Morgunblaðið - 23.01.2001, Side 12

Morgunblaðið - 23.01.2001, Side 12
FRÉTTIR 12 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ FORSVARSMENN bankanna vísa á bug þeirri gagnrýni Sverris Her- mannssonar, formanns Frjálslynda flokksins og fyrrverandi banka- stjóra Landsbankans, að þeir hafi „narrað vankunnandi Íslendinga“ til að kaupa hlutabréf í deCODE, móð- urfyrirtæki Íslenskrar erfðagrein- ingar, á margföldu verði. Telja þeir gagnrýnina vart svara verða. Sverrir lét þessi ummæli falla á landsfundi flokksins á föstudag. Beindi hann orðum sínum sérstak- lega að Landsbankanum en talaði einnig um önnur fjármálafyrirtæki í sömu andránni. Bankastjóri Lands- bankans, Halldór J. Kristjánsson, vísaði þessari gagnrýni Sverris einnig á bug í frétt í sunnudags- blaðinu. Finnur Reyr Stefánsson, fram- kvæmdastjóri markaðsviðskipta Ís- landsbanka-FBA, sagði að bankinn kannaðist ekki við að hafa narrað einn eða neinn til viðskipta með bréf deCODE frekar en önnur bréf. Bankinn hefði tekið þátt í því sum- arið 1999 að kaupa bréf í deCODE af stofnfjárfestum félagsins. Þau hefðu verið seld til innlendra fag- fjárfesta en bankinn haldið hluta bréfanna sjálfur. „Hluti þeirra bréfa var síðan seld- ur hluthöfum FBA í ágúst síðast- liðnum. Á síðasta ári var bankinn þó heldur að bæta við eign sína í félag- inu en hitt. Okkar aðalstarf er að miðla skráðum verðbréfum útgefn- um af deCODE eða öðrum,“ sagði Finnur. Sverrir gagnrýndi fjármálafyrir- tækin einnig fyrir að kaupa bréfin til baka af „þessu auðtrúa fólki“, eins og hann orðaði það, og „hirða“ þau aftur fyrir „smánarverð“. Finnur Reyr vísaði þessu einnig á bug hvað Íslandsbanka-FBA varðaði. „Vilji fjárfestar selja bréf í deCODE, sem enn eru bundin skilyrðum vegna laga í Bandaríkjunum, leitum við lausnar í hverju tilviki fyrir sig. Eins og aðrir skuldbatt bankinn sig gagnvart deCODE til þess að eiga ekki viðskipti með þessi bréf á með- an læsitímabilið svokallaða stendur yfir,“ sagði Finnur Reyr. Einstaklingum ekki seld óskráð hlutabréf Þorsteinn Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Búnaðarbankans – Verðbréfa, vísaði gagnrýni Sverris á bug þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær. Bankinn hefði vissulega átt viðskipti með hlutabréf í de- CODE við tiltekna viðskiptavini en samkvæmt þar til gerðum reglum og enginn vankunnandi Íslendingur hefði verið narraður. „Okkar meginregla hefur verið sú, varðandi viðskipti með óskráð bréf, að láta viðskiptavininn undir- rita yfirlýsingu þar sem honum er gerð grein fyrir að um mjög áhættu- sama fjárfestingu er að ræða og við- komandi geri sér grein fyrir að hann eigi á hættu að tapa fjárfestingunni. Við höfum ekki lagt okkur eftir því að selja einstaklingum óskráð bréf heldur hefur aðallega verið um efna- meiri og reyndari fjárfesta að ræða,“ sagði Þorsteinn. Hann sagðist ekki kannast við að fjárfestar leituðu nú til bankans í vandræðum með þessi hlutabréf og þau lán sem hugsanlega voru tekin vegna kaupanna á sínum tíma enda hefði bankinn eingöngu í undan- tekningartilvikum