Morgunblaðið - 18.05.2001, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRSREIKNINGAR Reykjavíkur-
borgar fyrir árið 2000 voru lagðir
fram til fyrri umræðu í borgar-
stjórn í gær. Borgarsjóður skilaði
tekjuafgangi upp á 1,9 milljarða
króna, ef ekki er tekið tillit til líf-
eyrisskuldbindinga upp á 952 millj-
ónir. Ásamt lífeyrisskuldbindingum
nemur tekjuafgangurinn því tæp-
um milljarði króna, eða 967 millj-
ónum.
Á blaðamannafundi með Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur borg-
arstjóra í gær kom fram að þetta
væri langbesti árangur sem náðst
hefði í rekstri borgarsjóðs um ára-
bil. Þetta væri annað árið í röð sem
borgarsjóður skilaði tekjuafgangi
og hefði hann að mestu verið nýtt-
ur til að greiða niður skuldir.
Í skýrslu Borgarendurskoðunar
með ársreikningnum kemur m.a.
fram að breytt vinnubrögð við gerð
fjárhagsáætlunar og starfsáætlana
hafi skilað þeim árangri að sérlega
góð fylgni sé milli útkomu og fjár-
hagsáætlunar.
Borgarstjóri sagði meginniður-
stöðu ársreiknings vera þá að
þriðja árið í röð væru frávik frá
fjárhagsáætlun óveruleg. Skatt-
tekjur borgarinnar á síðasta ári
námu 21,3 milljörðum króna sem
er 170 milljónum umfram áætlun,
eða 0,8%. Rekstur málaflokka og
fjárfestingar nettó voru samtals 13
milljónir yfir áætlun eða 0,07%.
„Þarna hefur tekist mjög vel til.
Frávikin frá fjárhagsáætlun eru
óveruleg og langt innan skekkju-
marka. Það skýrist fyrst og fremst
af því að fjármálastjórnunin hefur
gjörbreyst á síðastliðnum tveimur
árum þar sem stofnunum okkar er
úthlutað römmum. Þær hafa frjáls-
ræði innan rammans og reynslan
sýnir að forstöðumenn stofnana og
nefndir borgarinnar eru þeim
vanda vaxin og hafa staðið sig
mjög vel,“ sagði Ingibjörg Sólrún.
Stóraukin vaxta-
byrði skulda
Samkvæmt ársreikningunum
lækkuðu heildarskuldir borgar-
sjóðs að þessu sinni um tæpa 1,5
milljarða að raungildi. Heildar-
skuldir í árslok námu 13,9 millj-
örðum en voru 14,7 milljarðar á
árinu 1999. Af heildarskuldum árs-
ins 2000 voru 10,7 milljarðar lang-
tímaskuldir, eða 77%, þar af 41% í
erlendri mynt. Vegna lækkunar
krónunnar um tæp 10% á árinu
2000 urðu áfallnar verðbætur og
gengismunur langtímaskulda 408
milljónir umfram almennar verð-
breytingar. Raunvextir heildar-
skulda borgarsjóðs voru 6,46%
samanborið við 0,67% á árinu 1999.
„Þarna eru teikn á lofti sem
gætu orðið enn meira afgerandi á
þessu ári. Við höfum áhyggjur af
því, líkt og aðrir sem reka fyr-
irtæki, að raunvextir skulda okkar
hækka vegna gengisbreytinga,“
sagði borgarstjóri um fjármagns-
liðinn.
Skuldir sem hlutfall af skatt-
tekjum lækka úr 75,8% í 64,5%
milli ára, ef lífeyrisskuldbindingar
eru ekki teknar með. Skuldir á
hvern íbúa lækka um 15 þúsund
krónur, eða niður í 126 þúsund
krónur, og sagði borgarstjóri að
þessar lykiltölur hefðu ekki verið
svo hagstæðar í mörg ár.
Rekstur málaflokka sem hlutfall
af skatttekjum hækkaði úr 79% á
árinu 1999 í 81,2% í fyrra. Árin á
undan nam þetta hlutfall 83–85%.
Á síðasta ári námu launagreiðslur
alls tveimur þriðju hluta rekstr-
arútgjalda málaflokka. Heildarlaun
hækkuðu um 2,9% en meðallaun
um 7,1%. Ársverkum fækkaði.
Í tilkynningu frá Reykjavíkur-
borg kemur einnig fram að á árinu
2000 hafi peningaleg staða borg-
arsjóðs, án lífeyrisskuldbindinga,
batnað um 1,2 milljarða að raun-
gildi. Með skuldbindingum versn-
aði hún hins vegar um 1 milljarð.
