Morgunblaðið - 03.03.2001, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 03.03.2001, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÞAÐ koma ekki allar stundiryfir í einu og sumar stund-ir, sem fólk væntir sérkannski mikils af, koma aldrei – ein er þó sú stund sem vitjar allra – það er dauðastundin. Mjög misjafnt er hve langan und- irbúning fólk fær til þess að mæta þeirri stund – sumir alls engan – því flestir kjósa að lifa lífi sínu eins og þessi stund eigi aldrei eftir að renna upp – aðrir komast í þær kringum- stæður að þeir bíða, jafnvel með óþreyju, eftir hinstu stundinni. „Mér finnst þetta orðið langt og ef ekki væri fyrir morfínið þá væri þetta ekki þolanlegt. Ég er búin að þjást mikið, en nú fæ ég sprautur sem halda þjáningum að mestu frá, ekki þó alveg – sumir dagar eru slæmir.“ Sú sem þetta mælir er Sig- ríður Þóra Þorvaldsdóttir. Í sjúkra- stofu á Landakoti, með glugga sem snýr út að Túngötu, liggur Sigríður Þóra helsjúk, með myndir af börnum og barnabörnum í kringum sig, fönd- urkrans og hvítan kross á veggnum á móti sér og sjónvarp þar fyrir neð- an. Hún á að vísu erfitt með að horfa á sjónvarp, með öðru auganu sér hún þrefalt og hitt augað er heldur ekki beint í góðu standi, úr því var fyrir nokkru skorið æxli sem ekki var hægt að komast fyrir og í hinu aug- anu er nú stórt æxli. „Læknarnir eru hættir að reyna að skera æxlin burt, segja það sé ekki til annars en kvelja mig, þau eru sum orðin svo hörð og rótsterk. Ég er með krabbameinssjúkdóminn melanóma sem myndar æxli hér og hvar um líkamann og hefur í mínu tilviki ekki reynst viðráðanlegur, mér hefur hrakað mikið að undan- förnu og er að byrja að lamast. Allt byrjaði þetta út frá litlum fæðingarbletti Allt byrjaði þetta út frá litlum fæðingarbletti á handleggnum. Ég var viss um að eitthvað illt væri í að- sigi, mér leið þannig líkamlega og fór til læknis. Ekkert fannst í fyrstu sem talið var alvarlegt og ég leit vel út. Síðar var umræddur fæðingarblett- ur tekinn og á næstu tveimur árum tveir aðrir blettir. Þá voru liðin fjög- ur ár frá því ég fyrst kenndi mér meins. Það hefði kannski ýmsu breytt ef menn hefðu áttað sig fyrr á hvað var að mér. Ég var send í geisla eftir fjórðu rannsókn en þá var krabbameinið komið í herðablað og öxl. Meðferðin dugði ekki til að lækna mig. Ég var lengi mjög sár yf- ir því hvernig þetta fór. Á hinn bóg- inn hef ég jafnan haldið því staðfast- lega fram að fólki sé ætlað að ganga í gegnum ýmsa erfiðleika – ég trúi því að þetta hafi verið mér ætlað. Langaði til að hafa það skemmtilegt í ellinni Ég hafði stofnað smurbrauðsstofu árið 1988 en 1995 varð ég að selja hana, mér leið orðið svo illa að ég gat ekki rekið hana. Ég hafði þá keypt mér hús í Orlando þar sem ég ætlaði að eyða skemmtilegum ellidögum ásamt því að taka þátt í félagsstarfi aldraðra þegar ég væri á Íslandi, en ekkert af þessu gekk eftir. Ég varð fljótlega of veik til þess að vera í húsinu í Orlando og í stað þess að búa til fallega hluti, dansa og skemmta mér með minni kynslóð, sem ég gat lítið gert af þegar ég var ung, þá varð ég veikari og veikari og nú bíð ég þess eins að fara,“ segir Sigríður Þóra. Æðruleysi