Morgunblaðið - 03.03.2001, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 37
SÝNING UM HELGINA
laugardag og sunnudag frá kl. 13-17
LADA 111 GRAND TOUR
VERÐ KR. 890.000
HÚN ER EINS LEIÐIN AÐ HEIMAN OG HEIM.... „KOSTAR BARA MINNA“
LADA 111 GRAND TOUR framleidd í Evrópu fyrir Evrópu
LADA-UMBOÐIÐ EHF
Fosshálsi 1
s. 577 5111 - fax 577 5110
www.lada.is
BÚNAÐUR:
• rafdr. rúður f/a
• samlæsingar
• veltistýri
• miðstöð m. sjálfv. hitastilli
• hæðarstillanleg aðalljós
• raf.opnun á afturhlera
• farangurshlíf
• skipt fellanleg aftursæti (60/40),
• hæðarstillanlegir höfuðpúðar á aftursætum
• 1,5I 8 ventla fjölinnsprautun BOSCH
• rafkerfi BOSCH
• ljós BOSCH
• mælaborð „VDO“
ÚTLIT:
• samlitir stuðarar
• vindskeið m. bremsuljósi
• toppbogar
ÞRETTÁN mánaða kanadísk
stúlka er á batavegi eftir að hafa
týnst í gríðarlegum frosthrökum í
Edmonton í Kanada um liðna
helgi. Læknar líkja því við krafta-
verk að stúlkan skuli vera á lífi og
í raun lítt sködduð miðað við að-
stæður. Segja þeir fátítt að svo lítil
börn geti lifað af viðlíka hremm-
ingar.
Stúlkan var úrskurðuð „klínískt
látin“ er komið var með hana á
sjúkrahús fyrir réttri viku. Engin
merki hafa komið fram í þá veru
að hún hafi orðið fyrir heilaskaða
en ekki er að fullu ljóst hversu var-
anleg kalsárin verða.
Læknar og fræðimenn lýstu yfir
furðu sinni á því að stúlkan skyldi
lifa af dvölina í frostinu. Sögðu
þeir að vitað væri um „fjögur eða
fimm tilfelli“ þar sem svo lítil börn
hefðu lifað af slíka raun. Líkams-
hiti hennar var kominn niður í 16
gráður þegar hún fannst.
Stúlkan skreið út úr rúmi móður
sinnar snemma á laugardags-
morgni fyrir réttri viku. Hún var
óklædd með öllu en með bleyju.
Hún komst út úr húsinu en úti var
frostið 24 gráður. Nokkrum
klukksutundum síðar fann móðir
hennar hana í garði nágranna síns.
Nafn barnsins hefur ekki verið
gefið upp en læknar sögðu að eng-
inn púls hefði verið mælanlegur
þegar aðstoð barst. Líkami hennar
var því sem næst einn „ísklumpur“
og svo gegnfrosið var barnið að
hjálparmenn áttu í erfiðleikum
með að opna munn stúlkunnar.
Talið er að hjarta hennar hafi
stöðvast í minnst tvær klukku-
stundir.
Læknar vöfðu barnið inn í upp-
hitað teppi og skömmu síðar tók
hjarta þess að slá á ný án utan-
aðkomandi aðstoðar. Þá voru
læknar við það að færa hana í
hjarta- og lungnavél.
Stúlkan kól illa og segja sér-
fróðir að einhverjar vikur kunni
að líða áður en unnt verður að
leggja mat á þann skaða. Hugs-
anlegt er að stúlkan missi ein-
hverjar tær og jafnvel útlimi.
Móðirin, sem er 26 ára, er á
batavegi eftir áfallið.
Kraftaverk
í Kanada
Associated Press
Litla stúlkan sefur vært á sjúkrahúsinu í Edmonton. Hún sýnir engin
merki heilaskaða og var vakandi og brosandi fyrr í vikunni.
Þrettán mánaða gömul stúlka týnist
klæðalaus í gríðarlegum frosthörkum
Edmonton. Reuters.
NEYTENDASAMTÖK hafa hvatt
ríkisstjórn Georges W. Bush í Banda-
ríkjunum til að koma í veg fyrir að
þarlent fyrirtæki gefi fyrirburum í
Rómönsku-Ameríku lyfleysu (plac-
ebo) í staðinn fyrir lungnameðferð,
sem vitað er að virkar, til að gera
prófanir á tilraunalyfi.
Fyrirhuguð rannsókn er „ósiðleg
misnotkun“ og mun leiða til þess, að
yfir tíu börn deyja af völdum öndun-
arerfiðleikaheilkenna, segir dr. Peter
Lurie, talsmaður bandarísku neyt-
endasamtakanna Public Citizen. Lur-
ie fullyrðir að hægt sé að koma í veg
fyrir að þessi börn deyi.
