Morgunblaðið - 03.03.2001, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 03.03.2001, Qupperneq 27
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 27 LIÐSMENN íslömsku hreyfingar- innar Taliban í Afganistan voru í gær sagðir hafa skotið sprengjum á tvær af þekktustu styttum heims, 2.000 ára gömul Búddha-líkneski, þrátt fyrir tilraunir sendimanns Sameinuðu þjóðanna til að bjarga höggmyndun- um. Heimildarmenn úr röðum talibana í Kabúl sögðu að sprengjuvörpum og fallbyssum hefði verið beitt til að eyði- leggja tvö risastór Búddha-líkneski sem höggvin voru í klett í héraðinu Bamiyan í miðhluta Afganistan fyrir 2.000 árum. Annað þeirra er 53 metra hátt og stærsta standandi Búddha- líkneski heims og hitt 38 metra. Af- gönsk fréttastofa í Pakistan skýrði enn fremur frá því að talibanar væru að safna sprengiefni til að sprengja líkneskin. „Þeir beita öllum þeim vopnum sem þeir hafa á Búddha-líkneskin,“ sagði embættismaður í Kabúl sem vildi ekki láta nafns síns getið. „Sprengiefni, svo sem byssupúður, hefur einnig verið sett undir líkneskin til að gereyða þeim.“ Frances Vendrell, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og sendimaður þeirra í Afganistan, kvaðst hafa gert utanríkisráðherra Taliban-stjórnarinnar grein fyrir reiði þjóða heims vegna tilskipunar leiðtoga Taliban um að eyða öllum styttum í landinu. „Ég bað hann að færa leiðtogunum þau skilaboð að til- skipunin myndi stórskaða ímynd Tal- iban erlendis og vera vatn á myllu óvina hreyfingarinnar,“ sagði Vend- rell. Sendimaðurinn kvaðst vona að fréttirnar um að Talibanar væru þeg- ar byrjaðir að eyðileggja stytturnar væru rangar. „Ég vona að þetta sé ekki rétt vegna þess að viðbrögð þjóða heims verða mjög neikvæð.“ Talibanar komust til valda í Kabúl 1996 og hafa náð 90% Afganistans á sitt vald. Þeir hafa reynt að fá önnur ríki til að viðurkenna Taliban-stjórn- ina, en andstæðingar hennar halda enn sæti Afganistans á allsherjar- þingi Sameinuðu þjóðanna þótt þeir ráði aðeins yfir norðausturhorni landsins. Tilskipun leiðtoga Taliban, Mohamads Omars, um að eyða ætti öllum styttum Afganistans hefur vak- ið reiði meðal þjóða út um allan heim. Jafnvel múslímar í Pakistan, helstu stuðningsmenn talibana, hafa hvatt þá til að hætta við að eyðileggja stytt- urnar. Sádi-Arabía og Sameinuðu ar- abísku furstadæmin, sem eru ekki með sendiráð í Kabúl, eru einu ríkin sem hafa viðurkennt Taliban-stjórn- ina fyrir utan Pakistan. Um það leyti sem Vendrell ræddi við utanríkisráðherrann skýrði menn- ingarmálaráðherra Taliban-stjórnar- innar fréttamönnum frá því að byrjað væri að eyðileggja stytturnar. „Utan- ríkisráðherrann hlustaði með athygli á það sem ég hafði að segja en ég fékk engin loforð um að tilskipuninni yrði ekki ekki framfylgt,“ sagði Vendrell. „Afturhvarf til villimennsku miðalda“ Vendrell sagðist hafa lagt til að stytturnar yrðu fluttar frá Afganistan og skýrt utanríkisráðherranum frá því að Metropolitan-listasafnið í New York hefði boðist til að kaupa þær. Stjórn Indlands bauðst einnig til að taka við styttunum og lýsti aðförinni að þeim sem „afturhvarfi til villi- mennsku miðalda“. Talibanar segja að styttur, sem þeir kalla „skurðgoð“, og allar myndir séu í andstöðu við lögmál íslams og markmiðið með tilskipuninni sé að koma í veg fyrir „skurðgoðadýrkun“. Þeir hafa bannað sjónvarp og allar myndir af fólki og fyrirskipað kaup- mönnum að eyðileggja allar styttur og myndir í verslunum sínum. Talibanar hafa einnig bannað kon- um að ganga í skóla, vinna úti og fara af heimilum sínum án þess að vera með blæjur. Karlmönnum hefur verið bannað að raka sig. Talibanar eyðileggja fornar styttur í Afganistan þrátt fyrir hörð mótmæli Fallbyssur gegn líkn- eskjum Kabúl. Reuters, AFP. Reuters53 m hátt Búddha-líkneski, sem talibanar hyggjast eyðileggja, sést hér yfir litlum bæ í héraðinu Bamiyan. SAKSÓKNARINN í Þelamerkur- héraði í Noregi sló því föstu í fyrra- dag, að Terje Søviknes, varaformað- ur norska Framfaraflokksins, hefði ekki gerzt sekur um refsivert athæfi, en öll spjót hafa staðið á Søviknes síð- ustu þrjár vikur eftir að sautján ára stúlka gaf sig fram og hélt því fram að hann hefði nauðgað sér í janúar í fyrra. Søviknes, sem auk þess að vera næstæðsti maður í Framfaraflokkn- um er forseti bæjarstjórnar í sveit- arfélaginu Os utan við Björgvin, hitti stúlkuna á ársfundi ungliðahreyfing- ar flokksins í janúar 2000 og viður- kennir að hafa sængað með henni. Með úrskurði sínum hefur saksóknari nú komizt að þeirri niðurstöðu, að for- sendur fyrir nauðgunarákæru skorti. Umfjöllun norskra fjölmiðla um málið hefur fallið saman við frétta- flutning af innanflokksdeilum úr Framfaraflokknum og misheiftarleg- um pólitískum ádeilum á hann. Vinsæll í sinni heimabyggð Søviknes lýsti því yfir um leið og úrskurður saksóknarans lá fyrir, að hann hygðist taka aftur upp störf sem forseti bæjarstjórnar Os nk. mánu- dag, en óljóst væri í bili hvort hann héldi áfram sem varaformaður Fram- faraflokksins. Carl I. Hagen hafði áð- ur lýst því yfir að hann óskaði þess að Søviknes yrði áfram varamaður sinn, að því gefnu að hann fengi engan dóm. Skoðanakönnun meðal íbúa Os sýndi, að yfirgnæfandi meirihluti vildi að Søviknes, sem varð 32 ára í fyrra- dag, tæki aftur til starfa fyrir bæj- arfélagið. Varaleiðtogi Framfara- flokksins laus mála Ósló. Morgunblaðið. FJÁRMÁLARÁÐHERRA Þýska- lands, Hans Eichel, mun vera að íhuga að hækka virðisaukaskatt í því skyni að hjálpa til við fjármögnun líf- eyriskerfisins, að því er fram kemur í dagblaðinu Berliner Zeitung á mið- vikudag. Í blaðinu segir að Eichel hafi áhyggjur af því að tekjur af umdeild- um „umhverfisskatti“ á óendurnýj- anlega orkugjafa séu lægri en stjórnvöld hafi reiknað með. Því verði að leita annarra leiða til að fjár- magna lífeyriskerfið, sem er í mikl- um vanda. Í Þýskalandi er við lýði svonefnt gegnumstreymiskerfi, en ekki uppsöfnunarkerfi eins og hér á landi. Búist hafði verið við að umhverf- isskatturinn skilaði um 22 milljörð- um marka, eða um 900 milljörðum króna, í ríkiskassann á næsta ári og átti megnið af því fé að renna til líf- eyriskerfisins. En nú óttast stjórn- völd að tekjurnar verði um einum milljarði marka minni og samkvæmt Berliner Zeitung skoða þau meðal annars möguleikann á að hækka virðisaukaskatt til að brúa bilið. Virðisaukaskattur er nú 16% í Þýskalandi og telur dagblaðið að skatturinn þyrfti að hækka um allt að 2% til að ná því markmiði. Vandi lífeyrissjóðakerfis Þjóðverja óleystur Fjármagn aukið með hærri virðisaukaskatti? Berlín. AFP.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.