Frjáls verslun - 01.04.1997, Blaðsíða 72
og síðan fengu þær tíma til það full-
harðna áður en þeim var komið fyrir á
sínum stað. Mun lengri tíma hefði tekið
að steypa gólfin á hefðbundinn hátt og
bíða þess svo að þau þornuðu tíl fulls
svo hægt væri að leggja á þau gólfefni.
Þótt hraðinn væri mikill kom ekki til
þess, sem sumir höfðu óttast, að ef til
vill væru plöturnar ekki orðnar nægi-
lega þurrar og gólfefni kynnu að losna
af. Ekki hefur heldur orðið vart við
sprungur í veggjum umfram það sem
eðlilegt má teljast þrátt fyrir byggingar-
hraðann.
„Húsgögn voru flutt úr Kirkjusands-
húsinu í Sigtún og nýttust þau þar full-
komlega. Innréttingar eru úr mahóní,
en á gólfum eru þrenns konar gólfefni,
jatoba, gegnheilt parket, Artoleum
línóleumgólfdúkur og sérstakar ítalskar
flísar sem líkjast marmara en eru þó
verksmiðjuunnar,” segir Kristinn.
Skemmtilegt er að sjá hvernig ólík gólf-
efni eru látín mætast ekki með beinum
afmörkuðum línum heldur í mjúkum
bogalínum og gildir það jafnt um parket-
ið, dúkinn og flísarnar. Annað form er
einnig áberandi í byggingunni, eins
konar óreglulegur ferhyrningur sem
birtist í halla þaksins, formi útveggja,
sem ganga út úr báðum álmum bygg-
ingarinnar, og í stöplum, sem halda uppi
svölum á bakhliðinni, sem og í
steypuflekanum undir merki fyrirtækis-
ins á lóðinni. Þetta er sami halli og er á
útveggjum Ásmundarsafns, næsta ná-
granna Islenskra sjávarafurða. Formið
birtist okkur loks einnig í jafn einföldum
hlut og afgreiðsluborðinu í mötuneyt-
inu.
MIÐRÝMIÐ SKEMMTILEGA NÝTT
Við spyrjum Kristin hvort eitthvað sé
af nýjungum eða því sem óvenjulegt
megi teljast í fyrirkomulagi hússins.
„Mér finnst húsið í raun allt vera dálítið
sérstakt,” svarar hann. „Hið stóra mið-
rými í tengibyggingunni brýtur upp
skrifstofurnar. Þar kemst starfsfólkið í
annað umhverfi. Á neðri hæðinni er litla
matstofan og þegar menn fara þar í mat
er eins þeir séu að ganga út úr húsinu.
Þarna skin sólin inn á góðviðrisdögum
því útveggur matstofunnar og þak eru
úr gleri. Ennfremur er matstofan alveg
opin fram fyrir þá, sem koma i húsið, er
eins og horft sé inn í huggulegt veitinga-
hús. Þeir, sem sitja í matstoíunni, geta
Starfsfólk hefur komið sér vel fyrir í sófum og stólum á efri hæð miðrýmis
hússins. Fyrir aftan fólkið er hægt að standa við handriðið og horfa niður í
matstofuna.
Á hæðinni fyrir ofan matsalinn er að-
staða fyrir starfsfólk til þess að setjast
niður í notalegu umhverfi og ræða mál-
in. Ut frá miðrýminu eða tengibygging-
unni koma svo skrifstofur bæði á efri og
neðri hæð. Þar eð íslenskar sjávarafurð-
ir þurftu ekki á öllu hinu nýja húsnæði
að halda fyrst um sinn var hluti neðri
hæðar annarrar álmunnar leigður Sam-
vinnusjóði íslands.
FORSTEYPA GOLFANNA FLYTTI FYRIR
VERKINU
Hús IS er steinsteypt. Einangrað er
utan á veggina og síðan eru þeir klædd-
ir með ljósri álklæðningu. Eitt af því,
sem hafði hvað mest áhrif á byggingar-
hraðann, að sögn Kristins Lund, er að
gólfin voru forsteypt í forspenntum ein-
ingum. Strax í upphafi framkvæmda var
hafist handa við vinnslu gólfeininganna
BYGGINGARSAGAN
1995
í ársbyrjun er húseign Islenskra sjávarafurða á Kirkjusandi seld.
I febrúarlok: Menn fá augastað á lóðinni við Sigtún.
28. febrúar: Gengið ájund Arkitekta sf. og frumdrög að nýju húsi rissuð upþ.
3. mars: Gengið á Jund borgarstjóra ogsótt um lóð.
7. mars: Teikning afnýju húsi lögð fyrir stjórn IS, sem samþykkti að byggja.
4. apríl: Tilboð opnuð.
12. apríl: Gengið frá samningum við Ármannsfell hf.
12. apríl: Fyrsta skóflustungan tekin.
15. apríl: Vinna hefst við byggingu hússins.
28. september: Flutningar starfseminnar í nýja húsið hefjast.
30. september: Flutningum lokið.
1. október: Starfsemin hefst í Sigtúni 42.
30. nóvember: Lokið við frágang lóðar.
8. desember: Húsið formlega oþnað við hátíðlega athöfn.
1996
18. ágúst: Fegrunarviðurkenning Umhverfismálaráðs vegna lóðarinnar.
72