Morgunblaðið - 18.05.2001, Blaðsíða 54
HESTAR
54 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
strets-
gallabuxur
v/Nesveg Seltjarnarnesi, sími 561 1680
iðunn
tískuverslun
Nánari upplýsingar hjá Kjell Larsson hjá Postiljonen að Hótel Reykjavík í síma
562-6250 eða Hjá Magna í síma 552-3011 eða í verslunni að Laugavegi 15.
Óskum sérstaklega eftir gömlum umslögum og
góðum söfnum, jafnt íslenskum sem erlendum.
...var greidd fyrir
þetta umslag á síðasta
uppboði okkar!
Yfir 1 milljón...
Sænskir uppboðshaldarar og frímerkja-kaupmenn
verða hér að kaupa eða taka til uppboðs!
Verða til viðtals á Hótel Reykjavík á morgun
föstudag 17:00 - 19:00 og laugardag 10:00 - 12:00
Erum á
Íslandi í
þrjá daga!
HUGMYNDINA að æskulýðshátíð á
Garðar Hreinsson sem hefur verið
umsjónarmaður Skógarhóla um
nokkurt skeið. Auður Möller sagði
hann hafi komið með hana til æsku-
lýðsnefndar LH í hitteðfyrra og vildi
drífa í að halda mótið. Æskulýðs-
nefndin taldi betra að bíða með að
halda mótið í eitt ár svo tími gæfist til
skipulagningar. Auk þess var talið að
upplýsingar um mótið þyrftu að kom-
ast tímanlega inn í Mótaskrá LH.
Ákveðið var að halda hátíðina dag-
ana 20.–22. júlí í sumar, sem reyndist
vera ein af fáum helgum sumarsins
þar sem börn eru ekki að keppa á mót-
um. Ástæðan fyrir því er m.a. sú að
sömu helgi verður haldið Íslandsmót
fullorðinna og ungmenna í hesta-
íþróttum. Mótið verður reyndar haldið
í Mosfellsbæ og því ekki langt á milli.
Hvert félag með liðsstjóra
og setji upp búðir
Nú hefur nefndin sent öllum æsku-
lýðsfulltrúum hestamannafélaganna
á landinu bréf þar sem mælst er til
þess að þeir sjái um að kynna mótið í
sínum félögum. Auður sagði að hún
hafi frétt að því miður hafi bréfið ekki
komist í réttar hendur í öllum félög-
um. „Við treystum því að á þessu
verði gerð bragarbót og munum
senda út nánari upplýsingar eftir
helgina. Meðal annars mælumst við
til þess í bréfinu að hvert félag skipi
liðsstjóra, þau setji upp búðir á móts-
stað eins og t.d. á skátamótum, merki
þær með fánum félagsins og veifum
og gaman væri ef félögin geta boðið
upp á samstæðar peysur fyrir sína
félagsmenn.“
Auður segir Æskulýðsmótið ætlað
allri fjölskyldunni, börnum, foreldr-
um og öfum og ömmum og hugsað
sem kjörið tækifæri til að koma sam-
an og eyða helginni við leik og
fræðslu, grín og gaman í fallegu um-
hverfi Skógarhóla. Þeir sem vilja
koma ríðandi eða með hesta á kerru
geta gert það, því beitarhólf eru til
staðar og auðvitað næg tjaldstæði
fyrir fólkið. Ætlast er til að öll börn
verði á ábyrgð foreldra sinna eða liðs-
stjóra. Engin aldurstakmörk verða og
því er rennt blint í sjóinn með fjölda
þátttakenda. Greiða verður fyrir
tjaldstæði og beitarhólf, en annars
verður reynt að halda öllum kostnaði
mjög í hófi.
Þótt dagskráin sé ekki fullmótuð er
gert ráð fyrir að fólk komi á svæðið á
föstudagskvöldið hvort sem það kem-
ur ríðandi eða akandi. Eftir að búið er
að tjalda er frjáls dagskrá en ætlunin
er að bjóða upp á heitt kakó fyrir
svefninn .
