Morgunblaðið - 03.03.2001, Síða 69
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 69
Eftir þessa helgu stund verður kaffi-
sala til styrktar KFUM & K Landa-
kirkju, en unglingar úr félaginu
stefna á utanlandsferð næsta sumar-
.Allir velkomnir bæði í messuna og
kaffið, því öllum erum við æskulýður,
hversu gömul sem við erum. Kl. 21:00
verður messan svo sýnd á sjónvarps-
stöðinni Fjölsýn.
Ólafur Jóhann Borgþórsson,
Æskulýðsfulltrúi Landakirkju.
Æskulýðsdagurinn
í Seltjarnarneskirkju
SUNNUDAGINN 4. mars verður
æskulýðsdagurinn haldinn hátíðleg-
ur, dagurinn sem helgaður er börnum
og unglingum um allt land. Í Seltjarn-
arneskirkju verður boðið upp á fjöl-
breytta dagskrá þennan dag.
Fjölskylduguðsþjónusta verður kl.
11:00. Það verður skemmtileg stund
sniðin að unga fólkinu. Barnakór Sel-
tjarnarness syngur. Eftir stundina er
gestum boðið til safnaðarheimilis í
kaffi og þar mun æskulýðsfélag kirkj-
unnar halda kökubasar. Ágóðinn af
þeirri sölu rennur til æskulýðsstarfa.
Einnig verður um kvöldið skemmti-
leg tónlistarsamvera, kl. 20:00. Þar
verður fjölbreytt dagskrá frá ung-
lingum úr æskulýðsstarfi Seltjarnar-
neskirkju. Kammerkór kirkjunnar
syngur fjörug gospel lög, Margrét
Grétarsdóttir syngur einsöng og
stúlkur úr æskulýðsfélaginu sýna
jassballet og ýmislegt fleira. Einnig
verður tekið við frjálsum framlögum
til Hjálparstarfs kirkjunnar. Organ-
isti: Pavel Manasek. Við blásum í and-
ans lúðra og köllum ykkur öll til
helgrar samverustundar sunnudag-
inn 4. mars. Verið öll hjartanlega vel-
komin.
Allir aldurs- og
heilsufarshópar
saman í Laugarnesi
ANNAÐ af tveimur slagorðum Laug-
arneskirkju er þetta: „Allir aldurs- og
heilusfarshópar saman!“ Á Æsku-
lýðsdegi kirkjunnar látum við verkin
tala. Í Fjölskyldumessu kl. 11:00 mun
fjöldi barna og unglinga úr flestum
greinum safnaðarstarfsins leggja sitt
af mörkum í messuna. Fulltrúar
fermingarbarna og eldri borgara
flytja samtalsprédikun, börn frá leik-
skólanum Lækjarborg syngja undir
stjórn kennara sinna og Klassíski
listdansskólinn gefur okkur brot af
því besta er nemendur hans dansa
fyrir okkur í messukaffinu.Við mess-
una þjóna allir starfsmenn kirkjunn-
ar og hvetjum við foreldra til að fjöl-
menna með börnum sínum til kirkju
þennan dag. Kl. 18:30 verður hið ár-
lega harmonikkuball fermingarfjöl-
skyldna, eldriborgara og fatlaðra
haldið í dagvistarsal Sjálfsbjargar að
Hátúni 12. Þar munu heiðurshjónin
Jón Freyr Þórarinsson skólastjóri
Laugarnesskóla og frú Matthildur
stýra dansinum af sinni snilld, Reynir
Jónasson leikur á harmonikku, ferm-
ingarbörn aðstoða gesti og þjóna til
borðs, og að ballinu loknu kl. 20:30
býður Halaleikhópurinn öllum ferm-
ingarbörnum á sýningu sína „Nakinn
maður og annar í kjólfötum“ á meðan
hin eldri fá sér seinni sopann. Sýning-
unni lýkur kl. 22:00 og eru foreldrar
beðnir að tryggja börnum sínum
örugga heimferð.
Staða barnsins
í kristinni trú
Á FRÆÐSLUMORGNUM í Hall-
grímskirkju verða næstu sunnudaga
fluttir fyrirlestrar um börn og upp-
eldi frá ýmsum sjónarhornum.
Næstkomandi sunnudag, á æsku-
lýðsdegi þjóðkirkjunnar 4. mars kl.
