Morgunblaðið - 18.05.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÁGÚST Hafberg fram-
kvæmdastjóri er látinn
á 74. aldursári. Ágúst
fæddist þann 30. júní
1927 í Reykjavík. Hann
var stúdent frá Verslun-
arskóla Íslands 1949 og
stundaði nám í laga-
deild Háskóla Íslands
árin 1949-51. Hann var
framkvæmdastjóri
Landleiða hf. frá stofn-
un árið 1954. Ágúst var
fulltrúi Vinnuveitenda-
sambands Íslands í end-
urhæfingarráði 1978 og
varaformaður Sam-
bands málm- og skipasmiða í nokkur
ár frá 1979. Hann sat í
framkvæmdastjórn
Vinnuveitendasam-
bandsins í mörg ár frá
1981. Hann var einnig
í stjórn Heimdallar um
skeið, var í stjórn
Varðar og fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík í nokkur ár
frá 1963.
Ágúst kvæntist
Árnheiði Guðnýju
Guðmundsdóttur árið
1952. Hún er látin. Þau
áttu þrjú börn. Síðustu
árin var Ágúst í sam-
búð með Sigurlaugu Magnúsdóttur.
Andlát
ÁGÚST
HAFBERG
HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær ís-
lenska ríkið af kröfum Sigurðar
Gizurarsonar fyrrverandi sýslu-
manns á Akranesi og sneri þar með
dómi héraðsdóms við. Sýslumaður-
inn var fluttur úr starfi og taldi
hann ákvörðun dómsmálaráðherra
varðandi flutninginn vera saknæma
og ólögmæta gagnvart sér og höfð-
aði hann því mál á hendur íslenska
ríkinu til greiðslu miska- og skaða-
bóta. Hæstiréttur úrskurðaði enn-
fremur að málskostnaður í héraði
og fyrir Hæstarétti falli niður.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði
í desember í fyrra dæmt dóms-
málaráðherra fyrir hönd ríkisins og
fjármálaráðherra fyrir hönd ríkis-
sjóðs til að greiða Sigurði 500.000
krónur í miskabætur og 300.000
krónur upp í málskostnað. Sigurð-
ur áfrýjaði hinsvegar málinu til
Hæstaréttar en hann krafðist
miskabóta upp á sjö milljónir
króna.
Sigurður var fluttur úr starfi
sýslumanns á Akranesi í starf
sýslumanns á Hólmavík en hann
segir að þessi ákvörðun dómsmála-
ráðherra hafi orðið sér til miska og
fjárhagslegs tjóns.
Í dómi Hæstaréttar kemur fram
að með flutningsbréfinu hafi fylgt
bréf þar sem gerð var grein fyrir
forsendum þessarar ákvörðunar.
Segir þar að hún sé byggð á þeirri
skoðun ráðuneytisins að sýslumað-
ur hafi ekki haft þá stjórn og yf-
irsýn yfir rekstur embættisins sem
forstöðumanni stofnunar sé skylt
og nauðsynlegt að hafa og að full-
reynt sé að mati þess að honum
takist að vinna bug á fjárhags-
vanda embættisins.
Í dómnum segir að ákvörðun
ráðherra og sú málsmeðferð er lá
henni til grundvallar hafi ekki verið
talin fela í sér áreitni, ærumeið-
ingar og tilræði. Fullyrðingu Sig-
urðar um vanhæfi ráðherra til að
taka íþyngjandi stjórnvaldsákvörð-
un um málefni hans vegna opinbers
fjandskapar við hann var hafnað
sem órökstuddri.
Ríkið sýknað af kröfum
fyrrverandi sýslumanns
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
dóm Héraðsdóms Suðurlands yfir
Eggerti Haukdal, fyrrverandi odd-
vita Vestur-Landeyjahrepps, um
tveggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir fjárdrátt í opinberu
starfi. Eggert var hins vegar sýkn-
aður af ákæru um umboðssvik. Egg-
ert gaf út skuldabréf í nafni hrepps-
ins án þess að hreppsnefnd sam-
þykkti og varði meginhluta láns-
fjárins til greiðslu á öðru skuldabréfi
sem var rekstri hreppsins óviðkom-
andi, að því er segir í dómnum.
