Frjáls verslun - 01.07.1995, Blaðsíða 34
NÆRMYND
Skemmtilegt blað
í strætó - og auðvitað á bak við auglýsingu frá DV.
Helst vildi maður samt
sjá að Eyjólfur færi að
gefa sér meiri tíma fyrir
sjálfan sig, því þannig
verða menn eins og hann
betri og betri og endast og
endast og svo þyrfti mað-
urinn auðvitað að fara að
gifta sig.“
HVAÐ SEGJA VINIR OG
FÉLAGAR?
Helgi Jóhannesson lög-
fræðingur, sonur Jóhann-
esar L. L. Helgasonar,
heitins, sem hefur verið
nánasti vinur Eyjólfs síðan
þeir sátu saman 7 ára
gamlir í Æfingaskóla
Kennaraskólans segir að
hann sé mjög skapandi og
frumlegur í hugsun og eigi auðvelt
með að koma með óvenjulegar lausnir
og óhefðbundnar hugmyndir.
„Hann er ftjór í hugsun, frumlegur
og skarpur," segir Helgi.
Haraldur Sturlaugsson forstjóri
Haraldar Böðvarssonar á Akranesi
sagði í samtali við blaðið að hann bæri
traust til Eyjólfs og vænti góðs af
samstarfi við hann.
„Hann er áhugasamur og klár,“
segir Haraldur. „Margir klárir menn
halda að þeir viti allt en Eyjólfur en
ekki einn þeirra. Menn eins og hann
þroskast hraðar en aðrir vegna
þess.“
Stefán Eggertsson hjá VSÓ-
tækni- og rekstrarráðgjöf, sem hefur
unnið talsvert með Eyjólfi, sagði að
lýsingarorð eins og skarpur og vinnu-
samur væru meðal þeirra fyrstu sem
kæmu upp í hugann þegar spurt væri
um Eyjólf.
„Annars finnst mér hann hafa líf-
lega og góða framkomu og vera
skemmtilegur vinnufélagi."
Mörgum finnst með ólíkindum hve
frami Eyjólfs hefur verið skjótur á
þeim stutta tíma frá því að hann kom
heim frá námi. Ari Edwald, vinur hans
bendir á að hæfileikamenn séu ávallt
eftirsóttir og Eyjólfur hafi fljótlega
sýnt að hann sé verður þess trausts
sem menn setja á hann.
„Ég tel hiklaust að Eyjólfur sé um
þessar mundir áhrifamesti maður
sinnar kynslóðar," sagði Ari.
Lífshættir Eyjólfs eru um margt
sérstæðir. Hann vinnur gífurlega
mikið og sökkvir sér niður í viðfangs-
efni sín af mikilli einbeitingu. Hann
lifir að mörgu leyti spartönsku lífi sem
gengur þvert á borgaralegan bak-
grunn hans og hann skammtar sér oft
naumt. Þannig er Eyjólfur einhleypur
og býr einn í íbúð sem hann á í Álfta-
mýri. Það mun ekki vera hefðbundið
borgaralegt heimili og lítt búið hefð-
bundnum stöðutáknum ungia manna
á uppleið. Eyjólfur lifir mjög reglu-
sömu lífi, hefur stundað íþróttir á
borð við skvass, körfubolta og hlaup.
Hann hljóp m.a. nokkrum sinnum
maraþonhlaup á meðan hann bjó í
Bandaríkjunum í fimm ár. Hann hefur
talsverðan áhuga á bókmenntum og
les mikið þegar hann tekur sér stund-
ir frá krefjandi verkefnum.
Hann er ekki í neinum félögum eða
samtökum þar sem krafist er reglu-
legra mætinga og stundar lítið
skemmtanalífið. Hann fer mikið á tón-
leika og hefur mikinn áhuga á alls kyns
tónlist, ekki alltaf hefðbundinni. Hann
sækir mikið leikhús og er alæta á
kvikmyndir og sér allar kvikmyndir
sem eru sýndar á íslandi og rúmlega
það.
Hann á stórt og öflugt mótorhjól,
Suzuki Intruder og er meðlimur nr.
948 í Sniglunum, bifhjólasamtökum
lýðveldisins. Þrátt fyrir allt er hann
meðvitaður um engilsaxneskt orðatil-
tæki sem segir að: „All work and no
play makes Jack a dull boy“ og myndi
útleggjast þannig að vinnan ein nægði
engum til lífsfyllingar. Náinn vinahóp-
ur Eyjólfs er þröngur og telur í raun
aðeins hann Ara Edwald, aðstoðar-
mann Þorsteins Pálssonar sjávarút-
vegsráðherra, og Helgajóhannesson
lögfræðing. Þetta tríó fer saman í
kvikmyndahús stöku sinnum og síð-
astliðinn vetur var settur á laggimar
körfuboltahópur þar sem þeir þrír
fengu nokkra aðra kunningja og skóla-
félaga til liðs við sig og léku körfu-
knattleik sér til heilsubótar í Austur-
bæjarskólanum. Benedikt Bogason,
starfsmaður Hæstaréttar, Svanbjöm
Thoroddsen, framkvæmdastjóri
VSÓ, og Símon Sigvaldason, lög-
fræðingur í dómsmálaráðuneyti, eru
meðal körfuboltafélaganna.
Ekki er Eyjólfur alveg laus við
veiðidellu og þeir Ari, Helgi og hann
fara saman í silungsveiði að minnsta
kosti einu sinni á sumri ef kostur er.
Fyrstu ferðimar voru famar í vötnin á
Arnarvatnsheiði í sumar var veitt í
Þorskafjarðará í landi Kollabúða í
Þorskafirði en Sveinn, faðir Eyjólfs, á
þar land ásamt fleimm.
Þannig sýnir nærmynd af Eyjólfi
Sveinssyni okkur ungan mann sem
margir binda miklar vonir við, ungan
mann sem ræður forsætisráðherra
og stjómendum stærstu fyrirtækja
heilt en þeysir um á mótorfák í leðri
þegar sá gállinn er á honum.
34
J