gagnvart hinu óumflýjanlega Hún ræðir allt þetta með æðru- leysi þess sem orðið hefur að taka ýmsum erfiðleikum um dagana og slíkt jafnaðargeð er henni gefið að hún getur talað um veikindi sín og horfur rétt eins og við hin tölum um flutninga, aðstæður á vinnustað og annað sem til fellur úti í hinu daglega lífi. En margt hlýtur vel gefin og lífs- reynd kona að hugsa meðan hún liggur og bíður þess óumflýjanlega. „Já, ég hugsa margt og langar ýmislegt að segja við þá sem hér verða á gangi og við stjórnvölinn eft- ir að ég verð búin að kveðja,“ segir hún. „Það er margt sem hryggir mig og veldur mér óróleika þegar ég hugsa um framtíð þeirra sem nú eru ungir og eru að byrja lífið. Ekki síst rennur mér til rifja sá ruddaskapur sem virðist gegnsýra samfélag okk- ar, ofbeldið og klámið sem börnum er boðið upp á í sjónvarpi og kvik- myndum. Ég sé og heyri hvað börn og ungt fólk er að verða tillitslaust um aðra og ókurteist í viðmóti og hve virðingarleysi þess gagnvart for- eldrum og fjölskyldu er orðið mikið. Uppeldið sem þetta fólk fær er ekki vandað – að ekki sé fastar að orði kveðið. Mikilvægt að ala það góða upp í börnunum Miðað við það hve menntunin sem fólk fær í dag er góð þá finnst mér illa farið með menningu okkar í mörgum efnum. Það þarf að taka á þessu og fyrirmyndirnar í uppeldinu þurfa að verða betri. Skólarnir gætu líka gert betur, bæði hvað snertir forvarnir gegn vímuefnum, jafnvel kennslu í mannasiðum og ekki væri úr vegi að huga að þörfum einstak- lingsins t.d. hvað varðar heppilegt umhverfi og sæti sem henta hverjum og einum. Það er margt sem ég kann ekki við, svo sem að heyra fullorðnar kon- ur segja að það sé allt í lagi að tólf– þrettán ára unglingsstúlkur fari á útihátíðir – svo framarlega sem þær taki með sér verjur. Mér hefur alltaf fundist mikilvægt að ala upp það góða í börnum,“ segir Sigríður Þóra. Ólst upp á Blönduósi Sjálf hefur hún eignast fimm börn og á fjögur á lífi og mörg barnabörn. Hún sinnti ekki aðeins um eigin börn, hún var elst sex systkina og gat sjaldnast leikið sér lyst sína, hún þurfti að gæta yngri systkina meðan foreldrarnir voru í sameiningu að vinna fyrir fjölskyldunni. „Ég fæddist 1927 í húsi við Hverf- isgötuna í Reykjavík,“ segir Sigríður Þóra. „Faðir minn Þorvaldur Þórar- insson, vann hjá Kveldúlfi og móðir mín Ragnheiður Brynjólfsdóttir hjá Álafossi. Þegar ég var fimm ára gömul fluttum við á Blönduós, for- eldrar mínir voru bæði Húnvetning- ar, mamma fæddist á Ytri-Ey, þar sem fyrsti kvennaskólinn var stofn- aður og faðir minn á Hjaltabakka, sonur Þórarins Jónssonar alþingis- manns og bónda þar.“ Á Blönduósi ólst Sigríður upp fram á fullorðinsár og þar varð hún fyrir sterkum áhrifum frá hús- mæðraskólanum í gegnum móður sína sem var þar kennari og vinkonu hennar, frú Huldu Á. Stef skólastjóra umrædds skóla „Manstu hvað þú sa við hana frú Huldu „Mamma lánaði mig að um fermingarárið mitt 194 að hjálpa frú Huldu við sl Yfir slátrinu áttum við H ugar umræður um trúmál o sitt hvorri. Ég hélt því sta fram að eftir dauðann væ nema eilíf hvíld en frú Huld við fengjum himnavist, hú framhaldslíf. Um nóttina mig draum sem hafði mik mig og ég hugsa