Frjáls verslun - 01.04.1997, Blaðsíða 84
.....'""'""""flT""i"' UMHVERFI FYRIRTÆKJA
GRÓDUR SETUR SVIP Á
UMHVERFIFYRIRTÆKJANNA
arðyrkjuáhugi vex stöðugt
meðal almennings og íbúðar-
húsin eru varla
risin þegar
komnir eru fallegir garð-
ar umhverfis þau. Nú
virðist sem segja megi
hið sama um mörg fyrir-
TEXTIOG MYNDIR:
Fríða Björnsdóttir
tæki. Mikil áhersla er lögð á snyrtilegt
útlit, húsin eru vel máluð eða klædd og
á sumrin baða þau sig í
trjám, runnum og blóm-
skrúði fallegra garða.
Það er af sem áður var
þegar iðnaðarhverfi
borgarinnar voru eins
og ruslahaugar yfir að líta. Á ágúst-
kvöldi í fyrrasumar brugðum við okkur
í garðaskoðunarferð og litum inn á lóð-
ir nokkurra fyrirtækja - hér sjáið þið af-
rakstur ferðarinnar. Alls staðar er
snyrtimennskan í fyrirrúmi og gróður-
inn vel á veg kominn og farinn að setja
svip á umhverfið. 55
Frá Smith og Norland í Nóatúni. Pétur Jónsson hannaði lóðina.
stjóri og aðaleigandi fyrirtækisins,
hafði ákveðið fyrir löngu að þegar og
ef hann byggði hús yfir fyrirtækið
myndi hann fá Magnús til þess að
gera eitthvað þessu líkt til þess að
skreyta umhverfið.” Magnús og
Sverrir fóru síðan saman að leita
steina í þessi tvö listaverk og sömu-
leiðis fyrir aðra staði á lóðinni. Tók sú
leit mikinn tíma, enda var vandað vel
til vals á steinunum.
Pétur Jónsson landslagsarkitekt
hannaði lóðina en Einar Þorgeirsson,
garðyrkjumaður í Birkihlíð, sá um
framkvæmdir. Hann kemur ávallt þeg-
ar einhverjar framkvæmdir eru á döf-
inni, svo sem ef skipta þarf um plönt-
ur eða klippa tré, og hefur einnig að
öðru leyti umsjón með hirðingu lóðar-
innar.
SMITH & NORLAND
mith & Norland er við Nóatún
og þar verður Jón Norland
framkvæmdastjóri fyrir svör
um Við spyijum hann fyrst um lista-
verkið fyrir framan húsið, sem minnir
okkur helst á hreindýr. „Það má alls
ekki blanda þessu verki saman við
eitthvert dýr,” segir Jón, „þótt mörg-
um finnist það minna sig á eitthvað
slíkt. Þetta er steinn með vængi úti í
miðri tjörn og er verk eftir myndlistar-
manninn Magnús Tómasson, þann
sama og gerði Þotueggið við Flugstöð
Leifs Eiríkssonar. Við hér í fyrirtæk-
inu segjum að einhvern tímann íljúgi
ef til vill steinninn því að segja má að
ekkert sé tækninni ómögulegt nú til
dags. Svo getur verkið líka verið tákn
um bjartsýnina. Inni i versluninni
erum við með annað verk eftir Magn-
ús - fugl á steini. Sverrir Norland, for-
VIFILFELL
□ ið leggjum mikið upp úr því að
hafa snyrtilegt í kringum okk-
ur,” segir Þorsteinn M. Jóns-
son, framkvæmdastjóri hjá Vífilfelli -
Coca Cola á Islandi - við Stuðlaháls.
Umhverfis verksmiðjubygginguna er
há vírnetsgirðing en innan hennar eru
litlar grasflatir, tré og runnar. „Við ráð-
um einn eða tvo unglinga hingað á
84