Morgunblaðið - 23.01.2001, Side 50

Morgunblaðið - 23.01.2001, Side 50
MINNINGAR 50 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Gengin er í hárri elli mæt kona sem ég á margt upp að unna. Hún var gift föður- bróður mínum, Vigfúsi Þorsteinssyni, og ég hef ekki verið hár í loftinu þegar ég kynntist henni fyrst. Þau bjuggu allan sinn búskap á ættaróðalinu að Húsatóftum á Skeiðum. Þar var gott að koma og líka gott að vera. Ég tel það eitt mesta happ ævi minnar að hafa fengið að vera þar í sveit í sex sumur hjá þeim hjónum þrátt fyrir að barnafjöldinn væri svo sem nógur fyrir. Það var einn af bestu skólum sem ég hef verið í. Sá eiginleiki Þórunnar sem mér er minnisstæðastur er hlýjan. Frá henni stafaði mannleg hlýja, mildi og vinsemd sem gerði það að verk- um að manni leið alltaf vel nálægt henni. Þessum eiginleikum hélt hún alla ævi, jafnvel eftir að heilsunni ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR ✝ Þórunn Jónsdótt-ir fæddist á Hlemmiskeiði á Skeiðum 28. septem- ber 1905. Hún lést á Sjúkrahúsi Suður- lands 13. janúar síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Skálholtskirkju 19. janúar. tók að hraka verulega og persónuleikinn breyttist eins og oft vill verða. Þannig hverfa mér ekki úr minni síð- ustu heimsóknir mínar til hennar. Þá var gott að finna enn þessa hlýju og ekki var verra að hún virtist enn muna eftir mér enda þótt minnið væri ann- ars orðið skert. Þó að við værum ekki skyld og býsna margir stæðu nær henni, þá lágu allt- af milli okkar einhverj- ir dularfullir leyniþræðir af því tagi sem hvorki verða skildir né skýrðir en gefa mannlegum samskiptum lit og ljós. Svo var engu líkara en þessir leyniþræðir lægju áfram til Viðars sonar míns sem naut einnig hlýju hennar fjörutíu árum síðar þegar hann var líka í sveit á Húsatóftum. Hlýja Vigfúsar var af allt öðrum toga en Þórunnar. Margir sem þekktu hann hefðu sjálfsagt alls ekki kennt hann við hlýju en hann var samt í raun og veru hlýr maður á sinn hátt, þó að hann væri kaldranalegur á ytra borði. Þeir bræðurnir, hann og faðir minn, voru líkir að þessu leyti eins og ýmsu öðru og við afkomendur þeirra höf- um margir tekið þetta í arf; glettni, stríðni og kaldranalegt yfirborð en viðkvæma lund inni fyrir. Á Húsatóftum var og er svo sann- arlega hátt til lofts og vítt til veggja. Þeir sem þekkja fjallahringinn á slíkum stað geta farið nokkrum sinnum kringum jörðina án þess að finna neitt sem stenst samjöfnuð í huga þeirra. Bærinn stendur í þjóðbraut og þar var sannarlega líf og fjör þegar ég var að alast upp. Börnin tólf áttu auðvitað þátt í því, glaðsinna eins og þau eiga kyn til í báðar ættir. Gesta- komur voru líka tíðar og hygg ég að margur hafi farið þaðan léttari í lund en hann kom. Og símstöðin, sem var í rauninni tækniundur þess tíma, skapaði sérstakan anda á heimilinu. Henni var líka sinnt sam- viskusamlega og átti Þórunn heitin sinn þátt í því. Með því má í rauninni segja að hún hafi unnið utan heimilis þrátt fyrir barnafjöldann. Þó að Þórunn væri alla tíð bæði hlý og létt í lund verður ekki sagt að mulið hafi verið undir hana um æv- ina. Það tók auðvitað á konu að eiga 12 börn á þeim tímum og berjast jafnframt við erfiðan sjúkdóm. En einmitt þessi sömu skapgerðarein- kenni fleyttu henni yfir alla hjalla þannig að ég fann aldrei annað en hún væri bara býsna sátt við lífið og tilveruna þegar fór að halla undan fæti. Æðruleysið var hennar aðals- merki. Þau Þórunn og Vigfús voru mér alla tíð afar góð í þess orðs víðustu og bestu merkingu. Þau sýndu mér bæði natni og þolinmæði þegar bók- hneigður og alvörugefinn borgar- drengurinn átti að tileinka sér leyndardóma sveitalífsins og mæta kröfum þess. Þau létu sér annt um mig bæði meðan ég var hjá þeim og eins á eftir. Ég minnist ætíð vist- arinnar hjá þeim í bernsku með virð- ingu og söknuði, en þó umfram allt með þakklæti. Sá sem vekur hjá öðr- um slíkar tilfinningar við ævilok svo löngu síðar hlýtur að hafa kvatt heiminn í sátt. Við Sigrún, móðir mín og systur og öll fjölskylda okkar sendum börn- um og allri fjölskyldu