oft um enn Mig dreymdi að ég var Blönduóss og var að Blöndu. Áin var á ís og ís undan mér. Ég sökk á b niður á botn, þar náði ég í k og klifraði eftir honum alv himna, upp að Gullna hliði postuli kom þar til dyra og við hann: „Hingað er ég Hann sagði: „Vina mín, hin þú ekkert að gjöra, manst sagðir við hana frú Huldu í Ég vaknaði og hugsaði að aldrei skyldi ég minnast framar og satt að segja h rætt þau mál síðan. Mér v Ég er bú þjást m Landssöfnun Krabbameinsfélagsin sjúkdómur sem mikið hefur áunnist þó ýmsa að velli enn. Sigríður Þóra Guðrúnu Guðlaugsdóttur frá bará í bland við ágrip af öðrum þá Þessi mynd af Sigríði Þó valdsdóttur, 26 ára, birt Viðtali dagsins í Vísi lau inn 11. janúar 1969. Þa hún m.a.: „Ef allir byrju krefjast einhvers af sjálf ekki fyrst og fremst af þá færi margt á betr Hamingjan er fyrst og fólgin í samlyndi, friði Sigríður Þóra Þorvalds ÖFGATÚLKANIR OG OFBELDI TALIBANA LANDSSÖFNUN KRABBA- MEINSFÉLAGSINS Í tilefni 50 ára afmælis Krabba-meinsfélags Íslands mun félagið ísamvinnu við ýmsa aðila efna til landssöfnunar í dag, 3. marz. Markmið söfnunarinnar er að treysta núverandi starfsemi Krabbameinsfélagsins, efla forvarnir og auka þjónustu við krabbameinssjúklinga, ekki sízt með því að hjálpa þeim við að komast út í lífið á nýjan leik. Það að fá krabbamein er ekki lengur dauðadómur, svo miklar hafa framfar- ir verið í meðferð þessa alvarlega sjúk- dóms. Í dag eru á lífi um 7.000 manns sem greinzt hafa sem sjúklingar og nú vill félagið auka þjónustu við þetta fólk. Árlega greinast rúmlega eitt þús- und einstaklingar með sjúkdóminn og hefur tíðnin heldur aukizt eða um 1,2% á ári frá því er skipuleg skráning sjúk- dómstilfella hófst á árinu 1954. Á þessum tíma, sem liðinn er, hefur t.d. krabbamein í blöðruhálskirtli nær fimmfaldast og er orðið tíðasta sjúk- dómsmeinið meðal karla. Brjósta- krabbamein er algengasta meinið meðal kvenna og hefur tíðni þess tvö- faldast á síðastliðnum fjórum áratug- um. Tíðni lungnakrabbameins hefur nær þrefaldast meðal karla og meira en fjórfaldast meðal kvenna. Hins veg- ar er tíðni magakrabbameins nú að- eins þriðjungur þess sem áður var. Þá er tíðni leghálskrabbameins einnig að- eins þriðjungur þess, sem það var um skeið, en þar hefur skipulögð leit að sjúkdómnum á forstigi haft mikil áhrif. Að sögn Guðrúnar Agnarsdóttur, læknis og forstjóra Krabbameins- félags Íslands, er krabbamein vaxandi sjúkdómur meðal Íslendinga, líkt og í flestum vestrænum samfélögum. Því miður er ekki ljóst hverjar ástæður þess eru, en fyrir fjórum áratugum greindust 300 til 400 einstaklingar á ári, en nú eru það rúmlega eitt þúsund manns. Skrár, sem haldnar hafa verið, sýna að ef ekki er spyrnt við fótum, megi búast við að tíðni sjúkdómstil- fella aukist. Samkvæmt útreikningum úr skrám bendir allt til að þriðji hver einstaklingur geti búist við því að greinast einhvern tíma með krabba- mein innan 85 ára aldurs. Aldur þjóð- arinnar er meginástæða fyrir þessari aukningu. Íslenzka þjóðin er tiltölu- lega ung og eldist hlutfallslega, en krabbamein er fremur sjúkdómur efri ára. Vonandi sýna landsmenn örlæti, þegar leitað verður til þeirra um að- stoð, því