Morgunblaðið - 03.03.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.03.2001, Blaðsíða 14
FRÉTTIR 14 LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Vetnistilraun hleypt af stokkunum hér á landi Á árinu 2003 verða þrír strætisvagnar knúnir vetni komnir inn í leiðakerfi SVR og hafin verður framleiðsla og áfylling vetnis við eina af bensínstöðvum Skeljungs. Guðjón Guðmundsson sat blaðamannafund og ráðstefnu um Ectos-verkefnið sem hleypt var af stokkunum í gær. Vetnisstrætó eins og verður á götum Reykjavíkur árið 2003. Ökudrægið er200–300 km, hámarkshraðinn 80 km og mengun frá honum engin. Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar nýorku, að Ectos-verk- efnið væri ekki komið svo langt sem raun bæri vitni hefði ekki komið til frumkvöðlastarf og rannsóknir pró- fessors Braga Árnasonar við Há- skóla Íslands og afskipti Ingimund- ar Sigfússonar sendiherra í Þýskalandi sem kom á samstarfi milli íslenskra aðila í Íslenskri ný- orku og evrópskra. Vetni gert úr vatni með rafgreiningu Síðastliðin tvö ár hefur Íslensk nýorka undirbúið verkefnið sem er skipt upp í þrjá flokka. Í fyrsta lagi er þar um að ræða tilraunaverkefni um rekstur þriggja vetnisstrætis- vagna; í öðru lagi tilraunaverkefni um rekstur vetnisbíla og í þriðja lagi tilraunaverkefni um rekstur skipa sem knúin eru með vetni. Fyrstu tvö árin fara einkum fram ýmsar rannsóknir, s.s. mælingar á útblæstri í borginni, margvíslegar rannsóknir og skoðanakannanir á af- stöðu borgarbúa til hinnar nýju tækni en jafnframt fer þá fram uppbygging innviða til vetnisfram- leiðslu og dreifingu ásamt viðhalds- stöðvar og þjálfun starfsmanna. Seinni tvö árin verða þrír vetnis- strætisvagnar settir inn í leiðakerfi SVR og framleiðslu- og áfyllingar- stöðin tekin í notkun. Hún verður við eina af bensínstöðvum Skeljungs. Að stöðinni verður leitt vatn og raf- magn. Þar verður vatnið klofið í súr- efni og vetni með rafgreiningu og vetnið fyllt á tanka á þaki strætis- vagnanna. Vetnið er síðan með- höndlað af efnarafala í strætisvögn- unum þar sem það er klofið í súrefni og rafeind sem knýr rafmótor vagnsins. Jón Björn Skúlason, fram- kvæmdastjóri Íslenskrar nýorku, sagði að þetta væri í fyrsta sinn sem vetnisáfyllingar- og framleiðslustöð yrði byggð inn í venjulega bensín- stöð og með þessu yrði hægt að sýna heimsbyggðinni fram á að hægt væri að samþætta starfsemi venjulegrar bensínstöðvar og vetnisstöðvar. Strætisvagnarnir eru framleiddir af DaimlerChrysler og taka þeir 70 farþega í 30 sæti. Ökudrægi þeirra verður 200-300 km sem er svipað og meðalakstur venjulegs strætisvagns í leiðakerfi SVR á einum degi. Há- markshraði vetnisvagnanna er 80 km á klst og þeir eru með öllu meng- unarlausir. Út um útblástursrörið kemur hreint vatn. „Þegar verkefninu lýkur eftir fjögur ár vonumst við eftir því að geta lagt fram jákvæðar niðurstöður og í framhaldi af því byggt upp frek- ari innviði og fengið fleiri farartæki til þess að nýta á Íslandi. Vonandi getur almenningur þá farið að kaupa vetnisbíla. Önnur verkefni sem koma til greina er að skoða hvort út- flutningur á vetni verði fýsilegur,“ sagði Jón Björn. Umhverfisvernd og markaðs- öflin haldast í hendur Davíð Oddsson forsætisráðherra óskaði verkefninu velfarnaðar á ráð- stefnu sem haldin var í kjölfar blaða- mannafundarins. Hann sagði að það hefði þurft allnokkuð ímyndunarafl, þekkingu og kjark til þess að láta sér detta í hug að knýja strætisvagna á Íslandi með vetni. „Takist þessi tilraun verða sigur- ECTOS er fjögurra ára tilrauna- verkefni um framleiðslu og upp- byggingu áfyllingarstöðvar fyrir vetni, rekstur