Morgunblaðið - 03.03.2001, Blaðsíða 84

Morgunblaðið - 03.03.2001, Blaðsíða 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. FRAMKVÆMDIR við Vatnsfells- virkjun hafa gengið vel í vetur og ólíkt betur en snjóaveturinn í fyrra. Starfsmenn ÍAV Ísafls luku nýverið steypuvinnu við sjálft stöðvarhúsið að utan og eru byrjaðir á steypu- vinnu innanhúss í kringum vélar. Enn fremur er steypuvinna hafin bak við stöðvarhúsið, nánar tiltekið við gríðarsverar fallpípurnar. Þver- mál hvorrar pípu er um hálfur fimmti metri. Áætlað er að Vatns- fellsvirkjun hefji rekstur á haust- mánuðum 2001 en áformað er að hún verði 90 MW að afli. Hátt á annað hundrað manns vinna nú við virkjunina og segir Guðmundur Guðleifsson verkstjóri, að furðuvel hafi gengið í vetur. Hann segir að snjóaveturinn 1999– 2000 hafi verið sá versti í mörg ár og tafið mjög vinnu. Hins vegar sé allt annað uppi á teningnum að þessu sinni og tíðarfar mjög hagstætt. Morgunblaðið/Emil Þór Sigurðsson Snjóléttur vetur auðveldar virkjunarvinnu INGA Jóna Þórðardóttir, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur, segist sækjast eftir umboði flokksmanna sinna til að veita Sjálfstæðisflokknum áfram forystu í borginni. Hún vísar öllum vangaveltum, um að hún áformi að hætta á næstunni þátttöku í stjórn- málum, á bug. „Mér var falið leiðtogahlutverk í okkar hópi við upphaf kjörtímabils- ins og tók að mér að stýra stjórn- arandstöðu í borginni. Ég hef hugs- að mér að vinna það verk til enda ásamt félögum mínum og tilgátur um pólitískt andlát mitt hafa ekki við rök að styðjast. Við vinnum nú skipulega að undirbúningi borgar- stjórnarkosninganna að ári og leið- um til að styrkja stöðu flokksins í borginni. Uppstilling fyrir kosning- arnar verður síðan ákveðin af flokks- mönnum og þá kemur í ljós hvort sama hópi verður falið að leiða kosn- ingabaráttuna eða hvort nýir aðilar koma þar að, en brýnt er að til þess veljist breiður og öflugur hópur. Hins vegar verða menn að greina á milli hugsanlegra frambjóðenda og þeirra verkefna sem núverandi borgarstjórnarflokkur er að vinna.“ Inga Jóna sagðist í samtali við Morgunblaðið telja að umræða um að Sjálfstæðisflokkurinn kynni að tefla fram nýjum manni til forystu í Reykjavík hefði ekki skaðað flokkinn til langframa en umræðan hefði hins vegar ekki styrkt hann. Inga Jóna gagnrýndi harðlega stefnu R-listans og sagði að þörf væri á að gera miklar breytingar á rekstri borgarinnar. Hún vill færa rekstur grunnskólans og leikskólans í meira mæli út til einkaaðila. Bjóða þyrfti upp á fjölbreyttari lausnir í leikskólamálum, en þar hafi R-list- inn algerlega brugðist kjósendum sínum. Hún sagði einnig vel koma til greina að bjóða út rekstur félags- þjónustunnar, öldrunarþjónustu og rekstur íþróttamannvirkja. Inga Jóna Þórðardóttir oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Sækist áfram eftir forystuhlut- verki í Reykjavík  Falið leiðtogahlutverk/12 FJÖGURRA ára þríþættu til- raunaverkefni um notkun á vetni var hleypt af stokkunum í gær. Verkefnið gengur undir nafninu Ectos en það er Íslensk nýorka ehf. sem stýrir því. Níu íslensk og evrópsk fyr- irtæki taka að auki þátt í verk- efninu sem er styrkt af Fram- kvæmdastjórn Evrópusam- bandsins með u.