Morgunblaðið - 10.02.2001, Síða 26

Morgunblaðið - 10.02.2001, Síða 26
ÚR VERINU 26 LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ EKKERT lát er á loðnuveiðinni út af Vestfjörðum en teikn eru á lofti um að loðnan fari að gefa sig fyrir austan land. Hrognafyllingin þar er 12 til 13%, en yfir 13% út af Vestfjörðum. Stærstur hluti loðnuflotans hefur verið fyrir vestan land að undan- förnu og hefur veiðin gengið vel, en frá því á hádegi á mánudag til hádeg- is í gær hafði verið tilkynnt um sam- tals tæplega 50.000 tonna loðnuafla. 700 tonn í kasti Skipin hafa verið fljót að fylla sig og t.d. fékk Sighvatur VE um 1.500 tonn á tæplega 12 klukkustundum en hann var væntanlegur til Vest- mannaeyja um klukkan tvö í nótt. Sighvatur kastaði fjórum sinnum og fékk eitt 700 tonna kast. Hrogna- fyllingin er um 13% og því fer öll loðnan í bræðslu en frysting vegna Japansmarkaðar hefst þegar hrognafyllingin er 15%. Á innleið fyrir austan Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræð- ingur hjá Hafrannsóknastofnun og leiðangursstjóri á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni, segir að tog- arasjómenn hafi orðið varir við aukna loðnu í trolli, fiski og á mælum á Hvalbakssvæðinu og því hafi leið- angursmenn haldið þangað í fyrra- kvöld. Hrygnan á svæðinu hafi reynst vera með 12 til 13% hrogna- fyllingu sem bendi til þess að loðnan sé á leiðinni inn. Í gær voru lóðningar niðri á 100 faðma dýpi. Súlan EA og Guðrún Þorkelsdóttir SU gátu þess vegna lítt athafnað sig með nótina en Beitir NK fékk eitthvað smávegis í trollið. „Það eru ákveðin teikn á lofti um að eitthvað fari að gerast hérna en ekk- ert er öruggt fyrr en það er í hendi,“ segir Hjálmar. Svæðið frá Berufjarðaráli vestur að Breiðamerkurdjúpi hefur líka verið kannað en Hjálmar segir að þar hafi ekkert sést. Hins vegar sé umrædd loðnuganga viðbót við það sem menn voru að veiða úr áður en þeir héldu vestur fyrir land. Ennþá mikil loðnuveiði út af Vestfjörðum Morgunblaðið/Friðþjófur Guðmundur Bjarnason, skipstjóri á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni, fylgist með Hjálmari Vilhjálmssyni, fiskifræðingi hjá Hafrannsóknastofnun og leiðangursstjóra, við tölvu í brúnni. Teikn á lofti um loðnu fyrir austan land Í FYRRA seldi SÍF um 3.500 tonn af frystri loðnu til Japans en nú hefur verið gerður rammasamningur um sölu á sex til sjö þúsund tonnum. Bjarni F. Sölvason, deildar- stjóri í uppsjávarfiskadeild SÍF, segir að heildarmagnið ráðist af stærð loðnunnar, en fyrstu vísbendingar lofi góðu, því loðnan nú sé mun stærri en í fyrra. Þá hafi ekki náðst að framleiða upp í rammasamn- inga vegna þess hve loðnan flokkaðist illa en nú ætti að ganga betur miðað við fyrstu upplýsingar. Að sögn Bjarna var SÍF með um 75% af heild- arloðnusölu Íslendinga fyrstu ellefu mánuði nýliðins árs, en sem fyrr veltur framleiðslan á þessu stóra ef-i. „Talning á hrygnum og hrognafylling lofa góðu og vonandi verður byrjað að frysta um helgina.“ Meiri loðna frá SÍF til Japans ÞRIÐJI nemendahópur sjáv- arútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna var útskrifaður sl. fimmtudag. Alls hófu 14 nemendur nám við skólann í ágúst á síðasta ári og ljúka þeir allir náminu. Nem- endurnir koma frá 11 löndum; Úg- anda, Kenýa, Malaví, Mósambík, Grænhöfðaeyjum, Gambíu, Kína, Víetnam, Sri Lanka, Kúbu og Mexíkó. Sex konur eru í hópnum að þessu sinni, helmingi fleiri en voru fyrstu tvö árin. Sjávarútvegsskól- inn býður upp á 6 mánaða nám fyr- ir fagfólk í sjávarútvegi frá þróun- arlöndunum. Til að fá inngöngu verða nemendur að hafa há- skólagráðu og minnst tveggja ára starfsreynslu. Val nemenda miðast við stöðu þeirra heima fyrir og framtíðarhlutverk þeirra þar. Fyrstu sjö vikurnar voru allir nem- endur saman á námskeiði þar sem gefið var yfirlit yfir sjávarútveg, frá hafrannsóknum til veiða, um stofnmat, vinnslu, gæðaeftirlit, rekstur sjávarútvegsfyrirtækja, markaðsmál og veiðistjórnun. Hóp- urinn heimsótti mikinn fjölda fyr- irtækja og stofnana og var alls stað- ar vel tekið. Tvær vikur þessa hluta námsins fóru fram við Háskólann á Akureyri. Síðan skiptust nemendur í sérnámshópa. Eftir fjögurra til fimm vikna námskeið tók svo við verkefnavinna og starfsþjálfun. Þrír nemendanna unnu sérverkefni sín við Háskólann á Akureyri, fimm við Hafrannsóknastofnunina, fimm hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins og einn við Fjölbrautaskóla Suð- urnesja. Morgunblaðið/Jim Smart Útskriftarnemar úr sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Ellefu útskrifast úr sjávarútvegsskóla SÞ T-sett aðeins 650 kr. NETVERSLUN Á mbl.is Taska aðeins 1.800 kr. NETVERSLUN Á mbl.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.