Vísindamenn um allan heim deila
um það hvort nokkurn tíma sé siðlegt
að bera tilraunalyf saman við lyfleysu
þegar til sé lyf, sem vitað er að virkar,
frá samkeppnisaðila. Þetta er sér-
staklega erfitt deiluefni þegar banda-
rískir vísindamenn eru að gera til-
raunir í fátækum löndum sem hafa
ekki efni á meðferðinni sem til er.
Vekur þetta spurningar um hvers
vegna lyfleysur séu vandamál þar,
eða hvort ríkum löndum beri skylda
til að veita dýra lyfjameðferð í staðinn
fyrir að fá að gera rannsóknir.
Öndunarerfiðleikaheilkenni hrjá
oft fyrirbura vegna þess að lungu
þeirra hafa ekki náð fullum þroska.
Nokkrar tegundir af lyfjum, svonefnd
lungnablöðruseyti, eru til og er þeim
úðað ofan í lungu þessara barna og
hefur þetta fækkað dauðsföllum af
þessum völdum um 34 prósent.
Bandaríska lyfjafyrirtækið Discov-
ery Laboratories hefur búið til nýja
gerð af lungnablöðruseyti sem kallast
Surfaxin. Segja talsmenn fyrirtækis-
ins að nýja gerðin kunni að vera betri
en vinsælustu lungnablöðruseytin
sem gerð eru úr frumum úr kúm eða
svínum.
Í skjölum bandaríska matvæla- og
lyfjaeftirlitsins (FDA) segir að sam-
anburður á áhrifum Surfaxins og lyf-
leysu á bandarísk börn með öndunar-
erfiðleikaheilkenni væri ósiðlegur en
eftirlitið sé að kanna hvort rétt sé að
samþykkja lyfleysutilraunir á tiltekn-
um stöðum í Mexíkó, Bólivíu, Perú og
Ekvador.
„Tilraunir með þá
allra fátækustu“
„Vísindamönnunum hefur hug-
kvæmst að gera tilraunir með þá allra
fátækustu,“ segir Lurie í bréfi til heil-
brigðis- og félagsmálaráðherra
Bandaríkjanna og hvetur til að áætl-
anirnar verði að engu gerðar.
En aðalframkvæmdastjóri lyfjafyr-
irtækisins, Robert Capetola, varði
fyrirhugaða rannsókn. „Það væri
ósiðlegt að gera þetta ekki,“ sagði
hann.
Sjúkrahúsin í Rómönsku-Ameríku,
sem taka þátt í rannsókninni, hafa
ekki efni á lungnablöðruseytimeð-
ferðinni sem til er, en hún kostar um
190 þúsund krónur, og fyrirburar þar
fá því enga meðhöndlun nema súr-
efnisgjöf. Í fyrirhugaðri rannsókn
myndu hundruð ungabarna fá
Surfaxin eða lyfið Survanta sem vitað
er að virkar og er framleitt af keppi-
nauti, eða lyfleysu.
Capetola sagði að ef þriðji þáttur-
inn, til samanburðar, yrði felldur úr
rannsókninni myndi það taka heilt ár í
viðbót að skera úr um hvort Surfaxin
virkar og selja það svo til þeirra sem
þurfi á því að halda – og Capetola
heitir því að lyfið verði selt ódýrt í
Rómönsku-Ameríku. Hann sagði enn
fremur að hraði skipti máli vegna
þess að önnur lungnablöðruseyti, sem
framleidd eru úr frumum úr kúm,
veki ótta um kúariðu en þessu and-
mælir FDA harðlega.
Í Evrópu eru þegar hafnar rann-
sóknir á Surfaxin í samanburði við lyf,
sem vitað er að virkar, frá keppinauti,
og það ættu ekki að gilda lægri viðmið
í rannsókninni í Rómönsku-Ameríku,
segir Public Citizen.
Lyfjarannsókn
sögð ósiðleg
Washington. AP.
Er nokkurn tíma siðlegt
að gefa sjúku fólki
lyfleysu í stað lyfs sem
vitað er að virkar?
Associated Press
Æska
í allsleysi
Barn af ættbálki Quiche-indíána á
heimili sínu í þorpinu Jua um 220
kílómetra norður af Guatemala,
höfuðborg samnefnds ríkis í Suður-
Ameríku. Samkvæmt skýrslum
Sameinuðu þjóðanna líður gríðar-
legur fjöldi barna skort í þessum
heimshluta. Þau eru látin vinna erf-
iðisvinnu, fá litla heilbirgðisþjón-
ustu og menntun og alast upp við
ofbeldi og mismunun. Sameinuðu
þjóðirnar áætla að 100 milljónir
barna í Suður-Ameríku lifi í fátækt.
Um 20 milljónir þeirra verða af
skólagöngu vegna þess að þau
þurfa að stunda vinnu og um 65.000
sýkjast á ári hverju af alnæmi.