Morgunblaðið - 03.03.2001, Page 68

Morgunblaðið - 03.03.2001, Page 68
MESSUR Á MORGUN 68 LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Helgi R. Einarsson. Jón Þorsteins- son. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Fjöl- skylduguðsþjónusta kl.11.00. Hljóm- sveit leikur. Barnakórinn syngur undir stjórn Helgu Loftsdóttur. Kirkjubíll ek- ur um Setbergs- og Hvammahverfi og Hvaleyrarskóla. Færeysk messa kl. 14.00. Prestar: Sr. Emil Olsen frá Eiði í Færeyjum og sr. Gunnþór Inga- son. Kirkjukaffi í Strandbergi. Popp- messa. kl. 20.30 í umsjá Æskulýðs- félaganna. Hljómsveitin Játning leikur. Prestar: Prestar Hafnarfjarðar- kirkju. Veisla í Strandbergi eftir messu sem fermingarbörn bjóða til. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðþjón- usta kl. 11. Fjölskylduguðþjónusta kl. 14. Fimm ára börn sérstaklega boðin velkomin. Barna- og unglingakór Víði- staðakirkju syngur. Stjórnandi Áslaug Bergsteinsdóttir. Organisti Úlirk Óla- son. Sigurður Helgi Guðmundsson. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barnasam- koma kl.11. Umsjón Sigríður Kristín, Örn og Hera. VÍDALÍNSKIRKJA: Æskulýðsguðs- þjónusta verður kl. 11:00 í Vídalíns- kirkju. Almennur safnaðarsöngur. Sunnudagaskóli yngri og eldri deild falla inn í guðsþjónustuna. Ferming- arbörn sjá um ritningarlestra og bænagjörð. Gítarsveit úr Tónlistar- skóla Garðabæjar leikur við athöfn- ina. Hans Markús Hafsteinsson og Friðrik Hjartar þjóna við athöfnina. Organisti: Jóhann Baldvinsson. Prestarnir. KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskólinn í dag laugardag 3. mars kl. 11:00, í Stóru-Vogaskóla. Foreldrar velkomnir með börnum sínum. Fermingar- fræðsla kl. 12:00 í skólanum. Prest- arnir. KÁLFATJARNARKIRKJA: Æskulýðsguðsþjónusta verður kl.14:00, í Kálfatjarnarkirkju. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðar- söng. Fermingarbörn og börn úr kirkjuskólanum munu taka þátt í at- höfninni. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar við athöfnina. Organisti: Frank Herluf- sen. GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.14:00 í Garðakirkju. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng. Hans Markús og Nanna Guðrún þjóna við athöfnina. Organisti Jóhann Baldvins- son. Rútuferð frá Kirkjulundi kl. 10:30 og frá Hleinum kl. 10:40. Prestarnir. BESSASTAÐASÓKN: Sunnudaga- skólinn kl.13:00, sunnudag í Álfta- nesskóla. Rúta ekur hringinn á undan og eftir. Prestarnir. ÚTSKÁLAKIRKJA: Laugardagurinn 3. mars Safnaðarheimilið Sæborg Kirkjuskólinn kl. 14 Sunnudagurinn 4. mars Æskulýðsdagurinn. Guðs- þjónusta kl. 14, 1. sd. í föstu. Sam- úel Ingimarsson predikar kór Útskála- kirkju syngur Taize sálma. Ferm- ingarbörn taka þátt í guðsþjón- ustunni. Garðvangur: helgistund kl. 15:15. Sóknarprestur Björn Sveinn Björnsson. HVALSNESSÓKN: Laugardagurinn 3. mars. Safnaðarheimilið í Sandgerði Kirkjuskólinn kl. 11. Sunnudagurinn 4. mars. Æskulýðsdagurinn: Popp- messa kl. 20:30. Páll Rósinkrans syngur. Samúel Ingimarsson predik- ar. Fermingarbörn taka þátt í Guðs- þjónustunni. Allir hvattir til að mæta, ungir sem aldnir. Sóknarprestur Björn Sveinn Björnsson. