafnokar
hans í þeim efnum.
H-Laun
Heildarlausn sem einfaldar
Launabókhald
ÞAÐ ER EKKI EFTIR NEINU AÐ BÍÐA
Komdu með í hópinn:
Eimskip 30 sjúkrahús Samskip
Skeljungur 12 heilsugæslustöðvar Olís
Toyota 41 sveitarfélag Ræsir
Bergdal Síld & fiskur Vero Moda
Skífan
TÖLVUIiliÐLUn Tölvumiðlun hf,
Grensásvegi 8,
Sími: 568 8517
33