Frjáls verslun - 01.04.1997, Blaðsíða 50
(National Golf Founda-
tion), í nýútkomnu hefti af
Fortune.
PENINGAR í UMFERÐ í
GOLFINU
Samkvæmt áætlunum
NGF eyddu golfarar í
Bandaríkjunum 15 billjón-
um dollara á síðasta ári í að-
gangseyri og áhöld til spila-
mennskunnar. Fjárframlög
auglýsenda hafa vaxið
hröðum skrefum undanfar-
in ár og námu um 30 millj-
ónum dollara á síðasta ári.
Stóra bandaríska mótaröð-
in í golfi, sem samanstend-
ur af nokkrum smærri
mótaröðum, hefur velt 318
milljónum árlega síðustu ár
sem er 500% aukning sam-
tals á einum áratug. Af
þessum tölum má ráða að
miklir peningar eru á ferð í
golfinu og endimörk þess
vaxtar ennþá talsvert langt
undan. Meðalaldur
golfleikara hefur hinsvegar
verið í kringum 40 ár síð-
ustu árin og heldur farið
hækkandi. Þetta hefur vald-
ið áhyggjum en með til-
komu ungrar stórstjörnu
eins og Tigers eru þær
áhyggjur á undanhaldi.
Stóru sjónvarpsstöðv-
arnar sýna golfi aukinn
áhuga og FOX samsteypan
keypti á síðasta ári litla
sjónvarpsstöð, sem heitir
Golf Channel, og CBS er
sagt vera með ýmsar áætl-
anir í burðarliðnum um
auknar útsendingar á golfi.
NIKE VEÐJAÐIÁ RÉTTAN
HEST
Þeir, sem fylgjast með
golfi, vissu af Tiger löngu
áður en hann sigraði á
Masters mótinu og fýrir
tæpum tveimur árum fékk
Bob Reif, markaðsstjóri
Nike, það verkefni að
hleypa nýju lífi í framleiðslu
fyrirtækisins á golffatnaði.
Mörgum þótti Reif vera
Tiger Woods slær tíl sigurs. Hvert högg er dýr-
inætt, er eins konar „myntslátta".
svalur þegar hann gerði
fimm ára auglýsingasamn-
ing við Tiger Woods fyrir
alls 40 milljónir dollara. I
dag er Nike stærsti fram-
leiðandi golffatnaðar í
heiminum og númer 2 í
framleiðslu á skóm. Golf-
deild Nike reiknar með að
selja fyrir 180 milljónir doll-
ara á komandi ári sem er
60% aukning frá yfirstand-
andi ári. Þegar þetta er
skoðað verður ekki sagt
annað en að samningurinn
við Woods séu hrein
reyfarakaup. Þannig hefur
hann reynst vera sannkall-
aður gullkálfur fyrir Nike
og ímynd þess þegar golf-
íþróttin er annars vegar.
Sé horft á heiminn utan
Bandaríkjanna verður það
sama uppi á teningnum.
Áætlað er að 15 milljónir
golfara séu í Asíu og í Japan
eru til golfkylfur á 38%
heimila og þessi heimili
eyða 1.500 dollurum á ári í
golfiðkun. Það er augljóst
að undrabarn og snillingur
eins og Tiger Woods sem
er að hálfu asískur að upp-
runa mun auka áhuga á
þessum risavaxna markaði.
Ahrif Tigers og frægð hans
eru þegar farin að sjást í
uppgjörum verslana og svo
tekið sé nærtækt dæmi þá
hefur hann orðið til þess að
forstjóri Nike, Phil Knight,
er farinn að spila golf af
miklum móð.
Ef reynt er að meta
heildarverðmæti stjörnu
eins og Tiger Woods fyrir
golfíþróttina í Bandaríkj-
unum þá kemst tímaritið
Fortune að því að ef hon-
um tækist að fjölga
golfleikurum um hálfa
milljón í Ameríku einni
þýddi það 2% aukningu á
næsta áratug. Þessi tvö
prósent myndu eyða 7
milljörðum dollara í klúbb-
gjöld, golfvörur og fleira á
einum áratug. B!1
AUKIN VIÐSKIPTI
Golfið er vinsælt og viðskiptin aukast.
Golfiðkendum fjölgar ár frá ári - en
eyðsla hvers og eins í þetta
áhugamál vex þó enn hraðar.
Fólk spilar oftar.
Fjárhæoir sem fólk eyoir i golf
Fjöldi golfiðkenda.
Leiknir golfhringir.
50