Helsta skýringin er sögð 2,3 millj-
arða hækkun lífeyrisskuldbindinga
vegna leiðréttinga á forsendum út-
reikninga fyrri ára.
Aukning heildarskulda
um 14 milljarða
frá árinu 1996
Samstæðureikningur, sem er
samandreginn rekstar- og efna-
hagsreikningur borgarsjóðs
Reykjavíkur og fyrirtækja hans,
var einnig kynntur í gær. Sam-
kvæmt þeim reikningi jukust pen-
ingalegar eignir um 2,6 milljarða
og skuldir um rúma 6 milljarða að
raungildi. Peningaleg staða án líf-
eyrisskuldbindinga versnaði því um
3,5 milljarða og 6,6 milljarða ef líf-
eyrisskuldbindingar eru taldar
með. Heildarskuldir samstæðunn-
ar, án lífeyrisskuldbindinga, námu
35,8 milljörðum í árslok 2000 og
eins og sjá má á meðfylgjandi töflu
hafa skuldirnar aukist um 14 millj-
arða frá árinu 1996 þegar þær
námu rúmum 21 milljarði króna.
Sú breyting var gerð á sam-
stæðureikningi Reykjavíkurborgar
í fyrra að ársreikningar byggða-
samlaganna; Slökkviliðsins og
Sorpu, voru felldir inn í reikning-
inn. Hið sama má segja um fleiri
fyrirtæki, s.s. Aflvaka, Línu.Net,
Hitaveitu Þorlákshafnar og Stál-
smiðjuna Slippstöðina. Í reikningn-
um eru nú öll fyrirtæki sem borg-
arsjóður eða fyrirtæki borgarsjóðs
eiga meirihluta í.
Skuldaaukning samstæðureikn-
ings er einkum rakin til lántöku
Orkuveitu Reykjavíkur upp á tæpa
4 milljarða vegna fjárfestinga í
virkjunum og veitukerfum, sem og
greiðslu af skuldabréfi til borgar-
sjóðs. Lántaka vegna dótturfyrir-
tækja Orkuveitu Reykjavíkur nam
1,7 milljörðum króna og fór mest
af þeim fjármunum til uppbygg-
ingar á ljósleiðara-, örbylgju- og
tetrakerfum Línu.Nets.
Afgreiða á ársreikning Reykja-
víkurborgar í síðari umræðu á
fyrsta fundi borgarstjórar í næsta
mánuði.
Ársreikningar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2000 lagðir fram í borgarstjórn
Tekjuafgangur borgar-
sjóðs 1,9 milljarðar
!
""# $
%% #
$#" #
$$ "
!"" !
&'#" "
&'$% "
&!"'"
$
" '
%%' !
%'" %
#
!!$%
&!! $
&"!" '
&!#%
$ !
%%!
%#
$"" %
!'%#
!!$
&$$
&'#! !
&'!!%
#" $
#
%#! !
#$%"
!! #
'%"#'
&#"$
&"#! %
&''#
!
'#% $
'%$ #
'# %
!""
'$!
&!!#$
&#!"'
&'
! "
Morgunblaðið/Þorkell
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri kynnti ársreikninginn 2000
ásamt Helgu Jónsdóttur borgarritara, Önnu Skúladóttur fjármálastjóra
og Óskari Óskarssyni, aðalbókara borgarinnar, sem vann nú við síðasta
ársreikninginn þar sem hann hættir fyrir aldurssakir í sumar eftir 30
ára starf hjá borginni.
FORSTÖÐUMAÐUR samkeppnis-
sviðs Samkeppnisstofnunar, Guð-
mundur Sigurðsson, er ósáttur við
þá gagnrýni sem Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra hefur sett
fram á umbeðna rannsókn stofnun-
arinnar um verðmyndun innflutts
grænmetis. Í blaðinu í gær sagði ráð-
herra að niðurstöður Samkeppnis-
stofnunar væru ruglingslegar og
óljósar og hefur hann beðið ráðgjafa-
nefnd sína um inn- og útflutning
landbúnaðarafurða að funda með
stofnuninni í dag.
Bréfið sem landbúnaðarráðherra
sendi Samkeppnisstofnun 30. mars
síðastliðinn hljóðar svo:
„Í tilefni fréttar sem birtist í
Morgunblaðinu 29. mars sl. um út-
söluverð á papriku hér á landi hefur
landbúnaðarráðherra ákveðið að
óska eftir eftirfarandi við Sam-
keppnisstofnun:
Að gerð verði rannsókn á verð-
myndun á innfluttri papriku (a.
grænni, b. öðrum litum), tómötum,
gúrkum, jöklasalati og öðru salati. Í
rannsókninni komi fram Fob-verð,
Cif-verð, kostnaðarverð (með tolli og
öðrum gjöldum) og smásöluverð.
