Morgunblaðið - 03.03.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐUR á Alþingi geta tekið á
sig hinar margbreytilegustu myndir.
Stundum eru þingmenn glaðir í
sinni, enda dregur hver dám af sín-
um sessunaut; tala af eldmóði um
landsins gagn og nauðsynjar ellegar
drúpa alvarlegir höfði og ræða af ein-
urð og einlægni um viðsjárverða
hluti á borð við verðbólgu og við-
skipti. Sem nærri má geta er stund-
um gaman í sölum Alþingis, stundum
ekki. Viðfangsefni löggjafar- sam-
kundunnar eru enda misánægjuleg
og ákveðna hluti verður jú að setja
reglur um og ræða.
Stundum gerist það líka að fyrir
hreina og beina tilviljun stíga þing-
menn upp í ræðustólinn og flytja
magnaðar stólræður um aðskilj-
anlegustu mál; messa yfir þingheimi
og hreinlega láta móðan mása þar til
aflétt er oki hversdagsins og áhyggj-
um morgundagsins; þar til útrás er
fengin fyrir söguskýringar og flókn-
ar stjórnmálapælingar. Þangað til
næstum allt hefur verið sagt um til-
tekið málefni og einhvern veginn
væri algjörlega tilgangslaust að
bæta þar einhverju við. Þetta er sag-
an af því þegar viðskiptaráðherra
álpaðist í sakleysi sínu sl. fimmtudag
til að geta þess í umræðu um stöðu
byggðanna að stjórnmálaforinginn
Steingrímur J. Sigfússon hafi ekki
einasta verið andstæðingur sam-
vinnuhreyfingarinnar á sinni tíð og
þar með allra réttsýnna framsókn-
armanna. Nei, hann hefði líka framið
þá höfuðsynd einhvern tímann í
fyrndinni að segja sig úr kaupfélag-
inu norður á Þórshöfn á Langasandi.
Og – mátti greina á tali ráðherra –
svoleiðis gera menn ekki.
Eflaust hefði einhver þingmaður
andvarpað þunglega, enda vitað að
spott og spé kemur mörgum á kné,
stunið máske líka en látið svo kjurrt
liggja. En sá þingmaður er heldur
ekki Steingrímur J. Sigfússon og
tekur ekki til máls í nálega níu af
hverjum tíu umræðum á þingi og
stendur aldrei á gati þegar talið
berst að pólitík. Nei, ýmsir verða
brögðum fegnir og Steingrímur J.
ætlaði sko ekki að láta neinn eiga
neitt inni hjá sér með kaupfélögin
eða sambandið og úr varð einhver
magnaðasta en um leið sérstæðasta
ræða sem lengi hefur verið flutt á Al-
þingi við Austurvöll. Í umræðum á
eftir um breytingu á lögum um sam-
vinnufélögin – heppileg tilviljun, eins
og þingmaðurinn benti sjálfur á –
kom svo tækifærið. Ræða sem allt í
senn var uppgjör gamals lopapeysu-
komma við bændaforystuna í heima-
héraði, uppgjörið við kaupfélagið
sem hafði vogað sér að taka þátt í
„hermanginu“ eins og þingmaðurinn
orðaði það. Og þetta var uppgjörið
við blessaða framsóknarmennina
sem höfðu spillt hinni göfugu hug-
mynd um samvinnuna og samvinnu-
félögin og með hagsmunapoti sínu
höfðu tekið flokkshagsmuni fram yf-
ir hagsmuni fólksins og máttu sjá
eftir sambandinu og stolti þess,
kaupfélögunum, verða tannhjóli tím-
ans að bráð. Þetta var ræðan þegar
Steingrímur J. gerði upp málin og
útskýrði hvers vegna hann í ósköp-
unum hafði haft fyrir því að segja sig
úr blessuðu kaupfélaginu forðum
daga. „Menn mega kalla mig komm-
únista,“ sagði Steingrímur og kvaðst
stoltur af því að hafa lagt sveitungum
sínum lið í baráttunni gegn her-
manginu og komið því til leiðar að
það færðist fremur austur á firði.
„Mjög stoltur,“ bætti hann við, „því
ég fór eftir minni sannfæringu.“
Og upp úr dúrnum kom að Stein-
grímur er af samvinnufólki kominn.
Honum hefði meira að segja þótt
vænt um samvinnuhreyfinguna og
hann hefði tekið mjög sárt fall henn-
ar og þar með sárin byggðanna. En
heldur fór ekki á milli mála hverjum
fallið var að kenna og í hita leiksins
voru tínd til skelfileg smáatriði úr
fortíðinni eins og skylduáskrift að
Tímanum við stofnun reiknings í
kaupfélaginu. Nei, Steingrímur hafði
greinilega engu af þessu gleymt.
