Morgunblaðið - 10.02.2001, Side 20
AKUREYRI
20 LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Til leigu á Akureyri
Stórt hús með 3 íbúðum til leigu. Fimm herbergja íbúð með
bílskúr og tvær litlar íbúðir. Góð staðsetning fyrir barnafólk.
Leigutími frá 1. júní 2001.
Áhugasamir leggi inn nafn og síma á auglýsingadeild Mbl.,
merkt: „3 íbúðir“, eða hafi samband í netfang: torey@li.is
BÆJARSTJÓRN Akureyrar skip-
aði í vikunni Þröst Ásmundsson,
formann menningarmálanefndar,
Jakob Björnsson bæjarfulltrúa og
Gunnar Ragnars viðskiptafræðing í
nefnd til að fara yfir alla þætti er
varða aðkomu bæjarins að mynd-
listarmenntun í bæjarfélaginu.
Nefndinni er sérstaklega ætlað
að fara yfir alla þætti í starfsemi
Myndlistaskólans á Akureyri og að-
komu bæjarins að þeim rekstri.
Helgi Vilberg, skólastjóri Mynd-
listaskólans, gerir skipun nefndar-
innar að umtalsefni á Menningarvef
Akureyrar og segir þar m.a. „Það
er vel til fundið hjá Akureyrarlist-
anum að velja Þröst (Ásmundsson) í
nefndina því engum er jafn mikið í
nöp við Myndlistaskólann á Akur-
eyri og honum.“
Þröstur sagðist í samtali við
Morgunblaðið ekki telja eðlilegt að
úttala sig um þetta atriði á meðan
þessi nefnd er að störfum. Sam-
kvæmt ákvörðun bæjarráðs skal
nefndin skila tillögum sínum fyrir
lok næsta mánaðar.
Ásgeir Magnússon, formaður
bæjarráðs og oddviti Akureyrarlist-
ans í bæjarstjórn Akureyrar, sagð-
ist ekki hafa áhuga á að munn-
höggvast við Helga Vilberg um
þetta mál í fjölmiðlum. „Þetta mál
snýst ekkert um þá hluti sem hann
er að ýja að. Hann getur haft sínar
skoðanir á mönnum og málefnum
og verður að eiga það við sig. Ég
vitna hins vegar bara til þess sem
ég hef áður sagt,“ sagði Ásgeir og
vildi að öðru leyti ekki tjá sig um
málið.
Skólastjóri Myndlistaskólans á Akureyri
Engum jafn mikið í nöp
við skólann og Þresti
AKUREYRARKIRKJA: Fjöl-
skyldumessa kl. 11 á morgun,
séra Guðmundur Guðmunds-
son. Barna- og unglingakór
kirkjunnar syngur. Fundur í
Æskulýðsfélaginu kl. 17 í kap-
ellu. Æðruleysismessa kl. 20.30
um kvöldið, séra Jóna Lísa Þor-
steinsdóttir. Krossbandið sér
um tónlist og Anna Valsdóttir
sér um almennan söng. Kaffi-
sopi á eftir í Safnaðarheimili.
Biblíulestur kl. 20.30 á mánu-
dagskvöld. „Þjófnaður og ör-
læti“, í umsjá sr. Guðmundar
Guðmundssonar. Morgunsöng-
ur kl. 9 næsta þriðjudag.
Mömmumorgunn á miðvikudag
frá kl. 10 til 12. Kyrrðar- og fyr-
irbænastund næsta fimmtudag
kl. 12. Bænaefnum má koma til
prestanna. Léttur hádegisverð-
ur á eftir í Safnaðarheimili.
Hjónanámskeið í Safnarðar-
heimili kl. 20.30 sama kvöld.
GLERÁRKIRKJA: Barnasam-
vera og guðsþjónusta í kirkj-
unni kl. 11 á morgun, sunnu-
dag. Foreldrar eru hvattir til að
koma með börnum sínum. Sr.