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Fjöl- skylduguðsþjónusta sunnudaginn 4. mars kl.11. Æskulýðsdagur þjóð- kirkjunnar. Kór Tónlistarskóla Reykja- nesbæjar syngur undir stjórn Hjördísar Einarsdóttur. Hljómsveit skipuð þeim Sverri Ásmundssyni á bassa, Jóni Ólafi Erlendssyni á trommum og Steinari Guðmundssyni á píanó mun leika undir almennum söngi og Kirkjukór Njarðvíkur leiðir sönginn. NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnudaga- skóli sunnudaginn 4. mars kl.11.00 og fer hann fram í Ytri-Njarðvíkurkirkju KEFLAVÍKURKIRKJA: Æskulýðsdag- urinn: Í sátt og samlyndi. Fjölskyldu- guðsþjónusta og aldursskiptur sunnudagaskóli kl. 11 árd. Nemar í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar leika við athöfnina. Trompetkvintett leikur tvö lög. Kvintettinn skipa Arnar Steinn Elísson, Anna Andrésdóttir, Júlíus Friðrik Pétursson, Sveinn Enok Jóhannsson og Árný Ösp Arnardóttir. Vaka Hafþórsdóttir leikur einleik á pí- anó, lagið „Til Elísu“. Þverflautudú- ett, sem er skipaður Helgu Rún Hjart- ardóttur og Berglindi Ýr Kjart- ansdóttur leikur fjögur lög og Gísli Örn Gíslason leikur á harmonikku. Prestur: Sigfús Baldvin Ingvason. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng. Organisti og söngstjóri: Einar Örn Einarsson. Meðhjálpari: Hrafnhildur Atladóttir. VÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta á Æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar verður í Víkurkirkju nk. sunnudag 4. mars, kl.14:00. Skólakór Mýrdalshrepps syngur undir stjórn Önnu Björnsdótt- ur. Organisti er Krisztina Szklenár. Nemendur Tónskóla Mýrdælinga, þær Ragna Björg Ársælsdóttir og Þor- björg Kristjánsdóttir, leika á altblokk- flautu og þverflautu. Fjölmennum til víkurkirkju á degi æskunnar. Sóknar- prestur. SELFOSSKIRKJA: Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Morguntíð sungin þriðjudaga til föstudaga kl. 10. Geisli Fundur þriðjudag 6. mars kl. 20 sr. Svavar Stefánsson fjallar um sorg sem tengist sjálfsvígum. Foreldra- samvera miðvikudaga kl. 11. Gestur 7. mars Þórey Eyþórsdóttir talmeina- fræðingur, hún fjallar um máltöku barna. Krakkaklúbbur miðvikudaga kl. 14-14.50. Vesper, þ.e. aftansöng- ur, kl. 18 alla fimmtudaga fram að páskum. STOKKSEYRARKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11.00. Sóknarprestur. HVERAGERÐISKIRKJA:Sunnudaga- skóli kl. 11 Guðþjónusta kl. 14. Að- alsafnaðarfundur Hveragerðissóknar að guðþjónustu lokinni. Sóknarprest- ur. ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Æskulýðsdagurinn: Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11 fyrir Odda- og Þykkva- bæjarsóknir. Barnakór Oddakirkju og Stúlknakór Þykkvabæjar- og Odda- kirkna syngja. Börnin sem verða 5 ára á árinu (fædd 1996) sérstaklega boðin velkomin til kirkju þar sem þeim verður afhentur glaðningur. Sóknarprestur. EGILSSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Skólakórar Grunnskólans í heimsókn 5. mars.