Frjáls verslun - 01.04.1997, Blaðsíða 53
ÞAÐ STANSA FLESTIR í
ST4ÐARSKALA
„Það stansa flestir í Staðarskála," segir gam-
alkunnugt slagorð staðarins. Ferðamátinn hefur
breyst og hraðinn aukist en að sögn Kristins
Guðmundssonar munar mestu um aukna land-
flutninga í kjölfar samdráttar í strandflutningum.
Vörubílstjórar eru vanir því frá fornu fari að á í
Staðarskála og stundum sést ekki í planið fyrir
framan skálann fyrir gámatrukkum, tankbílum og
dráttarvögnum. Rútan frá Norðurleið stansar í
Staðarskála eins og hún hefur alltaf gert og far-
þegarnir teygja úr sér og fá sér bita í svanginn
og kaffisopa.
Hópar ferðamanna í náttúruskoðun stansa
gjarnan á Stað, sérstaklega eftir að farið var að
reka þar upplýsingamiðstöð á sumrin. Að sögn
Eiríks Gíslasonar hefur sú þjónusta mælst vel
fyrir og er vel sótt. Upplýsingar um ferðamögu-
leika, veiði og afþreyingu eru veittar, fólki beint
í gistingu og ullarvörur, framleiddar hjá Drffu á
Hvammstanga, seldust prýðilega í fyrra.
Húsráðendur í Staðarskála. F.v. Eiríkur Gíslason, Bára Guðmunds-
dóttir, Kristínn Guðmundsson og Vilborg Magnúsdóttír.
LLRA FERÐALANGA
„Það er margt sem fólk vill fá að vita og við reynum að hjálpa því
eins og við getum," segir Eiríkur.
Auk greiðasölu, bensínsölu, sjálfsala og almennrar þjónustu er
Staðarskáli með B-ferðaskrifstofuleyfi. 1994 var byggt 18 herbergja
gistihús sem tekur rúmlega 70 matargesti í sæti og þar gista heilu
hóparnir. í sal hússins eru haldin námskeið, fundir, ættarmót, mál-
verkasýningar og dansað við hátíðleg tækifæri. Þar er fullkomin að-
staða til funda- og ráðstefnuhalda. Staðarskáli er með vínveitinga-
leyfi og þar er lítill bar.
„Þátttaka okkar í Vest-Norden ferðakaupstefnum hefur hægt og
sígandi verið að skila betri og betri nýtingu á gistihúsinu en það tek-
ur tíma að byggja upp starfsemi eins og þessa, þó að við höfum for-
skot eftir áratuga starf í ferðaþjónustu," segir Bára.
NÁTTÚRA HÚNAÞINGS HEILLAR
Staðarskáli hefur tekið virkan þátt í átaki sem staðið hefur í nokk-
ur ár og miðar að því að fá ferðamenn til að staldra lengur við í Húna-
þingi og njóta þeirrar fjölbreyttu náttúrufegurðar og þeirra sögustaða
sem þar er að finna. Steinsnar frá Staðarskála er Síká og í farvegi
hennar, langt frammi í heiðinni, eru Hveraborgir, baðstaður sjálfrar
náttúrunnar. Þangað geta ferðamenn farið sumar og vetur og brugð-
ið sér í náttúrulegan heitan pott. Á vetrum er þetta gjarnan tengt
vélsleðaferðum á dorg á Arnarvatnsheiði sem er mikil matarkista.
Nýtt og veglegt gistíhús við Staðarskála eykur enn á þjón-
ustuna. Stutt er tíl athyglisverðrar náttúru bæði sumar og
vetur.
Hálsarnir umhverfis Hrútafjörð luma á veiðivötnum og geysilega fjöl-
breyttu fuglalífi. Byggðasafnið á Reykjum er spölkorn utar við fjörð-
inn og þá er ekki langt yfir í Miðfjörð, Vatnsnes og Víðidal.
Þannig er Staðarskáli. Áningarstaður sem stendur á gömlum merg
en er sívakandi í viðleitni sinni til að gera líf ferðamannsins þægi-
legra og fjölbreyttara.
53