Morgunblaðið - 18.05.2001, Page 20

Morgunblaðið - 18.05.2001, Page 20
SUÐURNES 20 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ MIKIÐ var að gera við höfnina í Sandgerði í fyrrakvöld, þegar menn voru að drífa sig á sjó eftir langt verkfall. Í Sandgerðishöfn lágu tveir togarar, fjórir trollbátar, einn línubátur, tíu netabátar og fimm eða sex snurvoðarbátar. Skip- verjar á Baldri áttu eftir að bæta snurvoðina. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Fara á sjó Sandgerði BÆJARRÁÐ Reykjanesbæjar hef- ur ákveðið að ganga til samninga við skólastjóra grunnskóla bæjarins um rekstur skólanna í þrjú ár, frá upp- hafi næsta skólaárs, á grundvelli samningsstjórnunar. Fá skólastjór- arnir aukið frjálsræði í rekstri um leið og fjármagn til stjórnunar er aukið. Fulltrúar meirihlutans í bæj- arráði samþykkti tillöguna og annar fulltrúi Samfylkingarinnar en hinn fulltrúi Samfylkingarinnar greiddi atkvæði á móti. Skúli Þ. Skúlason, forseti bæjar- stjórnar Reykjanesbæjar, segir að megináhersla hafi verið lögð á upp- byggingu skólanna á þessu kjör- tímabili. Fjárfest hafi verið fyrir tvo milljarða á tveimur árum. Byggður nýr grunnskóli, Heiðarskóli, og lagt í mikinn kostnað við endurbætur á hinum skólunum þremur til þess að gera aðbúnað nemenda þeirra sam- bærilegan. Í framhaldi af þessu hafi verið ætlunin að styrkja innra starf skólanna og tillaga meirihlutans, sem samþykkt var í bæjarráði í gær, sé liður í því. Á vegum bæjaryfirvalda hefur verið undirbúið í eitt ár að taka upp samningsstjórnun í grunnskólum bæjarins, að sögn Eiríks Her- mannssonar skólamálastjóra. Því var frestað fram yfir kjarasamninga kennara. Þar komu inn ákvæði um aukna áherslu á stjórnun í skólunum með svokölluðum deildarstjórum. Samsvarar það einu stöðugildi í hverjum grunnskóla Reykjanesbæj- ar. Betri skólar Í samþykkt bæjarráðs í gær felst að skólastjórarnir eru ekki bundnir af deildarstjóratitlinum heldur geta ráðstafað fjármagninu til að styrkja stjórnsýslu skóla síns á annan hátt. Að sögn Ellert Eiríkssonar bæjar- stjóra geta skólastjórarnir farið mis- munandi leiðir í þessu efni, eftir að- stæðum á hverjum stað, þeir gætu til dæmis ráðið agastjóra eða stigs- stjóra, ef það væri talið henta betur. Skólastjórarnir eiga að skila nýju skipuriti fyrir skólana til skólaráðs ásamt starfslýsingum fyrir alla stjórnendur. Teknar verða upp samningavið- ræður við skólastjórana um rekstur skólanna næstu þrjú árin og er mið- að við að byrjað verði að vinna eftir þeim 1. ágúst næstkomandi. Samn- ingurinn mun hafa það að markmiði að auka rekstrarlegt sjálfstæði skól- anna, eins og segir í samþykktinni, stuðla að aukinni hagkvæmni í rekstri og skapa þannig svigrúm til umbóta í skólastarfi. Skúli segir að skólarnir fái með þessu fjárhagslegt sjálfstæði. Ef þeir sýni hagnað geti þeir nýtt af- ganginn árið eftir. Sömuleiðis geti þeir átt von á að hafa úr minna fjár- magni að spila ef þeir fari fram úr fjárveitingum. Jafnframt verði gerð- ir samningar um fagleg markmið. Fram fari mat á starfinu og bæj- aryfirvöld muni hafa eftirlit með því. Ellert bæjarstjóri segir að með samningsstjórnun færist ákvarðanir meira inn í skólana. Vonast hann til þess