10:00, mun séra Sigurður Pálsson
flytja erindi sem hann nefnir Staða
barnsins í kristinni trú. Rætt verður
hvort Jesús Kristur hafi birt einhver
ný viðhorf til barna miðað við eigin
samtíð og hvort börn hafi einhverja
sérstöðu í kristinni kirkju og ef svo er
í hverju sú sérstaða er fólgin. Að fyr-
irlestrinum loknum verður tækifæri
til að bera fram fyrirspurnir og um-
ræðuefni. Fjölskylduguðsþjónusta
hefst svo í kirkjunni kl. 11:00 í umsjá
séra Sigurðar með þátttöku barna-
kórs kirkjunnar undir stjórn Bjarn-
eyjar Ingibjargar Gunnlaugsdóttur.
Æskulýðsdagur
Þjóðkirkjunnar
í Hallgrímskirkju
SUNNUDAGINN 4. mars kl. 20.00
verður kirkjuvaka í Hallgrímskirkju
með fjölbreyttri dagskrá. Fram koma
sigurvegarar úr freestyle-keppni
Tónabæjar og sigurvegari söngva-
keppni Samfés. Lúðrasveit Vestur-
bæjar undir stjórn Lárusar H.
Grímssonar, Unglingakór Selfoss-
kirkju undir stjórn Margrétar Bóas-
dóttur, Unglingakór Hallgrímskirkju
undir stjórn Bjarneyjar Ingibjargar
Gunnlaugsdóttur og Skátafélagið
Landnemar. Hugleiðingu flytur Páll
Ásgeir Ólafsson frá æskulýðsfélaginu
Örk í Hallgrímskirkju. Einnig munu
unglingar lesa upp frumsamin ljóð og
smásögu. Þetta er í annað sinn sem
kirkjuvaka er haldin í Hallgríms-
kirkju þar sem félög sem vinna með
unglingum hafa veg og vanda að dag-
skrá sem þessari.
Að dagskránni lokinni verður boðið
upp á léttar veitingar. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir.
Æskulýðsguðsþjón-
usta í Fella- og
Hólakirkju
Á ÆSKULÝÐSDEGI þjóðkirkjunn-
ar 4. mars nk. verður æskulýðsguðs-
þjónusta kl. 11 í Fella- og Hólakirkju.
Í tilefni dagsins munu börn og ung-
lingar setja mikinn svip á guðsþjón-
ustuna. Barnakór kirkjunnar syngur
undir stjórn Þórdísar Þórhallsdóttur.
Nemendur í Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar leika á þverflautu og
trompett. Unglingar frá félagsmið-
stöðinni Miðbergi rappa lagið við
„Drottinn er minn hirðir“. Börn sjá
um bænalestur og starfsfólk barna-
og unglingastarfs kirkjunnar sjá um
ritningarlestra og flytja hugvekju. Sr.
Guðmundur Karl Ágústsson þjónar í
guðsþjónustunni og organisti kirkj-
unnar, Lenka Mátéová, leikur á org-
elið. Að lokinni guðsþjónustu er boðið
upp á kaffi og djús í safnaðarheim-
ilinu þar sem unga fólkið í Æskulýðs-
félagi kirkjunnar verður með vöfflu-
sölu. Allir eru hjartanlega velkomnir
og eru börn og unglingar kvött til að
taka fjölskylduna með sér í kirkju.
Fella- og Hólakirkja Neskirkja.
Kirkjustarf eldri borgara í dag kl.
14:00. Bingó. Kaffiveitingar. Munið
kirkjubílinn. Allir velkomnir.
Grafarvogskirkja. AA-hópur hittist
kl. 11:00.
Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyrir
8. 9. og 10. bekk kl. 20-23. Fríkirkjan
Vegurinn: Fjölskyldusamkoma kl.
11. Brauðsbrotning. Samkoma kl. 20.
Brauðsbrotning. Högni Valsson pré-
dikar. Allir hjartanlega velkomnir.
KEFAS: Samkoma í dag laugardag
kl. 14. Ræðumaður Björg R. Pálsdótt-
ir. Mikil lofgjörð, söngur og fyrirbæn.
Allir hjartanlega velkomnir. Þriðjud:
Brauðsbrotning og bænastund kl.
20.30. Miðvikud: Samverustund unga
fólksins kl. 20.30. Föstud: Bænastund
unga fólksins kl. 19.30. Allir hjartan-
lega velkomnir.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl.
11 Æfing hjá Litlum lærisveinum í
safnaðarheimili. Mánudagur, 5. mars.
16:50 Æskulýðsstarf fatlaðra, yngri
hópur. Leikir og létt fjör. Spurning
um hvort Axel mæti á svæðið.
Hvammstangakirkja. Sunnudaga-
skóli kl. 11.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli kl. 11.
TTT-starf (10-12 ára) kl. 13. Umsjón:
Hreiðar Örn Stefánsson.
