Frjáls verslun - 01.04.1997, Blaðsíða 36
FIÁbmÁi
1 rJARIVIAL
SALA PÉTURS BLONDAL Á KAUPÞINGI; UM140 MILUÓNIR
Haustið 1990 seldi Pétur Blöndal alþingismaður Búnaðar-
bankanum meirihluta sinn í Kaupþingi á 115 milljónir króna.
Þess má geta að Pétur þurfti að greiða um 35 milljónir í skat-
ta af þeim hagnaði sem hann hafði út úr sölunni á meirihluta
sínum í Kaupþingi. Sala Péturs vakti mikla at-
hygli á sínum tíma. Hann áttí 51% í Kaupþingi
á mótí 49% Sparisjóðanna þegar hann seldi.
Þessi 115 milljóna króna sala Péturs til Búnað-
arbankans haustíð 1990 jafngildir um 140 millj-
ónum á núverandi verðlagi.
SALAN Á HUSATRYGGINGUM REYKJAVIKUR; UM135 MILUONIR
Ein íféttnæmustu kaup á fyrirtæki á síðasta ári voru kaup
Sjóvá-Almennra á Húsatryggum Reykja-
víkur á 135 milljónir króna. Seljandi var
Reykjavíkurborg.
NOKKRAR NÝLEGAR SAMEININGAR
Þótt þessi grein fjalli ekki um sameiningar fyrirtækja er rétt aó minna á nokkrar nýlegar
sameiningar fyrirtækja sem hafa verid mjög í fréttum.
HLUTUR MIÐNESS VEGNA HB; UM 2 MILLJARÐAR
tókst samkomulag um að sameina sjávarútvegsfyrirtækin
Miðnes hf. í Sandgerði og Harald Böðvarsson á Akranesi
undir nafni Haraldar Böðvarssonar hf. 1 sameiningunni fengu
hluthafar í Miðnesi um 27,6% í hinu sameinaða fyrirtæki, eða
304 milljónir á nafnverði. Hluthafar í „gamla” Haraldi Böðv-
arssyni fengu um 72,4% í hinu sameinaða fyrirtæki, eða um
796 milljónir. Formlega gekk sameiningin í gildi eftír aðal-
fund Haraldar Böðvarssonar laugardaginn 24. maí sl. en sam-
eiginlegur rekstur hófst hins vegar um síðustu
áramót. Þess má geta að hlutafé í „gamla” Har-
aldi Böðvarssyni var 675 milljónir króna að
nafhverði fyrir aðalfundinn 24. maí sl. en út
voru gefin jöfnunarhlutabréf, um 17,9%, sem
hækkuðu hlutaféð í 796 milljónir að nafnverði. Eftír aðalfúnd-
inn hefur gengi hlutabréfa í Haraldi Böðvarssyni verið í kring-
um 6,75. Sé miðað við það gengi má segja að hluthafar í Mið-
nesi hafi fengið um 2,1 milljarð í sinn hlut við að sameinast
Haraldi Böðvarssyni hf.
HLUTUR FISKIMJOLS 0G LYSIS VEGNA SAMHERJA; UM 1,7 MILLJARÐUR
Fyrirtækið Fiskimjöl og Lýsi hf. í Grindavík sameinaðist
fyrir skömmu Samherja hf. á Akureyri. Svo mikill stærðar-
munur er á fyrirtækjunum að einhver kynni að líta svo á að
um kaup Samheija á fyrirtækinu hafi verið að ræða. Við sam-
eininguna fengu eigendur Fiskimjöls og Lýsis hlutabréf í
Samhetja fyrir um 142 milljónir króna að nafhvirði. Þegar
Samheiji hf. fór á hlutabréfamark-
aðinn með hlutabréfaútboð var
byijað að selja bréfin á genginu 9,0
en síðan hefur gengið hækkað og hefur lengst
af verið í kringum 12,0. Sé miðað við það
gengi má segja að eigendur Fiskimjöls og Lýsis hafi fengið
um 1,7 milljarða í sinn hlut við að sameinast Samherja hf.
HLUTUR HRANNAR AISAFIRÐIVEGNA SAMHERJA; UM 1,4 MILUARÐUR
Hrönn hf. á ísafirði, sem gert hefur út metskipið Guð-
björgina, var sameinað Samheija á Akureyri fyrir nokkrum
mánuðum líkt og Fiskimjöl og Lýsi í Grindavík. Þessi samein-
ing olli bæði fjaðrafoki og taugatítringi fyrir vestan. Við sam-
eininguna eignuðust eigendur Hrannar hlutabréf í Samherja
1,4
fyrir um 116,7 milljónir króna að
nafnvirði. Miðað við að gengi hluta-
bréfa í Samherja hefur lengst af verið um 12,0
frá því fyrirtækið fór á almennan hlutabréfa-
markað má segja að eigendur Hrannar hafi
fengið um 1,4 milljarða fyrir fyrirtækið við að sameinast Sam-
heija.
HLUTUR ST0ÐVAR 3 VEGNA ST0ÐVAR 2; UM 350 MILLJ0NIR
Fréttnæmustu hlutabréfakaup síðari ára voru óvænt kaup
Islenska útvarpsfélagsins, Stöðvar 2, á Stöð 3 snemma á
þessu ári. Þessi kaup komu eins og þruma úr heiðskíru loftí.
I raun var Stöð 3 sameinuð Islenska útvarpsfélaginu og var
■i^i
greitt með hlutabréfum í íslenska útvarpsfé-
laginu. Söluverðið á Stöð 3 hefur ekki verið
gefið upp en það mun hafa verið í kringum 350
milljónir króna. Það var það sem hluthafar í
Stöð 3 fengu í sinn hlut við að sameinast ís-
lenska útvarpsfélaginu.
36