að með því fáist betri skólar, skilvirkari stjórnun og vonandi betri námsárangur. Skólastarfi stefnt í voða Jóhann Geirdal, efsti maður á lista Samfylkingarinnar, greiddi at- kvæði á móti tillögu meirihlutans um stjórnun skólanna. Hann segir að tillaga um ráðningu deildarstjóra hafi lengi legið fyrir bæjarráði en vegna seinagangs í meirihlutanum hafi hún ekki verið afgreidd. Þetta sé mikilvægur liður í undirbúningi fyrir næsta skólaár. Stundatöflur hafi átt að liggja fyrir í apríl. Þessi slugsháttur geri allan undirbúning erfiðari. Nú komi meirihlutinn með tillögu um að blanda inn í þetta samningum um samningsstjórnun og það verði til að tefja málið enn frekar. Eðlilegra hefði verið að af- greiða deildarstjóratillöguna nú og hefja síðan vinnu við samnings- stjórnun. Telur hann að með þessum vinnubrögðum sé meirihlutinn að stefna skólastarfi næsta vetur í voða. Eiríkur Hermannsson skólamála- stjóri telur að undirbúningur næsta skólaárs geti gengið eðlilega fyrir sig. Skólastjórarnir hafi fylgst með umræðum um samningsstjórnunina og þeir hafi unnið að undirbúningi tillagna um eflingu stjórnsýslu hvers skóla fyrir sig, þótt endanleg ákvörðun hafi ekki legið fyrir fyrr. Samþykkt að ganga til viðræðna um stjórnun og rekstur grunnskóla Reykjanesbæjar Skólastjórar fá aukið faglegt og fjárhagslegt svigrúm Reykjanesbær FELIX Bergsson leikari var í Grindavík á dög- unum að fræða unglinga um um- burðarlyndi. Felix flutti atriði úr leikritinu „Hinn fullkomni jafn- ingi“ en sá einleik- ur var settur upp í Íslensku óperunni í fyrra og ræddi síðan við unglingana í 8.–10. bekk. „Ég er hér á eigin vegum en hér er þó á ferðinni leikhópurinn „Á sen- unni“ í samvinnu við samtökin ’78. Það sem kemur krökkunum mest á óvart er að þau fá ekki kynlífsfræðslu heldur er ég hér til að ræða við þau um umburðarlyndi. Ég kem hér sem tveggja barna faðir í vesturbænum en ekki sem perrinn á Vesturgötunni,“ sagði Felix. Tilgangurinn er að sögn Felix að samkynhneigðir verði teknir út úr af- brigðilega kaflanum í kynlífs- fræðslunni og lífsleikni gefur þessa möguleika að ræða þessi mál. „Frá- bært að fara í skólana, krakkarnir opnir og tilbúnir að ræða og skilja. Ég upplifi það mjög sterkt í skólunum að menn vilja nýta þessa lífsleiknitíma til að ræða m.a. þessi mál,“ sagði Felix Felix Bergsson leikari Ræðir um um- burðarlyndi Grindavík Felix Bergsson TILNEFNINGAR hafa borist bæj- aryfirvöldum um listamann Reykja- nesbæjar en bæjarstjóri auglýsti eft- ir hugmyndum á dögunum. Og fleiri geta átt eftir að bætast við. Listamaður Reykjanesbæjar er útnefndur 17. júní og ber nafnbótina í fjögur ár. Bæjarstjóri kynnti framkomnar tillögur á bæjarráðsfundi í gær og síðar eiga menningarfulltrúi og fulltrúar í menningar- og safnaráði kost á að bæta við hugmyndum. Tilnefningar um listamenn Reykjanesbær „ÞEIR virtust hafa áhuga á að fá fyrirtækið til sín og það hefur mikið að segja þegar maður finnur sig vel- kominn,“ segir Sævar Svavarsson, framkvæmdastjóri vélsmiðjunnar Norma hf. í Garðabæ. Fyrirtækið mun flytja starfsemi sína í Voga á Vatnsleysuströnd, væntanlega í hús á nýja iðnaðarsvæðinu, um næstu áramót. Normi er yfir fjörutíu ára gamalt fyrirtæki. Það