Morgunblaðið - 23.03.2001, Side 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2001 35
&
Sprenghlægilegt verð!
Skart og klútar kr. 150 - Töskur kr. 500 -
Regnhlífar og sólgleraugu kr. 200 -
Húfur og hattar kr. 500-1000 - Buxur kr. 1000 -
Pils frá kr. 800-1.500 - Kjólar frá 1.250-3.000 -
Stutterma jakkar kr. 2.000 - Síðerma jakkar kr. 2.500
Opið alla daga frá kl. 12-18
Grensásvegi 16
HVER veltir því fyrir sér hvort breskurháskólamaður á áttræðisaldri hefur íraun sofið hjá konunum sem hannsegist hafa sofið hjá? En það er bara
ekki um að ræða hvern sem er, heldur ekkil rit-
höfundarins Iris Murdoch. Þegar hann játaði svo
um helgina að tvennar bólfarir sem hann segir
frá í síðustu endurminningabók sinni væru meira
uppspuni en minningar kvað heldur betur við.
John Bayley er fæddur 1925 og var þegar orð-
inn vel metinn fræðimaður í Oxford þegar hann
kynntist Iris Murdoch 1954, sem þá var einnig við
háskólann þar, en reyndar þegar farin að skrifa.
Hún var sex árum eldri en hann og hafði átt ýmsa
vini og elskhuga áður en þau tvö kynntust. Einna
áhrifamest voru kynni hennar af skáldinu og
Nóbelsverðlaunahafanum Elias Canetti, sem
fluttist til Englands 1939, en franski heimspek-
ingurinn Jean-Paul Sartre var annar náinn vinur.
Þau Bayley og Murdoch giftust 1956, hann
sinnti fræðunum og hún skrifunum.
Þau voru fræg fyrir heldur slaklegt heimilis-
hald, þrifin voru ekki ofarlega á blaði en hann eld-
aði og hún keypti inn. Þegar hún veiktist annaðist
hann hana án þess að segja frá því hvers kyns
væri, en eftir að hafa búið við sjúkdóminn í nokk-
ur ár sögðu þau hjónin frá veikindum hennar
1998, en hún lést síðan í febrúar árið eftir.
Lífið með Iris
Bayley sinnti konu sinni í veikindum hennar.
Hann hefur skrifað fimmtán bækur, en það eru
bækurnar þrjár um Iris, sem eru þekktustu verk
hans.
Þegar 1998 kom út fyrsta bók Bayleys um Iris
og árin þeirra saman. Sú bók heitir einfaldlega
Iris og fjallar um kynni þeirra og samlíf. Hún
varð metsölubók og hlaut einróma lof gagnrýn-
enda og sama var um næstu bók, Iris and Her
Friends, sem fjallar um síðustu ár þeirra, veik-
indi Murdoch og hvernig eiginmaðurinn tekur á
málunum. Margt hefur verið skrifað um þessar
bækur, meðal annars að þær væru einhver mesta
ástarsaga aldarinnar.
Áhuginn var því mikill á nýjustu bókinni,
Widower’s House, eða Hús ekkilsins. Eins og til-
heyrir þá hafði eitt stóru bresku blaðanna, í þetta
skiptið Daily Telegraph, tryggt sér rétt á að birta
valda kafla. Bókin fjallar um hvernig Bayley leið
eftir lát konu sinnar og hvernig það var að takast
á við daglega lífið eftir að hafa verið bundinn við
umönnun sjúkrar eiginkonu í 5–6 ár.
Allt í einu var hann umvafinn athygli kven-
fólks, sem hann sóttist á engan hátt eftir. Öll
blöðin tóku sérstaklega upp frásagnir höfundar-
ins af því hvernig kvenfólk með brókarsótt sótti
hart að honum og reyndar tókst að leggja hann.
Ekkilsstandi hans er reyndar lokið nú því að
sama árið og Murdoch dó kvæntist hann Audi
Villiers, vinkonu Murdoch og ekkju á líkum aldri
og hann.
Tvær ákafar
Brúðkaupið vakti auðvitað athygli eins og allt í
kringum Bayley gerir, ekki síst að brúðurin var í
hvítu með brúðarslör og blóm í hárinu.