Þá var Eggert talinn hafa dregið
sér fé með því að láta færa til inn-
eignar á viðskiptareikning sinn til-
tekna fjárhæð sem hafði verið gjald-
færð hjá sveitarsjóði sem kostnaður
vegna vegagerðar í hreppnum án
reikninga að baki þeirri færslu.
Hæstiréttur sýknaði Eggert af
ákæru fyrir umboðssvik og taldi
ósannað að auðgunarásetningur
hefði legið að baki gjörðum hans.
Hann var hins vegar sakfelldur fyrir
fjárdrátt, þar sem ljóst þótti, að til-
teknar bókhaldsfærslur hefðu leitt
til lækkunar á skuld hans við hrepp-
inn. Þá segir í dómnum: „Sem odd-
vita hafi honum hlotið að vera kunn-
ugt um þennan frágang reikninga og
ekki getað dulist, hver áhrif hans
væru.“
Í dómi Héraðsdóms Suðurlands,
sem kveðinn var upp í febrúar, kem-
ur fram að Eggert lét af starfi odd-
vita vegna þessa máls og greiddi
Vestur-Landeyjahreppi tæplega
þrjár milljónir króna vegna viðskiln-
aðar síns sem oddviti hreppsins.
Dæmdur fyrir
fjárdrátt í
opinberu starfi
FJÖRTÍU og eitt verkefni fékk
styrki úr Forvarnarsjóði Áfengis-
og vímuvarnarráðs en um 40
milljónum var úthlutað til verk-
efnanna við athöfn í Listasafni Ís-
lands í gær. Hæstu úthlutun fékk
verkefnið Ísland án eiturlyfja eða
4,8 milljónir en m.a. verkefna
voru Vímulaus æska sem hlaut
tvær milljónir til Fjölskylduráð-
gjafar og námskeiðahalds og
Jafningjafræðslan sem hlaut eina
milljón til þróunar forvarna með-
al ungs fólks. Auk þess fengu átta
áfangaheimili samtals 10 milljón
króna styrki.
Ekki má gleyma
áfengisvandanum
Við athöfnina tók Árni Helga-
son í Stykkishólmi við heiðurs-
verðlaunum úr hendi Jóns Krist-
jánssonar heilbrigðismálaráð-
herra fyrir ötult forvarnastarf í
þágu áfengisvarna. „Árni hefur
unnið af þrautseigju að áfengis-
varnarmálum í 44 ár og vel við
hæfi að heiðra hann. Núna hafa
forvarnir gegn tóbaki og eit-
urlyfjum fengið mikinn meðbyr
en lítið verið fjallað um vandamál
sem tengjast áfengisdrykkju,“
segir Þorgerður Ragnarsdóttir
framkvæmdastjóri Áfengis- og
vímuvarnarráðs. Hún segir að
ekki megi gleyma áfengisvanda-
málunum, sífellt fjölgi tilfellum á
slysadeild vegna ofbeldis og slysa
sem má tengja beint við áfeng-
isneyslu. „Einnig er rétt að hafa í
huga að leiðin í önnur efni liggur
yfirleitt í gegnum áfengi.“
Tvö verkefnanna sem hlutu
styrki voru kynnt, annars vegar
svokallað foreldrafærninámskeið
sem er samstarfsverkefni Skóla-
skrifstofu, Félagsþjónustu og
Heilsugæslu Hafnarfjarðar og
hinsvegar innleiðing uppbygging-
arstefnu í Grafarvogi sem er
sprottið úr verkefninu Grafar-
vogur í góðum málum.
Við athöfnina í gær flutti Bóas
Halldórsson nemi í Borgarholts-
skóla frumsamið ljóð sem ber
nafnið „Bensín og grænmeti“ í til-
efni dagsins og Hildur Gísladóttir
nemi í MH og Tónlistarskólanum í
Reykjavík spilaði á selló.
