Morgunblaðið - 03.03.2001, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 65
GÓA þeystist inn á sviðið með
miklum látum og subbuskap eins
og sjá má á gluggum. Stofuglugg-
inn hjá mér lítur út eins og súr-
mjólk hefði verið slett á hann enda
á seltan frá hafinu greiðan aðgang
að honum. „Grimmur skyldi góu-
dagur hinn fyrsti, annar og hinn
þriðji, þá mun góa góð verða.“
Skyldi sú spá ætla að rætast? –
Lítið er hér um fugla utan krunk-
andi hrafna sem fljúga yfir í tuga-
tali. Farfuglarnir eru í startholun-
um handan hafs, en fyrstur er
sílamávurinn sem kom 1. apríl í
fyrra og hefði alveg mátt hlaupa
apríl fyrir mér því hann er enginn
aufúsugestur. – Hér á landi er ým-
iss konar reykt beikon selt í búð-
um og verður maður bara að velja
það eftir útliti. Erlendis er hægt
að fá óreykt beikon auk hins
reykta. Bretar eru frægir fyrir
beikonið sitt, en þar og víðar getur
maður valið hvaðan af síðunni
beikonið er, en það skiptir vissu-
lega máli. Ekki verður farið út í þá
sálma hér. Við verðum að sætta
okkur við það að á Íslandi er beik-
on bara beikon.
Beikonrúllur
um 50 stk.
1 niðursneitt hvítt samlokubrauð
100 - 200 g mjólkurostur, 17 %
3 gul eða græn epli
u.þ.b. 12 langar sneiðar beikon,
ekki feitt
tannstönglar
1. Skerið skorpuna af brauð-
sneiðunum og síðan hverja sneið í
tvennt. Leggið ostsneið á hverja
hálfa brauðsneið
2. Afhýðið eplin, skerið síðan í
aflanga stafi u.þ.b. 2 sm í þvermál.
Leggið einn eplastaf á enda hvers
brauðsneiðarhelmings og vefjið
upp.
3. Skerið hverja beikonsneið í
tvennt og hvorn helming í 2-3
ræmur. Vefjið um brauðsneiðina
og festið með tannstönglum.
4. Raðið á bökunarpappír á
bökunarplötu. Hitið bakaraofn í
200 gráður C, blástursofn í 180–
190 gráður C. Bakið í um 15
mínútur. Þá á brauðið að hafa
tekið lit og beikonið að hafa
brúnast talsvert. Losið tann-
stönglana úr meðan brauðið er
heitt, annars festast þeir. Ef ykk-
ur hentar má setja nýja tann-
stöngla í.
Athugið: Þetta er skemmtilegur
réttur á kaffiborð og með drykk
Franskbrauð-
sneiðar með
beikoni, osti og
eplum
8 franskbrauðsneiðar
mjólkurostsneiðar ofan á (hér var
notaður 17% Gouda)
2 gul epli
8 stórar beikonsneiðar
1. Raðið ostsneiðum ofan á
brauðsneiðarnar, afhýðið eplin,
skerið í þunn rif og raðið ofan á.
Skerið beikonsneiðarnar í ræmur
og raðið þar yfir.
2. Hitið bakaraofn í 200 gráður
C, blástursofn í 180 gráður C.
Setjið í ofninn og bakið í 12-15
mín.
Athugið: Þetta er mjög gott
þegar komið er inn eftir útiveru.
Tómatsósa með
beikoni o.fl.
3 stórar sneiðar beikon
2 meðalstórir laukar
2 msk. matarolía
2-3 hvítlauksgeirar
1 lítil græn papríka
1 sellerístöngull (má sleppa)
1 meðalstór gulrót
1 hálfdós niðursoðnir tómatar
1 msk. tómatmauk (puré)
nýmalaður pipar
1 msk. hreinn rjómaostur
(Notist með pasta, hrísgrjónum
eða baunum.)
1. Skerið beikonið smátt, setjið í
pott ásamat olíunni og sjóðið í 5
mínútur
2. Afhýðið lauk og hvítlauk og
saxið. Sjóðið með í pottinum 3-5
mínútur.
3. Bætið tómötunum og safan-
um í dósinni saman við ásamt tóm-
atmauki, smátt skorinni papríku
og gulrótum í sneiðum og sjóðið í
20 mín.
4. Bætið rjómaosti og pipar út í
og hrærið vel saman.
Matur og matgerð
Beikon
Kristín Gestsdóttir segist alltaf eiga
beikon í kæliskápnum, en hún notar það
mikið í tómatsósur með pasta,
hrísgrjónum og baunum svo og með
gómsætu ostabrauði.
