Frjáls verslun - 01.04.1997, Blaðsíða 85
vorin til þess að hugsa um lóðina yfir
sumarið,” segir Þorsteinn, „enda vilj-
um við hafa lóðina eins fallega og
snyrtilega og hægt er.”
Kanadískur arkitekt, Brian Cranfi-
eld, teiknaði skrifstofubygginguna og
hannaði einnig lóðina umhverfis
hana. Fyrir framan bygginguna er
hringtorg og í sumar er ætlunin að
koma þar fyrir höggmynd eftir Ragn-
hildi Stefánsdóttur (Röggu). Myndin,
sem er úr íslensku náttúrugrjóti og
táknar upphafið og eilífðina, verður af-
hjúpuð í júní. „Við byrjum að hreinsa
og hirða rusl snemma á vorin, strax
og snjóa leysir, og höldum lóðinni
snyrtilegri yfir sumarið.”
in tólf ár eru nú liðin frá því
hafist var handa við frágang
lóðarinnar umhverfis Mjólk-
ursamsöluna við Bitruháls að sögn
Magnúsar Guðjónssonar, forstöðu-
manns tæknideildar fyrirtækisins.
Það voru landslagsarkitektarnir
Reynir Vilhjálmsson og Þráinn
Hauksson sem hönnuðu lóðina en
fyrirtældð Garðaprýði hefur séð um
mestan hluta framkvæmdanna. Fal-
legar hleðslur úr grjóti eru að hluta
til umhverfis bílastæðin og setja þær
mikinn svip á umhverfið. „Starfs-
menn Mjólkursamsölunnar sjá ekki
sjálfir um daglegt viðhald á lóðinni
heldur hafa verið fengnir til þess
ýmsir verktakar. Þeir sjá auk þess
um að klippa tré og snyrta og bæta í
lóðina gróðri eftir því sem þörf hefur
verið á. Við höfum aldrei verið hérna
með sumarblóm heldur eingöngu sí-
græna og blómstrandi runna auk
trjánna. Sumum hefur fundist vanta
hér eitthvað af blómum í bölum en
við höfum verið sammála um að fyr-
irtækjalóð eigi frekar að vera ein-
föld, stílhrein og þægileg í viðhaldi
en með mikið af sumarblómum. Tólf
ár eru liðin fi'á því greni var fyrst
plantað í brekkuna við Höfðabakk-
ann og það, sem og annar gróður, er
vel á veg komið og farið að setja fal-
legan svip á umhverfið,” segir
Magnús Guðjónsson.
Hönnuður lóðar Osta og smjörsölunnar er Jón H. Björnsson
Kanadíski arkitektínn Brian Cranfield skipulagði lóðina hjá Vífilfelli í tengsl-
um við hönnun hússins sjálfs.
Reynir Vilhjálmsson og Þráinn Hauksson hönnuðu lóð Mjólkursamsölunnar.
85