Morgunblaðið - 10.02.2001, Page 67

Morgunblaðið - 10.02.2001, Page 67
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2001 67 Útsala - Útsala - Útsala Síðustu dagar útsölunnar Aukaafsláttur Opið í dag frá kl. 11-16 Mörkinni 3, s. 588 0640 VERSLUNIN Face hefur verið opn- uð í Kringlunni en verslunin var áð- ur á Laugaveginum. Boðið er upp á úrval af förð- unarvörum sem og alla almenna förðun. Face býður upp á faglega og persónulega þjónustu en þar starfa einungis förðunarmeistarar, segir í fréttatilkynningu. Einnig er boðið upp á förðunarnámskeið fyrir hópa sem og einstaklinga og einnig er rekinn förðunarskóli sem býður upp á 7–14 vikna nám. Meðal nýj- unga sem Face býður upp á er förð- unarlína fyrir yngri kynslóðina og einu sinni í mánuði verður „Face Youth“-stúlka kynnt til sögunnar. Þórunn Högnadóttir förð- unarmeistari er eigandi Face en hún rekur verslunina og skólann ásamt manni sínum, Brandi Gunn- arssyni. Verslunarstjóri er Þórunn Sif Garðarsdóttir og aðrir starfs- menn eru Birna S. Björgvinsdottir, Ester Bow og Kolbrún Pálína Helgadóttir. Morgunblaðið/Ásdís Þórunn Sif Garðarsdóttir, verslunarstjóri Face í Kringlunni. Verslunin Face opnuð í Kringlunni STAÐBUNDIN sjónvarpsút- sending fer fram í Kópavogi næstkomandi sunnudag. Þá verður upptaka frá kynningu á niðurstöðum íbúaþingsins, sem haldið var í Smáraskóla síðast- liðinn laugardag, send út á SkjáVarpi. Íbúaþingið var haldið í tengslum við stefnumótun Kópavogs í Staðardagskrá 21, með virkri þátttöku íbúa Kópa- vogs. Fulltrúi SkjáVarps var til staðar á íbúaþinginu og fylgdist með vinnuhópum og tók fjölda ljósmynda sem voru, ásamt sjónarmiðum íbúanna, notaðar til að útbúa myndræna kynn- ingu á framtíðarsýn íbúa Kópa- vogs. Sigurborg Kr. Hannes- dóttir ráðgjafi í umhverfismál- um nýtti myndræna úrvinnslu SkjáVarps þegar hún kynnti niðurstöður íbúaþingsins á opnum fundi í Smáraskóla síð- astliðið þriðjudagskvöld. Fyrirlestur Sigurborgar um niðurstöður íbúaþingsins og ávörp ráðamanna í Kópavogi verða send út á SkjáVarpi í Kópavogi sunnudaginn 11. febrúar og hefst útsendingin kl. 17. Staðbundin sjónvarps- útsending í Kópavogi FERÐAFÉLAGIÐ Útivist fer í fróðlega og skemmtilega göngu í Vatnsleysustrandar- hreppi á sunnudaginn 11. febrúar og er brottför kl.11 frá BSÍ en stansað við kirkjugarð- inn í Hafnarfirði. Þetta er um 3 klst. ganga og er ágæt fjöl- skylduganga, segir í fréttatil- kynningu. Flekkuvík er eyðibýli við samnefnda vík. Þar í túninu er lítill hóll sem nefnist Flekku- leiði og á honum er rúnasteinn. Staðarborg er ævagömul, fal- leg, hringhlaðin fjárborg áStrandarheiði Verð. 1.200 kr fyrir félaga og 1.400 kr fyrir aðra. Frítt er fyr- ir börn með foreldrum sínum. Útivistar- ganga á sunnudag STEINSTEYPUDAGURINN 2001 verður haldinn föstudaginn 16. febrúar næstkomandi á Grand Hót- el Reykjavík og er það í fimmtánda skiptið sem ráðstefnan er haldin. Flutt verða 10 erindi þar sem bland- að er saman rannsóknarverkefnum, umfjöllun um sérstök steinsteypt mannvirki og öðru efni sem er í deiglunni. „Það er óhætt að fullyrða að jarð- skjálftarnir sem urðu á Suðurlandi á síðasta sumri séu enn ofarlega í hugum manna og ekki draga jarð- skjálftarnir sem nú hrella Indverja úr því. En getum við dregið ein- hvern lærdóm af þessum atburðum? Dr. Ragnar Sigbjörnsson prófessor mun í erindi sínu fjalla um jarð- skjálftana, mælingar, kannanir á skemmdum steinsteyptra og hlað- inna húsa, greiningu áraunar, tengsl mældrar hreyfingar og skemmda og reyna síðan að draga einhverjar ályktanir sem að gagni