Morgunblaðið - 23.03.2001, Page 26
VIÐSKIPTI
26 FÖSTUDAGUR 23. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TAP af rekstri SÍF-samstæðunnar
í fyrra nam 984,9 milljónum króna
en hagnaður á sama tíma í fyrra
var 42,5 milljónir króna. Tekið skal
sérstaklega fram að samanburður
milli ára er ómarkviss þar sem árið
í fyrra er fyrsta heila árið með
þeim félögum sem sameinuðust
SÍF um mitt árið 1999. Rekstr-
artekjur félagsins námu alls tæp-
um 53 milljörðum og tap eftir
skatta sem hlutfall af veltu var
1,86%. Þrátt fyrir tapið nam hagn-
aður SIF fyrir afskriftir
(EBITDA) 779 milljónum króna og
veltufé frá rekstri var jákvætt um
108,9 milljónir króna. Hrein fjár-
magnsgjöld námu 669 milljónum
króna.
Reiknaður samrunakostnaður
567 milljónir
SÍF ákvað í fyrra að hætta allri
vinnslu og útgerð í Noregi og var
allur kostnaður við lokun og sölu
eigna SÍF í Noregi gjaldfærður á
árinu eða samtals 277 milljónir
króna. Þá kemur og fram að sam-
runakostnaður SÍF á Íslandi hafi
numið 115 milljónum og samruna-
kostnaður SÍF í Frakklandi hafi
numið 452 milljónum. „Þegar litið
er til reksturs ársins 2000 og þess
rekstrarumhverfis sem fyrirtækið
bjó við er ljóst að fjórir þættir ollu
mestu í þeim erfiðleikum sem að
steðjuðu. Þeir eru miklar hækkanir
á hráefnisverði á eldislaxi, þróun
gengismála, versnandi rekstrar-
skilyrði í Noregi og mikill sam-
runakostnaður.“
Gunnar Örn Kristjánsson for-
stjóri segir að almennur rekstur
hafi gengið þokkalega í fyrra og
þannig sé framlegðin meiri en árið
1999. „Við erum að gjaldfæra mjög
stórar tölur sem hafa ekki neitt
með daglegan rekstur að gera. Í
fyrra notuðum við þá aðferð sem
flest fyrirtæki nota, þ.e.a.s. að
reikna inn tekjuskattsskuldbind-
ingu eða tekjuskattseign en það
höfum við ekki gert í ár. Þetta þýð-
ir að ef við hefðum notað sömu að-
ferð og í fyrra þá hefði tapið orðið
rúmum 200 milljónum króna
minna. Við ákváðum að nýta okkur
ekki þessa heimild, sem er sam-
kvæmt almennum reikningsskila-
venjum, heldur erum við þarna ein-
göngu með reiknaðan tekju- og
eignaskatt.“ Aðspurður segir
Gunnar að ástæðan sé einfaldlega
sú að SÍF ætli að taka hagnaðinn
inn á þessu ári. „Þá vil ég einnig
benda á að SÍF er eitt fárra fyr-
irtækja sem er með reiknuð verð-
breytingargjöld í sínum reikningi
sem þýðir að við erum með pen-
ingalegar eignir umfram skuldir á
meðan mörg önnur félög reikna sér
verðbreytingartekjur.“
Gunnar segir að sveiflan í geng-
istölum í ársreikningnum milli ára
hafi verið um 150 milljónir króna,
þ.e. í fyrra hafi verið gengistap en
gengishagnaður árið á undan.
„Þegar tekið er mið af umsvifum
SÍF og stærðar reikningsins og því
að við erum með nær öll okkar við-
skipti í erlendri mynt þá erum við
mjög sáttir við það að hafa ekki
orðið fyrir meiri kostnaði en raun
ber vitni. Við erum bæði með fram-
virka samninga og áhættugrein-
ingu sem miðast að því að lág-
marka gengisáhættuna en við
getum aldrei komið algerlega í veg
fyrir hana. Sé þetta gengistap bor-
ið saman við önnur fyrirtæki í sjáv-
arútvegi þá eru þetta ekki stórar
tölur. Þá er rétt að benda á að töl-
ur eins og afskriftir og fjármagns-
liðir eru ekki samanburðarhæfar á
milli ára þar sem SÍF-samstæðan
varð ekki til fyrr en um mitt ár
1999.“
Aðspurður segir Gunnar að eig-
infjárhlutfall SÍF sé mjög sam-
bærilegt og hjá SH en það sé þó
stefna SÍF að eiginfjárhlutfallið
verði ekki undir 20% til lengri tíma
litið.
