Frjáls verslun - 01.04.1997, Blaðsíða 49
Tiger er orðinn stórt fyrirtæki. Tekjurnar eru orðnar um 1 milljarður á ári.
Tiger íjölda titla í golfi í flokki ung-
linga og sem áhugamaður. Athygli
Hughes Norton, umboðsmanns hjá
International Management Group,
sem nú er umboðsmaður Tigers, var
vakin þegar pilturinn vann þt'já titla í
röð um það leyti sem hann var að
ljúka námi. Tiger útskrifaðist frá Stan-
ford háskólanum og hann sem
golfleikari er rekinn sem fyrirtækið
ETW Inc. en það er skammstöfun fyr-
ir Earl og Tiger Woods hf. Tiger er
framkvæmdastjóri og karl faðir hans
er stjórnarformaður.
ETW Inc. er sæmilega stætt fyrir-
tæki því aldrei í sögunni hefur svo
ungur golfleikari gert aðra eins aug-
lýsingasamninga í upphafi ferils síns
eins og Tiger hefur gert við fyrirtæki
eins og Nike og Titleist.
A lista yfir þá íþróttamenn, sem
hvað mest hafa í auglýsingatekjur, er
Tiger kominn í fimmta efsta sæti. Fyr-
ir ofan hann eru Andre Agassi, Arnold
Palmer, Shaquille O’Neal og Michael
Jordan.
FJÖRTÍU OG FJÓRAR MILLJÓNIR
ÁHORFENDA
Fjörutíu og ijórar milljónir Banda-
ríkjamanna fylgdust með Tiger í sjón-
varpsútsendingum frá Masters keppn-
inni og hefur aldrei annar eins fjöl-
di sýnt þessu móti slíkan áhuga.
Nike greiðir Tiger 8 milljónir
dollara árlega (568 m. ísl.
kr.) fyrir að klæðast fatn-
aði frá Nike. Titleist fyrir-
tækið greiðir honum 4
milljónir dollara á ári (284
m.ísl.kr.) fyrir að nota
kylfur, kúlur og búnað
þeirra. Titleist hefur þegar í
undirbúningi að framleiða
sérstakar Tiger kylfur í tilefni af
sigri Tiger. Auk þessa hefur Tiger
umtalsverðar tekjur af tveimur bók-
um, sem hafa verið skrifaðar um
hann, eða 2.2 milljónir dollara (156
m.ísl.kr.) og síðast en ekki síst verð-
launafé sem hefur hækkað verulega
að undanförnu og getur auðveldlega
numið milljónum dollara. Tiger hefur
gert samning upp á sjö milljónir doll-
ara við All Star Café sem rekur veit-
ingahúsakeðju og er dótturfyrirtæki
Planet Hollywood. Þannig hefur ETW
Inc. tryggt sér rúmlega einn milljarð
íslenskra króna í árstekjur. Ekki er yf-
irbygging fyrirtækisins að sliga það
eða útgjöld í rekstri svo framtíðin sýn-
ist vera nokkuð björt.
UNDRABARNIÐ TIGER
Og hver er svo ástæðan fyrir því að
allir vilja eignast hlut í snilligáfu Ti-
gers? Hún er sú að Tiger er talinn
geta haft gífurleg áhrif á golfíþróttina
og aukið vinsældir hennar margfalt
frá því sem nú er. Hann er sannkallað
undrabarn frá tæknilegu sjónarmiði
því hann spilar betra golf en nokkur
hefur sést gera áður á hans aldri, að
því er virðist án fyrirhafnar. Hann er
þeldökkur og getur því höfðað til
Tiger Woods og faðir lians, Earl,
faðmast eftír sigur Tigers í Masters
mótínu. Saman reka þeir fyrirtækið
Tiger hf. eða ETW Inc. sem hefúr um
milljarð ísl. króna i árstekjur.
stöðugt stærri hóps sem hingað til
hefur verið litinn hornauga innan vé-
banda íhaldsamra amerískra golf-
klúbba. Síðast en ekki síst er hann
kornungur og breytir með meist-
aratitli sínum þeirri ímynd golfsins að
það sé eingöngu fyrir miðaldra og
eldri.
Hörundslitur Tigers hefur alveg
sérstaka þýðingu í þessu samhengi
því svartir golfarar eru fáir í hópi
meistara og reyndar hefur golfheim-
urinn verið svo íhaldssamur í þessum
efnum að það var ekki fyrr en 1961
sem svertingjum var leyft að keppa í
PGA mótaröðinni. Yíða eimir enn eftir
af því að golf sé íþrótt fyrir hvíta og því
er talið að Tiger muni breyta ímynd
golfsins verulega á þessu sviði.
Síðast en ekki síst hefur hann góða
kímnigáfu, svarar vel fyrir sig í fjöl-
miðlum, hefur ómælda persónutöfra
og er laus við alla stjörnustæla.
Golf hefur í hugum margra verið
letingjasport fyrir miðaldra og
roskið yfirstéttarfólk og
íþróttin allt of hæg og
óspennandi til þess að ná
almannahylli í líkingu við
körfubolta eða fótbolta.
Undanfarin ár hefur þetta
verið að breytast í Banda-
ríkjunum eftir því sem
stöðugt fleiri frægar persón-
ur úr hópi leikara og annarra
íþróttamanna hafa lagt sig eftir
því að stunda það. Nægir að nefna
Kevin Costner og Adam Sandler leik-
ara, Darius Rucker og Alice Cooper
tónlistarmenn og Michael Jordan
körfuboltahetju.
Bjartsýnir forystumenn gofiíþrótt-
arinnar í Bandaríkjunum sjá fyrir sér
að stjörnur eins og Tiger Woods geti
laðað allt að milljón nýja golfleikara að
íþróttinni sem annars hefðu aldrei axl-
að kylfurnar og reimað á sig gadda-
skóna. Þessari skoðun lýsir meðal
annars Joe Beditz, forseti NGF
49