veitt lán vegna kaupa á óskráðum bréfum. Telja ummælin vart svaraverð Forsvarsmenn banka svara gagnrýni formanns Frjálslynda flokksins á viðskipti með bréf deCODE SVERRIR Hermannsson var end- urkjörinn formaður Frjálslynda flokksins á þriðja landsþingi flokksins sem lauk síðdegis á laug- ardag. Hann var sjálfkjörinn sem og Guðjón A. Kristjánsson í emb- ætti varaformanns flokksins og Margrét Sverrisdóttir í embætti ritara flokksins. Gunnar Ingi Gunnarsson hafði áður gegnt vara- formennsku í flokknum en hann sagði af sér sem varaformaður um miðjan október sl. Á landsþinginu var samþykkt stefnuskrá flokksins, stjórnmálayf- irlýsing og ályktanir flokksins í nokkrum málaflokkum en m.a. samþykkti þingið að stefnt skuli að framboði flokksins í sem flestum sveitarfélögum landsins í næstu sveitarstjórnarkosningum. Kom m.a. fram í umræðum flokksmanna síðdegis á laugardag að með þátt- töku í sveitarstjórnarkosningum myndi flokkurinn ná enn betur að festa sig í sessi sem virkur þátt- takandi í stjórnmálum á landsvísu. Sagði Guðjón A. Kristjánsson, þingmaður Frjálslynda flokksins og nýkjörinn varaformaður flokks- ins, m.a. að ánægjulegt yrði ef flokkurinn næði að bjóða fram í sveitarfélögum landsins á næsta ári; ýmist sér eða í samstarfi við aðra flokka. Hvatti Sverrir Hermannsson síðan til þess í lokaávarpi sínu til þingsins að þegar yrði hafinn und- irbúningur að framboði flokksins í næstu sveitarstjórnarkosningum þegar að loknu landsþingi flokks- ins. Í stefnuskrá flokksins sem sam- þykkt var á þinginu eða stefnuá- varpi eins og hún er kölluð segir m.a. að Frjálslyndi flokkurinn berjist fyrir því frelsi einstaklings- ins í samfélaginu sem veiti honum svigrúm til athafna, en þrengi þó ekki að öðrum svo þeir verði mis- munun eða órétti beittir. Þá segir m.a. að flokkurinn berjist fyrir hæfilegu jafnvægi milli afskipta stjórnvalda og frumkvæðis ein- staklingsins sem og fyrir fullu jafnrétti karla og kvenna í öllum greinum og til áhrifa á þróun og mótun samfélagsins. Frjálslyndi flokkurinn berjist hins vegar gegn hvers konar ein- okun í viðskiptalífi og stjórnmál- um, klíkuveldi, fordómum, innræt- ingu skoðana, skoðanakúgun, mismunun og ofríki gagnvart þegnum af hvaða tagi sem er. Þá berst hann gegn fátækt í „okkar ríka samfélagi,“ eins og það er orðað sem og gegn stjórnmála- flokkum sem vilja viðhalda leynd um fjármál sín og gegn ofríki framkvæmdavaldsins gegn lög- gjafarvaldi og dómsvaldi, svo eitt- hvað sé nefnt af því sem fram kemur í stefnuávarpi flokksins. Er tekið fram að stefnuatriðin þurfi að vera í sífelldri þróun og endur- skoðun í tímans rás. Ekki bara eins máls flokkur Í umræðum á landsþinginu á laugardag kom sá vilji fram í máli margra þeirra sem til máls tóku að flokkurinn einbeitti sér að fleiri málefnum en sjávarútvegsmálum þótt síðarnefndi málaflokkurinn brynni eftir sem áður mjög heitt á flokksmönnum. Voru enda sam- þykktar ályktanir flokksins í ýms- um öðrum málaflokkum, svo sem samfélagsmálum, menntamálum, landbúnaðarmálum og jafnréttis- málum. Má þar m.a. nefna