Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1997, Side 78

Frjáls verslun - 01.04.1997, Side 78
Hampiðjan er gott dæmi um fyrirtæki, sem málað hefur verið í nokkrum sterkum litum. Hér hafa menn sýnt dirfsku í litavali, að mati Nikulásar Ulfars, dirfsku sem gjarnan mætti sjást víðar. „Ég er ekki frá því að þetta sé rétt lýsing á litaþreytingunum, nema hvað mín tilfinning er að sú að frels- ið sé nú að verða meira hérna hjá okkur en fýrir einum til tveimur ára- tugum. Þá máluðu allir hvítt og ekki kom annað til greina. Menn viku ekki frá því, sem var í tísku, og eng- inn vildi vera öðruvísi en nágrann- inn,” segir Nikulás Úlfar. Þegar und- anhald hvíta litarins hófst varð það með þeim hætti að þeir huguðustu fóru hægt og varlega að blanda rauðu, gulu eða gráu saman við hvítu málninguna svo úr varð bleikt eða ljósrautt, ljósgult eða Ijósgrátt, „en síðan hafa litirnir alltaf verið að styrkjast. Þessu næst var farið að mála einn eða tvo veggi í pastellitum. Nú erum við loks komin yfir í jarðlit- ina og gjarnan farin að mála heilu húsin í þeim litum. Hvítt hefur þrátt fyrir það alltaf sterka stöðu á mark- aðnum og hefur alls ekki horfið af húsveggjunum þótt aðrir litir séu komnir til sögunnar.” Nikulás segir að sér finnist það hið besta mál að menn séu svolítið kaldir þegar þeir velji liti á hús, hvort heldur eru fyrirtæki eða íbúðarhús. „Við eig- um að mála húsin okkar í litum, og þá helst jarðlitum, til þess að fá hlýju í umhverfið af því að við lifum hér í snjó og gráma í níu mánuði á ári,” bætir hann við, „og það er oft ansi litlaust í kringum okkur. Þó ber að fara með mikilli aðgát. Slæmir litir geta eyðilagt góða byggingarlist, en vel hugsuð lita- samsetning getur einnig lyft upp slæmri byggingarlist. Því er ætíð ráðlegt að fá faglega ráðgjöf varðandi litaval. Við sjáum allt of víða liti sem hreinlega eru ekki útilitir og ætti því ekki að nota á hús og umhverfið verður þar af leið- andi hálf afkáralegt.” -Erum við ef til vill að færast yfir í liti eins og við sjáum á eldri húsum, meðal annars húsunum hjá ykkur í Arbæjarsafni? , Já, við höfum verið að nálgast jarð- litina sem voru notaðir í gamla daga. Fyrir 60 til 70 árum, og þaðan af fyrr, hafði fólk ekkert annað en þessa jarð- liti og það eru þeir sem eru nú að koma aftur.” SKORT HEFUR A VIÐHALD -Heldurðu að endurbætur gamalla húsa og það að verið er að færa þau til upprunalegs útlits, hafi þá ef til vill áhrif á litaval okkar hinna þegar við málum húsin okkar, þótt nýrri séu? „Ég er alls ekki frá því að svo sé. Við sáum mikið af gömlum húsum sem er verið að gera upp til dæmis í Þingholtsstræti og í Grjótaþorpi. Hús- in hafa verið máluð í upprunalegum litum og þar fær fólk tækifæri til þess að sjá þessa hlýju liti í réttu umhverfi. Það hlýtur að hafa áhrif, samanber Pósthúsið og áhrif þess á litaval. „Pósthúsrautt” er komið víða, til dæmis á Japishúsið við Brautarholt. En talandi um viðhald bætir Niku- lás Úlfar við: „Það hefur verið nokkuð áberandi í gegnum árin hversu illa við- haldi er oft sinnt á atvinnuhúsnæði. Maður skyldi ætla að það væri fyrir- tæki til framdráttar að ytri búnaður þess sé snyrtilegur, ekki síst nú á tím- um þegar mikið er rætt um ímynd fyr- irtækja í sambandi við aukinn hlut í markaði." 33 TEXTI: Fríða Björnsdóttir 78

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.