Frjáls verslun - 01.04.1997, Blaðsíða 67
Andrew Lloyd Webber, og þá eru eftir
626 þúsund sem þýðir 126 þúsund í
hagnað af hverri sýningu. Það þýðir
að um 80 sýningar fyrir fullu húsi þarf
til að greiða upp stofnkostnað. Sýning-
ar eiga að hefjast í byrjun júní og bú-
ast má við að í haust þurfi Operan á
húsinu að halda svo ljóst er að sýning-
in mun standa í járnum fjárhagslega.
Þetta er forsendurnar sem sjálf-
stæðir leikhópar og atvinnuleikhús,
sem ekki njóta styrkja, þurfa að vinna
eftir þegar verk eru valin til sýninga.
Hver sýning og hver uppfærsla þarf
að skila hagnaði. Mörg dæmi eru um
að aðstandendur leiksýninga hafi unn-
ið kauplaust til þess að geta staðið í
skilum með húsaleigu og slíkan
kostnað.
Starfsfólk er yfirleitt ekki fastráðið
undir slíkum kringumstæðum svo
hægt er að hætta sýningum með litl-
um fyrirvara ef aðsókn bregst.
Þessi hlutföll riðlast stundum í
stóru leikhúsunum þar sem ekki er
alltaf horft á afkomu hverrar sýningar
fyrir sig heldur miklu fremur á heild-
arafkomu leikársins. Þannig geta
komið upp skrýtnar aðstæður og
Frjáls verslun hefur eftir traustum
RAUNVERÐ LEIKHÚSMIÐA
Sé upphæð styrkja frá hinu
opinbera umreiknuð yfir í
styrk á hvern miða í Loft-
kastalanum kemur í Ijós að
hæstur var styrkurinn árið
1995 eða 219 krónur á miða
en lækkaði niður í 58 krónur
á miða árið 1996 og er
áætlaður 39 krónur á miða
árið 1997.
Eins og kemur fram hér að
framan er sama tala fyrir
stóru leikhúsin allt önnur og
margfalt hærri eða aldrei
lægri en rúmar 3.000 krónur
sem greitt er með hverjum
leikhúsmiða og allt upp í
6.600 krónur í erfiðum árum.
heimildum að sýning Þjóðleikhússins
á Sögu úr Vesturbænum á síðasta ári
hefði aldrei getað staðið undir sér því
hún var svo dýr í rekstri að þótt fullt
hús hefði verið í hvert skipti var samt
taprekstur á sýningunni. Fullyrt er að
það sama eigi við um flestar uppsetn-
ingar Islensku óperunnar.
HAFA GAGNRÝNENDUR ÞÁENGIN
AHRIF
Hér er enn ónefndur einn þáttur sem
stundum mætti ætla að hefði veruleg
áhrif á rekstrarafkomu leikhúsa. Það
eru áhrif og völd gagnrýnenda. Umtals-
verður styrr stendur oft um álit þeirra á
leiksýningum og aðferðir þeirra við að
láta það í ljósi sæta ekki síður ámæli.
Með fullri virðingu fyrir þeim fjöl-
mörgu, sem skrifa um leikhús á íslandi,
eru tveir pólar í þeirri umræðu sem
vega þyngra en aðrir. Annars vegar er
það leikhúsgagnrýni Morgunblaðsins
sem er víðlesnast allra blaða. Meðan
Súsanna Svavarsdóttir starfaði þar sem
gagnrýnandi voru skrif hennar mjög
umdeild en þær raddir hafa hljóðnað
síðan hún lagði frá sér leikhúspennann.
Jón Viðar Jónsson, leikhúsgagnrýnandi
Sjónvarpsins, hefur verið gríðarlega
umdeildur og hefur kastast í kekki milli
Sjónvarpsins og t.d. Þjóðleikhússins
vegna umsagna hans.
Þegar skoðaðar eru tölur um aðsókn
að einstökum leiksýningum á heilu leik-
FORSÆTISRÁÐINEYTIÐ HEFIR CEFIÐ ÍT
DREIFINGARAÐILI:
Ríkiskaup
•
Borgartúni 7
105 Reykjavík
Sími: 552 6844
Bréfasími: 562 6739
FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ
67