Morgunblaðið - 18.05.2001, Síða 24
Guðmundur Runólfsson hf. birtir
þriggja mánaða uppgjör
TAP Guðmundur Runólfssonar hf.,
fiskvinnslu og útgerðar í Grundar-
firði, nam 20,2 milljónum króna á
fyrstu þrem mánuðum ársins. Hagn-
aður fyrir afskriftir og vexti
(EBITDA) nam 70,6 milljónum og
var tæp 24% af veltu á sama tímabili.
Allt árið í fyrra nam tap á rekstri
félagsins 63,3 milljónum króna.
Fram kemur í tilkynningu frá
félaginu að framlegð sé betri en
stjórnendur hafi áður séð en geng-
istap vegna veikingar íslensku krón-
unnar sé ástæða þess að tap sé á
rekstri félagsins. Gengistap vegna
erlendra lána var 45,9 milljónir á
tímabilinu.
Eiginfjárhlutfall var 16,3% 31.
mars síðastliðin og nam eigið fé
félagsins 380 milljónum. Arðsemi
eiginfjár var neikvæð um 5,11%
fyrstu þrjá mánuði ársins.
Meðalfjöldi starfa hjá Guðmundi
Runólfssyni hf. var 106 á tímabilinu
en félagið er skráð á vaxtarlista
Verðbréfaþings Íslands og er áætlað
markaðsvirði félagsins um 745 millj-
ónir króna.
Tap 20,2
milljónir króna
VIÐSKIPTI
24 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
PHARMACO hf. skilaði 451 milljón
króna í hagnað á fyrsta fjórðungi árs-
ins. Til samanburðar var hagnaður
alls ársins í fyrra 893 milljónir króna,
en ekki eru til sambærilegar tölur fyr-
ir fyrsta fjórðung í fyrra þar sem
Pharmaco hefur stækkað mikið frá
þeim tíma, aðallega vegna samruna
við Balkanpharma, en í tengslum við
það var hlutafé aukið um 170%.
Tekjur tímabilsins voru 3,6 millj-
arðar króna og framlegð af vörusölu
var 34%, sem er hækkun úr 31% fyrir
allt árið í fyrra.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði nam 943 milljónum króna á
fyrsta fjórðungi ársins en var 1.990
milljónir króna allt árið í fyrra. Þetta
þýðir að sem hlutfall af tekjum hækk-
aði hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði úr 18% í 26%.
Hrein fjármagnsgjöld félagsins
námu 141 milljón króna. Þar af voru
vaxtatekjur jákvæðar um 109 millj-
ónir króna, en vaxtagjöld og verðbæt-
ur neikvæð um 106 milljónir króna og
gengismunur neikvæður um 169
milljónir króna. Tekjuskattur félags-
ins nam 216 milljónum króna.
Mikil aukning skammtímakrafna
Efnahagsreikningur félagsins
hækkaði úr 11,4 milljörðum króna um
áramót í 12,5 milljarða króna í lok
mars, eða um tæp 10%. Eignamegin
varð mest aukning í skammtímakröf-
um. Þær hækkuðu um 937 milljónir
króna og að sögn forstjóra félagsins,
Sindra Sindrasonar, á kynningar-
fundi sem félagið hélt í gær, stafar
þessi aukning bæði af auknum um-
svifum og af því að búlgarska ríkið
hefur breytt um fyrirkomulag við
lyfjakaup. Þetta veldur því að ríkið
gefur sér nú lengri greiðslufrest en
áður, en sú breyting hefur aðeins
áhrif til hækkunar krafnanna í eitt
skipti. Þessi hækkun skammtíma-
krafnanna veldur því að þessu sinni
að handbært fé til rekstrar nemur 155
milljónum króna þó veltufé frá rekstri
nemi 715 milljónum króna. Í ársbyrj-
un átti félagið 642 milljónir króna í
handbæru fé, en það hafði hækkað í
1.184 milljónir króna í lok mars.