þ.b. 225 millj- ónum króna sem er stærsti styrkur sem Evrópusambandið hefur veitt til íslensks verkefn- is. Alls kostar verkefnið um 560 milljónir. Um 225 millj. vetn- isstyrkur frá ESB  Vetnistilraun/14 „NÁLÆGÐ Reykjavíkurflugvallar við bráðaþjónustu sjúkrahússins vegna slysa eða veikinda er æskileg en ekki lífsnauðsynleg,“ segir Brynj- ólfur Mogensen, sviðsstjóri slysa- og bráðaþjónustusviðs Landspítala – háskólasjúkrahúss, er hann er beð- inn að meta þýðingu þess að Reykja- víkurflugvöllur verði áfram í Vatns- mýri miðað við að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur. Brynjólfur Mogensen segir spurninguna um þýðingu vallarins hafa verið nokkuð rædda á spítalan- um. „Í lífsnauðsynlegum aðgerðum er þyrla notuð í langflestum tilvik- um. Hún er fljótust á vettvang þegar alvarleg slys eða bráðaveikindi verða í nokkurri fjarlægð frá Reykjavík, í byggð eða óbyggð,“ segir Brynjólfur. Hann segir koma upp tilvik þar sem þyrlan geti ekki komið að gagni, t.d. vegna veðurs eða bilana. Hann bendir einnig á að verði slys eða veikindi utan þéttbýlis sé flutningstími yfirleitt nokkuð langur og oft sé þá læknir á viðkom- andi svæði búinn að veita fyrstu hjálp. Séu aðstæður þannig að þyrl- unni sé ófært sé varla heldur unnt að koma við sjúkraflugi og því oft búið að veita þessa fyrstu aðstoð. „Þess vegna er ekki lífsnauðsynlegt að völlurinn sé þar sem hann er nú en það er æskilegt.“ Sjúkraflug var talsvert meira í fyrra en árið áður og segir Brynj- ólfur þyrluna hafa verið notaða í 150 skipti. Flug vegna slysa voru í meiri- hluta. Þá voru allmargar ferðir farn- ar vegna sjúkraflugs með flugvél. Árið 1999 og nokkur ár á undan voru yfirleitt farnar kringum 100 ferðir á þyrlunni vegna slasaðra eða sjúkra. Þyrlan áfram í Reykjavík Brynjólfur sagði að sjúkraflug með þyrlu frá Reykjavík þyrfti ekki að vera flutt frá borginni þótt flug- völlurinn yrði færður. Taldi hann næsta öruggt að miðstöð þyrlunnar yrði áfram í Reykjavík enda þyrfti hún mun minna athafnasvæði en venjubundið flug. Sviðsstjóri slysa- og bráðaþjónustusviðs Landspítalans Nálægð vallarins æski- leg, ekki lífsnauðsynleg FRYSTITOGARINN Venus frá Hafnarfirði var tekinn fyrir meintar ólöglegar veiðar í Barentshafi í gær. Skip norsku strandgæslunnar var með Venus á leið til hafnar í Tromsø í Noregi í gærkvöldi. Venus var á svokölluðum Fuglabanka þegar skipið var tekið. Að sögn Einars Enresen hjá norsku strandgæslunni leikur grun- ur á að smáfiskaskilju hefði verið komið fyrir á ólöglegan hátt um borð í skipinu. Hann vildi ekkert segja um það hversu alvarlegum augum slíkt brot er litið. Búist var við að skipin kæmu til hafnar í Tromsø snemma í morgun og þar mun skipstjóri Venusar, Guðmundur Jónsson, mæta fyrir dómstól. Í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi vildi Guðmundur ekki tjá sig um málið. „Ég vil ekkert segja um það og vil ekkert tjá mig fyrr en ég hef rætt við norsk yf- irvöld og við erum farnir út á ný,“ sagði hann. Venus færður til hafnar í Tromsø
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.