Pétur Þórarinsson prófastur
predikar. Kyrrðar- og til-
beiðslustund í kirkjunni næsta
þriðjudag kl. 18. Hádegissam-
vera kl. 12 til 13 í kirkjunni,
helgistund, fyrirbænir og
sakramenti. Léttur hádegis-
verður í safnaðarsal á vægu
verði. Alfanámskeið í Glerár-
kirkju næsta miðvikudagskvöld
kl. 19. Uppbyggjandi námskeið
um grundvallaratriði kristinnar
trúar. Opið hús fyrir mæður og
börn kl. 10 til 12 á fimmtudag.
Æfing barnakórsins kl. 17.30
sama dag.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Fjöl-
skyldusamkoma kl. 11 á morg-
un, sunnudag í húsnæði hersins
við Hvannavelli 10. Börn og
unglingar sýna leikþátt og
brúðuleikrit og syngja.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Bænastund í kvöld. Laugardag
kl. 20. Sunnudagaskóli fjöl-
skyldunnar kl. 11.30 á morgun.
Aldursskipt kennsla þar sem
allir fá eitthvað við sitt hæfi. G.
Theódór Birgisson sér um
kennsluna. Vakningasamkoma
sama dag kl. 16.30. Þar verður
flutt fjölbreytt lofgjörðartónlist
og Vörður L. Traustason pred-
ikar. Fyrirbænaþjónusta og
barnapössun.
KFUM og K: Almenn samkoma
kl. 20.30 á morgun, sunnudag.
Ræðumaður verður sr. Guð-
mundur Guðmundsson.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa
í dag, laugardag kl. 18 og á
morgun, sunnudag kl. 11 í Pét-
urskirkju við Hrafnagilsstræti
2 á Akureyri.
SJÓNARHÆÐ: Sunnudaga-
skóli í Lundarskóla kl. 13.30 á
morgun, sunnudag. Almenn
samkoma á Sjónarhæð, Hafn-
arstræti 63 kl. 17 sama dag.
Fundur fyrir 6–12 ára börn á
Sjónarhæð kl. 17.30 á mánudag.
Kirkjustarf
GUÐNÝ Sverrisdóttir, sveitarstjóri Grýtubakka-
hrepps, sagði að hreppurinn hefði ekki áhuga á
því að taka frekari þátt í viðræðum um samein-
ingu sveitarfélaga í Eyjafirði að svo stöddu. Hún
sagði ýmsar ástæður liggja þar að baki, menn
teldu sig hafa mjög góða þjónustu í hreppnum,
sveitarfélagið kæmist ágætlega af og að ávinn-
ingur af sameiningu væri ekki nægur.
Guðný sagði að ekki yrði um frekari samein-
ingarviðræður að ræða af hálfu Grýtubakka-
hrepps á þessu kjörtímabili, hvað svo sem yrði í
framtíðinni. „Ég get þó alveg viðurkennt að ef til
þess kæmi að öll sveitarfélög í Eyjafirði samein-
uðust yrði um mjög öflugt sveitarfélag að ræða.“
Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaga í
Eyjafirði hefur látið af störfum, þar sem tillaga
um að sameina þau níu sveitarfélög sem aðild
áttu að nefndinni í eitt sveitarfélag naut ekki
fylgis í þeim öllum. Grýtubakkahreppur, Sval-
barðsstrandarhreppur, Eyjafjarðarsveit og
Ólafsfjörður voru á móti sameiningu. Þá tóku
hrepparnir þrír norðan Akureyrar, Glæsibæjar-
hreppur, Öxnadalshreppur og Skriðuhreppur,
ekki þátt í samstarfsnefndinni enda sameinuðust
hrepparnir innbyrðis um áramót, eins og fram
hefur komið.
Bjarni Kristjánsson, sveitarstjóri Eyjafjarðar-
sveitar, sagði að sveitarstjórnin hefði samþykkt
ályktun á síðasta ári varðandi þetta mál. Hann
sagði að þar kæmi m.a. fram að sveitarstjórn
teldi að um frekari sameiningu sveitarfélaga á
svæðinu yrði að ræða í náinni framtíð en það ferli
þyrfti að undirbúa betur og láta reyna frekar á
samstarfsverkefni.