Úthlutað var styrkjum hjá Áfengis- og vímuvarnarráði
Heiðraður fyrir 44
ára forvarnarstarf
Morgunblaðið/Þorkell
Árni Helgason tekur við heiðursverðlaunum úr hendi Jóns
Kristjánssonar, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
ÞÝSKI orrustuflug-
maðurinn Gunther Rall
verður heiðursgestur á
fræðslu- og skemmti-
kvöldi Fyrsta flugs
félagsins föstudags-
kvöldið 25. maí. Gunth-
er Rall er á 83. aldurs-
ári. Hann gekk til liðs
við þýska flugherinn,
Luftwaffe, ári áður en
síðari heimsstyrjöldin
braust út og flaug öll
stríðsárin. Lengst af var
hann á sovésku víglín-
unni en þó einnig yfir
Ermarsundi, Frakk-
landi, Balkanskaga,
Grikklandi, Krít og undir lokin tók
hann þátt í loftvörnum Þriðja ríkisins.
Rall grandaði 275 óvinaflugvélum í
rúmlega 800 orrustuferðum sem þýðir
að hann skaut óvinaflugvél niður í ann-
arri hverri ferð sinni að meðaltali. Af
þeim flugvélum sem Rall flaug hafði
hann mest dálæti á Messerschmitt
Me109 og kaus raunar fremur að setj-
ast undir stýri á henni en nýrri og
kraftmeiri vél eins og Focke Wulf190.
Var sjálfur skotinn
niður átta sinnum
Sjálfur var Rall skotinn niður átta
sinnum og særðist mjög alvarlega
einu sinni þegar flugvél hans skall á
hamravegg í stóru gili eftir maga-
lendingu. Þýskir skriðdrekahermenn
fluttu hann meðvitundarlausan í víg-
vallarsjúkraskýli þar sem í ljós kom
að hryggurinn var þríbrotinn með til-
heyrandi alvarlegri lömun. Í þessu
ástandi, og í heilgifsi frá hálsi og að
tám, var fyrir höndum átta daga ferð
með vöruflutningalest til Vínarborg-
ar á taugasjúkrahús. Þar sögðu lækn-
arnir að hann myndi
aldrei fljúga framar en
þrátt fyrir þann úr-
skurð komst Rall á
bataveg og var kominn
aftur í stríðið nokkrum
mánuðum síðar. Gunth-
er Rall lenti í afar sér-
kennilegri lífsreynslu
þegar hann var skotinn
niður yfir Þýskalandi
undir stríðslok. Á leið til
jarðar í fallhlíf skaut
bandarísk orrustuvél á
hann, og hæfði aðeins
vinstri þumalfingurinn,
en þegar niður var kom-
ið réðust þýskir bændur
að honum með heygöfflum enda töldu
þeir dulbúinn njósnara á ferð.
Þegar þýski flugherinn var endur-
reistur; Bundesluftwaffe, á sjötta
áratugnum gerðist Rall einn af æðstu
foringjum hans og gegndi þýðingar-
miklu hlutverki við að koma honum
inn í þotuöldina. Rall varð síðar yfir-
hershöfðingi Bundersluftwaffe og
fulltrúi Þýskalands í herráði NATO í
Brussel.
Hann er eftirsóttur ræðumaður
um allan heim og auk þess söguskýr-
andi um síðari heimsstyrjöldina á
gervihnattasjónvarpsstöðvum á borð
við SKY, Discovery og History hand-
el.
Fundurinn verður opinn almenn-
ingi og hefst kl. 20.30 í flugskýli Ís-
landsflugs á Reykjavíkurflugvelli
sem verður skreytt í þýskum anda.
Átta íslenskir flugáhugamenn og
sagnfræðingar munu flytja stutt er-
indi um flugvélakost og fleiri atriði
sem vörðuðu þýska flugherinn í síðari
heimsstyrjöldinni. Aðgangseyrir er
1.200 krónur.
Fyrrverandi þýskur
orrustuflugmaður í heimsókn
Skaut niður
275 óvinaflug-
vélar í stríðinu
Gunther Rall