Eigið fé Pharmaco nam 5,7 millj-
örðum króna í lok mars og hafði
hækkað úr 4,8 milljörðum króna um
áramót. Eiginfjárhlutfall hækkaði úr
42,4% í 44,7% á tímabilinu og arðsemi
eigin fjár var 37,3%.
Afkoma umfram áætlanir
Söluaukning Pharmaco á Íslandi
nam um 12% á tímabilinu en sölu-
aukning erlendis í Bandaríkjadölum
nam 17,2%. Velta Pharmaco erlendis
nam 77% af heildarveltu tímabilsins
og hækkaði úr 69% fyrir árið 2000.
Reikningsskil Pharmaco eru nokkuð
flókin vegna mismunandi gjaldmiðla
sem notaðir eru innan samsteypunn-
ar. Stór hluti starfseminnar er í Búlg-
aríu og færist í þarlendri mynt, salan
er að meirihluta til í Bandaríkjadölum
og svo er Pharmaco hf. gert upp í ís-
lenskum krónum. Þetta veldur því að
áhrif hækkunar Bandaríkjadals
gagnvart krónu eru jákvæð í rekstri
félagsins og skýrir það að hluta til af-
komuna nú. Forstjóri félagsins sagði
þó að fleira kæmi til og að líklega yrði
afkoma félagsins yfir árið betri en
áætlanir höfðu gert ráð fyrir, jafnvel
þó litið væri til hagstæðrar gengis-
þróunar. Ekki væri þó hægt að gefa
upp tölur í því sambandi. Áætlanir
fyrir árið gerðu ráð fyrir 13 milljarða
króna veltu og 1,3 milljarða króna
hagnaðar eftir skatta.
Áhersla á markaðssetningu og sölu
Hjá stjórnarformanni félagsins,
Björgólfi Thor Björgólfssyni, kom
fram að Pharmaco hafi áhuga á að
kaupa lyfjafyrirtæki af sambærilegri
stærð erlendis sem passi vel við þær
vörur sem Pharmaco framleiðir nú.
Hann sagði að þetta væri í athugun og
að búast mætti við fréttum um þetta
efni síðar á árinu.
Björgólfur Thor sagði einnig að í
athugun væri að hefja samstarf við
rússneska aðila um stofnun keðju
lyfjaverslana þar í landi, en miklir
möguleikar væru í lyfsölu þar. Félag-
ið hefði áhuga á að einbeita sér að
dreifingu og markaðssetningu í stað
þess að fjárfesta í framleiðslutækjum
í Rússlandi, því á meðan tollar í Rúss-
landi væru ekki meiri hindrun en
raun bæri vitni kæmi betur út að nýta
verksmiðjur Balkanpharma í Búlgar-
íu, en framleiðslugeta þar væri næg.
Þá væri álagning í lyfjaverslunum í
Rússlandi há miðað við það sem við
ættum að kynnast og 60-70% lyfja séu
seld án lyfseðils, sem þýði að miklu
skipti að hafa öflugt dreifingarkerfi.
Sá möguleiki væri þó fyrir hendi að
setja upp verksmiðju í Rússlandi ef
aðstæður breyttust og vegna reynslu
sinnar ætti Pharmaco að geta gert
það með hagkvæmum hætti miðað við
aðra.
Gengi Pharmaco var 38,5 við lok
markaðar í gær og hafði hækkað um
1,3% frá fyrra degi. Mikil viðskipti
voru með bréfin, 406 milljónir króna í
44 viðskiptum.
Hagnaður samstæðu Pharmaco hf. 451 milljón króna á fyrsta fjórðungi ársins
Arðsemi eig-
in fjár 37,3%
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Björgólfur Thor Björgólfsson segir í athugun að kaupa annað lyfjafyrir-
tæki af svipaðri stærð og að setja upp keðju lyfjaverslana í Rússlandi.