Eiginleg dagskrá verður á laugar-
deginum og eru margar hugmyndir
um hana. Eitt er víst, að sögn Auðar,
að nóg verður að gera svo mótsgestir
verða að gera ráð fyrir að fara
snemma á fætur. Líklega verður farið
í útreiðartúr um gamlar reiðleiðir í
þjóðgarðinum á Þingvöllum. Þá verð-
ur farið í ýmsa leiki og keppt t.d. í
reiptogi o.fl. Þeir sem vilja keppa á
hestum geta væntanlega tekið þátt í
þrautakeppni sem að öllum líkindum
verður boðið upp á. Þá eru hugmyndir
um að biðja kynbótadómara að koma
á svæðið og kynna fyrir börnunum
hvernig kynbótadómar fara fram.
Þátttakendum verður síðan leyft að
spreyta sig og þeir sem komast næst
dómaranum í einkunnagjöf fá verð-
laun.
Sameiginlegt grill verður um
kvöldið og kvöldvaka þar sem hvert
félag getur troðið upp með sitt atriði.
Vonandi fyrsta af mörgum
Æskulýðsmótum
Skipuð hefur verið framkvæmda-
nefnd mótsins og í henni eru þau
Garðar Hreinsson staðarhaldari
Skógarhóla, Ester Harðardóttir
Fáki, Helga B. Helgadóttir æskulýðs-
nefnd LH, Hulda Þórðardóttir Herði,
Rosmarie Þorleifsdóttir Smára, Sig-
urrós Jóhannsdóttir Sleipni, Ástríður
Guðjónsdóttir Mána og Tryggvi Að-
albjarnarson Gusti.
Auður segist vona að sem flest
félög sjái sér fært að skipuleggja þátt-
töku sinna félagsmanna. Barna- og
unglinganefndir þeirra eru einnig
hvattar til að skipuleggja hópreið á
mótið, eða jafnvel að keyra hrossin á
ákveðinn stað í hæfilegri fjarlægð frá
Skógarhólum og koma ríðandi þaðan.
Hún vonast eftir góðri þátttöku og að
þetta verði fyrsta af mörgum Æsku-
lýðsmótum á Skógarhólum.
Ungt hestafólk skundar
á Þingvöll í sumar
Búast má við gleði og
glaumi á Skógarhólum í
sumar þegar ungt
hestafólk landsins safn-
ast þar saman ásamt
fjölskyldum sínum á
Æskulýðsmóti Lands-
sambands hestamanna-
félaga. Ásdís Haralds-
dóttir leitaði til Auðar
Möller, formanns æsku-
lýðsnefndar LH, til að fá
nánari upplýsingar.
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Ungu hestafólki á Íslandi býðst að koma saman á Æskulýðsmóti á Skógarhólum í sumar.
Kannski ætla þessir hressu krakkar í Borgarfirðinum að mæta?
MÓTASKRÁ Landssambands
hestamannafélaga er nú aðgengi-
leg á heimasíðu samtakanna. Á
undanförnum misserum hefur
skrifstofa LH séð um að uppfæra
hana með reglulegu millibili.
Að sögn Sigrúnar Ögmundsdótt-
ur hjá LH vantar töluvert upp á að
mótaskráin sé nýtt eins og til stóð.
Sum af minni hestamannafélögun-
um hafa ekki sent inn upplýsingar
og einnig skila breytingar sér illa.
Hún sagðist vilja benda forráða-
mönnum hestamannafélaganna á
að nú sé orðið mjög auðvelt að
bæta inn upplýsingum og gera
breytingar á mótaskránni. Því
ættu hestamenn endilega að not-
færa sér þessa þjónustu sem auk
þess er ókeypis og koma öllum
mótaupplýsingum til skrifstofunn-
ar.