vetnisstrætisvagna í Reykjavík ásamt tilraunum með vetnisfólksbíla og vetni sem orku- gjafa fyrir íslensk skip. Íslensk ný- orka ehf. stýrir verkefninu en auk þess eru níu önnur fyrirtæki þátt- takendur í því, þ.e. DaimlerChrysl- er, EvoBus, Norsk Hydro, Shell Hydrogen, Háskóli Íslands, Iðn- tæknistofnun, Skeljungur, SVR og Swedish Agency for Innovations Systems. Í fyrradag voru undirritaðir samningar milli Ectos-samstarfsað- ilanna og framkvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins sem styður Ectos- verkefnið með 2,85 milljónum evra (um 225 milljónum króna) og er þetta stærsti styrkur sem Evrópu- sambandið hefur veitt til verkefnis á Íslandi. Heildarkostnaður verkefnis- ins er 7 milljónir evra, um 560 millj- ónir kr., og fjármagna samstarfsaðil- arnir afganginn, 4,15 milljónir evra, sjálfir. Ráðgert er að fyrstu strætisvagn- arnir með efnarafala verði notaðir í leiðakerfi SVR á tveimur síðari ár- um verkefnisins sem nær til ársins 2005. Íslensk nýorka er að 51% hluta íVistOrku (Nýsköpunarsjóður Ís- lands, Orkuveita Reykjavíkur, Landsvirkjun, Hitaveita Suður- nesja, Háskóli Íslands, Iðntækni- stofnun, Áburðarverksmiðjan og Aflvaki hf.) og Shell Hydrogen, Norsk Hydro og DaimlerChrysler eiga hvert 16,33% hlut í Íslenskri ný- orku. Á blaðamannafundi í gær, þar sem verkefnið var kynnt, sagði Jón launin mikil. Verulegur efnahagsleg- ur ávinningur virðist þá blasa við. En að slepptum krónum og aurum, sem eru þó oftast drifkraftur fram- faranna, þá er ástæða til þess að gefa fullan gaum að þeirri umhverf- isbyltingu sem af hlytist ef reykspú- andi olíuvagnar vikju fyrir hljóðlát- um vetnisvögnum. Verkefnið er líka til marks um að umhverfisvernd og markaðsöflin haldast í hendur og leiðast að,“ sagði Davíð. Í máli Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra kom fram að ákveð- ið hefði verið að setja á laggirnar vinnuhóp sérfræðinga, skipaðan af iðnaðar-, umhverfis- og samgöngu- ráðuneytinu, sem ynni að rannsókn á notkun annarra orkugjafa en jarð- efnaeldsneytis. „Það er stefna stjórnvalda að stuðla að aukinni nýt- ingu endurnýjanlegrar orku í um- hverfisskyni. Þess vegna yrði fram- leiðsla og notkun vetnis, ef slíkt reynist fjárhagslega hagkvæmt, í samræmi við stefnu stjórnvalda.“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri sagði að nú væri verið að hleypta af stokkunum mikilvægu umhverfisverkefni í Reykjavík sem miklar vonir væru bundnar við til framtíðar litið. Borgaryfirvöld litu svo á að verkefnið myndi stuðla verulega að bættu umhverfi fyrir komandi kynslóðir. Stór hluti meng- unar á Íslandi ætti rætur að rekja til orkunotkunar í iðnaði en fjórðung mengunar í andrúmslofti í Reykja- vík mætti rekja til bíla. Hún sagði að viðreisn gegn mengun spilaði æ stærra hlutverk í stefnumálum borgarinnar og því væri vetnisverk- efnið Ectos í samræmi við markmið Reykjavíkurborgar. KLÚBBUR jarðvinnuverk- taka skorar á borgaryfirvöld að endurskoða ákvörðun sína um að bjóða ekki út fram- kvæmdir í Kvosinni þar sem um er að ræða endurgerð gatna fyrir 230 milljónir króna. Í ályktun frá félaginu segir að þetta sé stærsta einstaka jarðvinnuverk borgarinnar í ár. Þá segir að þær röksemdir gatnamálastjóra, að tímaskort- ur og það að fornminjar séu á svæðinu, séu léttvægar. Fram- kvæmdinni hafi verið frestað um eitt ár vegna menningar- árs og því hafi nægur tími gef- ist til undirbúnings. Hvað varðar framkvæmdir í ná- munda við fornminjar bendir félagið á að fjöldi verktaka hafi tekið að sér verkefni í miðbæ Reykjavíkur á liðnum árum. Framkvæmdir í Kvosinni Jarðvinnu- verktakar vilja útboð TVEIMUR íslenskum