Frjáls verslun - 01.04.1997, Blaðsíða 90
Bryndís Torfadóttir, yfirmaður SAS á Islandi á tvö barnabörn, og finnst gaman að bjóða
þeim í kaffi á Hótel Borg.
FV mynd: Kristín Bogadóttir.
Bryndís ferðast mjög mik-
ið vegna starfsins. Hennar
næsti yfirmaður er í London
og skrifstofa SAS á Islandi til-
heyrir svæði sem nær einnig
yfir Bretland og Irland.
LÆRÐIAF STARFINU
Þótt Bryndís hafi langan
og fjölbreyttan starfsferil að
baki í ferðabransanum hefur
hún ekki sérmenntun á því
sviði.
„Það tíðkaðist ekki þá.
Menn lærðu fagið í starfinu.
Eg var bara með próf úr
Kvennaskólanum og það var
gott veganesti til að fá skrif-
stofuvinnu.“
Bryndís er alin upp norð-
ur á Húsavík og þangað sæk-
ir hún enn á vit skyldmenna,
vina og ættingja þá sjaldan að
frístundir gefast. Hún á sér
eitt stórt áhugamál um þess-
BRYNDÍS TORFADÓTTIR, SAS Á ÍSLANDI
□ að hafa orðið miklar
breytingar á starf-
seminni í gegnum
árin þegar hún hefur smátt
og smátt verið aðlöguð að-
stæðum hveiju sinni. Nú hef-
ur SAS verið með flug til ís-
lands í um 10 ár samfleytt en
gegnum árin hefur stundum
verið flogið hingað og stund-
um ekki,“ sagði Bryndís
Torfadóttir framkvæmda-
stjóri SAS á íslandi, í samtali
við Frjálsa verslun.
Bryndís hóf störf hjá SAS
hjá Islandi fyrst 1970 og hef-
ur starfað á ýmsum sviðum
fyrirtækisins, bæði hér
heima og í Danmörku, en
hefur verið yfirmaður SAS á
íslandi síðan í júlí 1995. Það
fyrirkomulag, sem ríkir á
skrifstofu SAS, er dálítið sér-
stakt því fyrir skömmu var
skipuritið endurskipulagt og
nú starfar þar svokallað
TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
„multifunctional team“ sem
þýða mætti á íslensku sem
alhliða lið. Þetta var gert í
kjölfar þess að mannabreyt-
ingar og fækkun starfsfólks
áttu sér stað. Bryndís er í
rauninni eini yfirmaðurinn,
allir aðrir geta gengið í
hvaða starf sem er á vinnu-
staðnum.
„Það er samt aðeins hægt
að dreifa vinnunni en ábyrgð-
in er jafii mikil og áður. Þetta
gerir þær kröfur til yfir-
manns að hann þekki starfs-
svið allra starfsmanna til hlít-
ar.“
AÐEINS KONUR
Annað, sem er sérstakt, er
að hjá SAS vinna aðeins kon-
ur. Bryndís segir að það sé
fremur tilviljun en meðvituð
stefna en staðhæfir að þar
sem konur vinni saman sé
auðveldara að reka stjórnun-
arkerfi eins og það sem not-
að er hjá SAS.
„Við erum að vissu leyti
módel fyrir aðrar skrifstofur
að þessu leyti og þetta fýrir-
komulag hentar augljóslega
best á frekar litlum vinnu-
stöðum. Mér finnst konur
eiga betra með að vinna sam-
an og almennt vera sam-
viskusamari en karlar. Hægt
var að hækka laun þeirra
sem starfa hér því yfirmönn-
um fækkaði. Það fannst mér
afar jákvæð þróun.“
SAS hefur notað þetta fyr-
irkomulag talsvert eftir því
sem félagið hefur verið að
færa út kvíarnar í Austur-Evr-
ópu. Þar verða til litlir vinnu-
staðir þar sem nauðsynlegt
er að allir starfsmenn geti
gengið í öll störf. Þar, eins og
hér, er jafnan einn yfirmaður
sem er ábyrgur og hefur
langa starfsreynslu hjá SAS.
ar mundir sem er skíðaiðk-
un.
„Eg reyni að komast á
hveiju ári í skíðaferð til Lech
í Austurríki. Islensk náttúra
heillar mig alltaf jafn mikið
og návistin við hana gefur
mér mikinn kraft. Að vera úti
í íslenskri sumarbirtu á Jjöll-
um og fást við veiðar er
himnaríki í mínum huga.“
Bryndís er ekki ijöl-
skyldumanneskja í þeim
skilningi að hún býr ein en á
tvö uppkomin börn, son og
dóttur, sem bæði eru í sam-
búð og eiga hvort sitt barn.
„Eg á mér afskaplega kær-
ar stundir með börnunum
mínum. Þegar frístundir gef-
ast finnst mér óskaplega
notalegt að fá barnabörnin
tvö í heimsókn. Þau gista hjá
ömmu og svo býður amma
þeim niður á Hótel Borg dag-
inn eftir." 35