Morgunblaðið - 03.03.2001, Blaðsíða 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 35
„Árdegið kallar,
áfram liggja sporin“
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra boðar til
almenns umræðufundar með íbúum
höfuðborgarsvæðisins um
landbúnað á nýrri öld
í Súlnasal Hótel Sögu
mánudaginn 5. mars kl. 20.30
Dagskrá:
1. Fundarsetning:
Guðmundur B. Helgason, ráðuneytisstjóri í
landbúnaðarráðuneytinu.
2. Hollur matur og hreyfing -
leið til betra heilsufars
Sigurður Guðmundsson, landlæknir.
3. Auðlindin Ísland
Baldvin Jónsson, verkefnisstjóri Áforms.
4. Landbúnaður við upphaf nýrrar aldar
Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra.
5. Umræður og fyrirspurnir
Fundarstjóri Níels Árni Lund, deildarstjóri í
landbúnaðarráðuneytinu.
Fundurinn er öllum opinn.
Landbúnaðarráðuneytið.
KVENNAKÓRINN Vox Feminae
fylgdi geisladiski sínum, „Mamma
geymir gullin þín“ sem út kom nú um
jólin, úr hlaði með vel sóttum útgáfu-
tónleikum í Salnum á fimmtudags-
kvöldið var. Nokkur karlaundirvikt
var meðal áheyrenda, og verður von-
andi ekki dæmigert til frambúðar að
karlhlustendur afskrifi kvennakór-
stónleika yfirborðslega sem sér-
„kvennamál“, enda engin ástæða til.
Fyrri hluti dagskrár var allur á
þjóðlegu nótunum a cappella, og
komu þá margir kórfélaga fram á
þjóðbúningum. Íslenzka tvísöngslag-
ið birtist fyrst „au naturel“ í mynd Ís-
lands, farsælda fróns en þar næst í
kontrapunktískari útfærslu Jóns Ás-
geirssonar á Ljósið kemur langt og
mjótt, sem reyndi á hæðargetu 1.
sóprans, en heppnaðist samt mjög
vel. Var tandurhrein inntónun í báð-
um lögum unun á að hlýða. Sama
mátti segja um flest sem á eftir kom.
Lysthúskvæði var blessunarlega
laust við hálfneyðarlega hanagals-
effektinn sem stundum er troðið í
raddsetningu Róberts A. Abrahams-
sonar, og Krummavísur (radds. Jóns
Þórarinssonar) hljómuðu einnig vel,
utan hvað ú-ið á erindamótum var
svolítið viðkvæmt. „Madrigalettó“
Atla Heimis Sveinssonar, Við svala
lind, hefði mátt vera agnarögn hrað-
ari, en Harmbótarkvæði (radds.
R.A.O.) var nánast fullkomið. Góð
börn og vond (radds. J.Á.) kom kostu-
lega út með bjagaðri eftirhermu
kvennanna á skeifulátum vondra
barna, og yfirleitt voru líflegar fettur
og sviðsframkoma kórsins almennt
fyndin en þó hófstillt á fjölbreyttu
prógrammi kvöldsins.
Hin innblásna og hlýkímna tón-
setning Þorkels Sigurbjörnssonar á
Konum Jóns úr Vör naut einnig góðs
af þessu og skilaði sér með miklum
ágætum í smellinni túlkun kórsins.
Hressileg ferð var yfir Friðriki sjö-
unda kóngi (radds. J.Á.) og Abba
Labba (Friðrik Bjarna-
son, radds. Gunnars
Reynis Sveinssonar).
Heimilissaxófónisti
kórsins Stefán S. Stef-
ánsson dró seiminn í
intrói og á hendinga-
mótum á sópran-sax
með angurværum þrak-
neskum djass-rúllöðum
í Hrafninn flýgur, er
sameinuðu smekklega
frónska og balkneska
þjóðlagatóna. Vísur
Vatnsenda-Rósu í út-
færslu Jóns Ásgeirsson-
ar voru sungnar af mik-
illi innlifun, og í
áhrifamikilli túlkun
kórsins á Móðir mín í kví, kví í sér-
kennilegri raddfærslu Jóns (m.a. með
sjaldheyrðri tvöföldun laglínu í út-
röddum á móti sjálfstæðum innrödd-
um) undirstrikaði lítil dulbúin ball-
erína harmgrunn lagsins í hlutverki
útburðarins. Loks söng kórinn á út-
göngu Sofðu unga ástin mín (hugs-
anlega eftir Sveinbjörn Sveinbjörns-
son) í raddsetningu Jóns af frábærri
kyrrð.
Eftir hlé hleypti kórinn heimdrag-
anum með erlendum lögum. Fyrsti
viðkomustaður var eðlilega Færeyj-
ar, hvaðan kom angursnoturt lag eftir
Sunleif Rasmussen, Sóljurnar og
nóttin. Við píanóleik söng kórinn næst
tvö lög; annað eftir Grieg (To brune
øjne) í vaggandi polonaise-hrynjandi,
hitt var bráðfallegt lag Finns Jørgen-
sens, Lóa. Undirleikslaust var Svant-
es lykkelige dag eftir Benny Ander-
sen í raddsetningu Sørens Birch, sem
kórinn fór með af smitandi gleði og
m.a.s. smásveiflutilþrifum, en með
píanói söng hann álenzka þjóðlagið
Vem kan segla í frábærri útsetningu
Carl-Bertils Agnestig.
Hæsti hápunktur var tvímælalaust
„Pseudo Yoik Lite“ eftir Finnann
Jaakko Mäntyjärvi, þar sem seið-
skröttur vittu ganda af dæmalausum
krafti og hleyptu kústum sínum á
harðaspretti um loftin blá í ómót-
stæðilegum sópandi flutningi, er
leiddi á köflum hugann að þjóðlaga-
rokksveitinni meistaralegu, Värtinä.
