Morgunblaðið - 03.03.2001, Síða 19

Morgunblaðið - 03.03.2001, Síða 19
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 19 Hönnun List Gullsmiðir SNJÓRINN hefur látið bíða eftir sér, en þegar hann er kominn er um að gera að nota tækifærið og leika sér úti í snjónum. Barn að leik Morgunblaðið/Ásdís HARALDUR Óskar Haraldsson varði doktorsritgerð 18. maí sl. í orkuverkfræði við vélaverk- fræðideild Kon- unglega Tækniháskólans í Stokkhólmi. Ritgerðin nefn- ist „Breakup of Jet and Drops During Premix- ing Phase of Fu- el Coolant Inter- actions“. Leiðbeinendur voru Bal Raj Sehgal, prófessor við Konunglega Tækniskólann í Stokkhólmi og Truc Nam Dinh, prófessor við University of Calif- ornia í Santa Barbara í Bandaríkj- unum. Andmælandi við vörnina var George Berthoude prófessor við háskólann í Grenoble og yf- irmaður hjá Commissariat á l’E- nergie Atomique (CEA) í Frakk- landi. Ritgerðin fjallar um hvernig bunur og dropar brotna upp í vökvum eða glasi. Gerðar voru til- raunir þar sem bunur með mis- munandi hitastig (frá 0°C til 1.500°C) og eðliseiginleika voru látnar brotna upp í mismunandi vökvum og kannað hvaða áhrif það hefði á uppbrotnunareiginleika bunanna. Fundin voru áhrif Kelv- in-Helmholz og Rayleigh-Taylor ójafnvægis á yfirborði vökva á uppbrotnunina. Gert var reikni- líkan þar sem vökvinn umhverfis bununa var hermdur í Eulerian hnitakerfinu og ögnum bununnar var fylgt eftir í lagrangian hnita- kerfi. Jafnframt var notuð svo- nefnd Level-Set aðferð til að stað- setja flötinn milli bununnar/dropans og vökvans um- hverfis. Sýnt var fram á að stærð agnanna er einkum háð tveimur víddarlausum stærðum, tölum We- bers og Ohnesorge. Með þessum hætti var mögulegt að sýna að þrjú mismunandi uppbrotn- unarsvæði eru háð áðurnefndum víddarlausum stærðum. Rannsóknirnar nýtast á breiðu sviði, t.a.m. í kjarnorkuiðnaði, málmiðnaði, brennsluvélum, þotu- hverflum, Pelton vatnshverflum, sem og öðrum sviðum þar sem bunur og dropar brotna upp í agn- ir eða komast í samband við aðra vökva. Rannsóknirnar voru styrkt- ar af, Vattenfall, Sydkraft og SKI í Svíþjóð, IVO og TVO í Finn- landi, US NRC í Bandaríkjunum, HSK í Sviss og fjórðu rammaáætl- un Evrópubandalagsins. Haraldur Óskar lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum við Sund 1990, C.S. prófi í vélaverk- fræði frá H.Í. 1994, MS prófi í vélaverkfræði 1996, ritgerðin var skrifuð við HÍ, námskeið tekin við The University of Michigan í Ann Arbor. Samhliða doktorsnámi tók hann ýmis námskeið á sviði fjár- mála, afleiðuviðskipta og áhættu- stýringar. Haraldur Óskar er sonur hjónanna Haraldur Haraldssonar og Ingibjargar Tómasdóttur. Hann er kvæntur Guðrúnu Pét- ursdóttur og eiga þau dótturina Erlu Björg. Samhliða og eftir lok doktorsprófs starfaði Haraldur Óskar sem verkfræðilegur ráðgjafi hjá Sehgal Associates m.a. við ný- sköpunar og þróunarverkefni fyrir raforkufyrirtæki. Hann starfar nú hjá Íslenskri erfðagreiningu hf. FÓLK Doktor í verkfræði Haraldur Óskar Haraldsson ORKUVERÐ heimilistaxta Rafveitu Hafnarfjarðar lækkaði 1. mars, úr 6,23 krónum fyrir kílówattstund nið- ur í 5,60 kr, eða um 10%. Taxti fyrir stærri notendur (afltaxti), miðað við orkunotkun 400.000 kWh/ári og afl- topp 100 kW, lækkar einnig um 10%. Verðlækkunin er möguleg vegna fyrirhugaðs samruna Rafveitu Hafn- arfjarðar og Hitaveitu Suðurnesja og tekur gildi frá og með 1. mars. Gert er ráð fyrir að gjaldskrár RH og HS verði að fullu samræmdar á haustmánuðum. Þá má reikna með enn frekari lækkun taxta á þjónustu- svæði Rafveitu Hafnarfjarðar. Rafveita Hafnarfjarðar Gjaldskrá lækkar um 10% annan hvern miðvikudag
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.