Bjarni sagði það heldur ekki rétt að mikill
meirihluti íbúa á svæðinu væri fylgjandi stórri
sameiningu eins og gefið var í skyn af hálfu full-
trúa Akureyrarbæjar í nefndinni. „Það lá fyrir að
það var andstaða í mörgum sveitarfélögum, þótt
meirihluti hafi verið fyrir hendi þegar Akureyri
var með í dæminu, en þetta gerist ekki með þeim
hætti. Niðurstaða fæst ekki nema fram fari at-
kvæðagreiðsla í hverju sveitarfélagi fyrir sig,
samkvæmt lögum.“
Óheppileg tímasetning
Á fundi bæjarráðs Akureyrar í síðustu viku,
þar sem tilkynnt var að sameiningarviðræðurnar
væru komnar út af borðinu, var jafnframt sam-
þykkt að skipa nefnd til að fjalla um og meta
áhrif af þátttöku bæjarins í samstarfsverkefnum
með öðrum sveitarfélögum. Ásgeir Magnússon,
formaður bæjarráðs, sagði í samtali við Morg-
unblaðið á laugardag að með skipun nefndarinnar
væri alls ekki um neina hótun að ræða af hálfu
bæjarins. Aðspurð sagði Guðný að hafi ekki verið
um hótun að ræða komi þessi ákvörðun bæj-
arráðs fram á mjög óheppilegum tíma. Undir það
tók Bjarni, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar.
Guðný sagði að Grýtubakkahreppur ætti góðu í
samstarfi við Akureyri og önnur sveitarfélög á
mörgum sviðum. „Við hljótum að hafa þann
þroska til að bera að sjá að við þurfum á Ak-
ureyri að halda og Akureyri á okkur að halda.
Það eru bæði plúsar og mínusar varðandi hugs-
anlega sameiningu en dag finnst mönnum að mín-
usarnir séu fleiri og því er þetta niðurstaðan.“
Bjarni sagði ekkert við það að athuga að Ak-
ureyrarbær ætlaði að skoða þessi samstarfsverk-
efni og að það ættu fleiri sveitarfélög að gera.
Fara yfir það hverju hægt væri að breyta, hvort
mögulegt væri að taka upp önnur vinnubrögð,
hvort ástæða væri til að taka ný viðfangsefni inn í
þetta samstarf í staðinn fyrir önnur og ýmislegt
fleira.
Sveitarstjóri Grýtubakkahrepps um sameiningu sveitarfélaga í Eyjafirði
Ekki áhugi fyrir frekari þátt-
töku í sameiningarviðræðum
FERÐAÁÆTLUN Ferðafélags
Akureyrar fyrir árið 2001 er ný-
lega komin út og að venju mun
félagið bjóða upp á margar og
fjölbreyttar ferðir í sumar. Þá eru
í boði skíðagöngu- og gönguferðir
í vetur og fram á vor.
Í febrúar er m.a. boðið uppá
skíðaferð á Vaðlaheiði í dag og
um aðra helgi verður farið í
þorraferð í Botna, sem er einn af
skálum félagsins, en um tveggja
daga helgarferð er að ræða. Síð-
asta laugardag í febrúar verður
létt óvissuferð á skíðum.
Í mars verða fimm skíða-
gönguferðir á dagskrá, fyrst farið
í Hlíðarfjall og að Þelamörk, þá
um Eyjafjarðarárbakka, svo í
Baugasel, Þingey og loks í Þor-
valdsdal, en allar ferðirnar eru á
laugardögum.
Fyrstu helgina í apríl er skíða-
gönguferð í Laugafell á dagskrá,
síðar í þeim mánuði verður farið á
Reykjaheiði og eins verður helg-
arferð á Flateyjardal í lok apríl.
Hefðbundin gönguferð á Súlur
verður farin 1. maí og eins verður
boðið upp á ferð á Hákamba í
Svarfaðardal og á Kaldbak auk
fuglaskoðunarferðar.
