Morgunblaðið - 10.02.2001, Page 1
34. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 10. FEBRÚAR 2001
ÞESSI mynd rússneska ljósmyndarans Júrís
Shtúkíns var valin fréttamynd ársins 2000 í al-
þjóðlegri samkeppni sem samtökin World Press
Photo standa fyrir árlega. Myndin sýnir afleið-
ingar sprengjutilræðis í neðanjarðarlestarstöð í
Moskvu 8. ágúst.
Mynd bandaríska ljósmyndarans Lara Jo Reg-
an af fátækri innflytjendafjölskyldu í Texas var
valin ljósmynd ársins, en hún var birt í tímarit-
inu Life.
Alls sendu 3.938 ljósmyndarar frá 121 landi
42.321 mynd í keppnina að þessu sinni.
AP
Fréttamynd ársins
ARIEL Sharon, verðandi forsætis-
ráðherra Ísraels, ræddi í gær við
Ehud Barak, fráfarandi forsætisráð-
herra, og bauð honum embætti varn-
armálaráðherra í hugsanlegri þjóð-
stjórn þrátt fyrir ágreining þeirra um
hvernig koma ætti á friði við Palest-
ínumenn. Sharon ræddi einnig við
Yasser Arafat, leiðtoga Palestínu-
manna, í síma og sagði honum að frið-
arviðræður gætu ekki hafist nema
Palestínumenn hættu uppreisn sinni.
Sharon vill griðasamning
Ekki var vitað hvernig Barak svar-
aði tilboðinu. Ísraelskar útvarps-
stöðvar sögðu að Barak hefði sagt
Sharon að hann myndi ekki hafa af-
skipti af stjórnmálum um hríð eftir að
hann lætur af embætti.
Arafat hringdi í Sharon í gær og er
það í fyrsta sinn sem þeir ræðast við
eftir forsætisráðherrakosningarnar í
Ísrael á þriðjudaginn var. „Arafat
sagði Sharon að hann vildi frið og
hefði hug á að hefja friðarviðræður að
nýju,“ sagði heimildarmaður á skrif-
stofu Sharons.
Að sögn heimildarmannsins kvaðst
Sharon einnig vilja finna leið til að
hefja friðarviðræður og draga úr
þjáningum saklausra íbúa sjálfstjórn-
arsvæða Palestínumanna. „Skilyrðið
er að ofbeldisverkunum verði hætt al-
gjörlega,“ hafði heimildarmaðurinn
eftir Sharon.
Í viðtali, sem dagblaðið Yediot
Ahronot birti í gær, kvaðst Sharon
vilja gera griðasamning við Palestínu-
menn, en ekki formlegan friðarsamn-
ing.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, tilkynnti að hann
hygðist fara til Miðausturlanda 23.
þessa mánaðar.
Ísraelskir hermenn skutu 16 ára
Palestínumann til bana nálægt byggð
gyðinga á Gaza-svæðinu í gær. Einnig
kom til skotbardaga milli ísraelskra
hermanna og palestínskra byssu-
manna í borgunum Ramallah og
Hebron á Vesturbakkanum. 27 Pal-
estínumenn og belgískur blaðaljós-
myndari særðust í Ramallah.
Ariel Sharon reynir að ná samkomulagi um þjóðstjórn í Ísrael
Býður Barak
embætti varnar-
málaráðherra
Jerúsalem. Reuters, AP.
Reuters
Ariel Sharon (t.v.) tekur í höndina á Ehud Barak á fundi þeirra í gær.
MEIRIHLUTI Færeyinga hyggst
greiða atkvæði gegn sjálfstæði Fær-
eyja í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem
ráðgerð er í maí, ef marka má skoð-
anakönnun sem Dimmalætting birti
í gær.
Könnunin bendir til þess að 51%
Færeyinga sé á móti sjálfstæði en
37% séu hlynnt aðskilnaði frá Dan-
mörku. 12% höfðu ekki enn gert upp
hug sinn.
Þetta er fyrsta skoðanakönnunin í
Færeyjum eftir að færeyska land-
stjórnin kynnti áform sín um að efna
til þjóðaratkvæðagreiðslu 26. maí
um þá tillögu sína að eyjarnar lýsi yf-
ir sjálfstæði eftir tólf ár.
Könnunin bendir einnig til þess að
stjórnarflokkarnir myndu missa
þingmeirihluta sinn ef kosið væri nú.
Afstöðu dönsku
stjórnarinnar kennt um
Anfinn Kallsberg, lögmaður Fær-
eyja, sagði að niðurstaða skoðana-
könnunarinnar ylli sér miklum von-
brigðum. „Augljóst er að þessi
niðurstaða stafar af því að danska
stjórnin hefur sett spurningarmerki
við áætlun okkar,“ sagði Kallsberg í
viðtali við færeyska útvarpið.
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, hefur lýst því
yfir að Danir hætti að veita Færeyj-
um fjárhagsaðstoð eftir fjögur ár
verði sjálfstæði samþykkt í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni, ekki eftir tólf ár
eins og gert er ráð fyrir í áætlun fær-
eysku landstjórnarinnar. Hann vill
hins vegar semja um breytingar á
lögunum um heimastjórn Færeyja.
Joannes Eidesgaard, leiðtogi
Jafnaðarflokksins færeyska, sem er í
stjórnarandstöðu, segir að niður-
staða könnunarinnar komi ekki á
óvart því áform landstjórnarinnar
um þjóðaratkvæðagreiðslu einkenn-
ist af ringulreið.
Færeyjar
Meirihluti
andvígur
sjálfstæði
Þórshöfn. Morgunblaðið.
VEIÐISTJÓRAEMBÆTTIÐ
norska hefur ekki sótt um leyfi
til að nota þyrlur við umdeildar
úlfaveiðar sem hefjast eiga í
Noregi í dag. Hefur náttúru-
verndarráðið þar í landi sagt
framkomu stjórnvalda í málinu
til skammar og margir hafa
lýst veiðiaðferðirnar ólöglegar,
þeirra á meðal loftferðaeftirlit-
ið, sem segir notkun þyrlna við
veiðar stranglega bannaða.
Það eru ekki aðeins sjálfar
veiðarnar heldur einnig veiði-
aðferðirnar sem valda deilum.
Fjárbændur segja úlfana leggj-
ast á fé og stjórnvöld hafa tekið
undir það og leyft veiðar á níu
úlfum. Veiðarnar hafa hins veg-
ar verið harðlega gagnrýndar
erlendis, einkum í Svíþjóð.
Noregur
Úlfaveið-
ar gagn-
rýndar
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.