Frjáls verslun - 01.07.1995, Blaðsíða 138
BÆKUR
Bókin VirgingKing:
BRANSON ER OFTAST
KALLAÐUR KING MIDAS
Bráðskemmtileg bók um Richard Branson, mestu goðsögnina í breska
viðskiþtaheiminum. Er hann sambland afjóni Olafssyni ogDavíð Scheving?
Heiti bókar: Virgin King — Insi-
de Richard Branson’s Empire
Höfundur: Tim Jackson
Útgefandi og ár: Harper Collins
Publishers — 1995
Lengd bókar: 405 bls.
Hvar fengin: Erlendis
Einkunn: Skemmtilegogupplýs-
andi bók um ævintýramanninn
og goðsögnina í breska við-
skiptaheiminum í dag
VIÐFANGSEFNIÐ
Richard Branson er mesta goð-
sögnin í breska viðskiptaheiminum og
hefur svo verið um margra ára skeið.
Hann er stofnandi og aðaleigandi að
fyrirtækjum sem öll hafa forskeytið
Virgin, s.s. hljómplötuhúsin Virgin
Megastores (m.a. 2 slíkar á Oxford-
stræti Lundúna), síðan kom Virgin
Atlantic flugfélagið, Virgin bókaút-
gáfa, Virgin útvarpsstöð og nú síðast
Virgin Cola. En hann hefur komið ná-
lægt mörgu fleiru. í bókinni eru rakt-
ar allar hugdettur hans, bæði þeim
sem hleypt hefur verið af stokkunum
og ekki síst frá hinum sem aldrei urðu
að veruleika. Honum hefur dottið svo
margt ókkt í hug að það má segja að
ekkert hafi verið honum óviðkom-
andi í fyrirtækjarekstri.
Þekktastur er Branson fyrir
uppátæki sín til að vekja athygli á
sjálfum sér og fyrirtækjum sínum.
Þykir hann manna færastur í al-
mannatengslum og hefur tekist að
gera starfsemi sína að jákvæðum
fjölmiðlamat úr nánast öllu, sem
hann hefur tekið sér fyrir hendur.
Hann er afburðasnjall að virkja starfs-
fólk og fá fólk til að starfa með sér en
þó sérstaklega fyrir sig.
HVER ER MAÐURINN?
Fullt nafn hans er ákaflega virðu-
legt og enskt en það er Richard Char-
les Nicholas Branson og fæddist hann
árið 1950. Þar sem hann var kominn
af góðri lögmannaætt, en afi hans var
„Sir“ og hæstaréttardómari og faðir
hans hæstaréttarlögmaður, var búist
við því að hann fetaði í fótspor feðr-
anna og lærði lög. En þvert gegn
væntingum þeirra þá hætti hann námi
eftir skylduna. Hann auðgaðist á
hljómplötuútgáfu og hefur síðan verið
að ráðast á garðinn þar sem hann er
hæstur með því að fara í dómsmál
gegn stórveldinu British Airways
fyrir óheiðarlega viðskiptahætti og nú
síðast réðist hann gegn stórveldunum
Coca-Cola og Pepsi-Cola með nýjum
kóladrykk. Hann er dáður af yngri
kynslóðinni í Bretlandi og nýtur sér-
staklega mikillar almenningshylli og
trausts í skoðanakönnunum þar í
landi.
HRÖÐ ÞRÓUN
Virgin er stofnað í kringum 1970,
þegar Branson er aðeins 20 ára. Þá
einbeitir hann sér að popp-„bransan-
um“ og rekur hljómplötuverslun og
gefur út plötur. Grunnurinn að vel-
gengninni hefst 1973 með útgáfu plöt-
unnar Tubular Bells með Mike Old-
field. Næstu ár á eftir bætast fleiri
þekktir popplistamenn í hóp Virgin
útgáfunar og 10 árum síðar, eða 1983,
þegar fyrirtækið hafði verið í lægð í
smátíma sló Boy George í gegn (en
útsendarar Virgin uppgötvuðu hann)
og fyrirtækið fór að mala gull á nýjan
leik. Þá varð til Virgin Games, sem
framleiðir tölvuleiki, og verður það til
á hárréttum tíma eða í upphafi þeirrar
bylgju tölvuleikja sem fylgdi á eftir.
Stofnun flugfélagsins kemur síðan í
kjölfarið, árið 1985, og Branson þá
aðeins 35 ára. Þá er fyrirtækinu
breytt í almenningshlutafélag og til að
vekja athygli fjölmiðla á því (og sjálf-
um sér) þá reynir hann að setja hraða-
met yfir Atlantshafið á skútunni Chal-
lenger og tekst það. Örfáum árum
síðar kaupir hann aftur fyrirtækið og
það breytist í hans einkafyrirtæki á
ný.
Á árunum 1990 til 1992 selur hann
síðan hluti í plötufyrirtækinu og í
verslununum og áherslan er lögð á
Virgin Atlantic, sem stækkar óðfluga.
Síðan rekur hver nýjungin aðra.
Árið 1993 er það Virgin útvar-
psstöðin sem hefur starfsemi sína.
Árið 1994 býðst hann til að reka
lottó Breta og greiða út allan hagn-
að í vinninga en er hafnað af yfir-
völdum og þá snýr hann sér að því
að setja á markað gosdrykkinn
Virgin Cola. í ársbyrjun þessa árs
BJón Snorri Snorrason,
aðstobarframkvæmda-
stjóri Lýsingar og
stundakennari við
Háskóla íslands, skrifar
reglulega um viðskiþta-
bækur t Frjálsa verslun.
138