Frjáls verslun - 01.04.1997, Blaðsíða 18
Sérþekking starfsfólksins er dýrmætasta eign fyrirtækisins. SP-Fjármögnun er til húsa við Vegmúla og hér sést starfs-
fólkið í hóp á tröppunum.
EIGNARLEIGA S
□ að er okkur mjög mikilvægt að hafa
sparisjóðina sem bakhjarl. Bæði er
það gríðarlegur styrkur að viðskipt-
um er beint til okkar gegnum sparisjóðina og
einnig að við seljum skuldabréf til fjármögn-
unar starfsemi okkar og þar hjálpar auðvitað
mikið að sparisjóðirnir eru mjög vel kynntir
og njóta mikils trausts," sagði Pétur Gunn-
arsson hjá SP-Fjármögnun í samtali við
Frjálsa verslun.
SP-Fjármögnun er eignarleigufyrirtæki í
eigu sparisjóðanna. Þetta er ungt fyrirtæki í
árum talið því það var stofnað í byrjun árs
1995 þegar nokkrar breytingar urðu á þess-
um markaði. Þá sameinuðust Glitnir og Fé-
fang og Lind var lögð niður nokkru áður. Þá
sáu sparisjóðirnir sér leik á borði og komu
inn á markaðinn.
„í upphafi voru fjórir starfsmenn hér sem
áttu það sameiginlegt að hafa áður starfað
Pétur Gunnarsson hjá SP-Fjármögn-
un segir að góður orðstír sparisjóð-
anna sé mikill sfyrkur, en SP-Fjár-
mögnun er í eigu sparisjóðanna.
hjá Féfangi. Það var mat manna að hag-
kvæmt væri að fjárfesta í þeirri sérþekkingu
sem starfsfólk í svona fyrirtæki þarf að hafa.
Hér verður að fara saman ákveðin viðskipta-
þekking og innsýn í atvinnulífið og þekking á
einstökum sviðum þess. Þannig getur fyrir-
tækið betur metið áhættu sína og myndað
sterkari tengsl við viðskiptavinina."
SÉRÞEKKING STARFS-
MANNA MIKILVÆG
Skipta má starfsemi SP-Fjármögnunar
gróflega í tvo flokka. Annars vegar snýr starf-
semin að atvinnulífinu þar sem fyrirtækið er
að fjármagna kaup á alls kyns atvinnutækj-
um, vörubílum, traktorsgröfum, jarðýtum,
fiskvinnsluvélum, lyfturum, landbúnaðar-
tækjum og prentvélum, svo fátt eitt sé nefnt.
„Sérþekking starfsmannanna birtist í því
að meta til hvaða atvinnutækja sé vænlegt
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON EZE^SEHI322E1EI3[
18