Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1997, Side 24

Frjáls verslun - 01.04.1997, Side 24
FORSÍÐUEFNI armiði og það var mun auðveldara heldur en ef við hefðum verið að taka okkar eigin sköpun og brjóta hana niður.” Fyrirtækið fór því í gegnum stefnumótandi áætlanagerð á þessum árum þar sem styrkleikar þess og veikleikar voru metnir ásamt tækifærum og möguleikum. Niðurstaðan varð sú að styrkleiki félagsins lægi á framleiðslusviðinu og þá þurfti, að sögn Steinþórs, að taka þá ákvörðun um að móta þessa nýju stefnu og framfylgja henni. „Við uppfærum þessa áætlanagerð á u.þ.b. tveggja ára fresti. Þá er starfsemi félagsins tekin íyrir og metin markaðs- þróun, styrkleiki, veikleiki, samkeppnisaðilar o.s.frv. Ut frá því mörkum við okkar stefnu og setjum okkur bæði langtíma- og skammtímamarkmið. Langtímamarkmiðin eru sett í þrengri hóp og síðan fá deildirnar það plagg í hendur og setja sér skammtímamarkmið í samræmi við það. Þar er leitast við að sem flestir starfsmenn deildanna séu þátttak- endur í markmiðasetningunni. Síðan er fylgst með því frá mánuði til mánaðar hvernig gangi að ná markmiðunum og plöggin eru sýnileg uppi á vegg í deildun- um.” STARFSFÓLKIÐ EIN HEILD Steinþór telur mjög mikilvægt að starfsfólkið sé með í slíkri áætlanagerð, það sé ákveðið lykilatriði til að þetta virki, því hættan sé alltaf sú að svona plögg endi bara ofan í skúffu. „Hugsunin er sú að við séum ekki að senda einhverjar fyrirskipanir niður pýramídann sem einhverjir eiga að framfylgja án þess e.t.v. að skilja forsendurnar eða hafa nægar upplýsingar. Okkar trú er sú að starfsfólk í dag vilji vera virkir þátttakendur í að móta sitt fýrirtæki og vera með í ákvarðanatöku." ÞRÖNGUR HÓPUR STJÓRNENDA „Þegar við hófum þessa vinnu hérna í kringum 1988 þurfti að gera mjög marga hluti og mjög hratt. Þá töldum við nauð- synlegt að vera með þröngan stjórnunarhóp sem gæti verið fljótur að taka ákvarðanir og hrinda þeim í framkvæmd. Fyrir- tækinu var þ.a.l. skipt upp í þrjár megindeildir (sölu- og mark- aðsdeild, fjármáladeild og framleiðsludeild) samkvæmt lítið eitt gamaldags stjórnskipulagi. Þarna voru því fjórir menn, að mér meðtöldum, sem gátu fjallað um og tekið þær ákvarðanir sem þurfti. Við höfum ekki séð tilefhi til að breyta þessu síð- an því þetta fyrirkomulag hentar okkur mjög vel. I náinni framtíð sé ég því ekki stórtækar breytingar í stjórnskipulag- inu heldur frekar á vinnuaðferðum eins og í sambandi við markmiðasetningu og því að skapa eina samhæfða heild starfsfólks,” sagði Steinþór. I dag er meiri áhersla lögð á þjálfun og menntun starfsfólks hjá SS og sérstök áætlun í gangi sem kölluð er „Vistaskipti”. „Þau ganga út á það að allir stjórnendur í félaginu, þ.e. yfir- menn, deildarstjórar og verkstjórar (sem f dag er 30-40 manna hópur), fara í gegnum ákveðna þjálfun sem felst í því að fara í aðrar deildir og dvelja þar í vikutíma. Þannig kynnast þeir bæði störfum og verkefnum annarra og sjá sig sem hluta af stærri heild. Þetta bætir líka samskipti starfsfólksins og við teljum það hafa skilað mjög góðu. Aðrir starfsmenn en stjórn- endur geta líka sótt um að fara í þetta