Fjöruganga á Svalbarðseyri,
ferð í Þórðarhöfða í Skagafirði,
gönguferð á Hlíðarfjall og Blá-
tind, í Fellsskóg við Skjálfanda-
fljót og ferð á Hjaltadalsheiði eru
á dagskrá í júnímánuði. Fyrstu
tvær ferðirnar í júlí verða í Loft-
helli og Dýjafjallshnjúk, en um
miðjan mánuð býður Ferðafélag
Akureyrar upp á ferð um Bisk-
upaleið yfir Ódáðahraun og er þar
um að ræða nýjung hjá félaginu.
Af öðrum ferðum í júlí má
nefna hjólreiðaferð í Bleiksmýr-
ardal og sumarleyfisferð í sam-
vinnu við Ferðafélag Fljótsdals-
héraðs um Víknaslóðir. Um er að
ræða bakpokaferð þar sem gist
verður í skálum. Félögin í samein-
ingu bjóða einnig sumarleyfisferð
um Snæfell og Lónsöræfi.
Tjaldferð í Fjörður
Alls verða fimm ferðir um
Öskjuveginn svonefnda í boði í
sumar, allar í júlí og fram í ágúst.
Félagið á fimm skála á þessari
leið, Þorsteinsskála í Herðubreið-
arlindum, Bræðrafell við rætur
Kollóttudyngju, Dreka við Dreka-
gil í Dyngjufjöllum, Dyngjufell í
Dyngjufjalladal og Botna í Suður-
árbotnum. Þessar ferðir hafa not-
ið mikilla vinsælda á síðustu ár-
um. Félagið verður einnig með
gönguferð á Tungnahrygg og
Auðnaháls í Öxnadal og tjaldferð í
Fjörður í júlímánuði.
Bakpokaferð í Bræðrafell og
Öskju verður á dagskrá fyrstu
dagana í ágúst og síðar verður
farin bakpokaferð í Dreka, Öskju
og Botna. Gengið verður á Kerl-
ingu í Eyjafirði, farinn Þing-
mannavegur yfir Vaðlaheiði,
gengið á Þverbrekkuhnjúk í
Öxnadal, í Skuggabjargaskóg,
Torfufell í Eyjafirði og farið í
berjaferð. Einnig verður jeppa-
ferð á Víknaslóðir og loks má
nefna gönguferð fyrir vant
göngufólk og ekki lofthrætt í
Hvanndali.
Ein ferð er á dagskrá í sept-
ember, gönguferð í Tryppaskál
við Hörgárdalsheiði.
Ferðaáætlun Ferðafélags Akureyrar fyrir sumarið 2001 komin út
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Við Botna, einn af skálum Ferðafélags Akureyrar, í Suðurárbotnum.
Fimm ferðir um
Öskjuveginn og
ein um Biskupaleið
STRAX á fimmtudagsmorgun var
orðið uppselt á stórtónleikana í
Glerárkirkju kl. 17.00 á morgun,
sunnudag, þar sem fram koma
margir af ástsælustu söngvurum
Norðurlands og þekktir hljóð-
færaleikarar. Vegna hins mikla
áhuga hefur verið ákveðið að end-
urtaka tónleikana í kirkjunni kl.
20.30 á morgun, sunnudag.
Álftagerðisbræður, Eiríkur
Stefánsson, Erna Gunnarsdóttir,
Óskar Pétursson, Pálmi Gunnars-
son, Örn Birgisson og Þórhildur
Örvarsdóttir stíga á svið og bjóða
upp á einsöng, dúetta og að sjálf-
sögðu kvartett. Pálmi og Óskar
Pétursson munu m.a. syngja sam-
an dúett, sem þeir hafa aldrei gert
áður.
Undirleikarar verða Arnór Vil-
bergsson, Einn&sjötíu, Helena
Bjarnadóttir, Kristján Edelstein
og Stefán Gíslason og kynnir er
Gestur Einar Jónasson útvarps-
maður. Forsala aðgöngumiða á
aukatónleikana stendur yfir hjá
Pennanum/Bókval í Hafnarstræti
og Glerártorgi. Miðar verða einn-
ig seldir í kirkjunni á morgun.
Stórtónleikarnir
verða endurteknir