Frjáls verslun - 01.04.1997, Blaðsíða 89
súkkulaði samhliða sínum
eigin framleiðsluvörum.
„Mörgum finnst skrýtið
að Cadbury's skuli vilja vera
í samstarfi við framleiðanda á
markaðnum en sannleikur-
inn er sá að þetta skarast
ótrúlega lítið við okkar vörur
og við höfum sýnt mikla sölu-
aukningu milli ára í Cad-
bury's,“ sagði Hjalti.
íslendingar borða um 5.2
kíló af morgunkorni á mann
árlega og eru nokkuð fram-
arlega meðal þjóða heims að
þessu leyti. Það eru Irar sem
hafa forystu í þessu og borð-
ar hver Iri rúm 7 kíló af
morgunkorni árlega.
Flestir sérfræðingar eru
sammála um að sérpökkun
fyrir einstakar verslanakeðj-
ur og stórmarkaði og pakka-
vara af því tagi muni sækja
mjög á í hillum verslana á
næstu árum. Þetta er þróun
sem Hjalti segir að menn
fylgist afar vel með því hún
sé fremur skammt á veg
komin hérlendis.
„Okkar viðbrögð hljóta að
verða þau að vernda okkar
stöðu eftir megni og fá okkar
neytendur til að halda tryggð
við okkur.“
SKÍÐI, SKVASS, FÓTBOLTIOG
TENNIS
Hjalti er fæddur og uppal-
inn Reykvíkingur. Hann
gekk í Menntaskóiann í
Reykjavík og nam viðskipta-
fræði við HI í einn vetur áður
en hann hélt utan til Banda-
ríkjanna í svokallað under-
Hjalti Jónsson, markaðsstjóri hjá Nóa-Síríusi; Hver
Islendingur borðar um 13 kíló á ári af sælgæti að jafnaði.
FV mynd: Kristín Bogadóttír.
fyrirtækinu Féfangi í fjögur
ár en hleypti þá heimdragan-
um á ný og hélt til Chicago
og lauk mastersnámi frá
Kellogg Graduate School of
Management (Northwest-
ern University).
„Eg var svo heppinn að
komast í sérstakt Accel-
erated Program sem er
nokkurskonar hraðbraut
sem gerði mér kleift að
ljúka náminu á einu ári í
stað tveggja. Þetta var gríð-
arlegt álag og botnlaus
þrisvar sinnum í viku í
World Class á morgnana og
spilar auk þess innanhúss-
fótbolta og skvass og keppti
á skíðum árum saman. Á
sumrin grípur hann svo
tennisspaðann.
„Mér fmnst mjög mikil-
vægt að vera í góðu formi og
tel að það skili sér í betri
vinnuafköstum, aukinni
vellíðan og sé mannbætandi
á allan hátt. Sú ögun, sem
felst í því að stunda reglulega
hreyfingu, hefur áhrif á
Dstarfi mínu sem mark-
aðsstjóri sinni ég ólík-
um þáttum og nægir
að nefna stefnumótun í
markaðsmálum, samskipti
og samningaviðræður við
stóra viðskiptavini og sam-
skipti við auglýsingastofur
og þá sem selja auglýsingar.
Ég fylgist náið með mark-
aðnum, nýsköpun og vöru-
þróun, tek þátt í að móta út-
flutning fyrirtækisins, sem
fer vaxandi, hef samskipti
við samstarfsaðila okkar er-
lendis og sit í framkvæmda-
stjórn fyrirtækisins sem
mótar heildarstefnu," sagði
Hjalti Jónsson, markaðs-
stjóri Nóa- Síríusar.
Nói-Síríus færði nokkuð
út kvíarnar þegar það keypti
sælgætisgerðina Opal og tók
við starfseminni í ársbyrjun
1996.
„Það hefur gefið okkur
aukna möguleika á að sækja
fram á markaðnum og með
samruna fyrirtækjanna
styrkti Nói-Síríus forystu
sína á sælgætismarkaði. Síð-
ast en ekki síst þá var Opal í
útflutningi sem við höfum
lagt mikla rækt við.“
ÞRETTÁN KÍLÓ Á MANN
Islendingar borða um 13
kíló á ári af sælgæti hver
maður og nokkur fyrirtæki
keppa hart um bragðlauka
þjóðarinnar en innflutt sæl-
gæti er ríflega 50%. Við erum
í fjórða til fimmta sæti Evr-
ópuþjóða og á svipuðu
neyslustigi og Svisslendingar
HJALTIJÓNSSON, NÓA-SÍRUSI
og Þjóðveijar en Danir borða
allra þjóða mest af sætiindum
eða um 17 kíló árlega.
Nói-Síríus flytur inn vörur
frá Kellogg's og Cadbury's
og dreifir morgunkorni og
graduate nám í markaðs-
fræðum sem hann lauk frá
International University í Mi-
ami á Flórída. Eftir að því
námi lauk kom Hjalti heim
og starfaði hjá fiármögnunar-
keyrsla allan tímann en
mjög skemmtilegt."
Hjalti er mikill áhuga-
maður um íþróttir og ver
miklu af tómstundum sínum
í þær. Hann fer tvisvar til
vinnutækni manns.“
Hjalti er giftur Jóhönnu
Andreu Guðmundsdóttur
meinatækni og þau eiga
saman tvö börn, átta ára og
fiögurra ára. 133
TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
89