Vildum hafa
hreint borð
Við erum í þessum reikningi auð-
vitað búnir að hreinsa út ansi stór-
an pakka sem var þessi frum-
vinnsla í Noregi og hefur verið
okkur erfið. Þá höfum við einnig
gjaldfært allan samrunakostnað og
starfslokasamninga þó þeir nái inn
á þetta ár. Þetta er allt tekið inn á
síðasta ár. Við gáfum það út á sín-
um tíma að árið 2000 yrði ár sam-
runa og hreingerninga og það er
það sem við erum að gera í þessum
ársreikningi.Við vildum hreinsa
borðið og ganga hreint til verks í
þessum ársreikningi. Það er miklu
betra að hreinsa þessa hluti út á
einu ári og afgreiða þá þar með í
stað þess að vera fela þá eitthvað í
einhvern tíma. Við tókum allt sem
við gátum tínt til í þessum efnum.“
Gunnar segir að eftir sex mán-
aða uppgjörið hafi veltufé til
rekstrar verið neikvætt um 153
milljónir en í lok ársins hafi veltufé
frá rekstri verið 109 milljónir
þannig að reksturinn hafi skilað
um 260 milljónum síðustu sex mán-
uði ársins. „Það voru því greinileg
batamerki í rekstrinum á seinni
helmingi ársins.“
Spurður horfurnar á þessu ári
segir Gunnar að allt ytra umhverfi
SÍF sé mun hagstæðara núna en á
sama tíma í fyrra. Samruninn er að
baki, í dag er þetta eitt fyrirtæki,
það er búið að fara í mikla stefnu-
mótunarvinnu og við höfum sett
okkur mjög skýr markmið þannig
að þessu leyti erum við í allt ann-
arri stöðu en í fyrra.
Spurður um reksturinn það sem
af er þessu ári segir Gunnar að
hann hafi gengið vel, það er sé alls
staðar aukning hjá félaginu og eft-
irspurn eftir afurðum SÍF sé góð
og umhverfið allt hagfelldara.
Vegna hagræðingar og endur-
skipulagningar hefur starfsmönn-
um fyrirtækisins fækkað milli ára.
Á Íslandi hefur starfsmönnum
fækkað um þriðjung frá árinu 1999
en þá voru 147 starfsmenn hjá
SÍF, Íslandssíld og ÍS, en nú starfa
98 starfsmenn hjá SÍF hf. Þessi
fækkun um 49 stöðugildi er bæði
vegna uppsagna í tengslum við
endurskipulagningu starfseminnar
eftir samruna en einnig hafa
starfsmenn hætt störfum og hefur
ekki verið ráðið í þeirra stað.
Í ljósi breytinga á upplýsinga-
skyldu hlutafélaga skráðum á
Verðbréfaþingi Íslands, hefur
stjórn SÍF hf. ákveðið að birta hér
eftir samstæðuuppgjör á þriggja
mánaða fresti, í fyrsta skipti fyrir
fyrsta ársfjórðung ársins 2001.
Rekstraráætlanir SÍF hf. gera ráð
fyrir að hagnaður verði á rekstri
samstæðunnar á árinu 2001. Aðal-
fundur SÍF hf. fyrir starfsárið 2000
verður haldinn 6. apríl næstkom-
andi.
SÍF rekið með 985 milljóna tapi í fyrra
Batamerki í rekstr-
inum komin fram
!"#$%
&$"'%
!"%(&
)*'(+
)&#,+
(#%
!"%&(
('"&*%
%%
(-(!
&(-(&.
(.
("' $
!"
!"
!"
! "
!##"
! "
!$$ "
%
%
%
%
!"
%#"
!"
!"
!"
%"
%"
%"
&''()
&''()
&''()
HAGNAÐUR Mjólkursamsölunnar
í Reykjavík og dótturfélaga dróst
saman um 20% á milli áranna 1999
og 2000. Árið 2000 skilaði félagið
101 milljón króna í hagnað en árið
áður varð 126 milljóna króna hagn-
aður af starfseminni.
Helstu skýringar lakrar afkomu
eru raktar í ársskýrslu MS. Þar er
minnst á lækkun fjármagnsliða um
79 milljónir króna og fjárbindingu í
samlögunum á Blönduósi og
Hvammstanga, auk nýbyggingar á
Bitruhálsi og mikilla lækkana á
verðbréfamörkuðum hér heima og
erlendis.