Sigrún sagði að greinilegt væri
að hin nýja heimasíða Landssam-
bandsins, www.lhhestar.is, væri
mikið notuð. Þar er að finna auk
mótaskrárinnar allar upplýsingar
um hestamannafélögin, nefndir á
vegum LH, stjórn og fleira og síð-
ast en ekki síst væru þar allar nýj-
ustu reglur og lög LH. Hún sagðist
finna mikinn mun frá því á síðasta
ári hversu fólk væri ánægt með að
geta gengið að þeim á netinu.
Vannýtt mótaskrá
Landssambands
hestamannafélaga
HESTAMENN eru mótaglaðir um
þessar mundir. Að minnsta kosti 6
félög ætla að halda mót eða aðrar
uppákomur um helgina.
Hörður í Mosfellsbæ heldur
Íþróttamót MR búðarinnar á Varm-
árbökkum á föstudag og laugardag,
Léttfeti á Sauðárkróki verður með
firmakeppni í Flæðigerði á laugar-
dag og sama dag heldur Skuggi í
Borgarnesi íþróttakeppni á Vindási.
Sörli í Hafnarfirði og Gustur í Kópa-
vogi verða með íþróttamót á laug-
ardag og sunnudag. Sörli á Sörla-
völlum og Gustur í Glaðheimum.
Þá verður miðnæturtöltmót hjá
Fáki í Reykjavík á laugardagskvöld-
ið. Keppt verður í nokkrum flokkum
en aðallega verður lögð áhersla á
glens og gaman. Byrjað verður á að
grilla kl. 19.00 og um klukkustund
síðar hefst keppni. Keppnisfyrir-
komulag verður frjálslegt og verður
ekki amast við því ef keppendur
koma inn í miðja keppni. Samkvæmt
upplýsingum sjá ólöglegir dómarar
um dómgæsluna og tekið var fram
að ekki verður tekið við kærum.
Mótið er öllum opið og skráning
verður á staðnum. Gert er ráð fyrir
að úrslit ráðist þegar líða tekur að
miðnætti.
Íþróttamót,
firmakeppni
og mið-
næturtölt
HEILDARFJÖLDI útfluttra
hrossa frá áramótum til 15.
maí á þessu ári er 691 hross.
Þetta eru 116 fleiri hross en
flutt höfðu verið út á sama
tíma í fyrra, en 31 færra en á
sama tíma árið 1999. Þó ber að
hafa í huga að 84 hross eru á
leið til Kanada eftir helgina
sem hækkar heildarfjöldann
upp í 775.Það vekur athygli
þegar samanburður er gerður
á milli ára að árið 1999 höfðu
hross verið flutt til 14 landa og
13 landa árið 2000. Á þessu ári
hafa hross verið flutt til 10
landa og það 11. er að bætast
við. Einnig vekur athygli að út-
flutningur til Finnlands eykst
mikið á milli ára og einnig til
Noregs, en líklegt er að þar
hafi niðurfelling á tollum haft
áhrif.
Mesta athygli vekur þó að
svo virðist sem eftirspurn eftir
íslenskum hrossum í Banda-
ríkjunum og Kanada sé mikið
að aukast, ef marka má út-
flutning þangað það sem af er
þessu ári.
Útflutningur hrossa frá Ís-
landi frá áramótum til 15. maí
árin 1999 – 2001 skiptist þann-
ig á milli landa:
Land 1999 2000 2001
Austurríki 2 6
Belgía 6
Kanada 17 4
Sviss 67 35 50
Þýskaland 197 144 153
Danmörk 77 71 56
Finnland 15 28 61
Frakkland 2
Bretland 7 4
Ítalía 3 1
Holland 21 34 19
Noregur 49 32 92
Svíþjóð 216 176 161
Slóvenía 1 1
Bandaríkin 48 39 93
Heildarfj. 722 575 691
Útflutn-
ingur
gengur vel
NETVERSLUN Á mbl.is
Brusi
aðeins kr.400