ályktun um að flokkurinn krefjist þess að húsaleigubætur verði gerðar skatt- frjálsar, ályktun um aukna áherslu á verk- og tæknimenntun til að „tryggja samkeppnishæfni at- vinnulífs í framtíðinni“, ályktun um að létt verði af landbúnaði hin- um „lamandi miðstýringar- og haftakerfi sem greinin hafi búið við“ og að lokum má nefna sam- þykkt jafnréttisáætlunar um að við röðun á framboðslista flokksins skuli reynt að tryggja að hlutur kynjanna verði sem jafnastur á framboðslistum til Alþingis og sveitarstjórna. Hvalveiðar hefjist að nýju Í ályktun flokksins um sjávarút- vegsmál er ítrekuð sú skoðun flokksmanna að þeir telji höfuð- nauðsyn að leggja af núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi. Í stórn- málayfirlýsingu þingsins segir ennfremur að stjórn núverandi valdhafa í fiskveiðimálum sé órétt- látasta lénsveldisstefna sem yfir Íslandi hafi dunið. Hreinræktuð landeyðingarstefna sem sé að leggja af sjávarbyggðirnar. Í ályktuninni um sjávarútvegs- mál segir m.a. að afnema beri nú- verandi kvótaúthlutun og að nú- verandi rétthöfum verði tryggð aðlögun til breyttra hátta. „Frjáls- lyndi flokkurinn telur, að sú fyrn- ingarleið sem nefnd er í skýrslu auðlindanefndar sé fær til afnáms núverandi kvótakerfis, enda verði framkvæmd breytinganna gerð á fimm árum. Sóknarstýring verði tekin upp alls staðar sem fyrst, þar sem því verður við komið, með hagsmuni sjávarbyggða að leiðar- ljósi. Upphaf umskipta þarf að marka með skiptingu flotans í að- greinda útgerðarflokka.“ Þá segir í ályktun þingsins um sjávarútvegsmál að flokkurinn telji að engin haldbær rök hamli því að hvalveiðar hefjist á Íslandsmiðum í vor og er í því sambandi vísað til fyrirhugaðrar sölu Norðmanna á hvalaafurðum á erlendum mörk- uðum. Varað við þenslustefnu stjórnvalda Í stjórnmálayfirlýsingu lands- þingsins eru viðbrögð stjórnvalda við dómi Hæstaréttar í máli Ör- yrkjabandalags Íslands og Trygg- ingastofnunar ríkisins harðlega fordæmd. Ennfremur er í stjórn- málayfirlýsingu varað við þenslu- stefnu stjórnvalda í efnahags- og ríkisfjármálum. Segir þar að nauð- synlegs aðhalds hafi ekki verið gætt. „Útgjöld ríkisins fara langt fram úr verðlagsþróun og tekjuafgang- ur ríkissjóðs er froðufé, sem rætur á að rekja að verulegu leyti til ógnarlegs viðskiptahalla. Fyrirsjá- anlega munu ríkisútgjöld fara langt fram úr fjárlögum eins og Samtök atvinnulífsins hafa sýnt fram á,“ segir m.a. Ennfremur að ríkisstjórnin taki ekki hið minnsta mark á aðvörunum aðila vinnu- markaðarins í þessum efnum. Eins og fyrr segir lauk lands- þinginu síðdegis á laugardag og sagði Sverrir Hermannsson, for- maður flokksins, m.a. í lokaávarpi sínu að framundan væri mikið starf innan flokksins enda væri bú- ið að samþykkja grundvöll flokks- starfsins með breiðum og málefna- legum grunni. Vísaði hann til þeirra ályktana og yfirlýsinga sem þingið hafði þegar samþykkt. Miðstjórn Frjálslynda flokksins skipa: Auður Matthíasdóttir, Berg- ljót Halldórsdóttir, Birgir Björg- vinsson, Björgvin E. Arngrímsson, Grétar Mar Jónsson, Guðmundur Wiium