(mánud.) Kyrrðar- stund kl. 18. Sóknarprestur. ÓLAFSVÍKURKIRKJA: Sunnudaga- skóli með Konna og félögum kl. 11. Tónleikar og messa kl. 13:30. Hamrahlíðarkórinn heldur tónleika kl. 13:30 sem sameinast síðan hátíð- armessu kl. 14. Við messuna munu Hamrahlíðarkórinn og Kirkjukór Ólafsvíkur syngja, ásamt því að leiða almennan safnaðarsöng. Molasopi á eftir í safnaðarheimilinu. Allir vel- komnir. Sóknarprestur. ÁSSÓKN Í FELLUM: Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar. Barna- og fjölskyldu- guðsþjónusta verður haldin í Fella- skóla á Æskulýðsdegi þjóðkirkjunn- ar, sunnudaginn 4. mars kl. 11:00. Fermingarbörnin og börnin úr sunnu- dagskólanum aðstoða við helgihald- ið. Allir velkomnir. Sóknarprestur. EIÐAKIRKJA: Æskulýðsdagur þjóð- kirkjunnar sunnudaginn 4. mars. Guðsþjónusta kl 11 Fermingarbörn, sunnudagaskólinn og nemendur úr tónlistarskóla Austur-Héraðs að- stoða við guðsþjónustuna. Ný messuklæði tekin í notkun. Allir vel- komnir. Sóknarprestur. EIRÍKSSTAÐA-, HOFTEIGS KIRKJU- BÆJAR- OG SLEÐBRJÓTSSÓKNIR: Guðsþjónusta í Brúarásskóla sunnu- daginn 4. mars kl 14:00 á æskulýðs- degi þjóðkirkjunnar. Börn úr Brúarás- skóla aðstoða við guðsþjónustuna. Kaffi á eftir. Allir velkomnir. Prestarn- ir. BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalar- nesi: Barnaguðsþjónusta sunnudag- inn 1. apríl kl. 11 f.h. Gunnar Krist- jánsson, sóknarprestur. BORGARNESKIRKJA: Æskulýðsguð- þjónusta kl. 11. Sóknarprestur. MÖÐRUVALLAPRESTAKALL: Æskulýðsdagurinn verður haldinn há- tíðlegur fyrir allt prestakallið með fjöl- skylduguðsþjónustu í Möðruvalla- kirkju sunnudaginn 4. mars kl. 11:00. Gunnhildur Vala Valsdóttir syngur einsöng við undirleik Pavels Panasiouk. Sara Benediktsdóttir og Sesselía Ólafsdóttir leika á altflautu og selló. Hljómsveitin „Ungir stríðs- menn Krists“ syngja og leika. Ferm- ingarbörn flytja bænir og börn úr kirkjuskólanum syngja. Mikill al- mennur söngur. Mætum öll og njót- um samveru í húsi Guðs. Sóknar- prestur. KLUKKAN er ekki nema hálftíu á sunnudagsmorgni. Foreldrar og börn streyma í safnaðarheimili Háteigs- kirkju. Velkomin í Pálínuboð, stendur á stóru skilti við innganginn. Sunnu- daginn, 4. mars býður Háteigskirkja foreldra og börn í annað sinn hjart- anlega velkomin í Pálínuboð. Eftir vel heppnaða frumraun í desember gefst fjölskyldum á ný tækifæri til þess að eiga saman góða morgunstund á und- an hinni venjulegu barnaguðsþjón- ustu. Safnaðarheimilið opnar klukkan hálftíu. Aðgangseyririnn er ekki greiddur í peningum, þess í stað koma allir með eitthvað með sér sem þeir bæta í púkkið á veisluborðinu. Og reynslan hefur þegar sýnt að það er engin hætta á að allir komi bara með smjör. Þessi sameiginlega morg- unverðarstund verður fljót að líða þar sem að allir deila því sem á borðinu stendur systur- og bróðurlega með sér. Í framhaldi af Pálínuboðinu býðst börnunum að taka þátt í smá fönd- urstund eða lita skemmtilega mynd á meðan að mamma og pabbi drekka einn te- eða