rekur vélsmiðju og plastverksmiðju í húsnæði sem áður tilheyrði skipasmíðastöðinni Stálvík í Garðabæ. Í vélsmiðjunni er mest unnið við þunga stálhluti, meðal ann- ars fyrir stóriðjufyrirtæki. Plast- verksmiðjan sem rekin er undir nafninu Norm-X hf. framleiðir fiski- ker og heita potta. Starfsmenn hafa verið á bilinu 20 til 40 en eru við lægri mörkin nú, að sögn framkvæmdastjórans. Þar af er um fjórðungur af Suðurnesjunum og réði það nokkru um áhuga fyrirtæk- isins að flytja starfsemina þangað. Undirbúa húsbyggingu Normi hf. seldi húsnæðið í Garða- bæ, en þar er fyrirhugað að byggja upp svokallað Bryggjuhverfi, og þarf að skila húsnæðinu af sér um ára- mót. „Við höfum verið að skoða lóðir og niðurstaðan var að fara í Vogana,“ segir Sævar. Fyrirtækið mun í upp- hafi reisa 2000 fermetra verksmiðju- hús og er verið að undirbúa það. Vonast Sævar til að unnt verði að taka húsnæðið í notkun um áramót- in. Hefur hann trú á því að mörg fyr- irtæki muni flytja starfsemi sína á svæðið á næstu árum, það er að segja svæðið milli Hafnarfjarðar og Voga, það muni kannski gerast á næstu tuttugu árum. Vélsmiðjan Normi flytur í Vogana Vogar SKIPULAGT hefur verið nýtt iðn- aðarsvæði í Vogum á Vatnsleysu- strönd. Er gert ráð fyrir stórum lóð- um á svæðinu og að þar verði fekar grófur iðnaður. Þegar er búið að út- hluta vélsmiðjunni Norma hf. í Garðabæ 20 þúsund fermetra lóð. Vatnsleysustrandarhreppur hefur staðið í miklu markaðsátaki til að fjölga íbúum sveitarfélagsins. Hefur lóðum undir 140 íbúðir verið úthlutað, unnið við gatnagerð, stækkun leik- skóla og átak gert í umhverfismálum. Enn eru til í þorpinu nokkrar smærri lóðir fyrir iðnaðarhúsnæði og segir Jóhanna Reynisdóttir sveitarstjóri að vegna þess hvað hreppsfélagið standi í miklum framkvæmdum hafi ekki verið á stefnuskránni að byggja nýtt iðnaðarsvæði fyrr en eftir tvö ár eða svo. Hreppsyfirvöld hafi hins vegar orðið þess vör að lítið væri eftir af stórum iðnaðarlóðum á höfuðborgar- svæðinu og þegar Normi hf. hefði sýnt áhuga á að fá lóð í Vogum hefði verið ákveðið að nýta þessar aðstæð- ur til að koma upp nýju iðnaðarsvæði. 200 þúsund fermetra svæði Vatnsleysustrandarhreppur hefur gert samning um kaup og kauprétt á óskiptu landi Vogajarða, norðaustan Vogabrautar sem liggur frá Reykja- nesbraut að Vogum. Keyptir eru tæplega 54 þúsund fermetrar strax á um 10 milljónir kr. en kaupréttur fylgir á 150 þúsund fermetrum til við- bótar á sama einingaverði. Svæðið verður tengt núverandi iðnaðarsvæði með lengingu Iðndals og hringtorgi á Vogabraut. Gerð hefur verið tillaga að deili- skipulagi svæðisins og hún auglýst. Frestur til að skila inn athugasemd- um rennur út í byrjun júní. Gert er ráð fyrir stórum lóðum á iðnaðarsvæðinu og að þar verði frek- ar gróf atvinnustarfsemi. Þannig er stærsta lóðin 20 þúsund fermetrar og hefur henni verið úthlutað til Norma hf. Jóhanna sveitarstjóri segir að þeg- ar svæðið verður tilbúið verði ráðist í nýtt markaðsátak til að selja atvinnu- lóðirnar og nokkrar íbúðarhúsalóðir í þorpinu. Nýtt iðnaðarsvæði á Vatnsleysuströnd Stórar lóðir fyrir grófari atvinnustarfsemi Vogar                    ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.