Frjáls verslun - 01.07.1995, Blaðsíða 32
Við bryggjupollann. Eyjólfur er stjórnarformaður Haraldar Böðvarssonar
hf. á Akranesi og varaformaður í stjórn rækjuverksmiðjunnar Ritur á Vest-
fjörðum.
irlits ríksins og Ólafur Eyjólfsson,
bróðir hans, er skrifstofustjóri. Með
tilkomu Eyjólfs er því kominn meiri
svipur fjölskyldufyrirtækis á DV en
oft hefur áður verið í 20 ára sögu
blaðsins.
Foreldar Auðar voru Fríða Þorgils-
dóttir matráðskona og Ástvaldur Eydal
en foreldrar Sveins voru Kristín
Bjamadóttir bankastarfsmaður og Eyj-
ólfur Sveinsson verslunarmaður.
Þannig má segja um forfeður Eyjólfs að
þar sé á ferðinni venjulegt alþýðufólk.
HAFÐISNEMMA ÁHUGA
Á STJÓRNMÁLUM
Eyjólfur fór í Verslunarskólann og
er mörgum skólasystkinum sínum
verulega minnisstæður fyrir virka
þátttöku í félagslífi skólans og meðal
annars snarpar atlögur í ræðukeppn-
um sem hann sýndi mikinn áhuga.
Eyjólfur sýndi þá þegar mikinn áhuga
á félagsmálum sem hann hefur ávallt
haft mikinn metnað til. Hann var kjör-
inn til Stúdentaráðs fyrir Vöku árið
1985. Þar kynntust þeir Ari Edwald
sem sat í Stúdentaráði fyrir umbóta-
sinnaða stúdenta og hafa verið góðir
vinir síðan.
Ari segir Eyjólf hafa skarpan skiln-
ing á pólitík og mikið innsæi í þjóðfé-
lagsmál. Margir töldu hann hafa kom-
ið ár sinni talsvert vel fyrir borð þegar
hann var aðstoðarmaður Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra mestallt
síðasta kjörtímabil. Urðu ýmsir til
þess að spá Eyjólfi talsverðum póli-
tískum frama og sáu jafnvel í honum
ráðherraefni náinnar framtíðar. Þau
vistaskipti sem nú hafa orðið þar sem
Eyjólfur flytur búferlum úr hjáleigunni
við Lækjargötu upp í ættaróðalið við
Þverholt, er vísir til hins gagnstæða,
þ.e. að Eyjólfur telur tíma sínum og
orku betur varið í viðskiptalífmu en í
hinni pólítísku vfglínu á launum hjá
hinu opinbera. Kunnugir heimildar-
menn segja að Eyjólfur hafi í raun ekki
endanlega ákveðið sinn starfsvett-
vang þótt hann flytji nú í Þverholtið en
fullyrða jafnframt að hann hafi lítinn
áhuga á pólitískum frama í hefðbundn-
um skilningi.
GATSÉRGOnORÐÁDVOG
í AMERÍKU
Þetta eru ekki fyrstu kynni Eyjólfs
af starfsemi DV því á skólaárum sín-
um vann hann í tvö sumur sem al-
mennur blaðamaður og vann sér fljótt
virðingu samstarfsmanna sinna þótt
mönnum með hans bakgrunn sé jafn-
an tekið með nokkurri varúð af rétt-
um og sléttum blaðamönnum. Hann
þótti þægilegur í umgengni, duglegur
og fljótur að tileinka sér þau vinnu-
brögð sem þarf.
Eyjólfur hefur haft talsverð afskipti
af viðskiptalífinu nú þegar. Hann er
menntaður rekstrarverkfræðingur
sem lærði fyrst við Háskóla íslands
og síðar við Columbiaháskólann í
Bandaríkjunum. Þar var einn helsti
prófessor hans, Denning, sá sem
hugtakið gæðastjórnun er jafnan
kennt við og er fullyrt að hann hafi
haft mikið dálæti á Eyjólfi og talið
hann meðal sinna efnilegustu nem-
enda.
Eftir að námi Eyjólfs lauk við Col-
umbia stofnaði hann ráðgjafarfyrir-
tækið QME eða Quality Management
Enterprises í Bandaríkjunum og
starfaði þar með góðum árangri í tvö
ár. Hann er ennþá hluthafi í því fyrir-
tæki.
Eyjólfur kom heim að loknu námi
og starfi og tók árið 1992 þátt í að
stofna fyrirtækið VSÓ-rekstrarráð-
gjöf ásamt Stefáni Eggertssyni og
Bjama H. Frímannssyni. Ennfremur
veitti hann íslandsbanka rekstrarráð-
gjöf og stuðlaði ásamt föður sínum að
stofnun fyrirtækisins Fjarhönnun
sem er hugbúnaðarfyrirtæki sem
Gunnlaugur Jósepsson rekur en
Gunnlaugur og Sveinn hafa þekkst
um árabil og þeir feðgar voru fyrstir
til þess aðfjárfesta í Fjarhönnun.
Fyrirtækið hefur framleitt hugbúnað í
svokallaða vaka, s.s. Ferðavaka og
náð afar hagstæðum samningum t.d.
við risafyrirtækið UNISYS. Þeir
samningar voru, skv. heimildum
blaðsins, fyrst og fremst verk Eyjólfs
sem sýndi mikla hörku og útsjónar-
semi við samningagerðina. Þá hefur
Eyjólfur og tekið þátt í undirstöðuat-
vinnuvegi þjóðarinnar með þeim
hætti að hann er stjómarformaður
Haraldar Böðvarssonar hf. á Akra-
nesi sem er gamalgróið fjölskyldufyr-
irtæki í fiskvinnslu og útgerð og er
stærsti vinnuveitandinn á Vestur-
landi. Eyjólfur tók við stjómarfor-
mennsku af Magnúsi Gunnarssyni,
fyrrverandi formanni VSÍ.
STRATEGÍSKUR 0G AGAÐUR í
VINNUBRÖGÐUM
Gunnlaugur Jósefsson, fram-
kvæmdastjóri Fjarhönnunar hf., hafði
eftirfarandi um Eyjólf Sveinsson að
segja:
„Eyjólfur Sveinsson tengdist Fjar-
hönnun fyrir 3 ámm sem stjómar-
32