Stefánsson, Óskar Þór Karlsson, Pétur Bjarnason, Kjart- an Eggertsson og Reynir Hlíðar Jóhannsson. Sverrir Hermannsson endurkjörinn formaður Frjálslynda flokksins Stefnt að framboði í næstu sveitarstjórnarkosningum Morgunblaðið/Árni Sæberg Sverrir Hermannsson var endurkjörinn formaður Frjálslynda flokks- ins. Hann var sjálfkjörinn. LANDSMENN brugðust vel við neyðarkalli frá El Salvador í kjölfar jarðskjálftans þar fyrir viku og hægt verður að styðja hjálparstarfið með fimm milljóna króna framlagi frá Rauða krossi Íslands. Mikil þörf er enn fyrir matvæli, drykkjarvatn, bráðabirgðahúsnæði og áfallahjálp á stöðum þar sem stórir hlutar þorpa og bæja grófust undir aur. Nærri þrjú þúsund manns hringdu í númerið 907 2020 og með því söfn- uðust 1,4 milljónir króna, en Lands- síminn gaf alla þjónustu við söfnunar- númerið. Ein milljón króna var fengin úr Hjálparsjóði Rauða krossins, rík- isstjórnin gaf eina milljón og afgang- urinn kom frá deildum félagsins og al- menningi með ýmsum hætti. Hjálparstarfið beinist nú að þörf- um þeirra sem lifðu af en margir þeirra hafa misst allt sitt. Rauði krossinn í El Salvador hefur þegar komið hjálpargögnum til um 100 þús- und manna á 43 stöðum í landinu. Þá hafa stjórnvöld í El Salvador beðið Rauða krossinn að hafa umsjón með aðstoð við um 50 þúsund manns sem eru heimilislaus og dvelja í opinberum byggingum, tjöldum og öðru bráða- birgðahúsnæði. Undanfarna daga hefur lið sér- fræðinga frá Alþjóða Rauða krossin- um metið aðstæður. Sérfræðingarnir munu gera tillögur að áframhaldandi aðstoð við fórnarlömb skjálftans. Fimm millj- ónir til El Salvador ♦ ♦ ♦ Fannst í biðröð fyrir utan nekt- ardansstað Stal peningaskúffu með talsverðum fjármunum KARLMAÐUR á sextugsaldri stal peningaskúffu úr veitingasal á Hótel Borg í fyrrinótt, sem í voru talsverð- ir fjármunir. Starfsfólk gat gefið lög- reglu greinargóða lýsingu á mann- inum og fannst maðurinn um klukkustund síðar þar sem hann stóð í biðröð fyrir utan nektardansstað í miðborginni. Maðurinn kom inn í veitingasalinn eftir lokun og mun hafa verið ósáttur við að fá ekki afgreiðslu. Þegar hon- um var vísað út hrifsaði hann með sér peningaskúffu sem í voru 50–70 þúsund krónur og hljóp á brott. Þeg- ar lögreglan fann manninn var hann enn með talsverða fjármuni á sér. Hann vísaði síðan lögreglunni á peningaskúffuna sem hann hafði kastað frá sér í Mjóstræti. Hann var því næst fluttur í fangageymslur lög- reglunnar. Lést af völd- um höfuð- áverka Maðurinn sem fannst meðvitundarlaus í fangaklefa lögreglunnar DÁNARORSÖK mannsins sem fannst meðvitundarlaus í fangaklefa lögreglunnar í Reykjavík og lést hinn 17. desember á sjúkrahúsi í Reykjavík var höfuðáverki. Áverk- arnir eru ekki taldir hafa verið af mannavöldum heldur hafi maðurinn slasast á höfði við fall. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni leiddi krufning í ljós að maðurinn hafði fengið höfuðáverka 1–2 sólarhringum áður en hann var fluttur í fangaklefa lögreglunnar 14. desember sl. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.