að eins og frú Vigdís Finn- bogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og verndari félagsins, sagði, þegar landssöfnunin var kynnt, er mikil- vægt, að fólk átti sig á, að félagið sé sameign allra landsmanna og bak- hjarl, þegar krabbameinið herjar á einstaklinga og fjölskyldur. Eftir að Talibana-hreyfingin náðivöldum í Afganistan í september 1996 hafa fréttir um fjöldamorð og mannréttindabrot í landinu verið tíð- ar. Talibanar, sem eru róttækir súnní- múslimar, hafa nú um 90% landsins á valdi sínu en borgarastríð stendur enn yfir þar. Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafa nýlega hvatt til þess að efnt verði til alþjóð- legrar rannsóknar á því hvað hæft sé í frásögnum um að vopnaðar sveitir tal- ibana hafi myrt allt að þrjúhundruð shíta-múslima í Bamiyan-héraði. Í til- kynningu frá Sameinuðu þjóðunum í janúar kom fram að fórnarlömbin væru sennilega nær því að vera eitt- hundrað en borist hefðu trúverðugar frásagnir vitna af drápunum. Einnig hafa ítrekað borist fréttir af ofbeldi gegn konum í Afganistan sem tengist strangtrúarlegri túlkun á hlutverki þeirra og réttindum í samfélaginu en samkvæmt henni mega konur ekki mennta sig eða vinna utan heimilis, auk þess sem þeim ber að hylja andlit sitt og líkama utandyra. Alþjóðasamfélagið virðist standa fremur ráðalítið frammi fyrir málefn- um Afganista. Refsiaðgerðir, svo sem viðskiptabann eða samgönguhindran- ir, eru umdeildar þar sem þær bitna oft ekki síður á almenningi en vald- höfum. Fordæming vestrænna ríkja á stjórnarháttum í ríkjum annarra menningarsvæða virðast og máttlitl- ar, ekki síst vegna þess að þær eru iðulega túlkaðar sem andúð á viðkom- andi menningarhefðum og trúar- brögðum. Þau viðhorf hafa sömuleiðis verið uppi að vestræn ríki geti ekki og megi ekki heimfæra gildismat sitt upp á þjóðfélög í öðrum heimshlutum og hundsa þannig og vanvirða aldagamla siði þeirra og venjur. Þrátt fyrir allt skiptir það hins veg- ar gríðarlega miklu máli að alþjóða- samfélagið láti í sér heyra. Á það ber að líta að valdakúgun talibana gagn- vart öðrum trúarhópum og konum í landinu byggir á öfgakenndri túlkun á trúarhefðum og trúartexta. Skýrt dæmi um þetta er sú ákvörðun Talib- ana-hreyfingarinnar í Afganistan síð- astliðinn þriðjudag að eyðileggja allar fornar styttur í landinu sem tengjast ekki íslömskum sið. Flestar stytturn- ar eru um tvöþúsund ára gamlar og frá þeim tíma þegar Afganistan var miðstöð lærdóms og pílagrímsferða búddhatrúarmanna. Að sögn leiðtoga Talibana-hreyfingarinnar er þetta gert í því skyni að stöðva skurðgoða- dýrkun. Framkvæmdastjóri Menn- ingarstofnunar Sameinuðu þjóðanna fordæmdi ákvörðunina og sagði eftir fund með fulltrúum múslimaríkja í stofnuninni að eyðilegging styttnanna væri gerð í nafni túlkunar á Íslam sem hvergi annars staðar væri viður- kennd. Til þess að vinna gegn kúgun, of- beldi og eyðileggingu núverandi vald- hafa í Afganistan er nauðsynlegt að aðrar raddir heyrist. Alþjóðasam- félagið þarf í meira mæli að beina at- hygli sinni að þeim ógnarlegu atburð- um sem þar eiga sér stað. Þögn og aðgerðaleysi eru ekki verjandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.