Frjáls verslun - 01.04.1997, Blaðsíða 45
Vörumerking er fjölskylduíyrirtæki. Karl Jónasson prent-
ari (t.v.) stofiiaði það og sonur hans Karl M. Karlsson
(t.h.) hefur staðið við hlið hans við reksturinn frá upp-
hafi.
togara en það breyttist með frystitogaravæðingu. Við höfum sótt
nokkrar sjávarútvegssýningar og það hefur skilað ýmsum samböndum.
í dag er útflutningur ekki svo mikill hluti af umsvifum fyrirtækisins,"
segir Karl.
Það kemur fram að til eru dagbækur um framleiðsluna allt aftur til
fyrsta ársins og mikill fróðleikur þar saman kominn um þróun límmiða-
prentunar á fslandi.
KEMUR VÍÐA VIÐ A MARKAÐNUM
Vörumerking er stærst á þessum markaði á íslandi í dag og hefur
tekist bærilega að halda markaðsstöðu sinni þrátt fyrir töluvert aukna
samkeppni á síðustu árum. Alls vinna 16 manns hjá fyrirtækinu, meiri-
hluti þeirra eru lærðir prentarar og aðstoðarmenn þeirra. Það vekur at-
hygli þegar gengið er um vinnslusalinn hve loftið er hreint og loftræsti-
kerfið allt vandað og fullkomið.
„Við höfum alltaf lagt mikla áherslu á hreinlæti og góðan aðbúnað
og ég er ekki frá því að loftið í prentsalnum sé hreinna en það sem er
á skrifstofunni," segir Karl.
Vörumerking kemur víða við og prentar miða fyrir fyrirtæki í næst-
um öllum atvinnugreinum sem fengist er við á íslandi. Fiskvinnslan þarf
kassamiða, lyfjafyrirtæki og apótek eru stórir notendur og matvælaiðn-
aðurinn notar mjög mikið af límmiðum. Sem dæmi um stóra viðskipta-
vini má nefna fyrirtæki á borð við lyfjafyrirtækið Delta, Sláturfélag
Suðurlands, Osta- og smjörsöluna, Síld og fisk og fleiri og fleiri. Allt
þarf þetta að vera eftir nákvæmustu kröfum viðskiptavinarins, flokkað
Merkimiðar eru oft litríkir og grípandi íyrir augað.
og skorið eftir þörfum. Vörumerking hf. heldur auk þess lítinn lager fyr-
ir stóra viðskiptavini svo aldrei verði dýrkeypt bið eftir miðum á vöruna.
„í langflestum tilvikum eru miðarnir hannaðir á auglýsingastofum
viðkomandi fyrirtækja en við erum með ágætan tækjabúnað og hönn-
um miðana fyrir viðskiptavininn ef hann óskar þess."
Vörumerking hf. prentar aðeins límmiða, enda þarf til þess sér-
hæfðan tækjabúnað. Karl segir að sérþjálfun lærðra prentara geti tek-
ið nokkra mánuði en mannabreytingar séu fátíðar.
„Við erum heppnir með okkar menn. Það er nauðsynlegt að hafa
gott fagfólk til þess að framfylgja því aðhaldi sem felst í hinum nýja
ISO staðli. Aðeins þannig er hægt að tryggja gæðin."
I iriri i ■—^ — rlei^i- hafnarfjörður
u uruiiiGriii ny símf 555 3588 • fax: 555 4588
RENTUN LÍMMIÐA
45