Hjálpræðisherinn. Kl. 13 Laugar-
dagsskóli. Sunnudaginn 4. mars kl. 20
Hjálpræpissamkoma í umsjón majór-
anir Turid og Knud Gamst. Mánu-
daginn 5. mars kl. 15 heimilasam-
band. Fimmtudaginn 8 mars kl. 20
vakningaherferð með Inger og Einar
Höyland. Allir velkomnir.
Þorlákskirkja
Tónlistadagskráin Úr djúpunum...
ljóðadagskrá flutt af listamönnunum
Hilmari Erni Agnarssyni, Hirti
Hjartarsyni, Sveini Pálssyni, Ingunni
Jensdóttur og Eyvindi Erlendssyni,
kl. 20:30 sunnudag. Dagskráin er að
stofni til byggð á lögum sömdum af
Gyðingum í útrýmingarbúðum. Sýn-
ingin er liður í 50 ára afmælishátíð
Þorlákshafnar. Aðgangur ókeypis.
FRÉTTIR
NÁUM ÁTTUM – fræðsluhópur
stendur fyrir morgunverðarfundi
þriðjudaginn 6. mars 2001, kl. 8.30–
10.30 í Sunnusal Hótel Sögu. Skráið
þátttöku hjá: iae@rvk.is og bryn-
dis@bvs.is.
Þorbjörn Broddason prófessor er
málshefjandi og flytur erindi um
áhrif fjölmiðla á lífsstíl ungs fólks.
Fulltrúar fjölmiðla flytja stutt inn-
legg og sitja fyrir svörum í pallborði:
Pétur Gunnarsson blaðamaður
Morgunblaðinu, Rúnar Gunnarsson
dagskrárstjóri Sjónvarps, Sigmund-
ur Ernir Rúnarsson ritstj. frétta- og
dægurmála Stöð 2, Sigtryggur
Magnason blaðamaður DV og Sól-
veig Kr. Bergman fréttastjóri Skjá
1.
Fundarstjóri er Héðinn Unn-
steinsson verkefnisstjóri Geðræktar.
Þátttökugjald 1.500 kr. með morg-
unverði. Morgunverðarfundurinn er
öllum opinn meðan húsrúm leyfir.
Náum áttum – er opinn samstarfs-
hópur um fræðslu- og fíkniefnamál
með þátttöku: Götusmiðjunnar,
Vímulausrar æsku, Barnaverndar-
stofu, Íslands án eiturlyfja, Land-
læknis, Áfengis- og vímuvarnaráðs,
fulltrúa framhaldsskólanna, Sam-
starfsnefndar Reykjavíkur um af-
brota- og fíkniefnavarnir, Heimilis
og skóla, Lögreglunnar í Reykjavík,
Bindindissamtakanna IOGT, Rauða-
krosshússins og Geðræktar.
Fundur um áhrif
fjölmiðla á lífs-
stíl ungs fólks
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist efnir á
sunnudaginn 3. mars kl. 10.30 til
rútu- og skoðunarferðar þar sem far-
ið verður að Gullfossi í klakabönd-
um, að Geysissvæðinu og víðar.
Í ferðinni verður farið að Bergs-
stöðum þar sem litið verður á sýru-
ker sem sagt er að Bergþór risi í Blá-
felli hafi klappað þar í stein. Þar
verður skálað í mysu honum til heið-
urs. Fararstjóri er Nanna Kaaber en
verð er 3.000 kr fyrir Útivistarfélaga
og 3.300 kr fyrir aðra. Brottför er frá
Umferðarmiðstöðinni, BSÍ og eru
miðar seldir í farmiðasölu.
Ferð að Gull-
fossi og Geysi
með Útivist
TÆKNISKÓLI Íslands (TÍ)
ásamt Hollvinafélagi TÍ standa
fyrir kynningardagskrá sunnudag-
inn 4. mars í húsakynnum skólans
á Höfðabakka 9, milli kl.13 og 18.
Megináhersla verður lögð á að
kynna fjölbreytta námsmöguleika
við Tækniskóla Íslands og mik-
ilvægi tengsla hans við atvinnu-
lífið.
Í því sambandi verður m.a. boð-
ið upp á fyrirlestra sem tengjast
lokaverkefnum nemenda við TÍ og
ýmissa gestafyrirlestra. Auk þess
munu gestir geta kynnt sér ný
hönnunar- og teikniforrit, fengið
mælt kólesterol í blóði, setið ör-
námskeið í notkun Netsins, tekið
þátt í léttri getraun, kynnst al-
þjóðastarfi TÍ og margt fleira.
Sérstakt barnahorn verður með
gæslu fyrir yngstu gestina.