Hagrætt með aukinni sérhæfingu
„Aukið vöruframboð á undan-
förnum árum hefur kallað á breyt-
ingar á aðstöðu Mjólkursamsölunn-
ar við Bitruháls. Þörfin fyrir stærri
kælilager var orðin knýjandi þegar
fyrirtækið réðst í að stækka hann á
árinu,“ segir í skýrslu forstjóra,
Guðlaugs Björgvinssonar. „Í Búð-
ardal var einnig ráðist í fram-
kvæmdir en þar var settur upp
áfyllingarbúnaður fyrir plastflösk-
ur.“ Guðlaugur segir jafnframt í
skýrslunni að norðan heiða hafi
verið gerðar breytingar sem mið-
uðu að aukinni sérhæfingu og væru
hluti af ákveðnu hagræðingarferli.
Þannig hafi allri mjólkurpökkun
verið hætt á Blönduósi en þangað
flutt öll skyrgerð sem áður var í
Búðardal. Þá var ostagerð aukin til
muna á Hvammstanga.
Heildartekjur MS námu 5,3
milljörðum króna á síðasta ári en
það er tæp 12% tekjuaukning frá
árinu áður. Rekstrargjöld sam-
stæðunnar utan fjármagnsliða
hækkuðu um 10% og námu 5,1
milljarði króna en fjármagnsliðir
reyndust neikvæðir um tæpar 9
milljónir, höfðu árið áður verið já-
kvæðir um rúmar 70 milljónir
króna. Hagnaður MS fyrir skatta
varð því 201 milljón króna miðað
við 196 milljónir árið áður en hagn-
aður ársins tæp 101 milljón. Af
þessu má sjá að hlutfall hagnaðar
af veltu félagsins var 1,9% á árinu
2000, minnkar úr 2,7% árið áður.
Í árslok námu eignir Mjólkur-
samsölunnar alls 4.467 milljónum
króna en heildarskuldir voru 592
milljónir króna. Eigið fé samstæð-
unnar í árslok var 3.875 milljónir
króna og jókst um 5,6%, eða 205
milljónir. Eiginfjárhlutfall sam-
stæðunnar í árslok 2000 var tæp
87% og ávöxtun á eigið fé var 2,6%,
lækkaði úr 3,4% árið áður. Veltufé
frá rekstri var 477 milljónir króna
og hækkaði um 23 milljónir.
Hagnaður
MS 20% lakari
en í fyrra
SAMKVÆMT upplýsingum frá Hall-
dóri Hildimundarsyni, millibanka-
borði Íslandsbanka-FBA hf., námu
viðskipti á millibankamarkaði 2,8
milljörðum króna í gær og er þetta
mesta velta á millibankamarkaði frá
níunda febrúar síðastliðnum.
Gengisvísitalan hækkaði úr 121,87 í
122,23, eða um 0,3%. Þegar vísitalan
hækkar þýðir það að gengi krónunnar
lækkar, þ.e. krónan lækkaði um 0,3%
í gær. Krónan hefur ekki verið lægri
síðan 24. janúar síðastliðinn, en þá
náði vísitalan gildinu 122,58. Skömmu
síðar greip Seðlabankinn inn í mark-
aðinn. Seðlabankinn greip ekki inn í
þróun á millibankamarkaði í gær og
hefur ekki látið finna fyrir sér frá ní-
unda febrúar.
Að því er fram kemur í fyrrgreind-
um upplýsingum virðist sem uppsafn-
að gjaldeyrisútstreymi síðustu daga
hafi gert það að verkum að markaðs-
aðilar hafi farið inn á gjaldeyrismark-
aðinn og keypt gjaldeyri. Þá segir að
líkur á stuðningsinngripum Seðla-
bankans aukist eftir því sem vísitala
krónunnar færist nær vikmörkum
gengisstefnunnar, en þau eru 125,36
stig. Gengi evrunnar gagnvart
Bandaríkjadal fór niður í 0,8830 um
tíma í gær, og hefur Bandaríkjadalur
ekki verið sterkari á árinu. Fyrr á
þessu ári hafði gengi hans á þennan
mælikvarða farið hæst í 0,8912. Þar
sem krónan hefur lækkað þarf geng-
iskross evru og dals líklega ekki að
fara neðar en í um 0,8700 til að hver
dalur verði kominn í 90 krónur.
Krónan
færist nær
vikmörkum