til að kynnast betur starfsemi félagsins.” Einnig er SS í auknum mæli að taka upp þjálfun og endurmenntun starfsfólks. „Það er lykillinn að framtíð i þessum atvinnurekstri að fólk geti vaxið í starfi og á vinnustaðnum.” NÝ VÖRULÍNA Steinþór þakkar velgengni fyrirtækisins m.a. því að það hafi byggt á mjög góðum grunni og haft mjög gott orð á sér sem gæða matvöruframleiðandi. „Að mínu mati skiptir öryggi og neytendavernd meira og meira máli í matvælaframleiðslu og ég legg því mikið upp úr því að neytendur sjái okkur sem mjög traustan og öruggan matvælafram- leiðanda sem byggi á gömlum og góðum hefðum en hafi tileinkað sér vinnubrögð og nýjungar hins nýja tíma. Við höfum einnig notið þess að vera með traust og mjög gott starfsfólk sem margt hefur unnið hjá okkur lengi og á sinn þátt í vel- gengni félagsins. Á síðari árum höfum við svo lagt gríðarlega mikla áherslu á vöru- þróun og náð að skapa nýjan vöruflokk, þ.e.a.s. tilbúna rétti, á grundvelli þeirrar vinnu.” Hann sagði alla þróun vera í átt til fljót- legri matargerðar og því kæmi fyrirtækið til með að bjóða meira úrval slíkra rétta í framtiðinni. „Núna erum við að fara af stað með nýja vörulínu af réttum sem eru tilbúnir til eldunar, en 1944 línan er tilbúin til hitunar. Þetta eru framandi réttir undir vörumerkinu ,Ask- ur víðförli" og hafa verið í þróun í tæpt ár. Við komum til með að bjóða upp á fimm rétti til að byrja með sem eru hugsaðir sem betri matur að kvöldi til og um helgar. I einni pakkningu, sem gefin er upp fyrir tvo, fær fólk allt sem þarf til matarins, þ.e. kjöt, krydd, grænmeti, annað meðlæti og sósu, sem tekur einungis 10-20 mínútur að elda.” MIKILVÆGT AÐ VIÐURKENNA MISTÖK „Ég held að eitt af því mikilvægasta, sem menn geri, sé að virkja heildina, að efla skilning starfsfólks á því sem fyrirtæk- ið starfar að. Einnig er lykilatriði á þessum síbreytilegu tímum að fyrirtækið sé sveigjanlegt, að ef möguleiki opnist geti menn verið fljótir að bregðast við. I þriðja lagi held ég að það sé gríð- arlega mikilvægt að viðurkenna mistök. Við erum öll mannleg og gerum öll mistök. Ef menn viðurkenna ekki mistök þá fyrst magnast afleiðingar þeirra. Menn verða að geta litið í eig- in barm, endurmetið hlutina og skipt um skoðun ef þess þarf með,” sagði Steinþór. Hann sagði fólk aldrei gera alla hluti rétt í fyrirtækjarekstri. Það, sem skipti hins vegar öllu máli, væri að meginákvarðan- ir og stefna væru í rétta átt því annars færi illa. „Fyrirtæki geta hins vegar líka lent í ógöngum þótt ekkert rangt sé gert, markaðir geta hrunið á einni nóttu eða aðrar skyndilegar breytingar orðið á utanaðkomandi aðstæðum. Rétt ákvörðun getur verið rétt en samt dæmd röng eftir á því ákvörðun byggir alltaf á þeim forsendum sem fólk hefur. Svo er líka hægt að taka ranga ákvörðun og vera heppinn.” HS HEILRÆÐI! 1. Keppið ekki við viðskiptavini ykkar. 2. Hugið að stefnumótun og uppfærið áætlanir ykkar reglulega. 3. Leggið áherslu á menntun og þjálf- un starfsfóiks. 4. Sofnið aldrei á verðinum í vöru- þróun. 5. Viðurkennið mistök. Annars magn- ast afleiðingar þeirra. 24

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.