Frjáls verslun - 01.04.1997, Blaðsíða 42
NÆRMYND
Sigurður er orðlagður íyrir skipulögð
vinnubrögð og vinnusemi. Hann segir
iðulega við kunningja sína að það sé lít-
ið að gera og þeir, sem síður eru skipu-
lagðir, vita aldrei hvort hann talar í
gamni eða alvöru. Sigurður dregur helst
ekki til morguns það sem gera má í dag.
Ef hópur manna tekur að sér verk sam-
eiginlega er hann jafnan fyrstur til að
skila af sér. Hann gengur ekki með fíló-
fax og sést aldrei skrifa neitt hjá sér, s.s.
fundartíma eða þessháttar, og veit alltaf
hvaða tíma hann hefur lausan þegar
ákveða þarf fund. Hann er manna
stundvísastur og gleymir aldrei fundi.
Sigurður er meðal stærstu atvinnu-
rekenda í Vestmannaeyjum. Hann setur
sig ekki á háan hest gagnvart starfsfólki
sínu og er þekktur fyrir það hve alþýð-
legur hann getur verið við sitt fólk. Til
er saga af Sigurði um það þegar hann
hafi verið prúðbúinn á leið í veislu og
séð starfsmenn sína sem þurftu á að-
stoð að halda. Sigurður fékk lánuð stíg-
vél í snatri og óð í slorinu í smókingnum
og hélt svo áfram í veisluna.
Sumir segja að þetta sé dæmi um
valddreifingu og afslappaða stjórn en
aðrir halda hinu gagnstæða fram. Þeir
segja að Sigurður sé í raun með 100% yf-
irsýn og sé óþarflega stjórnsamur á sinn
hægláta og ýtna hátt.
LÍFSTÍLL ÞEIRRA RÍKU
Sigurður Einarsson er meðalmaður á
hæð, grannvaxinn og þunnhærður með
gleraugu. Hann talar lágt, er prúður í
framkomu, hófstilltur og virðist hlé-
drægur. Sigurður er formfastur og al-
vörugefinn við ókunnuga og sýnist hlé-
drægur en í hópi kunningja slakar hann
á og hefur þá oftlega uppi gamanmál og
flím.
Sigurður berst ekki mikið á í sínum
persónulega lífsstíl þó að hann sé meðal
auðugustu manna landsins. Fyrstu árin
eftir að Sigurður flutti til Vestmannaeyja
bjuggu þau hjónin í blokk við Folda-
hraun, þaðan fóru þau á sérhæð við
Smáragötu og fyrir rúmum 10 árum í
einbýlishúsið við Birkihlíð. Hús þetta er
meðal þeirra reisulegustu í bænum,
byggt í kringum 1950 og var áður í eigu
Björns Guðmundssonar útvegsbónda.
Björn var stjórnarformaður Isfélagins
og mikill vinskapur var með þeim Sig-
urði.
Sigurður og Guðbjörg eiga tvo bíla,
10 ára gamlan BMW, sem Guðbjörg not-
ar, og roskinn VW Golf sem Sigurður
ferðast á og er ekki beinlínis dæmigerð-
ur forstjórabíll. Vegna starfa sinna ferð-
ast Sigurður talsvert og þegar hann er í
Reykjavík býr hann í lítilli blokkaríbúð
sem þau hjón eiga við Háaleitisbraut og
ferðast um á öðrum VW Golf sem hann
áþar.
Þetta eru eiginleikar sem kalla má
nísku, aðsjálni, peningavit eða hófsemi,
allt eftir því hvað við á. Þannig er því far-
ið með flesta mannlega eiginleika að
þeir skipta um lit eftir viðhorfi og skoð-
unum skoðandans. Þannig getur stefnu-
festa líka verið íhaldssemi, gætni í fjár-
málum níska, rökfesta og einbeitni
verða stífni og þannig mætti lengi telja.
SYNDIR 0G SK0KKAR
Sigurður lifir sérlega reglusömu og
reglubundnu lífi. Hann reykir ekki og
hefur aldrei gert en lyftir léttvínsglasi
„pro forma“ í matarboðum. Hann fer í
sund á hveijum morgni og spjallar við
aðra fastagesti í heita pottinum. Hann
skokkar sér til heilsubótar og er félagi í
trimmhópi sem skokkar saman með
nokkuð reglulegum hætti. Hann er
mikill ijölskyldumaður og synir hans
eru mjög rnikið með honum á ferðum
hans um bryggjur og báta í Eyjum.
Átt þú þetta hús?
Ef ekki...
imou
Voukatti á íslandi
... láttu DRAUMINN rcetast
Kjarrhólmi 28, 200 Kópavogi
sími 896 6335, fax 554 6335
42