Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1997, Síða 64

Frjáls verslun - 01.04.1997, Síða 64
REKSTUR LEIKHUSA á að það sé hægt og erum orðnir næst- stærsta leikhúsið því að í vetur höfum við fengið til okkar fleiri áhorfendur en Leikfélag Reykjavíkur," sagði Hallur Helgason, einn aðstandenda Flugfélags- ins Lofts í samtali við FV. Flugfélagið Loftur rekur Loftkastal- ann í Héðinshúsinu við Seljaveg. Félag- ið var upphaflega sett á stofn árið 1994 til þess að setja upp söngleikinn Hárið í Islensku óperunni. Hárið sló í gegn og 40 þúsund aðgöngumiðar voru seldir á tæpum 6 mánuðum. 500 manns voru á biðlista þegar sýningum var hætt vegna þess að Islenska óperan þurfti að nota húsið. Tekjurnar námu um 70 millj- ónum. „Þetta hefði átt að geta gengið út leik- árið og enginn veit hve margir hefðu komið. Það var virkilega sárt að þurfa að pakka saman og hætta. Við hefðum getað stungið afrakstrinum undir kodda og hætt þessu veseni en við ákváðum að setja hagnaðinn aftur inn í leiklistina." Þá var húsnæðið á Seljavegi keypt og næsta sýning var söngleikurinn Rocky Horror Picture Show sem 23 þúsund manns keyptu sig inn á. I kjölfarið lá starfsemi niðri um tíma vegna þess að á sama tíma og Rocky Horror rann sitt skeið var félagið aðili að uppsetningu á Hárinu í Barcelona á Spáni og hafði fyr- ir vikið ekkert leikrit til að sýna þegar Rocky Horror hætti. Starfsemin hófst aftur síðastliðið sumar með sýningum á Sirkus Skara Skrípó og A sama tíma að ári sem eru á vegum Lofts en auk þess hafa verið í húsinu aðrar sýn- ingar, s.s. Áfram Latibær sem not- ið hefur mikilla vinsælda en Flugfélagið Loftur er aðili að sýningunni í samvinnu við Magnús Scheving. I lok maí voru áhorf- endur á sýningar Lofts því orðnir rúmlega 40 þúsund yfir veturinn á þessar þrjár sýningar. Þar af eru rúmlega 25 þúsund áhorfendur á sýningar sem ein- göngu eru á vegum Lofts. Þetta þýðir að fleiri áhorfendur hafa komið á sýningar Lofts en Leikfé- lags Reykjavíkur og þar með er félagið orðið næst stærsta leikhús landsins á eftir Þjóðleikhúsinu. „Það hefur verið ásetningur að reka sýningar félagsins með hagnaði og það hefur tekist," sagði Hallur. „Þær áætlan- ir sem við höfum gert, hafa alltaf staðist, enda myndum við hætta að sýna ef við- komandi sýning stæði ekki undir sér.“ L0FTUR K0MINN Á FLUG Þrátt fyrír ungan aldur er ljóst að Flugfélagið Loftur er búið að festa sig í sessi meðal atvinnuleikhúsa. Velta ársins 1995 var 44 milljónir, 60 milljón- ir árið 1996 og að sögn Harðar Þor- steinssonar, framkvæmdastjóra verður veltan á þessu ári yfir 100 milljónir. Flugfélagið Loftur hefur fest tæpar 100 milljónir í húsnæði undir starf- semi sína en hefur ekki fengið neina ábyrgð frá opinberum aðilum á lánum eða öðru sem tengist rekstri félags- ins. Félagið hefur samtals fengið um 10 milljónir í styrki frá hinu opinbera síðan það tók til starfa, þar af var helmingurinn í formi atvinnuátaks Reykjavíkurborgar og 3 milljónir voru veittar vegna nýrrar uppsetningar sem verður frumsýnd í haust. Árin 1994 til og með 1996 komu samtals 110 þúsund gestir á sýningar Lofts, flestir á Hárið eða um 40 þús- und. Sé upphæð styrkja frá hinu opin- bera umreiknuð yfir í styrk á hvern miða í Loftkastalanum kemur í ljós að hæstur var styrkur- inn árið 1995 eða 219 krónur á miða en lækkaði niður í 58 krónur á miða árið 1996 og er áætlaður 39 krónur á miða árið 1997. Eins og kemur fram hér að framan er sama tala fyrir stóru leikhúsin allt önnur og margfalt hærri eða aldrei lægri en rúmar 3.000 krónur sem greiddar eru með hverjum leik- húsmiða og allt upp í 6.600 krónur í erfiðum árum. Flugfélagið Loftur er ekki með neinn leikara á föstum samningi held- ur eru allir ráðnir í lausamennsku í einstök verkefni. Öllum eru tryggð laun fyrir hverja sýningu og síðan er oft samið um bónusgreiðslur þegar ákveðnum ijölda sýninga er náð. „Það getur vel komið til að við sjá- um okkur hag í því að fastráða leikara í framtíðinni en ég leyfi mér að full- yrða að við greiðum hæstu launin sé tekið mið af fjölda sýninga.“ Stofnkostnaður leiksýningar er eitt en við hana bætist síðan það sem kall- að er „keyrslukostnaður“ sem er það sem kostar að sýna hveija sýningu fyrir sig. Framlegðin er því munurinn á þeim kostnaði og aðgöngumiðaverði á hveiju kvöldi. - En leggur þá Flugfélagið Loftur sig fram um að setja upp eins ódýrar sýningar og kostur er og hafa þannig lægri framleiðslukostnað en stóru leikhúsin og kemur það ekki óhjá- kvæmilega niður á gæðunum? „Okkar sýningar hafa verið gerðar af fullum metnaði. Við erum í beinni samkeppni við hin leikhúsin í bænum og ef við stöndumst ekki gæðakröfur þá erum við ekki samkeppnishæfir. Hárið er t.d. talinn einn glæsilegasti söngleikur sem hér hefur sést. Við reynum að setja upp það sem fólk vill sjá og vitum að fólk vill ekki sjá drasl. Þannig verður áherslan alltaf að vera á gæði, hvort sem þú ert að setja upp léttmeti eða klassísk leikverk. Eg held að okkar vinnubrögð séu ekki í neinu frábrugðin í listrænu tilliti því sem tíðkast í stóru leikhúsunum." Hallur segir að frá upphafi hafi Flugfélagið fengið styrki frá ríki og sveitarfélögum að upphæð 6 milljónir Sigurður Sigurjónsson og Tinna Gunn- laugsdóttir hafa fyllt Loftkastalann á tug- um sýninga á hinum vinsæla gamanleik, Á sama tima að ári. 64
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.