Samt er það svo merkilegt að ræð-
an um Steingrím og samvinnuhreyf-
inguna verður örugglega ekki ein
þeirra sem rifjaðar verða upp þegar
helstu afrek hans í þingsölum verða
reifuð síðar meir. Ekki er einu sinni
víst að hennar verði getið neðanmáls
í stjórnmálaritum um Vinstri hreyf-
inguna – grænt framboð og hennar
helsta forystumann og stofnanda. En
hvaða máli skiptir það? Sá sem þetta
ritar mun líklega aldrei gleyma þess-
ari ræðu. Ekki heldur Steingrímur
sjálfur og hvað þá blessaður við-
skiptaráðherrann.
Þetta var bara þannig ræða.
Þegar Steingrímur J. sagði sig úr kaupfélaginu
EFTIR BJÖRN INGA HRAFNSSON
ÞINGFRÉTTAMANN
bingi@mbl.is
Í greinargerð með tillögunni segir að
núverandi form sé beinlínis íþyngj-
andi. Hvernig þá?
„Núverandi kerfi er mjög íþyngj-
andi. Það er stefna íslenskra heil-
brigðisyfirvalda að stýra málum með
þeim hætti að aldraðir séu sem lengst
heima hjá sér. Eignarskattur á íbúð-
arhúsnæði er hins vegar beinlínis
andstæður þeirri hugsun og af þeim
sökum býr fjöldi eldra fólks í stóru
húsnæði, en á tæplega fyrir fast-
eignagjöldum og eignarskatti og alls
ekki fyrir viðhaldi, svo það hreinlega
gefst upp. Við þetta bætist allt of
mikill kostnaður við að skipta um
húsnæði; húsnæði fyrir aldraða á
markaðnum hefur verið alltof dýrt og
fermetrinn í slíku húsnæði hefur ver-
ið dýrari en á almenna markaðnum.
Ég er því sannfærður um að þessi
breyting myndi verða til þess að fólk
geti lengur verið heima hjá sér í eigin
húsnæði.“
Í greinargerðinni segir ennfremur,
að í reynd sé um tvísköttun að ræða?
„Já, og í reynd mætti telja miklu
fleiri skatta sem þarf að borga af
íbúðarhúsnæði. Auk eignarskattsins
má þar nefna fasteignagjöld, hol-
ræsagjald, sorphirðugjöld, vatnsskatt
og hvað við getum kallað þetta allt
saman. Allt þetta skattaumhverfi er
nú þannig að í raun er verið að mis-
muna ungu fólki sem vill koma sér
þaki yfir höfuðið. Ísland hefur
löngum þótt óvenjulegt að því leyti
hversu mikla áherslu landinn leggur
á að eignast sitt eigið húsnæði og
þess vegna teldi ég rétt að menn
hugsi nú sinn gang varðandi þessa
skatta. Eignarskatturinn er t.d. bein-
línis ósanngjarn þegar litið er til þess
að margir hafa eignast sitt húsnæði
með því að leggja hart að sér með
mikilli vinnu, greitt skatta og skyldur
af þeim launum og notað afganginn til
þess að lifa og byggja eða kaupa hús-
næði. Ofan á kaupin koma fleiri skatt-
ar, eins og virðisaukaskattur. Þetta
gengur auðvitað ekki og skattaleg
meðferð á húsnæði í hvaða mynd sem
er getur einnig haft einhver áhrif á
skattsvik. Þau gætu þannig e.t.v.
minnkað verulega ef stuðlað yrði að
lægri skattlagningu á húsnæði.“
Hvað yrði ríkissjóður af miklum
tekjum, yrði eignarskattur á íbúðar-
húsnæði felldur niður?
„Þessi breyting myndi kosta um
þrjá milljarða. Það er gert ráð fyrir
að skatturinn verði lagður af í áföng-
um á þremur næstu árum.“
Fimm aðrir þingmenn Sjálfstæð-
isflokksins flytja tillöguna með þér.
Hafið þið kannað baklandið í flokkn-
um fyrir þessum breytingum?
„Ég hef fengið mjög jákvæðar und-
irtektir innan þingflokksins. Þótt sex
þingmenn flokksins séu skrifaðir fyr-
ir þessari tillögu, hefði ég eflaust get-
að fengið fleiri til liðs við mig. Mér
finnst fjöldi flutningsmanna ekki
segja allt um stuðning við einstök
mál. Í þessu tilfelli er einfaldlega um
mjög gott mál að ræða og ég trúi ekki
öðru en að það nái fram að ganga inn-
an skamms.“
Hvað með fjármálaráðherrann? Er
hann tilbúinn að sjá á eftir þessum
tekjulið úr ríkissjóði?
„Hann er þess vel meðvitandi að
þetta er búið að vera í yfirlýstri
stefnu Sjálfstæðisflokksins um árabil.
