Morgunblaðið - 23.01.2001, Page 25

Morgunblaðið - 23.01.2001, Page 25
er fyrirtæki sem sérhæfir sig í síma- þjónustu við tölvueigendur og hand- hafar Gullkorts fá 30 mínútna síma- þjónustu sem og heimsókn fagmanns til að leysa úr vandamálum sér að kostnaðarlausu,“ segir Guðmundur. Flýtiþjónustan ekki mikið notuð Bjarni Ákason, framkvæmdastjóri hjá Aco, segir fyrirtækið bjóða upp á flýtiþjónustu og kostar hún sex til sjö þúsund krónur. „Flýtiþjónustan er ekki mikið notuð hjá okkur en hún stendur viðskiptavinum engu að síð- ur til boða og er hér um aukna þjón- ustu að ræða fyrir viðskiptavini. Við erum með viðgerðarþjónustu sem er viðskiptavininum að kostnaðarlausu ef hluturinn er í ábyrgð. Við erum nú að koma á þeirri þjónustu að ef hlut- urinn er í ábyrgð þá sé hann settur framarlega í röðina, viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Þetta fer þó eftir álagi hverju sinni. Ef menn eru í miklum vandræðum þá er flýtiþjón- ustan besti kosturinn og varan er þá yfirleitt tilbúin samdægurs. Venju- leg viðgerðaþjónusta tekur síðan yf- irleitt 1 til 3 daga en getur farið upp í 7 daga,“ segir Bjarni. Kaupandi á ekki að verða fyrir óhagræði „Ef ákveðinn hlutur er í ábyrgð þegar hann er settur í viðgerð og kaupanda er síðan gert að borga til- tekna upphæð fyrir að fá hlutinn af- hentan til dæmis eftir sólarhring er um flýtiþjónustu að ræða. Fyrir slíka þjónustu teljum við að neytendur eigi ekki að þurfa að borga þegar um ábyrgðarviðgerðir er að ræða,“ segir Björk Sigurgísladóttir, lögfræðingur hjá Neytendasamtökunum. „Vegna fjölda kvartana sem okkur hafa borist erum við að láta reyna á eitt slíkt dæmi og er það hjá Sam- keppnisstofnun,“ segir Björk og bætir við að niðurstöðu sé vonandi að vænta á næstunni.“ Aðspurð segir Björk talsvert ber- ast af kvörtunum vegna þessara greiðslna fyrir flýtiviðgerðir. „Það er ávallt mikið kvartað yfir tölvumálum og þetta er einn angi af því. Í 49. grein núverandi laga um lausafjár- kaup segir að seljandi hafi rétt á því að gera við hlut en hann verði að gera það án þess að kaupandi hafi kostnað eða óhagræði af því. Að kaupandi þurfi að greiða fyrir þjónustuna er ekki eðlilegt því hér er um gallaðan hlut að ræða sem seljandi hefur látið frá sér fara,“ segir Björk. Ef neytendur telja á sér brotið og að tölvufyrirtæki sinni ekki skyldum sínum segir Björk að hægt sé að leita aðstoðar Neytendasamtakana. NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 25 Stólpi fyrir Windows Kynning á Hótel Loftleiðum, Þingsal 1, 24. janúar, kl. 16.00 -18.00 Kynnt verður ný útgáfa af Stólpa fyrir Windows og nær bókhaldskerfið nú til flestra þátta atvinnurekstrar. Einstaklega notendavænn viðskiptahugbúnaður í takt við tímann. Kerfið hefur alla sömu eiginleika og Word og Excel. Kerfisþróun ehf. byggir á fimmtán ára reynslu við gerð viðskiptahugbúnaðar og þjónar um 1500 viðskiptavinum á öllum sviðum atvinnulífsins. Um 150 fyrirtæki hafa nú þegar tekið Stólpa fyrir Windows í notkun. Hægt er að skoða kerfin á heimasíðu Kerfisþróunar:http://www.kerfisthroun.is Komdu, sjáðu og láttu sannfærast um hvernig upplýsingakerfi á að líta út. Helstu bókhaldskerfin frá Kerfisþróun: Fjárhagsbókhald, Skuldunautabókhald, Lánardrottnabókhald, Sölukerfi, Innheimtukerfi banka, Birgðakerfi, Vefverslun, Framleiðslukerfi, Verkbókhald, Launakerfi, Stimpilklukkukerfi, Tilboðskerfi, Bifreiðakerfi, Pantanakerfi, Tollkerfi, Útflutningskerfi og EDI samskipti. Námskeið í launakerfinu verður mánudaginn 29. janúar kl. 13 - 17 • Námskeið í