Morgunblaðið - 18.05.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
IP-ráðstefna Símans
Fjöldi nýrra
þjónustuleiða
NÆSTKOMANDImiðvikudag stend-ur Síminn fyrir
ráðstefnu um IP-lausnir á
Hótel Loftleiðum og hefst
hún klukkan 9 árdegis en
lýkur klukkan 17 með
hanastélsboði.
Heiðrún Jónsdóttir, for-
stöðumaður kynningar-
mála Símans, er ráðstefnu-
stjóri. Hún var spurð um
hvað IP-lausnir fælu í sér.
„Við hjá Símanum erum
að byggja upp ákveðið net
sem við köllum IP-net og
er næsta kynslóð þjónustu-
nets fyrirtækisins. Við-
skiptavinir geta tengst IP-
neti og þannig verið í al-
hliða tengingu við
fyrirtækið, að auki býður
fyrirtækið upp á allskonar
lausnir og þjónustu í tengslum við
þetta. IP er skammstöfun á Int-
ernet Protocol sem er samskipta-
staðall sem varð til með Netinu og
er nú að breiðast út og verða ráð-
andi staðall í tölvusamskiptum.
Síminn er nú að byggja upp IP-net
um allt Ísland, bæði á höfuðborg-
arsvæðinu og á öllum helstu þétt-
býlisstöðum landsins.“
– Hvað fer fram á ráðstefnunni
á miðvikudaginn?
„Hún mun fjalla um IP-stefnu
Símans og hvert við ætlum að
stefna með þessari tækni. IP-
lausnir eru ein af framtíðarsýnum
Símans á þeim skemmtilegu tím-
um sem framundan eru í fjar-
skiptalausnum. Rétt eins og önnur
leiðandi fjarskiptafyrirtæki um
allan heim lítum við til IP-lausna.
Á ráðstefnunni eru bæði innlendir
og erlendir fyrirlesarar. Við fáum
fulltrúa frá Cisco sem kemur til
með að fjalla um hlutverk IP í fjar-
skiptum. Það kemur fyrirlesari frá
Nortel og einnig frá Telia, þeir
fjalla um þráðlaus fjarskiptakerfi.
Frá Símanum kemur Hermann
Ársælsson og talar um núverandi
og komandi IP-fjarskiptakerfi.
Benedikt Gröndal, einnig frá
Símanum, mun skýra ráðstefnu-
gestum frá því af hverju Síminn
valdi MPLS-tækni sem grunn fyr-
ir sitt IP-net. Sæmundur Sæ-
mundsson frá tölvumiðstöð Spari-
sjóðanna segir reynslusögur af
IP-neti Símans. Halldór Másson
frá Skýrr talar um hvers vegna
Skýrr sem hýsingaraðili hafi valið
IP-net Símans. Símon Thorleifs-
son frá Trackwell Softer mun
verða með fyrirlestur sem nefnist
Á ferð og flugi inn í fjarskiptaþjón-
ustu framtíðarinnar. Arnaldur Ax-
fjörð frá Áliti fjallar um hver er
sýn hýsingaraðila á IP-fjarskipta-
netið og hvaða meginkröfur þeir
gera. Að endingu mun Sigurður
Hjalti Kristjánsson frá Króla tala
um ávinning fyrirtækja
af hreyfanlegri tölvu-
vinnslu og hlutverk
þráðlausra IP-neta.
Þórarinn V. Þórarins-
son, forstjóri Símans,
setur ráðstefnuna.“
– Er mikil þörf á
svona ráðstefnu?
„Já við teljum það vera. Það er
stefna Símans að gera svona ráð-
stefnuhald að reglulegum við-
burði. Það er mjög áhugavert að
vera í nánum samskiptum við þá
aðila sem eru með fulltrúa á ráð-
stefnunni á miðvikudag og heyra
þeirra hliðar á málunum og sýn
þeirra á framtíðina.“
– Hvaðan kemur þessi IP-
tækni?
„Hún er búin að vera til um
nokkurt skeið. Netið var fyrsta
skrefið sem varð til þess að IP hef-
ur orðið algerlega ráðandi tölvu-
samskiptastaðall og er það enn í
dag. Það sem IP gerir er að gera
mögulegt að tengja saman öll
þessi net og bæta ofan á þjónustu.
Allir framleiðendur búnaðar fylgj-
ast með IP og byggja búnaðinn á
þeim staðli.“
– Hver er stefna Símans í IP-
málum?
„Stefnan er að byggja upp IP-
netið og gera öflugt net um allt
land þannig að hægt sé að tengja
viðskiptavini inn og bjóða þeim
fjölbreytta virðisaukandi þjónustu
og lausnir. Í sinni framtíðarsýn
leggur Síminn mikla áherslu á IP-
net. Við erum með ákveðinn grunn
sem við ætlum okkur að byggja of-
an á til framtíðar.“
– Mun Síminn kynna allar nýj-
ungar í IP-lausnum jafnóðum?
„Síminn hefur það markmið að
kynna allar helstu nýjungar fyrir
viðskiptavinum sínum jafnóðum
og þær bjóðast og ætlar m.a. að
halda áfram að byggja ofan á IP
fjölda nýrra þjónustuleiða.“
– Getur þú nefnt mér dæmi um
möguleika í þessari þjónustu?
„Já, þegar viðskiptavinir hafa
tengst IP-netinu getur Síminn
boðið upp á allskonar
lausnir fyrir fyrirtæki.
Þessi eina IP-tenging
getur boðið internet,
eldveggjaþjónustu og
tengingu inn í umhverfi
Símans. Umhverfi Sím-
ans er kerfisveita
rekstrarlega og hýsing
með samstarfsaðilum Símans.
Sem dæmi getum við nefnt að ef
fyrirtæki viðskiptavinarins er með
útibú á tveimur eða fleiri stöðum
getum við boðið honum upp á
tengingu við IP-netið á hverjum
stað fyrir sig. Við setjum þá upp
svokallað einkanet, en það þýðir
að við getum tengt saman allar
höfuðstöðvar og öll útibú um-
rædds fyrirtækis. Með þeim hætti
kemur fyrirtækið til með að eiga
auðveld samskipti milli allra stað-
anna án tillits til þess hvar þeir
eru.“
Heiðrún Jónsdóttir
Heiðrún Jónsdóttir fæddist á
Húsavík 9. júlí 1969. Hún lauk
stúdentsprófi frá Verslunarskóla
Íslands 1989 og eftir það fór hún
til Þýskalands og starfaði þar
einn vetur. Hún hóf nám við
lagadeild Háskóla Íslands árið
1990 og lauk kandidatsprófi
1995. Réttindi sem héraðsdóms-
lögmaður fékk hún árið 1996 og
starfaði sem slíkur á Lögmanns-
stofu Akureyrar fram til 1998.
Hún starfaði í þrjú ár hjá KEA en
hóf störf sem forstöðumaður
upplýsinga- og kynningarmála
hjá Símanum í maí sl. Heiðrún á
einn ungan son.
Á ferð og flugi
inn í fjar-
skiptaþjón-
ustu framtíð-
arinnar
Þú hlýtur að sjá að þetta er bara snertilending, Össur minn, kannski dálítið
harkaleg, en snertilending skal það vera.