Þórunnar samúðarkveðjur um leið og við þökkum langa og mikilsverða sam- fylgd látinnar sómakonu. Þorsteinn Vilhjálmsson. Sumt fólk skilur eftir sig óvenju góðar minningar í hugum samferða- fólksins og þakklæti fyrir störf í þágu margra. Svo er um Þórunni Jónsdóttur, áður húsmóður á Húsa- tóftum, sem nú er kvödd eftir langa legu á sjúkrahúsi. Hún fékk það hlutskipti í lífinu – auk húsmóður- starfsins – að vinna fyrir marga og leysti þau störf af hendi af mikilli samviskusemi. Þeirra starfa hennar vil ég hér minnast. Þórunn var heimasæta á Hlemmi- skeiði, þegar hún giftist Vigfúsi Þor- steinssyni bóndasyni í austurbænum á Húsatóftum árið 1926 og stofnaði þar heimili með honum. Sama ár var þar sett upp landssímastöð, en lengra náði síminn ekki í fyrstu. Þar var einnig sett upp pósthús, eða bréfhirðingarstöð, eins og það var kallað. Á Húsatóftum var jafnframt afgreiðsla fyrir fólksflutningabíla, sem þá fóru ekki lengra. Gestagang- ur var því mikill og nóg að gera hjá hinni ungu húsmóður með vaxandi barnahóp. Símstöðin var á Húsatóftum í 48 ár eða til ársins 1974. Heimilið var miðstöð sveitarinnar í þeim efnum því margir áttu þangað erindi. Vig- fús var stöðvarstjóri en þurfti mörgu að sinna og símaafgreiðslan lenti því mikið á húsmóðurinni. Þá varð að senda eftir mönnum í síma eða þeir að fara þangað til að hringja – og átti ég því oft erindi að Húsa- tóftum. Og kaffi var alltaf á könn- unni. Og árin liðu – en nú kom ný tækni til sögunnar jafnframt auknu fjár- magni – sveitarsíminn. – Síminn var lagður um sveitina í tveimur áföng- um 1946 og 1953, og var það mikil framför í símamálum. Línurnar – eða bæjarhóparnir voru fjórir – og urðu svo samtvinnaðir og fastir í huga fólksins að farið var að láta lín- urnar sjá um hjónaballið til skiptis – og svo er enn. Hver bær hafði sína hringingu – fólk gat hringt beint innan hverrar línu en símstöðin á Húsatóftum varð að gefa samband á milli línanna og út úr sveitinni. Jókst þá enn álagið á Húsatóftaheimilið. Verið var að hringja allan daginn en mest þó í hádeginu. Er mér sagt að Þórunn hafi reynt að vera þá búin að elda – en þó hafi komið fyrir að upp úr pottunum sauð, þegar hún var að afgreiða símtöl. Einnig var hringt mikið á kvöldin og einnig var ansað á nóttunni, ef mikið lá við. Þótt fjöl- skyldan hjálpaðist að mæddi mest á húsmóðurinni, sem var alltaf inni og sérstaklega síðustu árin eftir að Vig- fús missti heilsuna. Dáðist ég oft að hinni endalausu þolinmæði hennar Þórunnar við kvabbinu í okkur. Sveitarsíminn er minnisstæður en svo kom einkasími í sveitina árið 1975 og var Skeiðahreppur fyrsta sveitin á landinu, þar sem allir not- endur fengu einkasíma. Símstöðin á Húsatóftum er nú löngu af lögð en ég er einn þeirra sem minnist þeirrar þjónustu, sem Húsatóftaheimilið veitti og ekki síst hún Þórunn. Henni sé því heiður og þökk. Aðstandendum votta ég samúð. Jón Eiríksson. * +      (    #  (#                    &   9  & *,!( !A+7 ,-*./*$ 2, -. 5 ! -/ , ! * !<  , ,: , ! "3 !6'  $ '   3    992   *. !   &     #         ) +)      4        )     #      #     +  '(. !'( ! 2' . ! !'(' !'(   2,!(2  $ 7      (   #   #               = ?%=  #(' !< /(A;  & "    4       8     9&    +      $  4  : ! )  <! ',5 ! 4#     2' ,5 !  ! @,,B& , 66'  66'$ *  +      +     (     #  (#                         C9  "   & 2' !AD 9, 6,-.'6$ : ! )  !'  ! ,  ! ) '  , ' $ 2 3           ? 9 % "    5# 5!(! &   %   6         #  #   %/    0 ;0 <         9  )      %.    / 00 9 !6 5   ! ! 5  <,!('   ! ! 5  2/3! !  5' 5  .1  ! ,  5  ! / 5 ! 2,2   !'(' 5  , < , 5          $          E9   & # 'F ,-*./*  &    #   .   #        #    %,    0 ;0 ' !-  <, ! !- ! ! .#2$ !',!  53-  '(.- ! 1,!"!' 5   - *!! 6# 6#* '<! # $ * +     +     (     #  (#                        "  & 1<6!FG 9, 6,-.'6$ : ! )  ! / !'( !   , $ EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: Í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. Í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. Skilafrestur minning- argreina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.