Morgunblaðið - 03.03.2001, Blaðsíða 77
Dúrra er spurð að
því hvor hún hafi þá
ekki leikið í öllum sýn-
ingum og verið allt
nema kannski helst
ljósameistari. „Víst hef
ég verið ljósameistari,
ég er búin að fara þetta
frá A til Ö. Ég er búin
að skrifa, leikstýra,
leika, sjá um búninga,
ég hef verið sviðs-
maður, unnið leik-
myndir, verið sýning-
arstjóri, aðstoðarmaður leikstjóra,
stjórnað ljósum, verið kjallara-
mamma, selt aðgöngumiða, skrifað
leikskrár, skúrað sviðið og kjall-
arann og bara nefndu það!
Hún segist þó vera að draga í
land. „Ég er nefnilega búin að upp-
götva það í þessari sýningu, að ég
er fjörutíu árum eldri en obbinn af
leikurunum og 19 árum eldri en sá
sem er næstur mér í aldri. Mér
fyndist ágætt að fá í framtíðinni að
hlaupa svona inn á sviðið í smott-
erí stöku sinnum. Það er auðvitað
ómögulegt að hætta alveg.“
KRISTRÚN Jónsdóttir, Dúrra, hef-
ur tekið þátt í starfsemi Leikfélags
Fljótsdalshéraðs frá árinu 1968 en
þá tók hún þátt í uppsetningu
félagsins á Valtý á grænni treyju.
Það var í fyrsta sinn sem hún sté á
fjalirnar. Nú leikur hún Möddu
mömmu í Skilaboðaskjóðunni eftir
Þorvald Þorsteinsson. Dúrra segir
að vissulega hafi starfsemi félags-
ins gengið upp og ofan, stundum
farið niður í öldudal en alltaf skot-
ið upp aftur. „Mér finnst að alveg
ótrúlegir hlutir hafi gerst, eins og
til dæmis þegar við sýndum Sölku
Völku, sem er kannski sú sýning
sem mér þykir vænst um. Salka
var stór sýning sem við tókumst á
við eftir mikla lægð. Það var árið
1990. Síðan þá er búið að sýna
mörg stór stykki eins og Fiðlarann
á þakinu og Manninn frá Lamanza,
sem er söngleiksgerð af Don Kík-
óta og eina sýningin á því leikriti
sem verið hefur á Íslandi. Dagbók
Önnu Frank sýndum við 1995, á
þeim tímamótum þegar 50 ár voru
liðin frá því að friður komst á í
Evrópu. Sýning á friðardaginn það
vor hafði yfir sér mjög sérstakan
andblæ. Það sem er sterkast í
minningu okkar allra er þó trúlega
Draumur á Jónsmessunótt sem við
frumsýndum í Selskógi á Jóns-
messunótt árið 1997. Það fékk
mikla aðsókn og var leikið vítt og
breitt um skóginn. Við sýndum My
Fair Lady 1999, en það var í fyrsta
skipti sem nokkurt áhugaleikfélag
í heiminum fékk leyfi til að sýna
verkið. Við höfum þannig ekki allt-
af verið að fara troðnar slóðir.“
Þekkir leikhúsið
eins og lófann á sér
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Steinunn
Hin leikelska Dúrra.
Kristrún Jónsdóttir leikur í Skilaboðaskjóðunni hjá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs
Morgunblaðið/Jim Smart
Ása Briem píanóleikari heldur hljómleika í Salnum í dag.
ÁSA Briem er ungur píanóleikari
sem lauk námi árið 1997. Eftir það
fór hún að sinna öðru, dvaldi um
hríð erlendis og „gerði eitthvað allt
annað“. Nú er hún hins vegar sest
við slaghörpuna á nýjan leik og ætl-
ar að standa fyrir hljómleikum í
Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, í
dag kl. 17. Tónleikarnir verða í
klukkutíma og verð miða er 500 kr.
Hún segist ekkert vera að knýja á
einhverjar klassískar samfélagsdyr
með þessu, þetta sé gert af hreinni
og beinni spilaþörf.
„Ég sé mig alls ekki í hópi ís-
lenskra konsertpíanista,“ segir Ása.
„Þetta er bara eitthvað sem mig
langar til að gera. Þetta er tónlist
sem mér finnst mjög skemmtileg og
mig langar til að spila hana fyrir þá
sem vilja heyra hana.“
Á efnisskránni eru verk eftir Eist-
ann Arvo Pärt, John Foulds, Ludwig
van Beethoven og David Helbich,
auk þess sem eitt verkanna er eftir
hana sjálfa, heitir hinu skemmtilega
nafni „… gisp!“. Ása leggur að lok-
um áherslu á þetta sé ekki níðþung-
ur hálistaviðburður, verkin séu að-
gengileg, án þess að vera einhver
froða, og áherslan sé fyrst og síðast
á það að þetta eigi að vera gaman.
Sígild tónlist
er svöl
Ása Briem píanóleikari heldur hljómleika
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Vigdís Finnbogadóttir, verndari Krabbameinsfélags Íslands, var meðal gesta í þættinum.
Á SKJÁEINUM er þáttur á mið-
vikudögum í umsjón Sigríðar Arn-
ardóttur sem ber hið geðþekka nafn
Fólk. Í hverjum þætti tekur Sigríður
fyrir ákveðið málefni sem er í
brennideplinum hverja stundina eða
þarfnast frekari athygli og umhugs-
unar. Þátturinn á miðvikudaginn var
helgaður hinum skæða sjúkdómi
krabbameini og fórnarlömbum hans
vegna hinnar þörfu landssöfnunar
sem nú stendur yfir til handa
krabbameinssjúklingum og frekari
rannsóknum á þessum hörmulega
sjúkdómi.
Helstu talsmenn söfnunarinnar
tóku þátt í umræðunni, eins og Vig-
dís Finnbogadóttir, fyrrverandi for-
seti Íslands, og sérlegur verndari
Krabbameinsfélags Íslands, og Guð-
rún Agnarsdóttir, læknir og forstjóri
Krabbameinsfélagsins.
Það sem mesta athygli vakti þó
var að allir gestir þáttarins áttu það
sameiginlegt að vera fórnarlömb
krabbameins og miðluðu af miklu
hugrekki erfiðri reynslu sinni.
Landssöfnunin fer fram í dag og er
tvíþætt, annars vegar verður leitað
til einstaklinga með margvíslegum
hætti og hins vegar leitað sérstak-
lega eftir stuðningi fyrirtækja í land-
inu. Gengið verður í hús í samvinnu
við Kiwanis og Lions, safnað í sam-
vinnu við útvarpsstöðvar og í þætti í
Sjónvarpinu, á vefsíðu söfnunarinn-
ar, krabbamein2001.is, og tekið við
framlögum í síma 907 5050 og 750
5050.
Gestir í þættinum Fólk síðasta miðvikudag
Fórnarlömb krabbameins
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 77
Næg bílastæði
Hunang
leikur frá miðnætti
Vesturgötu 2, sími 551 8900
TÍSKAN
2001
4.MA
RS
Tímari t ið Hár og fegurð
Heimasíða: http://www.fashiontv.is
fashiontv.is