vísindarann- sóknum í öldrunarfræðum hefur verið veittur styrkur að upphæð ríflega 16 milljónir króna samtals, en styrkveitingin er lokaúhlutun úr söfnunarátaki Lions-hreyfing- arinnar, Rauða fjöðrin, sem fram fór á Norðurlöndunum árið 1999. Þá söfnuðust rúmlega 700 millj- ónir og hefur 80% af söfnunarfénu þegar verið úthlutað hjá hverri þjóð fyrir sig, en 20% af fénu rann í sameiginlegan norrænan vís- indasjóð sem nú var úthlutað úr. Um þessar mundir er verið að út- hluta 140 milljónum króna á Norð- urlöndum úr sjóðnum og eru þess- ar 16 milljónir sú upphæð sem úthlutað er á Íslandi. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti læknunum Pálma V. Jónssyni og Jóni Eyjólfi Jónssyni styrkina við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Pálmi leiðir rannsókn á Norðurlöndum, sem fram fer við sjúkrahús í Reykjavík, Kaupmannahöfn, Osló, Umeå og Helsinki, ásamt Önnu Birnu Jensdóttur og Gunnari Ljunggren í Svíþjóð. Hlaut þessi rannsókn styrk að upphæð rúm- lega 9 milljónir króna. Rannsóknin byggir á staðlaðri upplýsingaöflun við komu aldraðra á sjúkrahús og miðar að því að skilgreina hvaða upplýsinga er þörf til þess að veita bestu hugsanlegu þjónustu og hvernig best verði staðið að öflun þessara upplýsinga. Við bráðainnlögn aldraðra á sjúkrahús eru þeir oft með marga meðvirka sjúkdóma, taka mörg lyf og hafa oft færnitap og stundum skerðingu á vitrænni getu, bæði tímabundið eða varanlega. Af því leiðir að þarfir hinna öldruðu eru oft aðrar og meiri varðandi þjón- ustu á sjúkrahúsum og breytilegri en þeirra sem yngri eru. Miðar rannsóknin að því að byggja upp betri þjónustu við aldraða með því að finna út hvaða lágmarksþjón- ustu hver og einn þurfi á að halda hverju sinni. Jón Eyjólfur Jónsson leiðir rannsóknina Reykjavík 80+ sem nær til Reykvíkinga fæddra 1913, 1918 og 1923 og fer sambærileg rannsókn jafnframt fram í Lundi í Svíþjóð. Um er að ræða langtíma- rannsókn sem ætlað er að bæta úr þörf á vitneskju um áhrif aldurs á heilsufarslega, sálræna og félags- lega þætti. Þá er rannsókninni ætl- að að svara því hvort heilsufarsleg skoðun og mat á sálrænum þáttum hafi forvarnargildi, þ.e. stuðli að bættu heilsufari, en rannsóknir, m.a. í Danmörku, hafa gefið vís- bendingar um að þannig geti ver- ið. Söfnunin Rauð fjöður var sam- eiginlegt átak Lions-félaga á Norðurlöndum sem fram fór árið 1999. Löndin höfðu það sameig- inlega markmið að bæta líf aldr- aðra og í lok nóvember var út- hlutað hér á landi 16 milljónum króna í 25 innlend verkefni gegn jafnháum mótframlögum ein- stakra Lionsfélaga, stofnana, sveitarfélaga og annarra aðila. Íslenskar rannsókn- ir hljóta 16 millj- óna króna styrk Morgunblaðið/Jim Smart Frá afhendingu styrkja til rannsókna í öldrunarfræðum. Frá vinstri Hrund Hjaltadóttir, fjölumdæmisstjóri Lions á Íslandi, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og læknarnir Pálmi V. Jónsson og Jón Eyjólfur Jónsson. SÓKN, sem nú er hluti af stétt- arfélaginu Eflingu, var fyrsta stéttarfélagið sem samdi um aukinn rétt foreldra vegna veikinda barna. Að sögn Þór- unnar Sveinbjörnsdóttur, vara- formanns Eflingar, hafa félags- menn stéttarfélagsins rétt til að vera heima hjá börnum sínum í 75 daga vegna veikinda barna sinna. Tapi fólk úr vinnu fái það fasta sjúkrapeninga á dag. Það er því ekki rétt, sem kom fram í leiðara Morgunblaðsins á mið- vikudag, að aðrir en félags- menn VR þurfi að treysta á vel- vilja atvinnurekenda við lang- vinn veikindi barna sinna. Réttur foreldra vegna langveikra barna Mörg ár síðan Sókn samdi um aukið leyfi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.