KAUPFÉLAG Suðurnesja,
sem á um 85% hlut í Samkaup-
um, var rekið með 34 milljóna
króna hagnaði eftir skatt í fyrra
samanborið við 77,6 milljóna
króna hagnað árið áður. Rekstr-
artekjur ársins námu 3.254
milljónum króna á móti 2.868
milljónum árið áður, en í fyrra
voru Samkaup og Matbær sam-
einuð í eitt félag. Hagnaður af
reglulegri starfsemi var 61,4
milljónir en var 121,2 milljónir
árið áður. Rekstrartekjur Kaup-
félags og dótturfélaga námu
tæpum 3,3 milljörðum en voru
2,9 milljarðar árið áður. Rekstr-
argjöld námu 3,2 milljörðum á
móti 2,8 milljörðum árið áður.
Fjármagnsliðir voru neikvæðir
um 12,3 milljónir en árið áður
voru þeir jákvæðir um tæpar
tvær milljónir. Veltufé frá
rekstri nam 116,8 milljónum á
móti 134,5 milljónum árið áður.
Aukin velta
hjá Kaup-
félagi Suð-
urnesja
Kaupþing sækir um
viðskiptabankaleyfi
Morgunblaðið/ Ásdís
verið viðunandi, er hann ekki nægur
til að fjármagna þann mikla vöxt sem
er í fyrirtækinu.“
Hann segir Frjálsa fjárfestinga-
bankann, sem Kaupþing á 35% hlut í,
skipta töluverðu máli í þessu sam-
bandi en hann væri þó ekki eina
ástæðan fyrir útboðinu. Það tæki þó
þungt í eiginfjárhlutföll banka að eiga
hlut í öðrum banka.
Um gengi hlutabréfanna sem boðin
verða út segir Sigurður að það hafi
ekki verið ákveðið og verði ekki
ákveðið fyrr en rétt áður en útboðið
byrjar.
VÞÍ hefur samþykkt að taka nýtt
hlutafé til skráningar að útboði loknu,
enda hafi Kaupþing hf. uppfyllt öll
skilyrði skráningar.
KAUPÞING hf. tilkynnti í gær að
ákveðið hefði verið að sækja um við-
skiptabankaleyfi fyrir félagið.
Sigurður Einarsson, forstjóri
Kaupþings, segir að þær heimildir
sem er að finna í viðskiptabankalög-
unum gefi félaginu kost á að veita við-
skiptavinum sínum alhliða þjónustu.
Ekki standi þó til, að svo stöddu, að
fara í almenna viðskiptabankaþjón-
ustu, s.s. að opna útibú.
„Það er nú þannig að mjög víða er-
lendis, þá sérstaklega í löndum efna-
hagsbandalagsins, er ekki gerður
greinarmunur á því hvort um er að
ræða viðskiptabanka eða fjárfest-
ingabanka. Þar sem við höfum fullt
bankaleyfi, eins og í Lúxemborg, þar
höfum við viðskiptabankaleyfi líka.
Leyfið sem við erum að fá í Dan-
mörku, vonandi innan tveggja vikna,
það gerir engan greinarmun á við-
skiptabanka og fjárfestingabanka.“
Sigurður segir að í ljósi þessa hafi
þótt ótækt að vera ekki með fullt
bankaleyfi í móðurfélaginu. Kaupþing
tilkynnti einnig um hlutafjárútboð í
gær. Útboðið hefst eftir helgi og seld
verða til forgangsréttarhafa ný hluta-
bréf fyrir 200 milljónir króna að nafn-
virði. Seljist ekki allt hlutafé til for-
gangsréttarhafa mun það sem eftir
stendur verða selt til almennra fjár-
festa í byrjun júní.
Útboðsgengi hlutabréfa
ekki ákveðið
Sigurður segir markmiðið með út-
boðinu fyrst og fremst vera að styrkja
eiginfjárgrunn félagsins. Stjórn þess
hafi sett sér það markmið að eigin-
fjárhlutfallið verði í námunda við 12%
og ekki lægra en 11%, sem sé hærra
en flest önnur fjármálafyrirtæki hafa.