EFTIR að hafa byrjað rólega í
fyrstu umferðunum hefur Bragi Þor-
finnsson nú átt einstaklega góðan
kafla á skákmótinu í Capelle la
Grande, þar sem 702 skákmenn sitja
nú að tafli þessa dagana. Sjö umferð-
um er lokið á mótinu. Bragi hóf mótið
með því að tapa fyrir enska alþjóð-
lega meistaranum Daniel Gormally
(2.505), en hefur síðan fengið 5½
vinning í sex umferðum gegn sterk-
um andstæðingum. Í síðustu þremur
umferðunum hefur hann sigrað
Belgann Geert Vanderstricht
(2.427), kanadíska stórmeistarann
Kevin Spraggett (2.526) og georg-
íska alþjóðameistarann Davit
Lobzhanidze (2.512). Haldi Bragi
áfram á sömu braut stefnir allt í að
hann nái áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli. Í næstu umferð, þeirri
áttundu, teflir hann við belgíska stór-
meistarann Vladimir Chuchelov
(2.539), þannig að dagskráin er stíf
hjá honum. Bragi er nú í 4.–20. sæti á
mótinu ásamt mörgum heimsþekkt-
um skákmönnum. Þetta er ekki ama-
legur árangur á einhverju sterkasta
og fjölmennasta skákmóti heims og
vonandi tekst Braga vel upp í síðustu
tveimur umferðunum.
Hinum 17 íslensku skákmönnun-
um á mótinu hefur mörgum hverjum
einnig vegnað mjög vel. Staða ís-
lensku keppendanna er þessi:
4.–20. Bragi Þorfinnsson 5½ v.
63.–151. Helgi Ólafsson, Óskar
Bjarnason 4½ v.
152.–270. Jón Viktor Gunnarsson,
Stefán Kristjánsson, Róbert Harðar-
son, Björn Þorfinnsson, Ingvar Jó-
hannesson 4 v.
271.–416. Davíð Kjartansson,
Björn Ívar Karlsson, Ólafur Kjart-
ansson, Stefán Bergsson, Birkir Örn
Hreinsson 3½ v.
417.–569. Guðmundur Kjartans-
son, Dagur Arngrímsson, Guðjón
Heiðar Valgarðsson, Halldór Hall-
dórsson, Sigurjón Þorkelsson 3 v.
Kasparov á sigurbraut
Kasparov er kominn með eins
vinnings forystu á skákmótinu í Lin-
ares eftir sigur á Leko í sjöttu um-
ferð. Hann hefur nú unnið þrjár
skákir í röð og virðist vera á góðri
leið með að tryggja sér enn einn
mótasigurinn. Í gær, föstudag, var
frídagur, en sjöunda umferð verður
tefld í dag. Úrslit sjöttu umferðar:
Karpov – Shirov ½–½
Kasparov – Leko 1–0
Judit Polgar – Grischuk ½–½
Staðan á mótinu er nú þessi:
1. Gary Kasparov 4½ v.
2. Judit Polgar 3½ v.
3. Alexei Shirov 3 v.
4.–5. Peter Leko, Anatoly Karpov
2½ v.
6. Alexander Grischuk 2 v.
Skákþing Kópavogs að hefjast
Skákþing Kópavogs hefst sunnu-
daginn 4. mars klukkan 14. Tefldar
verða 7 umferðir eftir Monrad-kerfi.
Umhugsunartíminn er 90 mínútur á
30 leiki og 45 mínútur til að ljúka
skákinni. Umferðataflan er eftirfar-
andi:
1. sunnud. 4. mars kl. 14
2. miðv.d. 7. mars kl. 19:30
3. miðv.d. 14. mars kl. 19:30
4. miðv.d. 21. mars kl. 19:30
5. sunnud. 25. mars kl. 14
6. miðv.d. 28. mars kl. 19:30
7. sunnud. 1. apríl kl. 14
Teflt verður í félagsheimili TK,
Hamraborg 5, þriðju hæð.
Nýjung á atkvöldi
Það er óhætt að segja að Atkvöld
Hellis séu orðin fastur liður í skáklífi
Reykjavíkur, en þau hafa verið hald-
in í hverjum mánuði síðan í septem-
ber 1995. Á næsta atkvöldi, sem hald-
ið verður mánudaginn 5. mars kl. 20,
verður bryddað upp á þeirri nýjung
að gefa þremur keppendum kost á að
taka þátt í mótinu í gegnum Netið.
Þannig geta þátttakendur hvar sem
þeir eru staddir á landinu, eða jafnvel
erlendis, tekið þátt í mótinu. Þetta er
fyrsta mótið hér á landi, og þótt víðar
væri leitað, þar sem blandað er sam-
an taflmennsku í gegnum Netið og
hefðbundnu tafli. Taflfélagið Hellir
hefur sett upp staðarnet í félags-
heimili sínu, sem gerir þetta kleift.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í
atkvöldinu í gegnum Netið þurfa að
skrá sig sem fyrst með tölvupósti
(hellir@simnet.is), en eins og áður
segir geta einungis þrír skákmenn
tekið þátt í mótinu á þennan hátt. Ut-
anbæjarmenn og þeir sem búa er-
lendis ganga fyrir.
