Frjáls verslun - 01.04.1997, Blaðsíða 17
LETTMETI
Gott slagorð
Pólska flugfélagið LOT valdi
slagorðið „Hálf öld í loftinu” á 50 ára
afmæli sínu. Gárungarnir útskýrðu
slagorðið þannig að það sýndi ná-
kvæmlega þann tíma sem það tæki
að komast eitthvað með flugfélag-
inu á áfangastað.
Á læknastofu
Maður einn kom inn á lækna-
stofu og var með þeim ósköpum
gerður að önd óx upp úr höfðinu á
honum. Læknirinn starði í for-
undran á manninn og spurði:
„Hvað gengur að þér?” „Það er
einhver einkennilegur vöxtur
neðan á fætinum mínum,” svaraði
öndin.
í Pentagon
Veggjakrot í Pentagon:
Gaktu í herinn, kynnstu
skemmtilegu og spennandi fólki og
dreptu það!
í ráðuneytinu
Veggjakrot á klósetti í fjármála-
ráðuneytinu:
A þessari stundu ertu eini mað-
urinn hér í ráðuneytinu sem veist
hvað þú ert að gera.
Uppi í Háskóla
Veggjakrot uppi í Háskóla:
Guð er dauður - Nietzsche
Nietzsche er dauður - Guð
Rockefeller
Rockefeller fór á gamalsaldri til
tannlæknis til að láta taka úr sér
tönn. Hann spurði tannlækninn,
sem ekki vissi hver maðurinn var,
hvað það myndi kosta. Tannlækn-
irinn svaraði: „30 dollara.” Það
fussaði í Rockefeller sem þó dró að
lokum upp 10 dollara seðil og
sagði við lækninn: „Hérna eru 10
dollarar. Losaðu aðeins um hana,
vinur.”
Á kaffihúsi
„Attarðu þig á því,” sagði maður
á kaffihúsi við ókunnugan mann
sem sat hinum megin borðsins, „að
þú ert að lesa blaðið á hvolfi?”
„Enn ekki hvað,” svaraði hinn.
„Heldurðu að það sé auðvelt?”
Ansas ári óheppinn
Tveir bræður, eineggja tvíburar,
fóru oft saman að veiða. Annar þeirra
hafði heppnina alltaf með sér - en hinn
veiddi aldrei neitt. Þeir gátu staðið
hlið við hlið og annar dró inn fisk eftir
fisk á meðan hinn varð ekki
var. Dag einn
ákvað sá óhepp-
ni að grípa til
örþrifaráða.
Um miðja
nótt vaknaði
hann og fór í
föt bróður síns.
Hann tók einnig
veiðistöngina hans
og fór loks á staðinn þar
sem bróðir hans hafði veitt þrjátíu og
Ijóra silunga daginn áður. Þarna stóð
hann í þijá tíma og ekkert gerðist.
Loksins fóru vonir hans að glæðast -
hann sá stóran silung synda í átt til sín.
Fiskurinn skeytti engu um beituna en
stökk upp úr vatninu og kallaði til
hans: „Sæll félagi, hvar er bróðir
þinn?”
Rétta stöðin?
Ferðamaður, sem var að koma
frá Wales, sagði frá því að þegar
lestarnar stoppuðu í Llan-
fechpwllgogerych hrópuðu
lestarverðirnir einfaldlega,
„Ef einhver ætlar út hér, þá
er þetta stöðin.”
Fyrir vestan
I henni Ameríku henda menn ekki
rusli, þeir búa til sjónvarpsefni úr því!
ÆWÆMÆMÆ
Þú nærð forskoti
þegar tæknin vinnur með þér
CS - PRO tæknin í Ijósritunarválum er framtíðarlausn
fyrir þá sem vilja bætt afköst í betra umhverfi.
Aukið öryggi í rekstri
Endurupptaka pappírs
Sjálfvirkt eftirlitskerfi
Sjálfvirk endurræsing
Nýr hreinsibúnaður
1
MINOLTA
CS-PfíO Ijósritunarvélar
Skrefi á undan inn I framtíöina
KJARAN
SKRIFSTOFUBÚNAÐUR
SföUMÚLI 14, 108 REYKJAVlK, SlMI 5813022
17