Um þetta hafa verið gerðar sam-
þykktir á landsfundi flokksins. Í ljósi
þeirra breytinga sem orðið hafa í
þjóðfélaginu, með bættu atvinnu-
ástandi og auknum tekjum fólks, held
ég að sé lag í allra næstu framtíð að
láta til skarar skríða.“
Ertu bjartsýnn á að þetta nái fram
að ganga fyrir vorið?
„Nú er það svo að verði tillagan
samþykkt, er ráðherra falið að láta
semja og leggja fyrir Alþingi frum-
varp að lögum um afnám eign-
arskatts. Ég er bjartsýnn á að
þingsályktunartillagan nái fram að
ganga fyrir vordaga og í kjölfarið
tæki við vinna í ráðuneytinu. Ég hef
væntingar um að þetta mál komi aft-
ur hér á borð alþingismanna í frum-
varpsformi á næsta þingi.“
Sex þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa
lagt fram á Alþingi tillögu til þingsálykt-
unar um afnám eignarskatts á íbúðar-
húsnæði. Fyrsti flutningsmaður tillög-
unnar er Guðmundur Hallvarðsson, en
ásamt honum eru flutningsmenn þau
Guðjón Guðmundsson, Árni R. Árnason,
Ásta Möller, Drífa Hjartardóttir og
Katrín Fjeldsted.
Eignarskattur
afnuminn
Guðmundur
Hallvarðsson
494.
ÚTBOÐSSTEFNA ríkisins verður
endurskoðuð með eflingu íslensks
iðnaðar í huga, samkvæmt þings-
ályktunartillögu þeirra Ólafs Arnar
Haraldssonar og Ísólfs Gylfa Pálma-
sonar, Framsóknarflokki, sem lögð
hefur verið fram á Alþingi.
Í tillögunni felst endurskoðun á
þeirri stefnu sem samþykkt var á
ríkisstjórnarfundi 25. maí 1993 og
endurskoðuð stefna feli m.a. í sér að
skuldbindingar samkvæmt EES-
samningnum og öðrum alþjóðlegum
samningum sem Ísland á aðild að
verði að fullu virtar. Samtímis verði
þess ávallt gætt að útboðum og inn-
kaupum fyrir ríki og ríkisstofnanir
verði hagað þannig að þau stuðli eins
og kostur er að uppbyggingu og þró-
un íslensks iðnaðar.
Í greinargerð segir að innkaup
ríkisins á þjónustu, vörum og fram-
kvæmdum séu mjög mikil og afar
mikilvæg fyrir íslensk iðnfyrirtæki
og uppbyggingu íslensks iðnaðar. Í
sumum tilvikum geti stórviðskipti
ríkisins jafnvel ráðið úrslitum um
vöxt og viðgang heilla iðngreina.
Ákvarðanir um verkefni ríkisins
ráði því miklu um afkomu fyrirtækj-
anna, atvinnu starfsmanna, nýtingu
fjárfestinga og verkþekkingu í land-
inu. Auk þess skipti miklu hinn beini
og óbeini ávinningur sem ríki og
sveitarfélög hafa af öflugum iðn-
rekstri, svo sem skatttekjum, minna
atvinnuleysi og öðrum þjóðhagsleg-
um ávinningi.
„Ísland á aðild að fjölþjóðlegum
skuldbindingum um samkeppni og
viðskiptahætti, fyrst og fremst EES-
samningnum, sem bæði ríki og ís-
lenskum iðnfyrirtækjum ber að
virða. Að ferðir ríkisins við útboð og
innkaup mega alls ekki brjóta í bága
við þá samninga og reglur. Það er
hins vegar alþekkt staðreynd að í
reglum þessum felst talsvert svig-
rúm sem getur haft mikil áhrif á
hver hreppir útboðssamning.“
Útboðsstefna ríkisins
verði endurskoðuð
GÓÐIR gestir sóttu Alþingi heim
í gær, var þar komin færeyska
stjórnarskrárnefndin (grundlóg-
arnevndin), fimm færeyskir þing-
menn og sex embættismenn.
Fór hópurinn í skoðunarferð
um alþingishúsið og aðrar bygg-
ingar þess í fylgd Friðriks Ólafs-
sonar, skrifstofustjóra Alþingis,
og síðan tók við kynning á þing-
störfum.
Þeir þingmenn sem voru með í
för eru Hergeir Nielsen, formað-
ur utanríkismálanefndar Lög-
þingsins, Jógvan á Lakjuni, for-
maður menntamálanefndar
Lögþingsins, Eyðun Viderø, vara-
forseti þingsins, Jóan Pauli Joen-
sen, formaður stjórnarskrár-
nefndar og þau Jákub Sverri
Kass og Annita á Friðriksmørk.
Síðdegis í gær hélt Halldór
Blöndal, forseti Alþingis, nefnd-
inni móttöku í Alþingishúsinu.
Færeyska sendinefndin var á leið
heim frá Bandaríkjunum og hélt
til Færeyja í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Ásdís
Færeyska stjórnar-
skrárnefndin í heimsókn