kaffibolla í viðbót. Klukkan ellefu gefst svo tækifæri á að hlusta á barnakór Háteigskirkju syngja í barnaguðsþjónustunni og Sólveig, Guðrún og Pétur Björgvin verða á léttu nótunum eins og þeirra er vani. Léttmessa í Árbæjar- kirkju á æskulýðsdegi þjóðkirkjunnar Á MORGUN mun Árbæjarkirkja vera með sína mánaðarlegu létt- messu. Léttmessurnar eru guðþjón- ustur þar sem flutt er tónlist með öðru sniði. Rokk, popp, djass, gospel, dægurlög, taizé, „Sister Act“-messa svo fátt eitt er upptalið. Messurnar verða ávallt að kveldi fyrsta sunnu- dags hvers mánaðar yfir vetrarmán- uðina. Á morgun á æskulýðsdegi þjóðkirkjunnar verður Sister Act- guðþjónusta. Tónlistin úr Sister Act- myndunum verður flutt af hljóm- sveitinni Godzpeed. Um sönginn sjá kvartettinn Quatras Sancta ásamt gospelkór Árbæjarkirkju. Jóhannes Guðlaugsson, forstöðumaður félags- miðstöðvarinnar Ársels flytur hug- vekju. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari. Ungt fólk les ritningalestra og flytja bænir. Eftir guðþjónustu verð- ur boðið upp á kaffi og djús og jafn- framt verða æskulýðsfélaög kirkj- unnar með kökubasar. Guðsþjónusta í Árnesi SAMEIGINLEG guðsþjónusta saf- anaðanna í Stóra-Núpssókn og Ólafs- vallasókn verður í félagsheimilinu í Árnesi sunnudaginn 4. mars kl. 14:00. Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar er þann dag. Kórarnir og börnin syngja við athöfnina með þátttöku ferming- arbarna. Kirkjukaffi (kaffi og vöflur) verður á eftir helgihaldið. Ég vil hvetja sem flest sóknarbörn til að koma og eiga saman helgastund og huga þannig að því sem skiptir máli. Börn og foreldrar þeirra eru auðvita alveg sérstaka hvött til að koma. Sóknarprestur. Æskulýðsguðsþjón- usta, „Óskirnar tíu“ og léttguðsþjónusta í Hjallakirkju SUNNUDAGINN 4. mars, á Æsku- lýðsdaginn, verður mikið um að vera í Hjallakirkju í Kópavogi. Dagurinn hefst kl. 11 á Æskulýðsguðsþjónustu þar sem barnakór Snælandsskóla sér um sönginn undir stjórn Heiðrúnar Hákonardóttur. Í barnaguðsþjónustu kl. 13 sýnir Stoppleikhópurinn leik- ritið Ævintýrið um óskirnar tíu, skemmtilegt leikrit fyrir börn um lít- inn strák sem finnur töfrastaf. Þá bjóðum við í fyrsta sinn í vetur upp á léttguðsþjónustu, sem fyrrum höfðu heitið poppmessur, en í þeim stýrir hljómsveit tónlist og söng. Guðsþjón- ustunni, sem hefst kl. 20.30, er ætlað að höfða til allra aldurshópa með öðruvísi tónlist en tíðkast í kirkjum. Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í kirkjunni. Við hvetjum safnaðarfólk og aðra til að koma í kirkjuna á þessum æsku- lýðsdegi og kynnast fjölbreyttu starfi hennar. Ársafmæli fermingarinnar í Vídalínskirkju ÁRSAFMÆLI fermingarinnar verð- ur nú haldið í Garðaprestakalli Kjal- arnesprófastsdæmi, laugardaginn 3. mars 2001 kl.16:00, í safnaðarheimili Vídalínskirkju. Hér eru fermingar- börn frá árinu á undan boðuð til kirkj- unnar sinnar ásamt foreldrum. Þetta ár er án efa búið að vera ár mikilla breytinga og þessi ár eftir fermingu geta oft orðið dálítið stormasöm og snarpir vindar