Frjáls verslun - 01.04.1997, Blaðsíða 82
Byggingafélagið Borg hefur smíðað glugga í fjölda gamalla húsa sem hafa
verið endurgerð. Þar á meðal er Iðnó í hjarta Reykjavíkur.
Stærsta verkefhi sem Borg hefur tekið að sér var bygging nemendagarða
við Samvinnuskólann á Bifröst. Byggingafélagið Borg var alverktaki við
verkið sem þýddi allt firá skóflustungu tíl lokafrágangs en þriðja og síðasta
áfanganum er nýlokið.
framkvæmdastjóri Byggingafélagsins Borgar, í
samtali við Frjálsa verslun.
SÉRFRÆÐINGAR í
GLUGGUM OG HURÐUM
Meðal stærstu verkefna Borgar á sviði
glugga- og hurðasmíði má nefna Bessastaði
en Borg smíðaði alla glugga og hurðir þegar
mikil endurbygging fór fram á staðnum fyrir
skömmu. Af svipuðum verkefnum mætti nefna
Búðakirkju á Snæfellsnesi, Iðnó í Reykjavík og
gamla Kennaraskólann við Laufásveg en bæði
þessi hús hafa gengið í gegnum gagngerar
endurbætur og smíði glugga og hurða er til-
tölulega mjög sérhæfður þáttur f slíkum end-
urbyggingum.
Borg tekur að sér slík verkefni um allt land
og er meðal stærstu fyrirtækja á þessu sérsviði.
Það var tiltölulega snemma á ferli fyrirtækisins
sem var farið út í sérhæfingu og með tímanum
hefur orðið til mikil þekking og reynsla innan
veggja fyrirtækisins sem nýtist því mjög vel.
Upphaflega varð Borg til þegar sjö aðilar
stofnuðu til samstarfs um að byggja félags-
heimilið að Hlöðum á Hvalfjarðarströnd. Það
samstarf hélt síðan áfram og hefur gefist vel.
Fyrirtækið var endurskipulagt fyrir þremur árum
og síðan er Kaupfélag Borgfirðinga einn stærsti
hluthafinn ásamt þremur iðnaðarmönnum í
Borgarnesi og Vírneti hf.
En Borg tekur einnig að sér stærri verkefni
og hefur byggt blokkir, raðhús, einbýlishús og
aragrúa sumarbústaða. Nú er fyrirtækið að
leggja síðustu hönd á þriðja og síðasta áfanga
byggingar fjölskyldugarða við Samvinnuskólann
á Bifröst í Borgarfirði.
„Þetta var sérstakt að því leyti að hér var um
alútboð að ræða. Við unnum því allt frá fyrstu
skóflustungu til síðasta handtaks. Þetta var
stórt og afskaplega skemmtilegt verkefni,"
sagði Pétur. Ekki spillti það að bygging síðasta
GLUGGAR, HU
hússins gekk firnavel og það flaug upp á slétt-
um þremur mánuðum í vetur.
Hér er um að ræða þrjú raðhús með fjöl-
skyldu- og stúdentaíbúðum. Framkvæmdin var
unnin í samvinnu við TT3 í Reykjavík og verk-
fræðistofan Forsjá, sem hannaði húsin og um-
MYNDIR: GEIR OLAFSSON Wl\ UH Vfcl I: [rid :VIri : IW [H
82
□ yggingafélagið Borg í Borgarnesi er um 20 ára gamalt sem er töluvert hár aldur í
þeirri starfsgrein. Fyrirtækið er alhliða verktakafyrirtæki sem byggir hús og blokkir en
leggur þó megináherslu á trésmíði með sérhæfingu í því að smíða glugga og hurðir.
„Við smíðum glugga í allskonar sérverkefni þar sem reynir á vandvirkni, gerðar eru mikl-
ar kröfur. Þegar um gömul hús í endurbyggingu er að ræða er sérstaklega gaman að fást við
slíkt en við höfum komið að nokkrum stórum þannig verkefnum," sagði Pétur Þórarinsson,