Þessi seiðmagnaða skriðfinnska allra
flagða hrynþula var
hljómrænt borin uppi af
fersku samstiga fer-
undaraddferli og náði
gustmiklu flugi í smell-
andi samtaka flutningi
kórsins, þótt væri e.t.v.
ofurlítið í hægari kant-
inum.
Sjálfsagt var þreyta
aðeins farin að segja til
sín í Kur tu biji eftir
Lettann Selgu Mences,
þar sem efstu nótur
urðu sumar nokkuð
sárar, en hið sérkenni-
lega hálfrómantíska lag
komst að öðru leyti fal-
lega til skila. Sömuleiðis
var slavneskur þokki yfir Stúlknakór
Tjækovskíjs úr Evgeni Onegin, og
ekki var síðri dreymandi bátssöngur-
inn úr Ævintýrum Hoffmanns eftir
Offenbach. Síðastur á prentaðri dag-
skrá var svo Söngur sígaunakvenn-
anna úr La Traviata Verdis, sem að
mínu viti hefði náð enn meiri dillandi
reisn í aðeins hægara tempói, þótt
vissulega kæmi hann hrífandi út úr
samstilltum söng kórsins. Enda voru
undirtektir eftir því, og dugðu ekki
færri en þrjú aukalög til að hemja
hlustendur til heimfarar.
Dagskrá Vocis feminae var sérlega
skemmtileg og fjölbreytt þetta kvöld,
og eftir öllu að dæma virtist kórinn
sem næst í toppformi. Margrét
Pálmadóttir kynnti að vanda með
þeirri kankfrísklegu gamansemi sem
henni einni er lagin og hélt utan um
flutninginn af örvandi nákvæmni. Pí-
anómeðleikur Arnhildar Valgarðs-
dóttur var í bezt fáanlegu styrkjafn-
vægi, lipur og samstilltur í hvívetna.
Kústum hleypt á sprett
TÓNLIST
S a l u r i n n
Útgáfutónleikar kvennakórsins
Vocis feminae. Stjórnandi: Margrét
Pálmadóttir. Píanóundirleikur:
Arnhildur Valgarðsdóttir. Fimmtu-
daginn 1. marz kl. 20.30.
KÓRTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
Margrét
Pálmadóttir
TVÖ verk eftir Egil Guðmundsson,
nemanda Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar, verða frumflutt á tón-
leikum skólans í Víðistaðakirkju í
dag kl. 17. Fyrra lagið heitir Slysa-
skot í Palestínu, sönglag við ljóð
Kristjáns frá Djúpalæk. Það er
Bragi Þór Valsson baríton sem flyt-
ur lagið við píanóundirleik höfund-
arins. Seinna lagið heitir Frumsa-
frumsa, valsþáttur. Verkið flytur
kammerhljómsveit skólans.
Auk þess verður fluttur fyrsti kafli
úr píanókonsert nr. 19, KV 459 eftir
Mozart. Einleikari á píanó er Jó-
hanna Marín Óskarsdóttir. Stjórn-
andi er Sigursveinn Magnússon.
Nemandaverk
frumflutt
á tónleikum
ÚR djúpunum, tónlistardagskrá
með ljóða- og lausamálstextum,
verður flutt tvisvar á Suðurlandi á
sunnudag. Í Hraungerðiskirkju kl.
16 og í Þorlákskirkju kl. 20:30. Dag-
skráin er að stofni til byggð á lögum
sömdum af Gyðingum í útrýmingar-
búðum og fátækrahverfum síðari
heimsstyrjaldar.
Um er að ræða dagskrá í tali og
tónum borna fram af Hilmari Erni
Agnarssyni sem leikur á orgelharm-
oníum, Hirti Hjartarsyni sem leikur
á klarínett, Sveini Pálssyni sem leik-
ur á gítar, Ingunni Jensdóttur sem
flytur söngva og Eyvindi Erlends-
syni sem fer með ljóð og laust mál.
Tónlist úr
útrýming-
arbúðum
SÝNING á verki Alexander Steig í
GUK verður opin á morgun, sunnu-
daginn, kl. 16–18, að staðartíma.
GUK er í garðinum við Ártún 3 á Sel-
fossi, í skúr við Kirkebakken 1 í
Lejre í Danmörku og í eldhúsinu í
Callinstrasse 8 í Hannover í Þýska-
landi.
Hægt er að fá upplýsingar um
listamanninn og skoða myndir af
verkinu á http://www.simnet.is/guk.
Opið í GUK
TRÍÓIÐ Jazzandi leikur á Ozio við
Lækjargötu á sunnudagskvöld kl.
21.30. Meðlimir tríósins eru þeir Sig-
urjón Alexandersson (Sjonni) gítar-
leikari, Sigurdór Guðmundsson
bassaleikari og Gestur Pálmason
trommuleikari. Auk þeirra mun
saxófónleikarinn Steinar Sigurðar-
son leika nokkur lög með hljómsveit-
inni.
Leiknir verða standardar í útsetn-
ingum hljómsveitarmeðlima auk
frumsamins efnis.
Jazzandi hefur víða komið fram
t.d. á Jazzhátíð Reykjavíkur, í Múl-
anum og leikið í sjónvarpi og útvarpi.
Miðaverð 600 kr.
Sunnudags-
djass á Ozio
FRUMSÝNING á brúðusýningu
Sögusvuntunnar – Loðinbarði – sem
vera átti sunnudaginn 4. mars kl. 14
& 15 fellur niður vegna veikinda.
Áætlað er að frumsýning frestist um
viku og verði því sunnudaginn 11.
mars nk.
Loðinbarða
frestað
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