blásið. Hér vill kirkjan sannarlega koma að málum og halda utan um fermingarbörnin og fjöl- skyldur þeirra. Dagskráin verður með hefðbundnum hætti: Stutt helgi- stund í kirkjunni, síðan farið yfir í safnaðarheimilið, þar sem við munum hlýða á erindi fulltrúa frá forvarna- deild lögreglunnar, veitingar og happadrætti og bara yfirleitt að njóta þess að hittast og eiga samfélag. Það er von okkar prestanna að „ársafmæli fermingarinnar“ megi verða til að styrkja þau vináttubönd sem við bundumst í fermingarstarf- inu og stuðla að auknum kynnum milli okkar hér í kirkjunni, ungling- anna og foreldranna, um leið og við væntum þess að þessi stund verði til þess fallin að efla samband okkar prestanna, sem ráðnir erum til að þjóna ykkur, við söfnuðinn, kirkjunni til góðs og Guði til dýrðar. Æskulýðsdagurinn í Seljakirkju FYRSTI sunnudagur í mars ár hvert hefur verið tileinkaður æskulýðnum í kirkjunni. Æskulýðsdaginn í ár ber upp á 4. mars. Í Seljakirkju í Breið- holti verður æskulýðs- og fjölskyldu- messa af því tilefni kl. 14.00. Þátttaka æskulýðs- og barnastarfs kirkjunnar setur svip á daginn. Leiðtogar og börn úr starfi Seljakirkju og KFUM og K taka þátt í guðsþjónustunni með helgileik og ritningalestrum. Æsku- lýðsfélagið Sela sýnir helgileik. Tveir unglingar úr væntanlegum ferming- arhópi, þeir Guðmundur Óskar Guð- mundsson og Hjörtur Jóhannsson, leika á saxafón og píanó. Léttur söng- ur verður í fyrirrúmi og tríó skipað þeim Gesti Pálssyni slagverksleikara, Þórólfi Þórssyni bassaleikara og Gróu Hreinsdóttur organista kirkj- unnar leika undir. Barnakór kirkj- unnar syngur og prestar kirkjunnar leiða stundina ásamt því að flytja hug- leiðingu. Að lokinni guðsþjónustu verður kökubasar í kirkjumiðstöðinnni á vegum KFUK stúlkna til styrktar barnastarfi þeirra í Seljakirkju. Æskulýðsdagur kirkjunnar í Dómkirkjunni ÞÁ ER það æskulýðsdagur kirkjunn- ar, sem haldin verður hátíðlegur sunnudaginn 4. mars næstkomandi. Fjölskylduguðþjónusta verður í Dómkirkjunni kl. 13:00 á æskulýðs- daginn og þar verða börnin í kirkju- skóla Dómkirkjunnar í aðalhlutverki. Þau, sem eru á aldrinum 6-7 ára, ætla að syngja fyrir okkur kirkjuskólalög, 8-9 ára börnin ætla að ganga um með bænaspjöld sem þau hafa útbúið og TTT (10-12 ára) ætla að flytja okkur helgileik. Ung söngkona, sem heitir Jóhanna Guðrún, ætlar að syngja fyrir okkur nokkur lög en þess má geta að hún gaf út vinsælan geisladisk fyrir jólin. Við minnum á NEDÓ- poppguðþjónustu í Neskirkju að kvöldi æskulýðsdags kl. 21:00. Ung- lingaklúbbur Nes og Dómkirkju býð- ur ykkur að koma og njóta með sér skemmtilegrar kvöldstundar við söng Ruth Reginalds og hljómsveitarinnar Godspeed. Vöfflukaffi á eftir. Fylgj- umst með hæfileikaríkri æsku á æskulýðsdaginn! Verið velkomin. F.h. Dómkirkjunnar, Bolli P. Bollason. Færeysk messa í Hafnarfjarðarkirkju FÆREYSK messa á vegum sjó- mannastarfs Færeyinga hér á landi verður haldin í Hafnarfjarðarkirkju sunnudaginn kemur 4. mars kl. 14.00. Fyrir jól var haldin þar færeysk að- ventumessa