bókhaldskerfunum verður miðvikudaginn 31. janúar kl. 9 - 12 • Staður: Tölvuskóli Reykjavíkur. Bókanir í síma 568 8055. Fákafen 11 • Sími 568 8055 • Fax 568 9031 Netfang: kerfisthroun@kerfisthroun.is EMMESSÍS hækkaði nýverið verð á framleiðsluvörum sínum sem nemur 7%. Jón Axel Pétursson, fram- kvæmdastjóri Emmessíss, segir að að baki hækkuninni séu nokkrar ástæður eins og hækkun á hráefni til ísgerðar þar á meðal á mjólkurafurð- um. „Þá hefur orðið umtalsverð hækkun á erlendum umbúðum en þær eru flestar úr plasti og falla því undir hækkanir á olíu. Ýmis íblönd- unarefni eru notuð í ís eins og sykur og hækkun á sykri á milli ára er nærri 60%,“ segir Jón Axel. Stór hluti af kostnaði fyrirtækisins er dreifingarkostnaður og segir Jón Axel hækkun eldsneytiskostnaðar sem og trygginga eiga þar líka hlut að máli. „Þá hafa laun starfsmanna hækkað samkvæmt hækkun samninga hjá Eflingu og VR. Þegar allar þessa kostnaðarhækkanir eru síðan lagðar saman þá endum við í þessari tölu.“ Aðspurður segist hann ekki eiga von á frekari hækkun á þessu ári en þess má geta að síðasta hækkun fyr- irtækisins var að sögn Jóns Axels fyr- ir rúmu ári. Hækkun tekur gildi 1. febrúar Hinn 1. febrúar næstkomandi mun Kjörís hækka flestar framleiðsluvör- ur sínar að meðaltali um 7,4%. „Ástæða hækkunarinnar eru al- mennar verðhækkanir á aðföngum. Mjólkurvörur hækkuðu nú um ára- mótin um 5%, sykur hefur hækkað um rúmlega 30% síðastliðna tvo mán- uði og þá urðu launahækkanir um áramótin og námu þær 3%,“ segir Valdimar Hafsteinsson, fram- kvæmdastjóri Kjöríss. Að sögn Valdimars eru flestar framleiðsluvörur að hækka, þ.e. þær sem ekki hækkuðu í desembermán- uði. „Í desember hækkuðum við bresku Walls-ísterturnar um 5%, meðal annars vegna hækkunar á gengi pundsins, en þessar vörur standa í stað nú.“ Umbúðahækkanir erlendis eiga að sögn Valdimars þar einnig hlut að máli. Verðhækkun hjá Emmessís og Kjörís EVRÓPUSAMBANDIÐ hefur sent frá sér tillögur að reglugerð um íblöndun bætiefna í matvæli. Danska matvælastofnunin hefur mótmælt þessum drögum sem fela í sér að hægt verður að vítamínbæta sætindi. Svava Liv Edgarsdóttir matvæla- fræðingur hjá Hollustuvernd ríkis- ins segir að hérlendis hafi í lok síð- asta árs verið sent til umhverfis- ráðuneytisins drög að reglugerð um íblöndun bætiefna í matvæli. Hún segir að þar sé ekkert sem heimili íblöndun bætiefna í sælgæti. Skilyrði fyrir veitingu leyfis til íblöndunar bætiefna í matvæli verða áfram ströng. Markmið reglugerð- arinnar er að íblöndun bætiefna í matvæli sé neytendum til hagsbóta og leiði ekki til heilsutjóns. „Það skiptir á hinn bóginn máli hvaða vítamín er um að ræða. Það hefur verið leyft að nota C-vítamín í sælgæti og þá sem tæknilegt hjálp- arefni en ekki til að vítamínbæta eða auka hollustugildi. Önnur vítamín hafa ekki verið leyfð í sætindum hér á landi. Gefin hefur verið út norræn skýrsla um vítamínbætingu, þar sem vítamín eru flokkuð í áhættuflokka. Trúlega verður tekið mið af þeirri skýrslu á meðan ekki eru samræmd- ar reglur í Evrópu.“ Hún segir ennfremur að ef það berist tilskipun frá Evrópusam- bandinu þar sem heimiluð er frjáls- legri íblöndun, verði Íslendingar væntanlega að hlíta henni. Hún bendir á að enn hafi engin slík til- skipun borist og að enn sé langt í land að þessi fyrstu drög Evrópu- sambandsins um vítamínbætingu verði að lögum en nú séu í gangi gagnrýnar umræður um þessar til- lögur sambandsins. Ekki ráðgert að heimila vítamínbætt sælgæti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.