geta komið í hönnun. Þá mun Bjarni Bessason, verk- fræðingur hjá Verkfræðistofnun HÍ, fjalla um jarðskjálftamælingar við Þjórsábrú, en í jarðskjálftunum mældist mikill munur á yfirborðs- hreyfingum á austur- og vestur- bakka árinnar. Trefjar hafa ekki verið notaðar mikið í steinsteypu á Íslandi fram að þessu nema þá einna helst í spraut- usteypum á berg. Eitthvað hefur verið um, að stáltrefjar hafa verið fyrirskrifaðar í tiltölulega þunn ásteypulög á eldri steypu og í plötur á fyllingu. Er hugsanlegt, að hönn- uðir hér á landi séu seinir til að til- einka sér nýja tækni og nýjungar? Svo virðist í fljótu bragði, að það ætti a.m.k. að vera hagkvæmt að járnbenda plötur á fyllingu með stáltrefjum. Hagkvæmnin felst þá í minni vinnu og styttri framkvæmda- tíma. Plasttrefjar virðast ekki álit- legur kostur, sem járnbending. Það er hins vegar ljóst, að þær má nota til þess að draga úr eða minnka lík- ur á plastískum sprungum steyp- unnar. Hvernig eru trefjar notaðar í öðrum löndum og í hversu miklum mæli? Eru til einhverjar nothæfar hönnunarleiðbeiningar í þessu sambandi? Í erindi sem prófessor Henrik Stang frá Danmarks Tekn- iske Universitet flytur, mun hann gera grein fyrir ákveðnum þáttum í þessu sambandi. Menntun og starfsmenntun þeirra sem vinna í steypugeiranum hefur stundum verið umtöluð hér á landi. Þá hefur Steinsteypufélagið fengið Þorvald Nóason, verkfræðing frá norska Steinsteypufélaginu, til að koma og fræða ráðstefnugesti um hvernig Norðmenn hafa tekið á þessum málum. Auk þessara erinda verða flutt er- indi um nokkur rannsóknarverkefni. Má þar nefna erindi Rögnvalds Gíslasonar, verkfræðings hjá Rann- sóknarstofnun byggingariðnaðarins, um raka í hefðbundnum steinsteypt- um útveggjum. Guðni Jónsson, verkfræðingur hjá Rb, flytur erindi um rýrnunarvara til varnar sprungumyndunar í steinsteypu, en slík efni hafa komið fram á allra síð- ustu árum. Vélunninn sandur er heiti á erindi dr. Börge Wigum hjá verkfræðistof- unni ERGO. Í erindinu mun hann m.a. fjallað um áhrif unnins sands í sjálfútleggjandi steypu. Í byggingareglugerð frá 1998 voru settar fram auknar kröfur um hljóðvist í fjölbýlishúsum, sem kalla á nýjar og breyttar byggingaaðferð- ir. Steindór Guðmundsson, verk- fræðingur hjá Rb, mun fjalla um hvaða áhrif þessar kröfur hafa á hefðbundnar byggingaaðferðir og auk þess kynna niðurstöður athug- ana á steypt fljótandi gólf o.fl. Flotfræði (rheology) er fræði- greinin um formbreytingu efna und- ir álagi. Notkun hennar fer sívax- andi í heiminum m.a. við gerð hástyrkleika- og sjálfútleggjandi steypu. Dr. Ólafur Wallevik verk- fræðingur hjá Rb er án nokkurs vafa í fremstu röð í heiminum varð- andi þróun steinsteyputækninnar. Ólafur mun í erindi sínu gefa okkur innsýn í flotfræðina og möguleika hennar. Í lok Steinsteypudags mun Óskar Valdemarsson, forstjóri Fram- kvæmdasýslu ríkisins, segja frá stækkun flugstöðvar Leifs Eiríks- sonar. Fjallað verður um aðdrag- anda og forsendur stækkunar á FLE, verkefnisstjórnun, burðar- virki og skipulag byggingarinnar og ráðstafanir vegna þátttöku Íslands í Schengensamkomulaginu. Eins og ætíð er ráðstefnan opin öllum áhugamönnum um stein- steypu. Þátttökugjaldi er stillt í hóf og er aðeins 12.000 krónur og er innifalið í því: Ráðstefnugögn, fjöl- rituð í möppu, hádegisverður og kaffiveitingar og veitingar í lok Steinsteypudags Hægt er að tilkynna þátttöku með tölvupósti til steypais@mmedia.is. Fjölmörg erindi um ýmsar rannsóknir Steinsteypudagur 2001

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.