en þá messaði sr. Bergur Debes prestur í Vesturkirkjunni í Þórshöfn. Nú er það sr. Emil Olsen sóknarprestur í Eiði í Færeyjum, sem messar þar ásamt sr. Gunnþóri Ingasyni, sóknarpresti. Færeyingar leiða söng en organisti er Örn Falk- ner. Eftir messuna er kirkjukaffi í safnaðarheimilinu Strandbergi. Prestar Hafnarfjarðarkirkju. Tveir kórar syngja í fjölskylduguðs- þjónustu í Grafar- vogskirkju NÆSTKOMANDI sunnudag verður sameiginleg guðsþjónusta í Grafar- vogskirkju kl. 11:00. Krakka-, barna- og unglingakórar kirkjunnar syngja undir stjórn Oddnýjar Þorsteinsdótt- ur. Undirleik annast Hörður Braga- son organisti. Í þetta sinn verður guðsþjónustan og barnamessan sam- einuð í aðalkirkjuskipinu. Prestur sr. Vigfús Þór Árnason. Aðstoðarfólk: Þorsteinn Haukur, Hlín og Sigrún. Barnamessa verður síðan í Engjaskóla kl. 13:00. Prestarnir. Poppmessa á Akranesi Á ÆSKULÝÐSDAGINN, á morgun, verður haldin poppmessa í Akranes- kirkju. Gospelkór Akraness syngur undir stjórn Hannesar Baldurssonar og Heiðrúnar Hámundardóttur. Fermingarbörn flytja ritningarorð og bænir. Allir velkomnir, ungir sem aldnir, á meðan húsrúm leyfir. Að kvöldi æskulýðsdagsins verður svo haldin kvöldvaka í Safnaðarheimilinu Vinaminni kl. 20.30. Ungmenni standa að fjölbreyttri og vandaðri- dagskrá, – söng, dans oghljóðfæra- leik.Heiðursgestur kvöldvökunnar verður Þorgrímur Þráinsson, met- sölubókahöfundur og fyrrv. landsliðs- maður í knattspyrnu. Léttar veiting- ar í lokin. Fjölmennum! Sóknarprestur. Æskulýðsdagurinn í Hafnarfjarðarkirkju SUNNUDAGURINN 4. mars er æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar. Af því tilefni verður mikið um dýrðir í Hafnarfjarðarkirkju eins og venjan er á þessum degi. Dagurinn hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl.11.00. Þar mun barnakór kirkjunnar syngja, farið verður í leikrit og popp- hljómsveit sunnudagaskólans leiðir söng. Prestar eru sr. Þórhallur Heim- isson og sr. Þórhildur Ólafs. Eftir guðsþjónustuna er öllum boðið upp á nammi í safnaðarheimilinu. Kl. 20. 30 hefst síðan poppmessa í kirkjunni. Um poppmessuna sjá félagar í ÆSKÓ, Æskulýðsfélagi Hafnarfjarðarkirkju og popphljóm- sveitin „Játningin“. Prestur er sr. Þórhallur Heimisson en unglingarnir predika. Aðlokinni messunni bjóða fermingarbörn fjölskyldum sínum til veislukaffis í safnaðarheimilinu. Þar mun sr. Gunnþór Ingason sýna myndskyggnur sem teknar voru í ferðalögum fermingarbarna í Vatna- skóg á liðnu hausti. Allir velkomnir. Prestar Hafnarfjarðarkirkju. Poppmessa í Landakirkju ÆSKULÝÐUR í Landakirkju tekur völdin á æskulýðsdaginn og mun skipuleggja og sjá um poppmessu. Skátar munu lesa ritningarlestra, auk þess sem unglingar úr æskulýðsstarfi kirkjunnar verða áberandi í guðs- þjónustunni. Hljómsveitin Prelátar mun leiða tónlistina sem verður mjög fjörug og skemmtileg, þannig að allir ættu að njóta þessarar hressu og skemmtilegu stundar. Safnaðarstarf Pálínuboð með morgunmat í farteski KIRKJUSTARF

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.