Athyglin undanfarið hefur einkum beinst að
tveimur berorðum frásögnum ekkilsins. Önnur
er um Mellu (nafnið hljómar sakleysislegar á
ensku en íslensku), unga námskonu, sem birtist
einn dag óumbeðið í húsi hans og hefur ákveðið
að hjálpa honum við húsverkin. Mella er grann-
vaxin og ákveðin og gengur hreint til verks, en er
skyndilega gripin ógnarþreytu og svima og segist
ætla að kasta sér aðeins.
Þegar hinn varnarlausi ekkill kemur upp í
svefnherbergið til þess að athuga hvort allt sé í
lagi stekkur hún á hann og kyssir hann ákaft.
„Hún hélt áfram að faðma mig og ég gerði mitt
besta til að losa mig,“ skrifar Bayley í nýju bók-
inni. „Hún dró mig niður á rúmið til sín. Við vor-
um þó að minnsta kosti full klædd … Eftir
nokkra klukkutíma vorum við það ekki lengur.“
Þegar Bayley hugleiðir þetta í bókinni segir hann
að það hafi óneitanlega verið fáránlegt að láta
stelpu fara svona með sig. „En þarna var ég,
gamall herramaður, sem aldrei hafði verið sterk-
ur á svellinu þegar þannig stóð á.“ Margot fór
öðruvísi að. Hún var miðaldra kunningjakona
Bayley og Murdoch, mikil um sig og tók upp á að
elda handa honum pottrétti, þótt það hafi reynd-
ar verið óheppilegt val, því Bayley hafði óbeit á
þessum réttum. Þau Murdoch höfðu þá aldrei á
sínum borðum. Síðan bauð hún honum í sveitina
til sín.
Þegar gesturinn lagðist í rekkju skreið hún
upp í til hans. Honum fannst návist hennar nota-
leg þótt hann vissi ekki alveg hvernig hann ætti
að bregðast við.
Meira órar en raunveruleiki
Þegar Daily Telegraph birti úrdrættina úr
nýju bókinni stóð í smáu letri undir úrdrættinum
að í bókinni væri sumum nöfnum og öðrum smá-
atriðum breytt til að fólk þekktist ekki. Útgef-
andi bókarinnar stóð aftur á móti í þeirri trú að
atburðirnir sem bókin segir frá væru allir sannir.
Um helgina viðurkenndi Bayley hins vegar að
sögurnar um Mellu og Margot væru uppspuni frá
upphafi til enda. Þessar tvær persónur væru ekki
til, heldur samsettar úr fleiri konum. Hann hefði
ekki upplifað nákvæmlega þessa atburði en aðra í
þessa áttina og átroðningur kvenna á ekkla væri
engar ýkjur. Samböndin sem hann segði frá væru
sönn þótt eitthvað væri fært í stílinn.
Bayley sagði líka að hann hefði ekki fetað vegi
dyggðarinnar eftir lát eiginkonunnar og bætti við
að fullt af fólki ætti í kynferðislegum sambönd-
um. Af ummælum hans mátti marka að hann
hefði ekki alveg skilið að fólk væri ekki sérlega
gáttað á frásögnunum heldur fremur á því að
hann hefði skáldað þessi atvik í bók sem annars
var kynnt sem sjálfsævisaga.
Æviminningar
auknar karlaraupi
John Bayley, ekkill Iris Murdoch,
hefur vakið ærlega athygli með
berorðum æviminningum. Um
helgina viðurkenndi hann að sumt í
minningunum væri meira skáld-
skapur en raunveruleiki og það
hefur enn aukið á athyglina, segir
Sigrún Davíðsdóttir.
John Bayley og Irish Murdoch.
HELGINA 9. til 11. apríl verður
haldið raddbeitingarnámskeið í
Smárasal Söngskólans í Reykjavík.
Námskeiðið byggist á
grunni 25 ára rannsókna
óperusöngkonunnar Jo
Estell á beitingu raddbanda
og hálsvöðva við mismun-
andi aðstæður, hvort heldur
sem er söng eða tal.