Fyrst verða tefldar þrjár hrað-
skákir þar sem hvor keppandi hefur
fimm mínútur til að ljúka skákinni og
síðan þrjár atskákir, með tuttugu
mínútna umhugsun.
Sigurvegarinn fær verðlaun, mat
fyrir tvo frá Dominos Pizzum. Þá
hefur einnig verið tekinn upp sá sið-
ur að draga út af handahófi annan
keppanda, sem einnig fær máltíð fyr-
ir tvo hjá Dominos Pizzum. Þar eiga
allir jafna möguleika, án tillits til ár-
angurs á mótinu.
Mótið verður haldið í félagsheimili
Hellis, Þönglabakka 1. Þátttökugjald
er kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200
fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir
aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).
Mótið er tilvalið tækifæri til að
liðka puttana fyrir Íslandsmót skák-
félaga sem haldið verður helgina eft-
ir!
Skákmót á næstunni
4.3. SA. 15-mín. mót
4.3. TK. Skákþing Kópavogs
5.3. Hellir. Atkvöld
9.3. SÍ. Íslandsmót skákfélaga
11.3. Hraðskákmót Íslands
Bragi meðal efstu manna
í Capelle la Grande
Morgunblaðið/Ómar
Bragi Þorfinnson
Daði Örn Jónsson
SKÁK
C a p e l l e l a G r a n d e
17. CAPELLE LA
GRANDE-SKÁKMÓTIÐ
24.2.–3.3. 2001
Á BRIDSHÁTÍÐ mæta jafnan
margir heimsþekktir bridsspil-
arar og fer jafnan meira fyrir
sumum þeirra en öðrum.
Á nýliðinni hátíð var kona sem
bar ekki mikið á en er mjög
þekkt í bridsheiminum. Hún kom
hingað með meðspilara sínum,
Hjördísi Eyþórsdóttur úr Sand-
gerði, sem mun vera eini atvinnu-
spilari okkar Íslendinga. Konan
heitir Carol Sanders.
Hún hefir hampað ólympíu-
meistaratitli og hefir a.m.k. fimm
sinnum orðið heimsmeistari. Eig-
inmaður hennar er Tom Sanders
en hann er fyrrverandi forseti
bandaríska bridssambandsins.
Carol og Hjördís spiluðu í sveit
LA Café á Bridshátíðinni sem
endaði í fimmta sæti.
Á meðfylgjandi mynd er sveitin
að taka við verðlaunum sínum.
Talið frá vinstri:
Guðmundur Ágústsson forseti
Bridssambandsins, Valgarð
Blöndal, Hjördís Eyþórsdóttir,
Carol Sanders, Ragnar Magn-
ússon, Júlíus Sigurjónsson og
Valur Sigurðsson.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Þekkt bridskona
Bridsfélag Húsavíkur
Að loknum 9 umferðum af 13 í Að-
altvímenningi Bridsfélags Húsavík-
ur er staða efstu para þannig:
Óli Kristinss.– Pétur Skarphéðinss. 73
Friðrik Jónasson - Torfi Aðalsteinss. 57
Þórir Aðalsteinss.– Gaukur Hjartarson 30
Bridsfélag Akureyrar
Nú stendur yfir tveggja kvölda
Góutvímenningur B.A. með þátt-
töku 18 para og er staða efstu
para hér á eftir:
Frímann Stefánss. – Guðm. Halldórss.
64,1%
Erlingur Arnars. – Skúli Skúlas. 61,7%
Pétur Guðjónss. – Sveinn Pálss. 61,2%
Grétar Örlygss. – Örlygur Örlygss. 57,6%
Ævar Ármanss. – Hilmar Jakobss. 55,7%
Fyrsta kvöldinu af þremur er nú
lokið í einmenningskeppni félags-
ins en henni verður fram haldið
þegar nær dregur vorinu. Staða
efstu manna er:
1. Stefán Sveinbjörnsson 58,8%
2. Frímann Stefánsson 58,3%
3. Reynir Helgason 54,6%
4. Haukur Harðarson 54,2%
5. Una Sveinsdóttir 53,3%
Spilakvöld Bridsfélags Akureyr-
ar eru á sunnudögum þar sem spil-
aðir eru eins kvölds tvímenningar
og á þriðjudögum þar sem eru
lengri mót. Spilað er í félagsheim-
ili Þórs og hefst spilamennska kl.
19:30 og eru allir velkomnir. Að-
stoðað er við myndun para.
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n