Allir áhugasamir um starfsemi
TÍ eru boðnir velkomnir og hvattir
til virkrar þátttöku í Tækniskóla-
deginum 2001, segir í fréttatil-
kynningu. Sjá má dagskrá TÍ-
dagsins inni á heimasíðu skólans
ti@ti.is
Opið hús í
Tækniskóla
Íslands
RAGNAR Ingi Aðalsteinsson heldur
fyrirlestur um bragfræði og ljóða-
gerð í Kirkjuhvoli, Garðabæ, mánu-
daginn 5. mars kl. 15. Fyrirlesturinn
er á vegum Bókasafns Garðabæjar
og tengist ljóða-og smásagnakeppni
sem safnið stendur fyrir í tilefni 25
ára afmælis Garðabæjar.
Fyrirlestur um
bragfræði og
ljóðagerð
FERÐAFÉLAG Íslands efnir til
skíðagönguferðar sunnudaginn 4.
mars fyrir áhugasamt skíðafólk. Síð-
asta sunnudag fór full rúta af fólki á
skíði á Lyngdalsheiði í fínu færi og nú
er ferðinni heitið norður fyrir Ár-
mannsfell en þar er nægur og góður
snjór. Reiknað er með að skíðagang-
an sjálf taki 3–4 klst. Vegna þess hve
illa hefur gengið að komast á göngu-
skíði eru skíðaferðirnar nú á sérstöku
afsláttarverði og kostar ferðin á
sunnudaginn 1.400 krónur fyrir
manninn, segir í fréttatilkyningu.
Brottför er frá BSÍ kl. 10:30 og
komið við í Mörkinni 6. Fararstjóri í
þessari ferð er Sigurður Kristjánsson.
Þá vill Ferðafélag Íslands vekja at-
hygli á skíðagönguferð í Tindfjöllum
9.–11. mars. Farið verður á einkabíl-
um og er þátttökugjaldi mjög í hóf
stillt. Nauðsynlegt er að bóka með
góðum fyrirvara því svefnpláss í skála
er takmarkað.
Frekari upplýsingar um ferðir
Ferðafélags Íslands má sjá á heima-
síðu þess, www.fi.is og á bls. 619 í
textavarpi RÚV.
Skíðagöngu-
ferðir með
Ferðafélagi
Íslands
JÓLATRÉSSALAN Landakot hef-
ur undanfarin fjögur ár stutt við
starfsemi SKB (Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna) með
framlagi sem myndast við sölu jóla-
trjáa á ýmsum stöðum höfuðborg-
arsvæðisins. Myndin er tekin nýver-
ið er styrkur fyrir árið 2000 var
afhentur á skrifstofu SKB. Á henni
eru auk Þorsteins Ólafssonar,
framkvæmdastjóra SKB, þremenn-
ingarnir Ágúst Magnússon, Gunnar
S. Harðarson og Sæmundur Norð-
fjörð.
Styrktu
SKB
♦ ♦ ♦
ÍSLANDSMEISTARAKEPPNIN
Tískan 2001 verður haldin sunnu-
daginn 4. mars á Broadway. Slag-
orð keppninnar þetta árið er: „Vel-
megun fyrir alla“.
Í fréttatilkynningu segir:
„Keppnin frá því í fyrra, Tískan
2000, er komin á Netið á slóðinni
www.fashiontv.is og hafa allt að
90.000 heimsóknir verið á síðuna
frá byrjun, hér heima og erlendis.
Þetta árið, samhliða keppninni,
verður haldið evrópuþing Al-
þjóðasambands hárgreiðsluskóla
og í tengslum við þingið verða
haldnar tvær sérkeppnir í hár-
greiðslu. Fjöldi fyrirspurna um
þingið og keppnina hefur borist
erlendis frá.
Keppnin og sýningin standa yfir
í 14 tíma eða frá kl. 9 til 23 og
enda með mikilli veislu og verð-
launaafhendingu þar sem veitt
verður á annað hundrað verðlauna
af tímaritinu Hári og fegurð og
öðrum fyrirtækjum. Keppt verður
í tískulínu, „frístæl“, permanenti,
litun, dagförðun, tískuförðun, leik-
húsförðun, fantasíuförðun, ljós-
myndaförðun, tískuhönnun, fata-
gerð, tískuskartgripum, fantasíu-
nöglum og ásetningu gervinagla. Á
staðnum verða fjórir ljósmyndarar
frá tímaritinu Hári og fegurð og
tveir frá fashiontv.is og verða ljós-
myndir teknar af módelum allra
keppendanna og sýndar í tímarit-
inu Hári og fegurð. Eftir að
keppninni lýkur verður útsending
frá henni á www.fashiontv.is.
Fjölmörg fyrirtæki verða á
staðnum með kynningarbása þar
sem ýmsar vörur varðandi tísku-
heiminn verða kynntar.“
Tískan 2001
haldin á
Broadway
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