Morgunblaðið - 23.03.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.03.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 23. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ HYDRA-DETOX RAKAGEFANDI OG HREINSANDI HÚÐVÖRUR FYRIR KARLMENN FYRIR FRÍSKARI HÚÐ OG FALLEGRI HÚÐLIT Snyrtitaska fylgir þegar keyptir eru 2 hlutir ÚTSÖLUSTAÐIR: Andorra Hafnarfiðri, Bjarg Akranesi, Bylgjan Kópavogi, Fína Mosfellsbæ, Hjá Maríu Akureyri, Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ SAMANBURÐUR Ríkisendur- skoðunar á heildarútgjöldum fimm hjúkrunarheimila á legudag á árinu 1999 við umsamið daggjald ásamt húsnæðiskostnaði hjúkrunarheimil- isins við Sóltún leiðir í ljós að dag- gjald Sóltúnsheimilisins sé um 14% hærra. Að undanskildum húsnæð- iskostnaði eru þau um 17% hærri á Sóltúnsheimilinu en það er rekið með einkaframkvæmdarsniði. Þetta kemur fram í skýrslu Rík- isendurskoðunar sem gerð var að beiðni forsætisnefndar Alþingis en Ögmundur Jónasson alþingismaður óskaði í september á síðasta ári eft- ir svörum við nokkrum spurningum sem lutu að útboði, hagkvæmni, kostnaði o.fl. í tengslum við samn- ing heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytisins við Öldung hf. um rekstur Sóltúnsheimilisins. Með samningnum tók Öldungur hf., sem Securitas og Íslenskir aðalverktak- ar standa að, að sér að leggja til og reka hjúkrunarheimili í Sóltúni 2 í Reykjavík, ætlað 92 einstaklingum, gegn greiðslu í formi daggjalds fyr- ir hvern vistmann. Um var að ræða fyrsta samning um byggingu og rekstur hjúkrunar- heimilis sem gerður var við einka- aðila. Það var yfirlýst markmið heilbrigðisráðuneytisins í samn- ingnum að velja inn vistmenn, sem koma af öldrunardeildum og sjúkrahúsum og þurfa mikla umönnun. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að við samanburðinn verði að hafa í huga að þau hjúkrunarheimili sem hann tekur til og rekin eru sem sjálfseignarstofnanir eigi að jafnaði ekki að sýna hagnað af starfsemi sinni. Að sjálfsögðu eigi slíkt ekki við um hlutafélög og aðra sambærilega einkaaðila á borð við Öldung hf. Forsvarsmenn félagsins hljóti að gera eðlilegar kröfur um hagnað af starfsemi fyrirtækisins. Þá sé skattaleg staða þessara aðila nokkuð ólík, en mismunandi rekstr- arform þurfi hins vegar engu að ráða um eðli, umfang eða gæði þeirrar þjónustu sem veitt sé. Tilkostnaðurinn umtalsvert meiri Ögmundur Jónasson alþingis- maður sagði að meginniðurstaða skýrslunnar sé sú að þessi leið einkaframkvæmdar að gera aldraða að arðbærri fjárfestingu fyrir einkaaðila á markaði sé mun dýrari en önnur hefðbundnari rekstrar- form á öldrunarþjónustu og þar af leiðandi mun óhagkvæmari fyrir skattgreiðendur. Hann benti á að um væri að ræða samning upp á mjög háar upphæðir eða samning upp á tæpa 12 millj- arða kr. til 25 ára. „Það kemur í ljós að tilkostnaður ríkisins og þar af leiðandi skattborgarans er að mati Ríkisendurskoðunar umtals- vert meiri eða sem nemur 14%,“ sagði Ögmundur. Hann sagði að einkaframkvæmd í heilbrigðisþjónustu hefði einmitt verið gagnrýnd á þeirri forsendu að teknir væru peningar út úr starf- seminni í arðgreiðslur með því að setja þessa starfsemi inn í fyrir- tækjaumhverfi, inn í hlutafélög sem byggðust á arði. „Í stað þess að veita þjónustu er höfuðmarkmiðið núna að skapa eig- endum sínum arð og það fæst hérna staðfest að tilkostnaðurinn við þetta er umtalsvert meiri,“ sagði Ögmundur ennfremur. Hann sagðist myndu óska eftir umræðu um málið á Alþingi. Um 14% hærra daggjald á Sóltúnsheimilinu VIÐ athöfn um borð í hafnsögu- bátnum Lóðsinum í Klettsvík í Vestmannaeyjum í gær tilkynnti Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra formlega að Íslandslaxi hf. yrði veitt tímabundið til- raunaleyfi til laxeldis í Vest- mannaeyjum. Guðni sagði það ákvörðun sína að styðja þriggja ára tilraunaverk- efni sem fæli í sér allt að eitt þús- und tonna eldi á laxi á ári hverju. Í lok tilraunatímans yrðu til- raunaniðurstöður nýttar til að meta hvort heimila ætti áfram- haldandi eldi og aukningu í magni. Guðni sagði í ávarpi við þetta tilefni að embætti veiðmálastjóra hefði fyrir sitt leyti fallist á til- raunaleyfi, en gert væri ráð fyrir að unnið yrði eftir þeim skilyrðum sem stofnanir umhverfisráðuneyt- isins, Skipulagsstofnun, Umhverf- isvernd og Náttúruvernd ríkisins setja. Ráðherra sagði að tilraunin yrði unnin í samstarfi undir stjórn Veiðimálastofnunar og með þátt- töku Rannsóknasetursins í Vest- mannaeyjum, embættis dýralæknis fisksjúkdóma, Íslandslax og e.t.v. fleiri aðila. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Guðni Ágústsson tilkynnti formlega um borð í Lóðsinum í Klettsvík að Íslandslaxi hf. yrði veitt tímabundið tilraunaleyfi til laxeldis. Ráðherra gefur leyfi til laxeldis í Klettsvík LÖGREGLAN í Reykjavík handtók síðdegis á miðvikudag tvo pilta sem höfðu veist að lögreglumanni með fúkyrðum og hótunum um ofbeldi. Lögreglumaðurinn var á vakt í af- greiðslu lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni urðu piltarnir af einhverj- um ástæðum ósáttir við þá afgreiðslu sem þeir fengu hjá lögreglunni. Þeir veittust því að lögreglumanninum sem kallaði á aðstoð. Þegar hand- taka átti þann sem meira hafði sig í frammi brást félagi hans hinn versti við. Lögreglan handtók hann því líka en við það kom til nokkurra átaka. Piltarnir voru síðan báðir fluttir í fangageymslur en sleppt að loknum yfirheyrslum. Veittust að lögreglu- manni HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær ís- lenska ríkið af 36 milljóna króna skaðabótakröfu fyrrum lögreglu- manns á Keflavíkurflugvelli, sem rík- islögreglustjóri vék frá störfum fyrir ölvunarakstur, fyrst um stundarsakir en síðar endanlega. Af háttalagi lög- reglumannsins hlaust tjón við fram- úrakstur á Reykjanesbrautinni. Í dóminum kemur fram að lög- reglumaðurinn hafi ekið mjög ölvaður eftir fjölfarinni braut og reynt að aka fram úr með þeim afleiðingum að til áreksturs kom við bifreið sem kom á móti. Hefði akstur mannsins verið sérlega vítaverður. Hann hefði m.a. atvinnu af því að halda uppi lögum og reglu í umferðinni og miklu skipti að almenningur bæri fullt traust til lög- reglumanna og hlítti boðvaldi þeirra. Var brot hans til þess fallið að ganga nærri siðferðilegum orðstír hans og gera lögregluyfirvöldum erfitt að hafa hann áfram í starfi. Ekki skipti máli að hann hefði ekki verið við störf er áreksturinn varð.Utanríkisráð- herra skipaði lögreglumanninn til starfa árið 1997 en ríkislögreglustjóri vék honum frá störfum 1999, tæpu ári eftir atvikið. Lögreglumaðurinn fyrr- verandi byggði skaðabótakröfa sína á því að ekki hefði réttur aðili tekið ákvörðun um að víkja sér frá störfum. Yrði hins vegar litið svo á, yrði því haldið fram að ekki væri lagagrund- völlur fyrir brottvikningu um stund- arsakir skv. 26. starfsmannalaga, en síðar að fullu skv. 3. mgr. 29. gr. sömu laga. Þá hélt hann því fram að stjórn- völd hefðu ekki fylgt þeim málsmeð- ferðarreglum sem lög gera ráð fyrir og reglur stjórnsýsluréttar krefðust. Hæstiréttur taldi hins vegar að rík- islögreglustjóra hefði verið heimilt að víkja lögreglumanninum frá störfum. Gerð hafi verið breyting á ákvæði 28. gr. lögreglulaga, sem fjallar um veit- ingu starfa í lögreglu. Eftir breyting- arnar skipaði ríkislögreglustjóri lög- reglumenn og samhliða því fengi ríkislögreglustjóri vald til að veita þeim lausn frá starfi. Máli lögreglumannsins var vísað til þriggja manna nefndar skv. starfs- mannalögum, sem átti að láta ríkis- lögreglustjóra í té álit sitt á því hvort rétt hefði verið að víkja lögreglu- manninum frá um stundarsakir. Var það sameiginleg niðurstaða nefndar- manna að ákvörðun ríkislögreglu- stjóra um lausn frá störfum, hefði verið óréttmæt. Málsmeðferðin hjá nefndinni tók óhæfilega langan tíma og var ákvörðun um endanlega brott- vikningu lögreglumannsins tekin í kjölfarið. Þrír dómarar af fimm töldu ekki að sameiginleg niðurstaða nefndar- manna eða sá langi dráttur sem varð á málsmeðferðinni réttlættu bóta- kröfuna. Tveir dómarar skiluðu hins vegar sératkvæði í málinu og töldu að leysa ætti úr ágreininingu um bóta- rétt á annan hátt en gert var. Íslenska ríkið ætti að bera halla af því, að sú leið, að leggja málið í nefndina, hefði ekki leitt til þeirrar niðurstöðu sem ætlunin virðist hafa verið. Ætti því að greiða áfrýjanda 720 þúsund krónur í bætur. Fyrrverandi lögreglumanni synjað um 36 milljóna króna bætur vegna brottvikningar Akstur drukkins lögreglu- manns sérlega vítaverður Ríkislögreglustjóra var heimilt að víkja manninum frá störfum ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.