Rannsóknin nái yfir tímabilið frá 1.–
15. mars annars vegar og 16.–30.
mars hins vegar.
Þess er vænst að rannsókninni
verði hraðað eftir föngum.“
Bentum á ýmsa fyrirvara
Guðmundur segist telja að Sam-
keppnisstofnun hafi kannað það sem
um var beðið. „Í niðurstöðum okkar
leggjum við á það áherslu að könnun
okkar nær yfir stutt tímabil, líkt og
óskað var eftir af ráðherranum. Af
þeim sökum gerðum við þann fyr-
irvara að ekki mætti draga of víð-
tækar ályktanir af okkar könnun.
Niðurstaða okkar ber keim af þeim
upplýsingum sem var aflað. Við
leggjum áherslu á það í skýrslunni
að verðlagning og kostnaður á þess-
um vörum er mjög sveiflukennt frá
degi til dags og jafnvel innan hvers
dags. Við gerum ýmsa aðra fyrirvara
og bendum á þá í okkar skýrslu.
Ráðherra talar um að það vanti cif-
verð grænmetisins en við tökum
fram að aðeins einn heildsali af
þremur hafi gefið upp cif-verð á ein-
stökum tegundum grænmetis. Aðrir
gáfu upp cif-verð á einstökum vöru-
sendingum sem erfitt er að heim-
færa á einstakar grænmetistegund-
ir. Af öðrum tæknilegum ástæðum,
svo sem samningum innflytjenda við
skipafélög, getur verið ómögulegt að
finna cif-verð á einstökum tegundum
í einstökum vörusendingum. Við tök-
um skýrt fram að við staðreyndum
þær upplýsingar sem við fengum. Ef
það var ekki staðreynt með innflutn-
ingsskjölum fengum við yfirlýsingar
frá löggiltum endurskoðendum.“
Samkeppnisstofnun ósátt við gagnrýni landbúnaðarráðherra
Könnuðum það
sem um var beðið
BÚIST er við að atkvæðagreiðsla
um verkfallsboðun Félags frétta-
manna hefjist fljótlega eftir helgi, en
félagið samþykkti á fundi sínum á
miðvikudag, að hefja undirbúning að
verkfallsboðuninni. Verði verkfalls-
boðunin samþykkt hefst tvisvar
sinnum tveggja daga verkfall frétta-
manna síðari hluta júnímánaðar, ef
ekki nást samningar við samninga-
nefnd ríkisins og fulltrúa RÚV. 60
félagsmenn eru í Félagi frétta-
manna.
Félag fréttamanna
Áformar að
boða verkfall
♦ ♦ ♦
UMRÆÐUR fóru fram á borgar-
stjórnarfundi í gærkvöldi þar sem
borgarstjóri kynnti skýrslu yfir
ársreikninga Reykjavíkurborgar.
Inga Jóna Þórðardóttir gagnrýndi
niðurstöður skýrslunnar, sagði
meðal annars að skatttekjur, sem
hefðu aukist um 6 milljarða, hefðu
ekki verið notaðar til að stöðva
skuldasöfnun Reykjavíkurborgar
eða til að greiða niður skuldir.
Meirihlutinn hefði ekki notað þau
tækifæri sem buðust vegna góð-
æris og aukinna skatttekna, til að
búa í haginn fyrir framtíðina en
búast megi við að tekjur dragist
saman á þessu ári.
Inga Jóna sagði að útgjöld borg-
arinnar hafa aukist langt umfram
verðlagshækkanir, engin viðleitni
væri sýnd til að halda aftur af út-
gjöldum nema í einstökum mála-
flokkum eins og málefnum aldr-
aðra þar sem útgjöld hefðu ekki
hækkað heldur lækkað. Þá lagði
hún til að reikningar í sambandi
við fjárfestingar í Línu.Net yrðu
skoðaðar nánar og óskaði eftir
skýringum á reikningum varðandi
þær þar til seinni umræða um árs-
skýrslu færi fram. Þá sagði hún að
Orkuveita Reykjavíkur væri neydd
til að taka erlend lán vegna út-
gjaldaþenslu meirihlutans. Hún
gagnrýndi ennfremur hve árs-
reikningarnir væru seint á ferð.
Mikil
skulda-
aukning í
Reykjavík
Oddviti
sjálfstæðismanna