Við rannsóknirnar var
örsmárri myndavél, sem
rennt er ofan í háls viðkom-
andi, notuð til að athuga ná-
kvæmlega hvaða vöðvar
eru notaðir við mismunandi
söngstíla, s.s. óperusöng, rokk- og
sveitasöngva sem og venjulegt tal-
mál. Þannig hefur hálsinn verið kort-
lagður og því hægt að sjá hvar meinið
liggur þegar vandkvæði í hálsi koma
upp. Röng raddbeiting eða óeðlileg
áreynsla á röddina getur valdið hnút-
um á raddböndum sem hingað til hef-
ur aðeins verið hægt að lagfæra með
skurðaðgerð en Dagrún Hjartardótt-
ir, söngkennari og námsskeiðshald-
ari, segir að með kenningum Jo Es-
tell sé hægt að lagfæra skaðann án
skurðaðgerðar, auk þess að koma í
veg fyrir frekari vandkvæði. Nám-
skeiðið er því hugsað sem fyrirbyggj-
andi aðgerðir gegn raddbandahnút-
um en einnig sem þjálfunaraðferð
sem lagar hnútana. Dagrún segir
námskeiðið ætlað áhugafólki um góða
og rétta raddbeitingu, fólki sem hefur
röddina að atvinnu eins og leikarar,
söngvarar, talmeinafræð-
ingar og háls-, nef- og
eyrnalæknar að ógleymd-
um kennurum sem oft finni
fyrir álagi á raddböndin við
kennslu.
Leiðbeinendur á nám-
skeiðinu verða Paul Farr-
ington, lærisveinn Estell,
tenórsöngvari og kennari
við Konunglegu tónlistar-
akademíuna í London og
Kiereen Locke talmeina-
fræðingur sem sérhæfa sig í að kenna
fólki að þekkja orsakir raddvanda-
mála, hvernig á að bregðast við þeim
og finna varanlegar lausnir á vanda-
málunum.
Námskeiðið fer fram í formi fyr-
irlestra og æfinga þar sem þátttak-
endum er skipt niður í smærri hópa
til að æfa það sem kennt hefur verið.
Leiðbeinendurnir eru auk þess með
einstaklingsráðgjöf svo hver og einn
fái rétta leiðsögn og finni hvernig
hálsvöðvarnir virka. Á kvöldin verða
opnir tímar þar sem nemendum gefst
færi á nánari aðstoð auk þess sem þá
verða opnar æfingar þar sem þátt-
takendunum gefst tækifæri á að æfa
sig fyrir framan hópinn í þeirri grein
sem þeir leggja stund á.
Námskeið um
lausnir á radd-
vandamálum
Dagrún
Hjartardóttir
VESTANVINDAR er yfirskrift
bókmenntadagskrár í Edinborgar-
húsinu á Ísafirði nk. sunnudag kl.
16. Þar verður
fjallað um vest-
firsk skáld og er
ætlunin að það
verði árlegur við-
burður.
Það skáld sem
fyrst verður
kynnt er Guð-
mundur Gíslason
Hagalín. Þröstur
Helgason bók-
menntafræðingur fjallar um há-
skólafyrirlestra Guðmundar, Auður
Hagalín segir frá lífi hans og störf-
um og Hrafnhildur Guðmundsdóttir
Hagalín og Gunnar Jónsson lesa úr
verkum hans.
Eyvindur P. Eiríksson fjallar um
siglingalýsingar Guðmundar og
kynnir eigin skáldverk. Að lokum
munu skáldin Eiríkur Nordahl og
Inga Dan lesa nokkur af ljóðum
sínum.
Aðgangur er ókeypis.
Bók-
mennta-
dagur á
Ísafirði
Guðmundur G.
Hagalín
JÓNA Thors opnar myndlistarsýn-
inguna Spegill… spegill í Listasaln-
um Man, Skólavörðustíg 14 á morg-
un, laugardag, kl. 14. Á sýningunni
eru verk aðallega unnin úr speglum
og leir. Viðfangsefni Jónu eru mögu-
leikar speglunar og endurtekninga í
formi og skreyti.
Jóna Thors lauk námi frá leirlista-
deild Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands árið 1990. Hún hefur tekið þátt
í samsýningum heima og erlendis, en
sýningin í Man er hennar fyrsta
einkasýning.
Sýningin er opin á afgreiðslutíma
verslunarinnar og frá kl. 14–17 um
helgar og lýkur 11. apríl. Aðgangur
er ókeypis.
Jóna Thors
sýnir í Man
♦ ♦ ♦