„Félagið hefur vaxið mikið að und-
anförnu og þó að hagnaðurinn hafi
FRÁ 1. maí sl. færist eignarhlutur
Baugs í Arcadia í hlutdeild sam-
stæðunnar í gegnum Baug Holding
og 20% af hagnaði félagsins færist á
rekstrarreikning Baugs. Markaðs-
verðmæti hlutarins er nú um 14
milljarðar króna en bókfært verð er
10 milljarðar. Þá er áætlað að hagn-
aður Arcadia á yfirstandandi fjár-
hagsári verði 6 milljarðar króna fyr-
ir skatta. Þetta kom fram á fundi
sem haldinn var í gær til kynningar
á Arcadia Group, sem Baugur á
fimmtungshlut í.
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, sagði þetta styrkja efnahag
Baugs verulega, kaupverð hlutarins
væri lægra en bókfært eigið fé Ar-
cadia og það lækkaði viðskiptavild í
bókum Baugs. Hann sagði við-
skiptavildina lækka um 1,3 milljarða
króna og afskriftir félagsins lækk-
uðu með þessu um 70 milljónir
króna á ári. Jón lýsti ánægju sinni
með fjárfestinguna í Arcadia. „Þeg-
ar við byrjuðum að kaupa í Arcadia
var gengið á bréfunum um 40 pens.
Í dag, aðeins sjö mánuðum seinna,
er gengið komið upp undir þrjú
pund.“
Eigið fé samstæðu 15 milljarðar
Baugur áætlar að niðurstaða
efnahagsreiknings samstæðunnar
verði um 35 milljarðar króna í lok
ársins. Þá er gert ráð að eigið fé
samstæðunnar verði um 15 milljarð-
ar króna. Eins og áður hefur komið
fram er áætlað að hagnaður Baugs á
hvern hlut aukist um 45% á milli
ára, úr 48 aurum í 70 aura.
Baugur tók við rekstri Bill’s Doll-
ar Stores í Bandaríkjunum 19. apríl
og sagði Jón Ásgeir að vinna við
sameiningu Bonus Dollar Stores og
Bill’s Dollar Stores í eitt félag sé
þegar hafin, undir nafninu Bonus
Stores. Báðar keðjurnar verða þó
áfram reknar undir sömu nöfnum.
Að sögn Jóns Ásgeirs verður sam-
einað félag fimmta stærsta dollara-
keðja í Bandaríkjunum. Hann sagði
mikinn vöxt vera á þessum markaði
en Baugur kæmi næstu 12 mánuði
til með að einbeita sér að því að snúa
rekstrinum við og sameina félögin.
Áætluð velta Bonus Stores á
þessu ári er 300 milljónir dollara og
380 milljónir dollara árið á eftir.
Áætlaður efnahagsreikningur sam-
einaðs félags í lok mars 2002 er 80
milljónir og eigið fé er áætlað að
verði 50 milljónir dollara.
Styrkir efnahag Baugs verulegaFRAM kemur í tilkynningu Hag-
stofu Íslands að samræmd vísitala
neysluverðs í EES-ríkjum var
108,8 stig í apríl síðastliðnum
(1996=100). Vísitalan hækkaði um
0,5% frá mars. Á sama tíma hækk-
aði vísitalan fyrir Ísland um 1,2%.
Frá apríl 2000 til apríl á þessu ári
hækkaði vísitalan um 2,6% að með-
altali í ríkjum EES. Verðbólgan
var minni í ríkjum utan evrusvæð-
isins en þar var verðbólgan 2,9%.
Helsta ástæða minni verðbólgu ut-
an evrulandanna er afar lág verð-
bólga í Bretlandi eða einungis
1,1%. Verðbólgan er metin með til-
liti til þjóðarframleiðslu þannig að
stærstu hagkerfin hafa mesta
vægið í vísitölunni.
Mesta verðbólgan frá apríl 2000
til apríl 2001 var 5,3% í Hollandi.
Verðbólgan á Íslandi var 4,4% og í
Noregi 3,0% á sama tímabili.
Neysluverðs-
vísitala
EES-svæð-
isins hækkar
um 0,5%